Tag: hlíf framan

Surrey #1Surrey #1

0 Comments

Alltaf geymd inni, ekið aðeins í örfá skipti!


Surrey, ekki talað um aldur, lítið notaður, vandaður vagn í alla staði.
Surrey-vagnar eru hurðalausir fjögurra hjóla, vinsælir í USA á 19. og 20. öldinni. Þeir eru venjulega tveggja sæta fyrir fjóra farþega. Surrey var með nokkrar mismunandi gerðir af blæjum/húddum eða segli (notað í regnhlífar), oft með kögri. Sætahefð þessarar gerðar voru með renndum pílárum í baki, oftast bólstruð sæti. Nafnið er komið frá

Heimid: Wikipedia






Prest Pæton körfuvagn #10Prest Pæton körfuvagn #10

0 Comments

Heillegur Bast-körfu Pæton fyrir prest. Ekki upplýsingar um smíðaár. Vagninn er með bremsum, járnhjólbörðum, kúskurinn situr aftan við prestinn, langsum fjaðrir, hlíf framan úr Bast-tágum, vandaðar bremsur, uppstig fremst og aftan fyrir kúsk. (Kúskur er ekki til í íslenskri orðabók!?


Á milli píláranna sést uppstigið fyrir prestinn en uppstigin er vönduð og öflug þverfjöður að framan sem algengt er í þessum vögnum. Eftirtektarvert er hve fáir pílárar eru í framhjólinu eða tíu stykki vegna þess að í þá daga var reynt að hafa vagnana eins létta og efnið leyfði sem smiðirnir höfðu að vinna úr. Pílárafjöldinn þarf alltaf að vera slétt tala svo tveir pílárar gangi í hvern félaga (ysti boginn), félagarnir eru stundum í hálfboga eins og mér sýnist vera uppi á teningnum hér.








Járnverkið er vandað og líka bremsurnar ásamt bremsustönginni.



Hér er brakkettið/uppistaðan fyrir bakið og kúsksvipuhaldarinn.


Væri augnayndi þessi vagn ef hann væri uppgerður og vel til hafður.



Gæti þetta verið framleiðslunúmer?


Hér sjáum við undir setuna!


Dráttarsköftin eru nett en samt sterk.


Yfirlestur: malfridur.is

Prest Pæton körfuvagn #4Prest Pæton körfuvagn #4

0 Comments

Frá Flæmingjalandi, Prest Pæton. Gegnheil yfirbygging, allur málmur er heill og með sköftum/dráttarkjálkum. Hjólin eru slæm. Var keyptur til að gera upp en hefur breyst. $650 staðsett nálægt Virginíu. Fredericksburg,


Tímans tönn hefur beitt sér!


Skilti frá framleiðanda. Erfitt er að lesa úr þessu en möguleiki er að hann hafi verið smíðaður 1895?


Léttavagn frá 1860 til 1869 #1Léttavagn frá 1860 til 1869 #1

0 Comments

Buggy eins og hún heitir á frummálinu, einstaklega fallegt eintak!


Olmsted Falls geymir þessa gullfallegu léttakerru (Buggy).

Vagninn er útbúinn Sarven nöfum.

Stór glæsileg létta vagn smíðuð 1860 til 1869 eða á þeim áratug.

Uppgerð í það ástand sem er gæði fyrir safn fyrir einhverjum árum síðan.

Það finnst ekki betra eintak af orginal léttakerru.

Hún er alltaf geymd inni við bestu aðstæður, raka og hita.

Hún getur aðeins verið sýnd áhugasömum með fyrir fram pöntun á tíma.









Þýðandi og skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Roman vagnar Stóra Bretlands #1Roman vagnar Stóra Bretlands #1

0 Comments

Wagon on Sandford Lane
Hverjum finnst þessir vagnar yfirleitt ekki skúlptúr eða listaverk á sína vísu? Ótrúlegt að einhver eða einhverjir leggi alla þessa vinnu á sig, sem greinilega þarf til að skapa og viðhalda þessari hefð. Myndin fengin að láni hjá myndasmið: John McKale.

Romanvagn í Englandi. Vel málaður og snyrtilegur
Heimild: Gypsy Life in Britain Facebook






Romanfjölskylda, ár ekki vitað
Heimild: Gypsy Life in Britain Facebook

Fallegur, sterkur og burðarmikill vagn
Heimild: Gypsy Life in Britain Facebook






Á leið á hitting hjá romanfólki. Farkosturinn / heimilið ekki af verra taginu. Heimild: Mynd fengin að láni á ,,Gypsy life in Britain” á Facebook.

Yfirlestur: malfridur.is

Þýðing og skrásetning: Friðrik Kjartansson