Rockaway með útskiptanlegu Kúsksæti. Engin lýsing fylgir vagninum í bæklingnum. Vagninn er með uppstig og aftur dreginn topp. Aftan á yfirbyggingunni er strengur með dúsk á endanum. Toga skal í til að draga toppinn aftur. Lampar eru til staðar og svo er Rockaway skreyttur á hurðum eða boðið upp á skjaldarmerki. Báðum megin aftarlega er gluggi sem er sporöskulaga og gefur vagninum sérstakt útlit. Vagninn er hengdur á þver fjöðrun aftan og tvær fjaðrir langsum að framan. Undir vagninum er slá á milli öxlanna sem kölluð er karfa og málvenja að segja vagninn byggðan á körfu. Sarven nöf eru til staðar. Aðaleinkenni Rockaway er að þakið er látið ná fram yfir kúskinn en í þessu tilfelli nær það aðeins yfir aftar kúsksætið. Gardínur eru til staðar. Fallegar bogalínur eru í gólfi yfirbyggingarinnar sem gefa vagninum fallegri blæ. Undirhlaup er fyrir framhjólin til að geta beygt krappar.Lítið Hammerklæði prýðir líka Kúsksætið. Engar bremsur.
Sápur og heimilisvörur! Myndin er sennilega af August Schjelderup Isaacson, af J. R. Watkins fyrirtækissölumanni. Suður-Dakota, sirka 1910. Heimild: Tom[...]