Hestvagnasetrið.org uncategorized Rómverskur hestvagn 17 alda

Rómverskur hestvagn 17 alda

0 Comments


Einstakur fornleifafundur í Króatíu – rómverskur vagn með hestum!


Sannarlega tilkomumikil og einstök fornleifauppgötvun í Austur-Króatíu.

Þýðing úr https://www.total-croatia-news.com/ sem er Króatískt fréttamiðill

Eins og Goran Rihelj/hr Turizam skrifaði þann 16 október 2019. Kynna fornleifafræðingar frá Vincovci borgar safninu og fornleifafræðastofnun Zagreb, niðurstöður rannsóknir sem þeir hafa stundað á fundarstaðnum í Stari Jankovci (Vukovar-Srijem) í gær Í Tumulus 1 er fjörutíu metra í þvermál og um fjörutíu metra hátt grafhýsi, stórt. Þar hafði verið grafinn tveggja hjóla rómverskur vagn og ásamt hestum. Rannsóknir á þessu hófust upphaflega 2017 og er þetta fyrsta meiri háttar fundur að því marki að við höfum aldrei fundið neitt sambærilegt í Króatíu hingað til. Sá siður að grafa undir moldarhaugum eða hrúgum var einstök leið í graftrar siðum og tengdist aðeins ríkum fjölskyldum sem gegndu áberandi hlutverki í stjórnsýslu, félagsmálum og efnahagslífi Pannóníu héraðs.
Með því að staðsetja jarðhaug meðfram mikilvægustu umferðargötu Rómaveldis, vildi aðalsfjölskyldan sýna fram á stöðu sýna auðæfi sín þar sem ferðamannaleiðir tengdust Apennaskaga við Pannóní og Balkanskaga ásamt litlu Asíu. Mikilvægust er uppgötvun rómverska vagnsins með beinagrindur dráttarhestanna spennta fyrir vagninn. Það er fyrsti fornleifauppgröftur í fornum grafreit með slíkum vögnum í Króatíu. Segir safnvörður Boris Kratofil safnsins í Vinkovci.

Gröfin hefur verið rannsökuð, segir Kratofil. Hún er talinn vera frá 3 öld eftir Krist. Yngsta dæmið um þessa gerð útfaravenjur. Flókið ferli hefur verið við skjalfestingu niðurstaðnanna, sem mun að lokum skila sér í enduruppstillingu á fastri sýningu Borgarsafnsins í Vinkovici. Fundarstaðurinn hefur kveikt áhuga fagstétta um alla Króatíu og margir fornleifafræðingar alls staðar af landinu hafa komið til að sjá fornleifarnar í Stari Jankovci með eigin augum. Tilkomumikil og einstakur fundur í Króatíu, þar sem í fyrsta sinn í okkar landi, er þessi flókni útfararsiður frá tímum fornaldar rannsakaður og skjalfestur fornfræðilega.

Núna tekur við langur ferill uppsetningar og varðveislu sem gerir heildargreininguna á því sem fundist hefur. Vonandi vitum við meira um fjölskylduna og meðlimi hennar sem voru grafnir á þessu svæði frá því fyrir 18.000 árum. Við höfum líka áhuga á hestunum, það er að segja hvort ræktun þeirra fór fram á þessu svæði eða öðrum svæðum heimsveldisins. Svo vantar fleiri svör um mikilvægi þessarar fjölskyldu. Við munum klára þetta í samvinnu við innlendar og fjölmargar evrópskar stofnanir. Sagði Marko Dizdar forstjóri fornleifa rannsókna stofnunarinnar.

Vinkovci er elsta borg Evrópu þar sem yfirráðasvæði hennar hefur verið stöðugt í rúm 8.300 ár. Vinkovci hefur haldið mörgum leyndarmálum sínum neðanjarðar og síðan 1982 hefur allt svæðið sem tilheyrir Vinkovci verið líst verndað fornleifasvæði. Minna er vitað um tvo rómverska keisara, Valens og Valentinian sem fæddust í Vinkovci.

Heimildir: Sjá efst í greininni.

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur/Próförk: Yfirlestur.is