Unglingurinn Paul Nadar (1856-1939), sonur hins fræga franska ljósmyndara Felix Nadar, situr á reyðhjólinu (beinahristir)1 sínu um miðjan sjöunda áratug 19. aldar.
Myndin er fengin með leyfi frá Þjóðarbókhlöðu Frakklands.
Ef þú heldur áfram að fletta í gegnum nokkrar myndir í viðbót kemstu að Felix Nadar, frægum frumkvöðli í ljósmyndun og loftbelgsfara frá París… þetta er sonur hans.
Það er líka til mynd frá 1856/57 af Paul á brjósti móður sinnar eða fóstru, tekin þegar hann var ungbarn.
Frásögn: The Daguerreian Dandy.
Breinahristir voru þessi farartæki kölluð af samtímafólki (Bone Shaker) ↩︎
Samkvæmt stöðu evrunnar í dag er verðið Íslenskar krónur: 1.655,6000 sem er bara á góðu róli.
Einkar snyrtilegur vagn, lítur út fyrir að hafa fengið góða umhirðu þótt hann sé notaður.
Hvergi er minnst á ártal smíði vagnsins og lítið væri faglegt að giska. Vagninn er augnayndi.
Sætin eru vel haldin, vel formuð og heilbrigð að sjá. Hefðbundin armhvíla í formi járnhandriðs.
Wagonette er að öllu jöfnu með sætum til beggja hliða aftan við framsætið og farþegar sitja því auglitis til auglitis. Þessi sæti líta út fyrir að vera vel með farinn og heilbrigð miðað við að eitthvað sé notuð.
Heimild: Jose Manuel Lopez Atienza, í hópnum Carruajes antiguos Compraventas Facebook
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
og tilkoma leigubílsins markaði verulega breytingu í borgarsamgöngum.
Hinn táknræni guli leigubíll sem við þekkjum í dag átti enn eftir að koma á fót en hestdregnu leiguvagnarnir og fyrstu vélknúnu farartækin voru farin að ráða yfir götunum.
Þessi umbreyting endurspeglaði öran vöxt borgarinnar og aukna eftirspurn eftir hagkvæmum samgöngumöguleikum þar sem íbúafjöldi hennar jókst og iðandi borgarumhverfi þróaðist.
Leigubílainnréttingar frá 1905 voru oft með áberandi hönnun, með rúmgóðri til að hýsa farþega og eigur þeirra.
Þessir fyrstu leigubílar voru venjulega málaðir í líflegum litum, skreyttir koparfestingum og tjaldhimnum til að verja farþega frá veðuröflunum.
Farartækin voru tákn framfara og veittu New York-búum nýfengið frelsi til að ferðast auðveldara um borgina.
Þessi samgöngumáti varð samheiti við hraðskreiðan lífsstíl borgarbúa, sem gerði þeim kleift að fara yfir fjölfarnar leiðir borgarinnar og falin húsasund.
Þegar leigubíllinn náði vinsældum varð hann nauðsynlegur þáttur í sjálfsmynd New York borgar.
Um 1910 myndu nýjungar í bílatækni og uppgangur leigubílafyrirtækja umbylta samgöngum í þéttbýli enn frekar.
Guli leigubíllinn, sem er undirstaða landslags borgarinnar, myndi brátt koma fram og treysta stöðu leigubílsins sem helgimyndatákn New York.
Þessi þróun mótaði ekki aðeins hvernig New York-búar hreyfðu sig heldur setti einnig grunninn að hinu flókna og kraftmikla samgöngukerfi sem er í borginni í dag.
3. september 1758 stóð José I konungur frammi fyrir dramatískasta augnabliki stjórnartíðar sinnar.
Þegar hann var á ferð eftir annarri götunni í útjaðri Lissabon, eftir meintan fund með Teresu de Távora og Lorena, var ráðist á vagninn hans (sege) á hrottalegan hátt af þremur vopnuðum skúrkum, sem skutu á farþegana.
Þrátt fyrir alvarleika árásarinnar hlaut konungurinn aðeins áverka á handlegg og kúskurinn, alvarlega slasaður, tókst að aka konungi aftur til Ajuda á öruggan hátt.
Það var aldrei sannað að atlagan væri sérstaklega árás á konunginn.
Þegar þú heimsækir MNCoches geturðu fundið vagn svipað þeim sem flutti konunginn.
Þessi tiltekni vagn virðist vera með „gleraugu“ að framan, þess vegna heitir það… Komdu og sjáðu það!
Yfirskrift: Fyrri myndin er endurgerð á allegórískri teikningu sem sýnir meinta árás á D. José I, eftir Francisco Vieira de Matos (1699-1783), í Lissabon-safninu.
Önnur myndin sýnir ‘Sege dos Oculos’1, til sýnis í samgöngusafni Portúgal, svipað vagninum sem var með konunginn um borð aðfaranótt 3. september.
Teikning Francisco Vieira de Matos (1699-1783), í Lissabon-safninu af atvikinu!
Svipaður vagn og konungurinn var farþegi í við árásina!
Fylgdu augunum: Ef þýtt er beint yfir á ensku ,,Follow the Eyes”. ↩︎
,,Royal Alert Edward Wigan.” Stendur á skjaldar -skiltinu efst á yfirbyggingunni. Svo það mætti komast að þeirri niðurstöðu að vagninn sé á vegum kóngsins af Englandi.
Vagninn virðist vandaður og snyrtilegur í frágangi.
Lítið meira er hægt að segja því ekki fylgja meiri upplýsingar með aðrar en að myndin er tekin 1889.
Heimild: The Antique Carriage Collectors Club Facebook
Park Drag. Upprunninn í Englandi. Smíðaður af Brewster & Co. í New York. Raðnúmer 19786. Teikning númer 4207. Þessi vagn var upphaflega seldur J.H. Shults of NY árið 1893. Mr. Shults rak eitt stærsta bakaríið í Brooklyn að nafni John H. Shults Bakery Co. Vagninn var keyptur af Robinson-fjölskyldunni í Pennsylvaníu á uppboði og fór í uppgerð. Hann var endurmálaður í upprunalegum litum eins og upprunalega teikningin segir. Innréttingunni frá Brewster var haldið upprunalegri. Póstvagninn er seldur með lömpum, fimm dráttarjafnvægisbitum, dráttarþverbita, dragskóm, regnhlífarkörfu, uppstigs úr innan við hjól, samsettri svipu og fótbrettislampa framan. Hliðarljósin, stöngin og dragskórinn hafa fylgt vagninum frá upphafi. Vagninn var byggður á teikningu númer 4207 (er neðarlega á bls.) og ég hef hengt við mynd af þeirri teikningu sem er á skrá hjá Metropolitan Museum of Art í NYC. Carriage Journal til að fá grein eftir Merri Ferrell um teikningu númer 4207 og fleiri framúrskarandi verk, sem hefur verið fest aðeins nokkrum sinnum síðan það var endurreist. Til sölu og verðs sé þess óskað.
Fallegra handverk og smíði sér maður varla lengur!
Glæsilega bólstraður að innan með „Gimsteinamynstrinu“.
Töluvert ílagt í innréttingunni.
Úr eða klukku uppstigi fyrir innan hjólið (toeborde wach and case)
Á teikningunni má sjá: Keðju (drag shoe) sem hangir undir vagninum, látin dragast á eftir vagninum niður brekkur til að halda á móti undanhaldinu. Þaðan kemur líklega nafnið á vagninum „Drag“.
Pöntunarseðillinn fyrir farartækið með fylgihlutum.
Alþýðuvagn smíðaður í Noregi milli 1850–1925. Líkist vagninum hans Emils í Kattholti.
Ekki er til heimild fyrir árgerð þessa eintaks sem alþýðuvagn eða heimilisvagn er smíðaður.
Aldurinn er einhvers staðar á bilinu 99 til 174 ára.
Voru vagnarnir smíðaðir í Noregi á því tímabili? Það er það sem til er um hann: Kjökkenvogn eða eldhúsvagn frá Grimstad.
Heimildin sem fyrri eigandi fræddi mig um. Til Íslands kom hann með Herjólfi sem kom frá Noregi úr slipp 1996.
Heillegur og tilbúinn í dekrið sem mér vonandi veitist að fá að fást við.
Ekki hefur þótt ástæða til að „eyða“ í bremsur eða önnur þægindi fyrir alþýðuna.
Holt fyrir okkur að sjá fyrir okkur ferðalög á þennan máta.
Takið eftir hvernig hjólbarðinn er samsettur.
Festur saman! Járnvinnan á bekkjaburðarvirkinu er í senn einföld, snjöll og langt umfram amerísku útfærsluna sem er seinleg og flókin í smíði en samt falleg að mínu mati.
Sjást vel á aftara sætinu, armhvílunni og nabbinu sem heldur yfirbreiðslunni fyrir farþega en oftar en ekki var yfirbreiðslan kindagæra.
Blessuð jólin koma einu sinni á ári. Skreytum þennan aldursforseta, vagninum og skapara hans til heiðurs.
Járnverkið er bara með ágætum í eldhúsvagninum. Það verður gaman að sandblása og breyta til hins betra.
Myndir af svipuðum eða eins vagni í Noregi
Sést vel hvernig undirhlaupið kemur upp úr gólfinu.
Svo eru dráttarkjálkarnir tengdir beint inn á fimmta hjólið í stað þess að á mínum vagni sé tengt í fjaðrirnar að framan.
Til sölu: Ásett verð Ísl kr. 242.000 — (2023)
Í Noregi er svipað loftslag og á Íslandi og því er gamla góða gæran velkomin þegar kalt er.
Sérstakir nabbar eða pinnar eru á armhvílunum á sætunum til að krækja gærunni á svo hún haldist á sínum stað.
Vagn með svipaðri hönnun og yfirbragði er næstum alveg eins.
Þar eru meira að segja bólstraðir bekkir, bara sófi.
Undantekningin er undirhlaupið fyrir framhjólin í beygju, framhjólin því stærri.
Vagnasmiður í Noregi sem heitir/hét Omnia er skrifaður af þessum og fleirum. Er skapari norska vagnsins fundinn?
Fortíðin er heillandi að mér finnst.
Fátæktin var líka mikil.
Ég gæti hugsað mér heim án fátæktar en að öðru leyti eins og á sautjándu, átjándu og nítjándu öldinni, án fátæktar en með allsnægtum án spillingar jarðarinnar okkar.
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Rockaway kvart pláss auka. Engin lýsing í sölubæklingnum. Sporöskjulaga gluggar báðum megin aftarlega á yfirbyggingunni. Aftur draganlegur toppur. Toga skal í steng með dúskinn á endanum, til að draga toppinn aftur. S- laga járn sem áður voru hné til að opna toppa eru notuð sem ornament . Lampar, hlíf framan (dash), fagurlega skreytt uppstig. Vagninn byggður á körfu (perk). Fjaðrabúnaðurinn er langsum að framan tvær fjaðrir en þversum að aftan ein fjöður. Sarven nöf. Útskurður er ekki mikill en samt sjáanlegur. Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Rockaway með útskiptanlegu Kúsksæti. Engin lýsing fylgir vagninum í bæklingnum. Vagninn er með uppstig og aftur dreginn topp. Aftan á yfirbyggingunni er strengur með dúsk á endanum. Toga skal í til að draga toppinn aftur. Lampar eru til staðar og svo er Rockaway skreyttur á hurðum eða boðið upp á skjaldarmerki. Báðum megin aftarlega er gluggi sem er sporöskulaga og gefur vagninum sérstakt útlit. Vagninn er hengdur á þver fjöðrun aftan og tvær fjaðrir langsum að framan. Undir vagninum er slá á milli öxlanna sem kölluð er karfa og málvenja að segja vagninn byggðan á körfu. Sarven nöf eru til staðar. Aðaleinkenni Rockaway er að þakið er látið ná fram yfir kúskinn en í þessu tilfelli nær það aðeins yfir aftar kúsksætið. Gardínur eru til staðar. Fallegar bogalínur eru í gólfi yfirbyggingarinnar sem gefa vagninum fallegri blæ. Undirhlaup er fyrir framhjólin til að geta beygt krappar.Lítið Hammerklæði prýðir líka Kúsksætið. Engar bremsur.
Langferðavagntil leigu. Er vandaður að sjá og hefur líklega verið það. Vagninn er byggður á körfu. Það er bogadregna sláin undir yfirbyggingunni milli öxla. Afturdraganlegur toppur. Sjá streng efst aftan á yfirbyggingunni. Hlíf er að framan ljósker eru og töluvert af skrauti og útskurði. S-skraut á aftari hliðum ofarlega eða ornament. Vagninn er búinn Sarven nöfum sem voru nýjung á þessum tíma. Virðist vera mjög vandaður vagn hér á ferð, Listaverk. Bremsur ekki sjáanlegar.
Léttur Coupe. Engin lýsing er við vagninn í auglýsingunni. En samt sjáum við að vagninn er mikið skreyttur og útskorinn og töluvert lagt í hann. Afturdraganlegur toppur sjá streng aftast á yfirbyggunni. Yfirbyggingin er bogadregin að neðan uppstig, ljósker, hlíf (dash) framan, byggður á körfu Perk sem er beygða járnstöngin milli öxlanna. Svo er S laga skraut (ornament) á aftari hluta efri hliða. Bremsur eru ekki sjáanlegar. Vagninn er búinn nýjunginni sem var um þriggja ára þarna eða Sarven nöfum. Listaverk er eins orðið sem manni kemur í hug. Vagninn er á þver fjöðrum að framan og aftan. Langsum fjaðrir urðu ofan á í hönnun síðar.
Lawernce vagninn er af yfirgerðinni Brett afar flott hönnun. Við sjáum uppstig, lampa og skreytt járnverk. Fjaðrirnar eru langsum með yfirbyggingunni og greinilega fellanlegur stór toppur á vagninum sem gefur honum flott útlit. Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Fjölskyldu vagninn er ekki með neina textalýsingu í sölubæklingnum. Skrýtið þar sem þessi vagn er algör listasmíð. Við sjáum að hann er ríkulega útskorinn fyrir ofan glugga og verulega mikið í það lagt ásamt skrauti. Uppstingin er meira að segja úr fallegu smíðajárni með blóma eða laufamynstri, sennilega er allt járn rafhúðað. Aftur draganlegur toppur til opnunar. Sjá streng efst aftast á yfirbyggingunni. Járnboginn S -laga á hliðunum en ekki möguleiki á opnun. Verulega sterkbyggður vagn. Bremsur ekki sjáanlegar. Lamparnir eru ríkulegir og sóma sér vel þar sem þeir eru staðsettir, hreint listaverk allt saman. Svo er vagninn byggður á körfu (Peark) járnsláin sem sést á milli hásinganna sem tók af vagnaskröltið og gaf vagninum líka stöðugleika. Tók af hliðarhreyfinguna. Vagninn skartar líka Sarven nöfum sem voru ný uppfinning!
Milord til sölu í Póllandi. Engar upplýsingar en samt heillegur gripur og vel uppgeranlegur!
Milord vagninn er heillegur og vel hægt að reisa hann til fyrri glæsileika. Hann er smíðaður í Svíþjóð enda segir áritunin það á hjólkoppunum. Það er ekki að sjá að lampar hafi verið á vagninum en það er samt ekki öruggt þótt ekkert sjáist svo sem festingar.
Upphaflega vandað hood/skermur á Milordinum enda Sænsk gæðasmíði.
Járnverkið er hið vandaðasta í upphafi og vel uppgeranlegt.
Litla hurðin hérna neðst til hægri gerir sitt fyrir útlitið.
Hjólkoppa áritunin segir að vagninn sé smíðaður í Svíþjóð enda er það örugglega rétt.
Carbriolet með fullvaxna toppnum hefur enga textalýsingu í sölubæklingnum. Við sjáum á myndinni að hann er með uppstig, hlíf framan, sæti fyrir fjórar manneskjur og svo er hann byggður á körfu stöngin sem er neðst undir vagninum. Ég tel fullvíst að vagninn sé á Sarven nöfum þótt teikningin sé ónákvæm með það. Engar bremsur eru sjáanlegar. Þessir vagnar er á þver fjöðrum að framan og aftan. Langsum fjaðrir urðu svo ofan á í hönnun síðar.
Brett er mjög sjaldgæfur og hreint ævintýri að finna þá gerð hvar sem er í heiminum!
Teikning frá nítjándu öld af Brett svona til hliðsjónar myndunum hér fyrir neðan.Mikil vinna ef taka á þennan sjaldgæfa grip til endurbóta. En það væri samt verðugt verkefni. Fundinn sennilega nýlega í hlöðu eða úti húsi. Þetta hefði ég haldið að væri mjög sjaldgæfur vagn í nútímanum en það var töluvert mikið af þeim á Vagna öldum. Brett mun þessi gerð heita ef mér skjöplast ekki. Líklega er hann dýr í innkaupi í núverandi mynd en samt betra að kaupa hann en smíða samkvæmt íslensku verðlagi. Vinnan of dýr. Til Samanburðar er gömul teikning frá nítjándu öld af Brett hestvagni. Þeir voru stórir sport vagnar fyrir þá ríku á vagna öldum. Hér er um dýrgrip að ræða!Hér þarf nýtt húdd! Aurbrettin eru á sínum stað.Vandaður fjaðrabúnaður sem þarf að hreinsa og mála til fyrra útlits!Hjólkopparnir hafa áletrun skapara síns trúlega en það var venjan!Allt járnverk er vandað í upphafi sem auðveldar að hreinsa það og koma í fyrra horf!Buneos Aires og heiti smiðsins!Vandað og aftur vandað!Það sem eftir er af þessari bólstrun sýnir að vandaður hugur og hönd hefur verið lögð í verkið!Armhvíla, uppstig og festingar fyrir lampa. Yfirbyggingin er frekar löng og töluvert í hana lagt bæði í vinnu og efni!Undirhlaup fyrir framhjólasamstæðuna, litlar og sætar hurðar og vönduð uppstig smíðuð eins og rist svo skíturinn falli til jarðar þegar skafið var af botni skóbúnaði. Veitti ekki af því fyrir 150 árum var mikið um drullu á vegum og strætum.