Veltisætis vagninn #70Veltisætis vagninn #70
G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860






















Húsgagnaflutninga vagninn voru smíðaðir í þremur stærðum sem kalla mætti litlar, meðalstór og stórir.
Voru á milli 12 til 18 fet að lengd. Í stórum dráttum voru vagnarnir ferkantaður kassi í laginu til að geta
rúmar sem mest af húsgögnum og öðrum hlutum heimilis.
Boga þakið skilar regnvatninu hratt af þakinu.
Aðgengið að vagnrýminu var haft eins gott og hægt var með stórum hurðum hliðarhengdum að aftan.
Kúsksætið var staðsett venjulega fremst hátt uppi og stundum bókstaflega á þakinu.
Í viðleitni til að nýta sem best 7 feta breiðan kassann voru hjólin höfð það lítil að hæð þeirra var neðan við gólflínu yfirbyggingar.
Ef stór hjól voru aftan var boga dregin innfelling tekin rúmlega fyrir hjólin inn í hliðarnar.
Þessir boga hjólaskálar þurfa bara að vera fimm tommur inn í hliðina svo lítið af innra rými flutningakassans var lítið skert.
Áður framkomnir búferlaflutningavagnar höfðu flatt gólf en eftir að Purdy kynnti sina hönnun sem var niðurfellt gólf alla leið frá um miðju vagnsins og aftur úr og notaði niðurfelldan öxul til að framkvæma það tóku margir þessa hönnun til notkunar.
Vegna risastórra flata á hliðum og bakhlið máluðu eða létu eigendurnir mála auglýsingar á alla fleti.
Heimilsfang, fyrirtækisnafn, svæði þjónustunnar og allt annað sem hver og einn eigandi vagnanna ákvað.
Ólíkt í nútímanum þar sem stórir fletir eru hafðir auðir en lógó sem lítið segir í raun.
Allar þessar áritanir litu út eins og ferðabæklingar sem í leiðinni voru framlag listamanna til auglýsingar á handverki sýnu sem var svo aftur auglýsing.
Ekki endaði þetta þó þarna. Margir vagnar voru með efnismikil borð boltuð á þakbrúnir yfirbygginga vagna sinna og þá var hægt að taka auka kassa eða annan farangur upp á þak.
Oft voru auglýsingarnar klisjur, dæmi. Flytjum alla hluti, vegalengd skiptir ekki máli, útibú í öllum stærri bæjum.
Sérstakt var að sjá suma vagnanna með heilu málverkunum á hliðinni, oft túlkuðu málverkin flutningsakstur um sveitir þar sem húsbúnaðurinn var hamingjusamur að fá nýtt heimili.
Þegar járnbrautirnar komu tóku þær rjómann af hestvagnaflutningum og vagnarnir voru bundnir niður á járnbrautar vagna með reipum kvíslast lengri leiðir en hægt hefði verið að fara með hestvagna teymi.
Upphaflega var þetta sparnaðarhugmynd sem var aftur hagstæð járnbrautarfélögum í að samræmt vega-/járnbrautarkerfi svo fremi að flutningavagnarnir væru innan hleðslu áætlunar.
Við skulum snúa okkur aftur að flutninga vögnunum og málum.
Heildarlengd 16 fet = 4,87.68 metrar
Heildarbreidd yfirbyggingar 6 fet og 8 tommur = 2,072.64 metrar
Niðurfellingin á gólfinu lengd 9 fet og 8 tommur og breidd 4 fet og 8 tommur = 1,463.04 metrar
Hæð framhjóla 2 fet og 8 tommur = 0,853.44 metrar
Hæð afturhjóla 4 fet og 2 tommur = 1,280.16 metrar
Fjaðrir framan 3 fet og 8 tommur = 1,158.24 metrar
Fjaðrir aftan 3 fet og 4 tommur = 1,158.24 metra
Afturöxull niðurfelldur um 1 fet og 5 tommur = 0,548.64 metrar
Þakið með radíusinn 8 tommur = 0,20.32 metrar
Þakborðin voru í 1. feta hæð = 0,30.48 metrar
Bakhliðinni er lokað með tvöfaldri hurð sem er hliðarhengd.
Þar fyrir neðan er hleri sem lokaði niður fellingunni. Lamirnar hengdar í gólfbotn á niðurfellingunni.
Að vissu marki var niður fellingar hlerinn notaður sem rampur til að auðvelda vinnuna við að afferma eða ferma koffort eða koffort með skúffum, fataskápa og mörgu fleiru.
Hlutir sem var nægilega varið fyrir veðrum og vindi fór upp á þak og var bundið niður með reipum.
Að mörgu leyti má rekja hagnýtingu þessara búferlaflutninga vagna til þess að þeir úreltust fyrir mörgum árum.
Með tilkomu eimreiðanna fæddist nýr líftími vagnanna.
Oft voru þeir dregnir tveir til þrír í einu með gufu eða bensínvél og eigendur vagnanna varð ljóst að þeir gætu nýtt gömlu búferlaflutninga hestvagnanna sína með tilkomu dráttarvélanna.
Vagnarnir luku oft líftíma sínum á gúmmíhjólbörðum loftfylltum dregnir sem tengivagnar aftan í Leyland, Dennis eða Saurer bensín bílsins á öðrum áratug tuttugustu aldar.
Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760. Höfundur Arthur Ingram
Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: yfirlestur.is



Írski hliðarsætavagninn. Bianconi hannaði þennan vagn. Myndirnar tvær að ofan. The Irish Outsite car
Áningarstaður Gweedore á langri leið um vesturhluta Donegalsýslu – þar sem ferðalangar drógu andann milli fjallshlíða og Atlantshafsstrandarinnar á myndinni frá Irish Roots.

Forveri vagnsins að ofan og eldri gerðin á Írlandi.

Eldri gerð hliðarvagnsins með hjólum úr heilu tré. Cushendall, Co Antrim um 1900.
Birt með leyfi Þjóðminjasafna Norður-Írlands.

Ef einn vagn ætti að vera fulltrúi eins lands væri það án efa þessi einstaki og vel hannaði tveggja hjóla vagn á myndinni.
Fallegur vagn sem verðskuldar réttan titil.
Írski vagninn með hliðarsætin.
Vagn sem sameinar bæði einkavagn og leiguvagn.
Í þessu tilviki getur Kúskurinn setið til hliðar og snúið fram á ská.
Til að bjóða fjórum farþegum far mætti hafa framvísandi sæti á miðju fremst og vagnasmiðir gætu útbúið afturvísandi sæti að aftan fyrir þjónustufólkið.
Vagnar til prívatnotkunar voru yfirleitt alltaf betur frágengnir en leiguvagnar með leðurhlíf framan, vönduðu áklæði í bólstruðum sætum, rafhúðuðu járnverki og lömpum.
Málsetningar hliðarsæta vagnsins
Heildarlengd með dráttarsköftum 9 fet og 7 tommur = 2.956.56 sentimetrar.
Heildarbreidd með uppstigum 6 fet og 10 tommur = 1.859.28 sentimetrar. Heildarhæð 4 fet og 11 tommur = 1.252.728 sentimetrar.
Hæð hjóla 3 fet og 0 tommur = 0,914.4 sentimetrar.
Lengd fjaðra 4 fet og 0 tommur = 1,219.2 sentimetrar. Sporvídd 3 fet og 9 tommur = 1,188.72 sentimetrar.
Önnur hönnun eða gerð sem var af írskri gerð var póstvagn kynntur af Bianconi. Sá vagn var verulega stækkuð gerð af hliðarsætavagninum og fjögurra hjóla vagni sem er ekki til upprunalega í dag. Mynd að neðan.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760. Höfundur Arthur Ingram
Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is
Nátengt efni!
Mario Broekhuis höfundur greinarinnar. Birtist á Facebook í október 2022
Þýðandi og skrásetjari Friðrik Kjartansson

Í desember 2021 skrifaði ég grein um fógetavagninn í The Road, fréttabréf The Road Club. Í kjölfarið gerði ég frekari rannsókn á því efni, eins og því sem komið hefur fyrir suma vagnanna, sérstaklega þá sem eru á myndum í safninu mínu. Það varð til endurfundar á vagninum í Lincolnshire. Í september 1948 greindi Lincolnshire Echo frá því, nánar tiltekið hvernig vagn fógetans í Lincolnshire fór í síðasta sinn um borgina eftir að hafa verið tekinn í notkun, en síðan var hann færður á Lincoln Museum. Par af gráum vinnuhestum lötraði frá háskóladeildinni með vagninn, og tók vagninn án hamarsklæðis á rigningardegi.

Frá Stamp End Highways til Burton-safns, þar sem hann yrði geymdur þar til mögulegt væri að setja hann á sýningu. Sýningin komst aldrei á og stjórn og safnkostur safnsins/safnanna í Lincolnshire breyttist margsinnis. Erfitt var að fá svar við aðalspurningunni: „Er þessi vagn enn til?“ Sara Basquill, deildarstjóri innheimtu- og þróunarmála hjá sýsluráðinu Lincolnshire – sýslu, tók áskoruninni. Hún var ánægð með þær gömlu ljósmyndir sem hún hafði fengið í hendur. Hún vissi af vagni sem ekki var rétt skráður, sem var falinn í geymslu undir rykugum yfirbreiðslum.

Eftir nokkra stund reyndist það vera rétti hlöðufundurinn. Sara svipti yfirbreiðslunni af: „Mér fannst sumt af hnignun vagnsins hafa eldri uppruna en hann lítur ágætlega út á myndunum. Mig grunar að vagninn hafi einhvern tíma verið geymdur við slæmar aðstæður, jafnvel utan dyra. Ég er hrifinn af hlutum í upprunalegu ástandi og finnst ekki gott að þurfa að fara í fulla endurgerð. Ég er ekki viss um hvaða safn Vagninn átti að fara á árið 1948 þar sem Lífslistasafnið í Lincolnshire var ekki opnað fyrr en 1969. Mögulega hefur verið boðið upp á Borgar- og héraðslistasafnið (nú The County Collection)?

Ég held að skjaldarmerkið á ljósmyndinni sé sama og skjaldarmerkið sem varðveittist á vagninum. Ég myndi gjarnan vilja finna út hver átti þetta skjaldarmerki. Það næsta sem ég hef komist að er að hugsanlega var það Marsden of Panton. Hafandi þá athygli sem forstöðumaðurinn hefur á málinu núna gæti runnið upp sá tími að þessi háttsetti vagn snúi aftur í sviðsljósið eins glæsilegur og áhugaverður og hann var fyrr á tímum. Aðeins þegar búið er að greina uppruna vagnsins ótvírætt er hægt að elska hann aftur.
Yfirlestur: malfridur.is

Brewster Pæton. Hefur verið geymdur í hlöðu með loftslagsstýringu. Vagninn er með Dickie-sæti þar sem tágakarfan er staðsett núna.
Farkosturinn var endurnýjaður að fullu með nýrri bólstrun og línumálun. Var sýningarvagn á Morgan Gold Cup Heritage Class og vann fyrsta sæti.
Hjólin eru glæný frá Statesman í Hólmssýslu.
Ný dráttarsköft frá Middlefield Ohio.
Efnið í bólstrunina er frá Woodland Coach í Hólmssýslu. Upprunalega er vagninn smíðaður af Brewster eftir 1838 og einhvern tímann á líftíma Brewster-framleiðandans.
En þar sem vagninn er búinn Sarven-nöfum þá er líklegast að hann hafi smíðast eftir 1857 en það ár komu Sarven nöfin fram.

Þess má geta að Brewster var talið toppframleiðandi hvað gæði varðaði á líftíma sínum.






















Upplýsingar eru ekki fyrir hendi en hann er staðsettur í Englandi. Smíðaár er ekki tilgreint.

Vagninn var byggður til að bera á milli 3 og 4 tonn, kannski meira.
Það er metið út frá uppbyggingu undirvagnsins ( the gear ).
Gengjuteinn/skrúfteinninn með hjólið ofan á vinstra megin í myndinni er til að bremsa og taka bremsurnar af og hefur þurft að vera öflugt, enda sýnist manni það.
Frásögn/lýsing Myndir!
Heimild: Myndir fengnar að láni hjá The Antique Carriage Collectors Club Facebook.
Þýðing og skráning Friðrik Kjartansson.
Yfirlestur: malfridur.is









Stílhrein með útskiptanlegu sæti og með viðbót í toppi.
Fremra sætið er brotið saman aftur á bak og aftara sætið er hægt að taka, eins og sést á mynd númer 54 B. Þægileg og passleg fyrir tvær persónur.
Þegar eitt sæti er notað er hægt að brjóta saman toppinn upp.
Þessu er hægt að breyta á einni mínútu.
Sarven nöf sjáum við líka.
Svo er líka hægt að fá þessa kerru (buggy) með tveimur föstum sætum, sama útlit.
Það er ekki minnst á það í lýsingunni á kerrunni en það eru greinilega lampar á henni.
Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Þessi vagn er á þverfjöðrum, ekki hliðarfjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna.
Það varð svo ofan á í hönnun síðar
Heimild: Tomasnet.com
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

