Hansom leiguvagninn er hannaður og prófaður hjá Hinckley sem fékk líka einkaleyfi fyrir honum 1834 af Joseph Hansom, arkitekt frá York.
Þessi Hansom stundaði þróun vagnsins í Hincley, í Leicesterskíri á Englandi.
Upphaflega var vagninn kallaður Hansom öruggi taxinn.
Hann var hannaður með hraða og öryggi í huga, lágur þyngdarpunktur svo hann væri öruggari í beygjum og fyrir horn og jafnvægi milli hests og vagns.
Hansom orginal hönnunin var endurbætt af John Chapman verkfræðing (1801-1854) en vagninn hélt þó nafni fyrsta skapara síns.
Þróun heitisins leiguvagn
Enska orðið Cab er stytting af Cabriolet sem endurspeglar hönnun vagnsins.
Hann tók við af Hackney Carriage og þróaðist svo í farartæki til leigu með tilkomu taxa-mælirs sem mældi ferðirnar.
Sú breyting varð svo enn aftur fyrir breytingu og varð taxicab leiguvagn/bifreið.
Útbreiðsla
Hansom-leiguvagnarnir nutu vaxandi vinsælda vegna hversu fljótir þeir voru í förum og nógu léttir til að vera dregnir af einum hesti sem gerði túrinn ódýrari en á fjögurra hjóla vagni.
Hansom ók auðveldlega í gegnum umferðarteppur hestvagna nítjándu aldar.
Þegar Hansom var sem vinsælastur voru um 7.500 eintök í notkun og vinsældir þeirra dreifðu sér um borgir og bæi Stóra-Bretlands og líka til Írlands, Dublinar t.d. einnig um Evrópu, sérstaklega til Parísar, Berlínar og St. Pétursborgar.
Svo voru Hansom-vagnarnir líka kynntir í USA á nítjándu öld en enduðu á að vera vinsælastir í New York City.
Hönnunin
Leiguvagn sem var kallaður flugan the fly, rúmaði tvo farþega (þrjá ef troðið var) og kúskurinn (vagnstjórinn) sat í fjaðrandi sæti aftan á farartækinu.
Farþegarnir gátu kallað skipanir til kúsksins gegnum lúgu á þakinu aftanverðu; svo gátu þeir borgað fargjaldið líka í gegnum sömu lúgu, sem svo læsti hurðum framan á vagninum með útbúnaði.
Á sumum Hansom-vögnunum gátu kúskarnir stjórnað með sérstökum búnaði jafnvægi vagnsins til að minnka álag á hestana.
Farþegarnir voru náttúrulega í skjóli gagnvart veðrum og vindi í vagnhúsinu, en fætur ásamt fötum gátu verið varir gegn drulluskvettum með litlum hliðarfeldum hurðum sem gáfu þeim skjól.
Seinni útgáfur Hansom-vagnanna voru útbúnar með gluggum ofarlega og yfir dyrunum.
Svo var bretti/hlíf (Dashboard) til varnar farþegunum vegna grjótkasts frá hófum hestanna.
Heimsfrægur á Íslandi
Við Íslendingar þekkjum vel útlit þessara farartækja eftir að við kynntumst Sherlock Holmes á skjánum.
Hann og Watson eru stöðugt á ferð og flugi í Hansom-hestvagni um London og allar trissur á því svæði í frægum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, þannig að þessi vagn varð á meðal frægustu hestvagna heims, held ég að megi fullyrða með nokkru öryggi.
Heimildir: https://en.wikipedia.org/wiki/Hansom_cab
Tók saman og þýddi: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur/Próförk: malfridur.is




