Tag: 1838

Wagon bændavagn með útskiptanlegri tungu auglýsing frá 1935 #6Wagon bændavagn með útskiptanlegri tungu auglýsing frá 1935 #6

0 Comments

Weber-bændavagnar (Weber Farm Wagons) 1935

Auglýsing frá 1935.

Teikning 1. Weber bændavagn (Wagon)

Útbúinn útskiptanlegri tungu1. Hægt að stilla hæð tungu. Fjaðrasæti er aukahlutur (með eða án).

Teikning 2. Weber-bændavagn (Wagon)

Útbúinn útskiptanlegri tungu. Hægt að stilla hæð tungu. Bremsa og fjaðrasæti eru aukahlutar (með eða án).

Þessi vagn er með flutningabox fyrir korn og er 198,12 cm að lengd og 66,04 cm á hæð.

10 fet, 6 tommur á lengd og 26 tommur á dýpt.

Teikning 3. Weber-bændavagn (Wagon) fyrir einn hest.

Býðst í tveimur stærðum, léttur og miðlungs.

Seldur með eða án boxs.

Hickory öxlar.

Steypujárns öxulendar. (skein)

Dráttarbiti getur komið með fyrir dráttarkjálka.

Sæti og bremsur eru aukahlutir með eða án.

Weber-kornvagninn

Ágrip sögu Weber

Henry Weber fæddist 1822 í Hochweiler í Elsass í Frakklandi.

Á þeim tíma var svæðið hluti af Þýskalandi og því var fjölskyldan öll þýskumælandi.

Henry kom til Ameríku 1841, þegar hann var 18 ára gamall, og gerðist samningsbundinn lærlingur hjá vagnasmið í Lyons í New York-fylki til þriggja ára.

Að þremur árum liðnum í New York flutti Henry til Detroit í Michigan, en framtíðar

bílaborgin

hélt honum ekki og hann beindi fljótlega sjónum sínum að Chicago í Illinois.

Hann kom til Chicago um mitt ár 1844 og fann strax vinnu á rótgrónu vagnasmíðaverkstæði.

Árið eftir var Weber farinn að leggja á ráðin um eigin farartækjaframleiðslu.

1845, með hóflega 250 dollara fjárfestingu, stofnuðu Henry og viðskiptafélagi hans, Jacob Gauch, eigið vagnasmíðafyrirtæki.

Hægfara en stöðugt strit vagnasmíðinnar í Chicago dugði ekki til að halda Jacob.

Þegar fréttir bárust af gulli í Kaliforníu hélt Jacob af stað til

gullfylkisins

1849 í leit að auðæfum.

Jacob seldi Henry hlut sinn í vagnasmíðinni og varð hann þar með eini eigandi Weber Wagon Company.

1858 hafði Weber Wagon Company vaxið verulega og hóf að auka við starfsemi sína.

1871 var Weber vaxinn upp úr upprunalega verkstæðinu sínu og keypti nýja fjögurra hæða múrsteinsbyggingu.

Sama ár braust bruninn mikli í Chicago út þann 8. október og geisaði um borgina.

Eldurinn eyðilagði 8,5 ferkílómetra svæði á tveimur dögum, varð 300 manns að bana og gerði yfir 100.000 manns heimilislausa.

Sem betur fer lifði verkstæði Henrys eldhafið af þar sem það var byggt úr múrsteini.

1883, eftir 38 ár í rekstri, gerði Weber fyrirtæki sitt að hlutafélagi.

Því miður entist heppni Webers ekki lengi og 1887 kviknaði í verkstæði hans og hann missti allt nema timburbirgðir sínar.

Weber-vagninn var talinn Rolls-Royce landbúnaðarvagna og óx fyrirtækið með árunum og varð stærsti framleiðandi landbúnaðarvagna í Bandaríkjunum.

Um miðjan tíunda áratug 19. aldar er talið að Weber Wagon Company hafi framleitt 16.000 vagna og sleða árlega.

Með öflugu dreifingarkerfi var fyrirtækið þekkt um öll Bandaríkin sem gæðavörumerki og eftirsótt.

Vöxturinn var slíkur að hann vakti talsverða athygli kaupenda sem vildu kaupa allt fyrirtækið.

Til að keppa betur á hinum arðbæra vagnamarkaði keypti International Harvester Corporation fyrirtækið Weber 1904 og var Weber-vagninn framleiddur allt fram undir lok fjórða áratugarins.

Henry Weber lést 1907 og er grafinn í Mount Greenwood-kirkjugarðinum í Chicago.

Hann lét eftir sig eiginkonu, tvo syni og þrjár dætur.

Í safneign okkar erum við svo heppin að eiga Weber-kornvagn málaðan í hinum klassísku Weber-litum, grænum og rauðum.

Vagninn var gefinn safninu af Ralph og Shelby Hughes, en Ralph var fyrrverandi stjórnarmaður safnsins.

Vagninn er allur upprunalegur, hefur verið notaður af alúð og þarfnast viðgerðar.

Félagar í de la Guerra y Pacheco chapter 1.5, sem er deild Clampers-samtakanna í Santa Barbara, hafa gefið tíma sinn og færni til að gera vagninn upp.

Heimild: carriagemuseum.org


Heimild Auglýsing: Horsedrawn Equipment Facebook.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)


  1. Samstæðan fremst undir vagninum sem dráttarpóllinn og eða kjálkarnir eru festir í. ↩︎

Brewster Pæton með tágofnu sæti #12Brewster Pæton með tágofnu sæti #12

0 Comments

Brewster Pæton. Hefur verið geymdur í hlöðu með loftslagsstýringu. Vagninn er með Dickie-sæti þar sem tágakarfan er staðsett núna.

Farkosturinn var endurnýjaður að fullu með nýrri bólstrun og línumálun. Var sýningarvagn á Morgan Gold Cup Heritage Class og vann fyrsta sæti.

Hjólin eru glæný frá Statesman í Hólmssýslu.

Ný dráttarsköft frá Middlefield Ohio.

Efnið í bólstrunina er frá Woodland Coach í Hólmssýslu. Upprunalega er vagninn smíðaður af Brewster eftir 1838 og einhvern tímann á líftíma Brewster-framleiðandans.

En þar sem vagninn er búinn Sarven-nöfum þá er líklegast að hann hafi smíðast eftir 1857 en það ár komu Sarven nöfin fram.


Þess má geta að Brewster var talið toppframleiðandi hvað gæði varðaði á líftíma sínum.





Brougham frá Brewster með stöðugleikabúnað #1Brougham frá Brewster með stöðugleikabúnað #1

0 Comments

Stífur úr járni milli hjóla þaggaði hávaða og minnkaði hliðarsveifluna!

Brewster & Co tók að sér að framleiða Brogham-vagninn fyrir enska lávarðinn Brougham.

Hann var fyrst smíðaður í Bretlandi 1838 – 1839 af Robinson & Cook fyrir Brougham lávarð. Stöðugleikabúnaðurinn var upphaflega frá Hooper and Co.

1860-70. Ein nýjungin var járnstöng tengd milli fram- og afturöxuls undir miðju yfirbyggingarinnar sem tengdist svo út með sömu gerð járns og undir fjaðrirnar.

Þetta segir í greininni sem fylgir teikningunum af vagninum að þessi búnaður hafi tekið hliðarsveifluna (hreyfinguna) af vagninum á ferð, sem sagt gert það að verkum að farþegar og kúskur kastast minna eða ekkert til hliðanna við akstur.

Svo þaggaði þessi búnaður ákveðin hljóð sem bárust annars inn í vagninn á ferð; skrölt-írskur sem annars var þekkt í Brougham án þessa búnaðar.

Brewster & Company kalla þessa uppfinningu (patent) tvöföldu fjöðrun (Double-Suspension).

Vagninn er með átta fjöðrum sem voru hannaðar og teiknaðar af H.F. Stahmer, yfirmanni og yfirmanni teiknideildar hjá Brewster.

Patentið (einkaleyfið) var skírt í höfuð hans. Mikið af prófunum fóru fram sem sönnuðu að búnaðurinn virkaði sem áður sagði.

Heimildir: Brewster Skrapbook bls 279 Þaðan koma heimildir í þá bók úr HUB september 1883 bls Mynd kemur úr bókinni Brewter en með uppruna í Ameríska tímaritinu HUB frá september 1883 bls 278

Heimild 2: The Carriage Foundation í Englandi (Vefsíða)

Samantekt og þýðing: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Brougham frá Hooper and Co með stöðugleikabúnað #8Brougham frá Hooper and Co með stöðugleikabúnað #8

0 Comments

Brougham í körfu hengdur á C-fjaðrir

8 fjaðra vagn

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2020/11/Hooper-Brougham.jpg

Hestvagnaframleiðandi í London sem virðist hafa lagt mikla vinnu í að losna við brak og hávaða auk hliðarsveiflunnar í akstri Brougham.

Þessari gerð Brougham er lýst svona:

Brougham á körfu (stöngin undir vagninum sem fylgir lagi hans að neðan í meginatriðum) og hengdur upp á C-fjaðrir.

Hooper and Co var sérstakur vagnasmiður hennar hátignar í Englandi en ef þið stækkið myndina (þarf að smella einu sinni á myndina kemur nýr póstur með stækkaðri mynd) þá sjáið þið betur gylltu stafina vinstra megin við myndina.

1860-70 Hooper and Co. Járnstöng milli öxlanna með tengingu út í fjaðrirnar með stífum festi undir Miðfjarðarjárnplötuna.

Í lýsingu með teikningunum af vagninum segir að þessi búnaður hafi tekið hliðarhreyfinguna af vagninum í akstri.

Til að minnka hreyfingu líkama farþega og ökumanns kastast ekkert til hliðanna við akstur.

Svo tók þessi búnaður af hljóðum sem bárust annars inn í vagninn á ferð; skrölt- ískur eða nuddhljóð sem annars væri þekkt í Brougham án þessa búnaðar.


Heimildir: The Carriage Foundation í Englandi (vefsíða, í flokknum hlutir) Brewster Skrapbook, bls. 279.

Þaðan koma heimildir í þá bók úr HUB frá september 1883 bls.

Myndin kemur úr bókinni Brewter en er með uppruna í ameríska tímaritinu HUB frá september 1883, bls. 278.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)