Category: Pólland

Caleche hestvagninn nýr frá Mendyka í Póllandi, hágæðasmíðiCaleche hestvagninn nýr frá Mendyka í Póllandi, hágæðasmíði

0 Comments

Mendyka hestvagnar

Klassík, glæsileiki og handverk þegar það gerist best!

Sjáðu árangurinn af vinnu okkar á myndunum.

Við kynnum nýjasta verkefnið okkar – Caleche-hestvagn sem sameinar tímalausan stíl og nákvæma útfærslu.

Yfirbyggingin er tvílit – svört og dökk vínrauð – og skreytt með gylltum og rauðum smáatriðum sem leggja áherslu á fínlegar línur vagnsins.

Að innan er vagninn klæddur vínrauðu áklæði með gylltum útsaumi með blómamynstri sem skapar samræmt og fágað rými fyrir ferðalanga.

Sérhver hluti hefur verið hannaður og smíðaður af ástríðu – allt frá viðarsmáatriðum til handunninna efna – svo að vagninn heilli ekki aðeins með útliti sínu heldur einnig með sál hefðbundins handverks.

Ef þig dreymir um sérsmíðaðan vagn eða vilt endurvekja glæsileika sögulegs farartækis – Mendyka Mastercraft mun láta sýn þína rætast með fyllstu athygli á smáatriðum.

Lífgum saman við hefðina okkar.



Heimildir: Carriages – Mendyka and Facebook Mendyka • Powozy • Kutschen • Carriages’s post

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Cutter í Pólandi körfu með sjarmörCutter í Pólandi körfu með sjarmör

0 Comments

Til sölu á vegum kunningja míns í Póllandi!

Myndband um Cuttersleða neðst!

Uppfært 17. April 2026.

Cutterinn er frá því um 1900 og ekki uppgerður.

Hann er bara vel með farinn og vel varðveittur.

Hafið þið nokkuð tekið eftir tveimur litlum „húdd“ ornimentum efst á fóthlífinni?

Slík ornament eru/voru algeng, sérstaklega á Cutter.

Það þarf að stilla luktirnar en þær vísa svolítið hvor í sína áttina.

Sjáið litla sætið (eins og stórt reiðhjólasæti) aftast.

Var samt algengt aftan á sleðum yfirleitt.

Á þessari mynd sjáum við líka bremsuna, handfang í fjærhliðinni með tréhnúð á endanum eins og grístöng/handstöng og bogadregið járnið niður úr botninum beggja megin.

Mjög sérstakur framsvipur en samt þægilegur.

Járnverkið er bara snyrtilegt og ágætlega unnið.

Vel bólstrað sæti með armhvílum og púðum á armhvílunum og liturinn er passandi.


Núverandi eigandi þegar þetta er skrifað 23.09.2025: Maciej Musiał

Myndband

Lýsing og frásögn um Cutter sleða hjá Northwest Carriage Museum USA.
Albany Cutter Vis-a-Vis er sleði sem var hannaður af James Gould og smíðaður af Goddard Carriage Co. í Boston, Massachusetts.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Uppruni hinna fornu hjóla rakinn á byltingakenndan háttUppruni hinna fornu hjóla rakinn á byltingakenndan hátt

0 Comments

Höfundur: Wu Mingren (‘Dhwty’) Greinin var uppfærð 2014. Höfundur er með BA-gráðu í fornaldarsögu og fornleifafræði.


Í heimi nútímans þróast tæknin á áður óþekktum hraða.

Nýjasta tækið í dag er forngripur morgundagsins.

Vegna þessarar hröðu tækniþróunar tökum við oft hlutunum sem sjálfsögðum.

Eitt af því er hjólið.

Líttu í kringum þig og þú munt sjá hjól alls staðar, hvort sem er í formi dekkja eða í hversdagslegum vélbúnaði.

Hjólið hefur meira að segja fengið táknræna merkingu, og er ef til vill frægast sem myndlíking fyrir endalausa hringrás lífsins.

Uppfinningin hjólið og ferðalagið til siðmenningar!

Áhrif á fyrstu siðmenningarsamfélögin

Það kann að virðast freistandi að hugsa að hjólið sé aðeins lítilfjörleg eða jafnvel frumstæð uppfinning í samanburði við sumar af þeim flottu græjum sem við höfum í dag.

Engu að síður var hjólið sem farartæki í raun fundið upp seint á tímalínu í sögu mannkyns.

Elsta þekkta hjólið sem fundist hefur við fornleifauppgröft er frá Mesópótamíu og er talið vera frá um 3500 f.Kr.

Þetta tímabil var þekkt sem bronsöld sem er tiltölulega seinn kafli í þróunarsögu mannlegrar siðmenningar.

Á þessum tíma voru menn þegar farnir að rækta nytjaplöntur, halda húsdýr og höfðu einhvers konar stigveldi í samfélaginu.

Mynd af vagni dregnum af villiasna á súmerska „orrustufána Úr“.

Ein af ástæðunum fyrir því að hjólið var ekki fundið upp fyrr en á þessum tímapunkti sögunnar er sú að það þurfti málmverkfæri til að tálga nákvæm göt og ása.

Þetta leiðir okkur að næstu ástæðu – hjólið var ekki bara sívalningur sem valt á röndinni.

Það var sívalningur sem var tengdur við stöðugan, kyrrstæðan pall.

Þessi hugmynd um hjól og ás var snilldarleg en það var áskorun að smíða slíkan búnað.

Endar ássins, sem og götin í miðju hjólanna, þurftu að vera næstum fullkomlega slétt og kringlótt.

Ef það tækist ekki yrði of mikill núningur á milli þessara hluta og hjólið myndi ekki snúast.

Þrátt fyrir að ásinn þyrfti að passa þétt í götin á hjólunum þurfti hann að hafa nægilegt pláss til að þau gætu snúist frjálslega.

Í grein okkar á Ancient Origins sýnum við hvernig ásinn á stríðsvagni frá járnöld er fágætt dæmi um forna tækni.

Þar sem samsetning hjóls og öxuls er flókin kemur það kannski ekki á óvart að hjólið hafi ekki upphaflega verið fundið upp til nota í samgöngum.

Þess í stað hefur því verið haldið fram að hjól hafi fyrst verið notuð af leirkerasmiðum.

Manstu eftir 5.500 ára gömlu hjóli frá Mesópótamíu?

Svo virðist sem það hafi verið renniskífa (notkun hjóla við leirkerasmíði gæti jafnvel náð lengra aftur, eða allt til nýsteinaldar.

Notkun hjóla í samgöngum virðist ekki hafa hafist fyrr en 300 árum síðar.

Talið er að elstu hjólin hafi verið notuð við leirkeragerð.

Þótt elsta hjól heims hafi fundist í Mesópótamíu fundust elstu myndirnar af hjólförnum vagna í Póllandi og víðar á evrasísku sléttunum.

Sumir hafa haldið því fram að vegna þeirrar gríðarlegu áskorunar sem uppfinning hjólsins var fyrir mannkynið hafi hún líklega aðeins átt sér stað einu sinni og breiðst út frá upprunastað sínum til annarra heimshluta.

Aðrir telja þó að hún hafi þróast sjálfstætt á ólíkum stöðum í heiminum á svipuðum tíma.

Sem dæmi má nefna að Ljubljana-mýrarhjólið er tréhjól sem fannst í höfuðborg Slóveníu árið 2002 og var aldursgreint til 3150 f.Kr.

Sem stendur er talið að fæðingarstaður hjólsins sé annaðhvort í Mesópótamíu eða á evrasísku sléttunum.

Þetta hjól með öxli frá Mýrunum við Ljubljana er elsta viðarhjól sem fundist hefur og er frá koparöld (3130 f.Kr.) (Petar Milošević/CC BY-SA 4.0).

Þrátt fyrir að Mesópótamía státi af elsta þekkta hjólinu eru málfræðileg rök notuð til að styðja þá fullyrðingu að hjólið eigi uppruna sinn á evrasísku sléttunum.

Þótt hjólið hafi valdið byltingu í ferðalögum og vöruflutningum í árdaga mannkyns var það ekki fullkomin uppfinning.

Til dæmis voru úlfaldar mun skilvirkari ferðamáti í eyðimerkurumhverfi í samanburði við hjólið.

Því hefur einnig verið haldið fram að á tímabilinu frá 2. til 6. aldar hafi úlfaldinn leyst hjólið af hólmi sem aðalferðamáti í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Hjólið var þó enn notað til heimilisnota, svo sem við áveitur, mölun og leirkeragerð.

Þetta sýnir fjölbreytta notkun hjólsins og mikilvægi þess fyrir mannkynið.

Sennilega ættum við að breyta viðhorfi okkar til hjólsins og líta ekki á það sem einfalda uppfinningu „frumstæðs manns“.

Þess í stað ættum við að líta á það sem eitt af stóru afrekum mannlegs samfélags.


Heimild: https://www.ancient-origins.net/

Höfundur greinar: Wu Mingren (‘Dhwty’)

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Slökkviliðsvagn með dælu #3Slökkviliðsvagn með dælu #3

0 Comments

Uppfært 8. mars 2026.

Dæla um borð í slökkviliðsvagni til slökkvistarfa í Póllandi.

Smíðaár 1900.

Smíðaland Þýskaland og kostaði 1570 þýsk mörk árið 1900.

Vagninn er númer: 198 í katalog-bæklingnum frá verksmiðjunni.

Vatnspumpan er 120 mm sem sogar um borð vatn ásamt því að sprauta frá sér og er handkröftuð.


Sætin eru svo skápar í leiðinni.




Handfang fyrir dælingu um borð og sprautun á eldinn. Pláss fyrir fleiri en tvær dælupersónur.

Bremsusystemið er öflugt og lipurt.

Tromlan sem geymir slönguna.

Festing fyrir ljósker/lampa sem festist við sætið.

Skápar fyrir öll verkfæri sem þörf er á í útkalli.


Hér sogast vatnið um borð í geyminn.

Tengt efni!

Viðbragðstími hestvagnaslökkviliðs


Heimild: Paweł Gębura Póllandi.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Milord #2Milord #2

0 Comments

Milord til sölu í Póllandi. Engar upplýsingar en samt heillegur gripur og vel uppgeranlegur!








Wiklina Wasągu frá Póllandi#1Wiklina Wasągu frá Póllandi#1

0 Comments

Aðeins smíðaður í einu héraði í Póllandi, hvergi annars staðar á jörðu!

Ljósmyndir: Maciej Musiał frá Dobroń héraði í Póllandi. Maciej er líka heimildarmaður minn fyrir miklu af heimildunum sem fram koma um þennan vagn!


Wiklina na Wasągu. Við höldum okkur við frumnafnið enda heppilegast.

Maciej Musial og faðir hans smíðuðu þennan vagn saman en þeir reka hestvagnaleigu til skemmtiaksturs, brúðkaupaaksturs og alls þar á milli.

Hérna sjáum við ótrúlega hreinan ásetning í að bjarga sér við lítil efni.

Efnið er ekki meira en nauðsynlega þarf til að úr verði traustur vagn með nógan burð til daglegs brúks.


Sætin ofan úr stráum á járngrind, armhvílur úr járni, uppstig úr járni og bogakjálki til að styrkja burð vagnsins á afturhjólum.

Yfirbyggingin er úr harðviðargrind að innanverðu með tágum.

Hefðbundnar járngjarðir á hjólunum ásamt nafböndum.

Bátalag á yfirbyggingunni er líka sérstakt vegna þess að það er aðeins táknrænt fyrir þetta svæði/hérað í Póllandi, Dobroń.


Smurfeiti fatan hangir á sínum stað aftur undir vagninum.

Í árdaga hefur hún innihaldið jurta- eða dýrafitu til smurningar hjólanna og nýtist kannski enn?

550.000 ísl. kr. þarf að borga fyrir þennan grip. En svo vill til að ég veit að hann er seldur.


Harðviðargrind vagnsins sést vel á þessari mynd, með ívafi járnstyrkingar á afturhlið.

Þessi lausn í formi harðviðarbogans sem nær út fyrir hjólin og niður í nafið er þekkt í Austur-Evrópu og er snilldarbragð til að auka burð vagna.

Bátalagið á yfirbyggingunni er sérstakt fyrir þetta svæði/hérað en hefur engan annan tilgang en að vera nokkurs konar einkenni svæðisins.

Líklega er einn aðalburðarbiti fram eftir miðju vagnsins sem tengist á báða öxlana sem og tveir bitar hvor sínu megin við miðjubitann en þeir eru stuttir og ná ekki á milli öxla.

Járngrind ber uppi sætin sem ofin er með stráum. Þetta sést vel í enda járngrindarinnar þar sem endarnir hvíla bognir yfir efsta burðarbita.

Uppstigin sækja líka styrk sinn í þrjá punkta til að auka styrk þrepanna. Tveir burðarpunktar þrepanna sækja burð upp í efsta bita.


Líklega er þessi vagn mest notaður til fólksflutninga en gæti líka verið notaður til lítilla aðdrátta fyrir heimilið í formi vöru.

Fjórar manneskjur fá pláss í einu. Hér eru Maciej Musial, faðir hans, fremst í vagninum en kona Maciej Musial í aftara sætinu og móðir Maciej Musial.

Heimild: Maciej Musial

Skráð: Friðrik Kjartansson.

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Skrifað 2021

Klúbb Milord #1Klúbb Milord #1

0 Comments

Maciej Musial ásamt föður sínum á þennan Milord og gaf mér góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar. Smíða ár ekki vitað. Pólland. Heimild: Maciej Musiał eigandi sem aulýsti á Antique Carriages Facebook


Sætin geras valla fallegri og vel er það unnið.





Bremsubúnaðurinn er samkvæmt nútíma staðli og er í flottu lagi. Er aðeins á afturhjólum.

Vagn til veiða #2Vagn til veiða #2

0 Comments

Veiðivagn Polska Bryczka Myśliwska!


Maciej Musial er eigandi af þessum Veiðivagni ásamt föður sínum og gaf mér góðfúslegt leyfi til að byrta þessar myndir. Smíðaður af Schustala Nesseldorf Veiðivagn. Ný endurunnin viður ásamt hjólum og áklæðum. Málast eftir smekk. Verð Samningsatriði. Smíða ár vantar. Staðsettur Dobroń, Pólandi. Heimild: Maciej Musiał eigandi sem aulýsti á Antique Carriages Facebook