Saga listar í vagn smíði 1 kafli

0 Comments


Flytja varð lík hans frá Babýlon til Alexandríu í Egyptalandi. Sú vegalengd voru nokkur hundruð kílómetrar. Líkvagninn hefur ef til vill aldrei verið nógu merkilegur til að minnast á í annálum vagnasmíðinnar . Hann var búinn til á tveim árum og var hannaður af hinum kunna arkitekt og verkfræðingi, Híerónýmusi. Hann var 18 metra langur og 12 metra breiður, á fjórum gríðarstórum hjólum og dreginn af sextíu og fjórum múldýrum. Útfararvagninn var samsettur úr palli og háu þaki, og átján súlur voru undir því. Hann var prýddur gulli og skartgripum. Gullbjöllur voru í þakbrúninni allan hringinn. Fyrir miðjunni var hásæti og fyrir framan kista Alexanders mikla. Kringum um kistuna voru vopn og brynja Alexanders. Þessi vagn var stór og sagnfræðingar hafa lýst honum, og ýmsum áætlunum sem voru um útlit hans. Sjá má í verkum Ginsrots á fornum vögnum í bókasafni British Museum, meðal annarra lýsinga.

Mynd af útfararvagni Alexanders mikla eftir lýsingu Diodorus Siculus . Heimild Wikipedia

Annað tímabilið í sögu hestvagna hefst með innrás Rómverja í Belgíu og Bretland. Bretar til forna höfðu notað vagna til hernaðarnota sem var greinilega nýjar fréttir fyrir Rómverja. Hestvagnar Breta og Belga höfðu hærri hjól og var farið upp í að framan, ekki að aftan, eins og rómversku vagnanna. Dráttarstöngin (tungan) stefndi upp að hálsi hestanna hjá Rómverjum. Stefndi lárétt milli hestanna var svo breið að Kúskurinn gat gengið eftir henni. Ef Kúskurinn gat hlaupið fram eftir tungunni og stökk fram fyrir hestanna Breta og Belgíu megin. Vagnarnir voru stærri en rómverskur vagnarnir. Sæti voru líka um boð. Rómverjum þótti þetta sérkennilegt. Stundum voru þessir vagnar búinn tréútskurði sem stóðu út úr nöfum hjólanna. Gaulverjar og Belgar notuðu vafalaust svipaða vagna. Bresku vagnarnir ,,Út að borða” [vagnar með sæti fengu þetta uppnefni frá Rómverjum sem fannst sérkennilegt] voru bestir. Cicero sem skrifar vini sínum í Bretlandi segir: „Fátt er þess virði að flytja það burt frá Bretlandi nema vagnanna en hann óskaði þess af vini sínum að hann færði honum einn til minja.“

Ensku stríðsvagnarnir opnir að framan öfugt við þá Rómversku
Cisium. Setið í vagninum. Essendum úr latínu. Gæti útlagst í dag sem Sedan.

Þegar Rómverjar tóku Cassíbelaus til fanga tóku þeir líka sex hundruð hestvagna og fjögur þúsund Kúska (essedarii) og hermenn. Ég held að við megum líta á þessa vagna sem grunninn að þróun vagna Rómverja á síðari tímum. Þessi nafngift hreif Rómverja, ,,Essedum”. (Komið frá Rómverjum. Þýðir líklega að sitja við eða að sitja við borð. Kannski þýðir það að borða. Úr latínu að öllum líkindum).

Fjögra hjóla Cisium.

Fjögra hjóla vagninn, lægri hjól framan en hærri aftan, kallaðir ,,cisium” varð aðal ökutækið, hraðskreiðustu vagnarnir á opinberum vegum. Hvort heldur sem var á Ítalíu eða á hernaðarvegunum sem áður höfðu verið lagðir inn í Frakkland, Spán eða Þýskaland. Póstsendingar og bréf voru send með hraði og stundvísi til hinna fjarlægari hluta Rómaveldis. Sagnfræðingurinn Svenótínus nefnir að Ágústus keisari hafi sent unga menn, á sínum valdatíma á her vögnum með boð til héraðs stjóranna. Auk þessara hrað flutninga eftir opinberu vegunum var notaður vagninn hægfara vagn (rheda) dreginn af sex eða átta

Fjögra hjóla Cisium dregin af múldýrum

múldýrum. Hús voru byggð við aðalgötuna þar sem hægt var að leigja þessa tvær gerðir vagna. Cicero lýsir yfir að boð hafi verið send fimmtíu og sex mílna leið í ,,Cisium” sem tók tíu klukkustundum. Á stöpli í Ingel, skammt frá Treves, er minnisvarði tveggja manna sem sitja í ,,Cisium” með einum hesti. Farartækið er mjög líkt og Enskur vagn þekktur sem Gig.

Enskur Gig líkist Cisium frá tímum Rómverja

Í stjórnartíð keisaranna í Róm fjölgaði farartækjum á hjólum, af ýmsum gerðum. En sökum þess hve óskýrt og ógreinilega höfundar þess tíma tala um þau er erfitt að setja inn nákvæmar lýsingar á þeim. Hjólin stækkuðu að ummáli. Í höfuðborg Rómar er keisarinn Marcus Árelíus keisari í hestvagni sem á að tákna sigurför en hjólin eru jafnhá baki hestanna. Sir William Gell nefnir í Pompei til forna í verki sínu að þrjú hjól hafi verið grafin úr rústunum árið 79 þegar hann vann að því að reisa borgina Pompeii sem fórst árið 79. Hann nefnir að þrjú hjól hafi verið grafin úr rústunum á hans dögum—mjög líkt okkar tíma

hjólunum — lítið eitt diskuð og 4 fet og þriggja tommu að ummáli, með tíu pílárum, þykkari í hvorn enda en í miðju. Sir W. Gell sýnir einnig málverk af vagni sem notuð er til vín flutninga í risastórum leðurbelg. Á fjögra hjóla vagni með boga í miðjunni (undirhlaup) fyrir framhjólið til að ganga undir í kröppum beygjum. Dráttarpósturinn (tungan) virðist á málverkinu, enda í nokkurs konar forki og tengjast öxul festingunum í endann sem festist í vagninn. Eftir því sem auður Rómverja jókst, sóttust þeir eftir að nota þægilega og vel skreytta vagna. Um árabil voru í gildi svokölluð „neyslu lög“ sem settu reglur um klæðnað, húsgögn og skraut sérhvers borgara, í samræmi við stöðu hans og áhrif. Lögnin settu einnig ákvæði um hvernig skreyta skyldi hestvagna í einkaeigu.