Útfararvagn #6Útfararvagn #6
Smíðaður í Svíþjóð. Uppgerður og tilbúinn í útfarirnar.




































Alþýðuvagn smíðaður í Noregi milli 1850–1925. Líkist vagninum hans Emils í Kattholti.
Ekki er til heimild fyrir árgerð þessa eintaks sem alþýðuvagn eða heimilisvagn er smíðaður.
Aldurinn er einhvers staðar á bilinu 99 til 174 ára.
Voru vagnarnir smíðaðir í Noregi á því tímabili? Það er það sem til er um hann: Kjökkenvogn eða eldhúsvagn frá Grimstad.
Heimildin sem fyrri eigandi fræddi mig um. Til Íslands kom hann með Herjólfi sem kom frá Noregi úr slipp 1996.

Heillegur og tilbúinn í dekrið sem mér vonandi veitist að fá að fást við.
Ekki hefur þótt ástæða til að „eyða“ í bremsur eða önnur þægindi fyrir alþýðuna.
Holt fyrir okkur að sjá fyrir okkur ferðalög á þennan máta.
Takið eftir hvernig hjólbarðinn er samsettur.
Festur saman! Járnvinnan á bekkjaburðarvirkinu er í senn einföld, snjöll og langt umfram amerísku útfærsluna sem er seinleg og flókin í smíði en samt falleg að mínu mati.
Sjást vel á aftara sætinu, armhvílunni og nabbinu sem heldur yfirbreiðslunni fyrir farþega en oftar en ekki var yfirbreiðslan kindagæra.

Blessuð jólin koma einu sinni á ári. Skreytum þennan aldursforseta, vagninum og skapara hans til heiðurs.

Járnverkið er bara með ágætum í eldhúsvagninum. Það verður gaman að sandblása og breyta til hins betra.

Sést vel hvernig undirhlaupið kemur upp úr gólfinu.
Svo eru dráttarkjálkarnir tengdir beint inn á fimmta hjólið í stað þess að á mínum vagni sé tengt í fjaðrirnar að framan.

Til sölu: Ásett verð Ísl kr. 242.000 — (2023)


Í Noregi er svipað loftslag og á Íslandi og því er gamla góða gæran velkomin þegar kalt er.
Sérstakir nabbar eða pinnar eru á armhvílunum á sætunum til að krækja gærunni á svo hún haldist á sínum stað.

Vagn með svipaðri hönnun og yfirbragði er næstum alveg eins.
Þar eru meira að segja bólstraðir bekkir, bara sófi.
Undantekningin er undirhlaupið fyrir framhjólin í beygju, framhjólin því stærri.
Vagnasmiður í Noregi sem heitir/hét Omnia er skrifaður af þessum og fleirum. Er skapari norska vagnsins fundinn?

Fortíðin er heillandi að mér finnst.
Fátæktin var líka mikil.
Ég gæti hugsað mér heim án fátæktar en að öðru leyti eins og á sautjándu, átjándu og nítjándu öldinni, án fátæktar en með allsnægtum án spillingar jarðarinnar okkar.
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Yfirlestur: yfirlestur.is
Texti og þýðingar: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: yfirlestur.is
Texti og þýðingar: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: yfirlestur.is
Texti og þýðingar: Friðrik Kjartansson

Hestvagn, þekktur sem Tonga var góður ferðamáti fjölskyldunnar. Vagninn getur borið 6 til 8 manns ásamt að minnsta kosti tveimur litlum börnum. Vagninn er miklu stærri en Rickshaw eða bíll. Með tímanum útrýmdi áætlunarbílar Tonga. Að fá þjónustu fyrir hest í borginni Peshawar Pakistan var mikil áskorun fyrir Kúskinn (úrdu orð þýðir eigandi Tonga) Tonga. Meirihluti eigenda Tonga höfðu völd og áhrif í samfélaginu. Tvisvar vorum við og frændur tæplega 7 með nokkur börn að ferðast með í Tonga og hesturinn hafði ekki getu til að draga okkur öll. Ég var hræddur við að ferðast í Tonga eftir slys. Kúskurinn virtist ekki hafa þekkingu á hámarkshleðslu vagnsins en meir áhuga á peningum. Tonga hefur reynst farsæll í að flytja stúlkur til skóla og aftur heim úr skóla ásamt framhaldsskólum í Peshawer, þar sem ég bjó og sá þessa vagna. Fimm til sex stúlkur voru sáttar með að borga fasta upphæð fyrir skólaakstur. Kúskurinn var líka ánægður með viðskiptin. Skólastelpurnar voru ánægðar með að þurfa ekki að ganga snemma á morgnana ásamt gangandi og hlaupandi fólki sem gat líka fengið far ef pláss var.
Tonga kom fyrst fram hjá Pólýnesíska konungsveldinu. Tonga var fyrst smíðuð fyrir um 3.000 árum á eyjunni Tonga. Af austurindónesískumælandi fólki af Lapita menningu. Lapita fólkið var mest þekkt fyrir vandað og skreytta leirmuni. Frá 10. öld var Tonga stjórnað af röð heilagra konunga og drottningar, Tu’i Tonga. Heimild: Britannica
Heimild: Pakistan old pic lovers á Facebook
Þýddi og skrásetti Friðrik Kjartansson
Yfirlestur. yfirlestur.is

þessi vagn er óvenjulegur frá mörgum sjónarhornum. Byrjum á að tala um kúpt glerþakið og litaðar glerplötur á neðri hluta yfirbyggingar en þessi vagn er hannaður og smíðaður í París, Frakklandi. Vagn gerðin heitir Victor Lelorieux í höfuð skapar síns og á annari mynd sjáum við nafnið á hjólnöfunum. Vagninn var sérsmíðaður 1863. fyrir Sultan Abdulaziz 1830 – 1876. Victor Lelorieux setti upp vagnaverksmiðju í Champas-Elysées árið 1844. Lelorieux hlaut tvenn heiðursverðlaun á fjölsýningu í París 1855 fyrir ,,sedan vagninn (sic) fyrir fjóra hesta hengdan á níu fjaðrir.” Sjá opinberan katalog af Parísarsýingunni 1855. 1869 sagði dagblaðið Le Cocher Francais Lelorieux húsið meðal elstu verstæðanna sem skera sig úr vegna lúxus yfirbygginga á vagna. Lelorieux verkstæðið hefur útvegað samtökum hesta og asna ræktenda í frakklandi. 73 af þessum vögnum eru en þá varðveittir.



Smíðaður 1762 og notaður af ríkjandi konungum og drottningum til krýninga og flestra opnana þingsins síðan 1762. Eins og flestir vagnar í eigu hins opinbera stór og fyrirferðamikið farartæki sem viktar um fjögur tonn, mælist 24 feta langur 7,3152 metra , 8,3 fet á breidd 2,52984 metrar og 10 feta á heildarhæð 3,048 metrar.
Það eru mikið magn gyllinga á vagninum og myndin á panel hlið vagnsins gerði Florentine málari Clipriani. Sir William Chambers hannaði vagninn en það eru engar heimildir um hverjir smíðuðu hann. Skreytingar vagnsins eru mjög vandaðar og hafa allar fígúrur eru ásamt konunga hefðum heimsveldisins.
Grind yfirbyggingar vagnsins er bogadregin og endurspeglar átta Pálmatré með greinar út úr toppnum sem forma stoðir fyrir þakið. í miðju þaksins eru útskornir þrír kerúbar sem bera konungs/drottningar kórónuna og halda ýmsum ríkistáknum í höndum sér. Vagninn er hengdur upp á leðursólum sem haldnir eru af fjórum útskornum fígúrum í líkamsstærð og fótstykki kúsksins er stór hörpuskel sem studd er á reyrbúntum. Átta hestar draga venjulega vagninn og upphaflega var Kúskur á fótstykkinu plús einn þjónn. Í seinni tíð var kassinn fyrir Kúskinn tekinn. Í staðinn sitja fjórir þjónar hestanna.
Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760 höfundur: Arthur Ingram
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson


Húsgagnaflutninga vagninn voru smíðaðir í þremur stærðum sem kalla mætti litlar, meðalstór og stórir.
Voru á milli 12 til 18 fet að lengd. Í stórum dráttum voru vagnarnir ferkantaður kassi í laginu til að geta
rúmar sem mest af húsgögnum og öðrum hlutum heimilis.
Boga þakið skilar regnvatninu hratt af þakinu.
Aðgengið að vagnrýminu var haft eins gott og hægt var með stórum hurðum hliðarhengdum að aftan.
Kúsksætið var staðsett venjulega fremst hátt uppi og stundum bókstaflega á þakinu.
Í viðleitni til að nýta sem best 7 feta breiðan kassann voru hjólin höfð það lítil að hæð þeirra var neðan við gólflínu yfirbyggingar.
Ef stór hjól voru aftan var boga dregin innfelling tekin rúmlega fyrir hjólin inn í hliðarnar.
Þessir boga hjólaskálar þurfa bara að vera fimm tommur inn í hliðina svo lítið af innra rými flutningakassans var lítið skert.
Áður framkomnir búferlaflutningavagnar höfðu flatt gólf en eftir að Purdy kynnti sina hönnun sem var niðurfellt gólf alla leið frá um miðju vagnsins og aftur úr og notaði niðurfelldan öxul til að framkvæma það tóku margir þessa hönnun til notkunar.
Vegna risastórra flata á hliðum og bakhlið máluðu eða létu eigendurnir mála auglýsingar á alla fleti.
Heimilsfang, fyrirtækisnafn, svæði þjónustunnar og allt annað sem hver og einn eigandi vagnanna ákvað.
Ólíkt í nútímanum þar sem stórir fletir eru hafðir auðir en lógó sem lítið segir í raun.
Allar þessar áritanir litu út eins og ferðabæklingar sem í leiðinni voru framlag listamanna til auglýsingar á handverki sýnu sem var svo aftur auglýsing.
Ekki endaði þetta þó þarna. Margir vagnar voru með efnismikil borð boltuð á þakbrúnir yfirbygginga vagna sinna og þá var hægt að taka auka kassa eða annan farangur upp á þak.
Oft voru auglýsingarnar klisjur, dæmi. Flytjum alla hluti, vegalengd skiptir ekki máli, útibú í öllum stærri bæjum.
Sérstakt var að sjá suma vagnanna með heilu málverkunum á hliðinni, oft túlkuðu málverkin flutningsakstur um sveitir þar sem húsbúnaðurinn var hamingjusamur að fá nýtt heimili.
Þegar járnbrautirnar komu tóku þær rjómann af hestvagnaflutningum og vagnarnir voru bundnir niður á járnbrautar vagna með reipum kvíslast lengri leiðir en hægt hefði verið að fara með hestvagna teymi.
Upphaflega var þetta sparnaðarhugmynd sem var aftur hagstæð járnbrautarfélögum í að samræmt vega-/járnbrautarkerfi svo fremi að flutningavagnarnir væru innan hleðslu áætlunar.
Við skulum snúa okkur aftur að flutninga vögnunum og málum.
Heildarlengd 16 fet = 4,87.68 metrar
Heildarbreidd yfirbyggingar 6 fet og 8 tommur = 2,072.64 metrar
Niðurfellingin á gólfinu lengd 9 fet og 8 tommur og breidd 4 fet og 8 tommur = 1,463.04 metrar
Hæð framhjóla 2 fet og 8 tommur = 0,853.44 metrar
Hæð afturhjóla 4 fet og 2 tommur = 1,280.16 metrar
Fjaðrir framan 3 fet og 8 tommur = 1,158.24 metrar
Fjaðrir aftan 3 fet og 4 tommur = 1,158.24 metra
Afturöxull niðurfelldur um 1 fet og 5 tommur = 0,548.64 metrar
Þakið með radíusinn 8 tommur = 0,20.32 metrar
Þakborðin voru í 1. feta hæð = 0,30.48 metrar
Bakhliðinni er lokað með tvöfaldri hurð sem er hliðarhengd.
Þar fyrir neðan er hleri sem lokaði niður fellingunni. Lamirnar hengdar í gólfbotn á niðurfellingunni.
Að vissu marki var niður fellingar hlerinn notaður sem rampur til að auðvelda vinnuna við að afferma eða ferma koffort eða koffort með skúffum, fataskápa og mörgu fleiru.
Hlutir sem var nægilega varið fyrir veðrum og vindi fór upp á þak og var bundið niður með reipum.
Að mörgu leyti má rekja hagnýtingu þessara búferlaflutninga vagna til þess að þeir úreltust fyrir mörgum árum.
Með tilkomu eimreiðanna fæddist nýr líftími vagnanna.
Oft voru þeir dregnir tveir til þrír í einu með gufu eða bensínvél og eigendur vagnanna varð ljóst að þeir gætu nýtt gömlu búferlaflutninga hestvagnanna sína með tilkomu dráttarvélanna.
Vagnarnir luku oft líftíma sínum á gúmmíhjólbörðum loftfylltum dregnir sem tengivagnar aftan í Leyland, Dennis eða Saurer bensín bílsins á öðrum áratug tuttugustu aldar.
Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760. Höfundur Arthur Ingram
Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: yfirlestur.is


Vísindamenn hafa staðfest að vagn sem fannst í gröf Tútankhamons í Egyptalandi hafi upphaflega verið útbúinn sólskýli, sem gerir hann að elsta núverandi hestvagni með tjaldhimin.
Tveggja hjóla vagninn, sem er frá 14. öld f.Kr., var grafinn upp við gröfina sem oft er nefnd „stærsta fornleifaafrek 20. aldarinnar“ þar sem gullgríma konungs fannst árið 1922.
Vagninn, sem var ekki hannaður fyrir hernað, bar líklega Tútankhamun konung og Ankhesenamun drottningu við athafnir og skrúðgöngur,“ sagði Nozomu Kawai, Egyptalandsprófessor við Kanazawa-háskólann.
Fundurinn var haldinn af teymi Kawai og Grand Egyptian Museum (GEM), sem mun opna í úthverfi Kaíró á næsta ári.
Teymið ber ábyrgð á viðgerð og varðveislu safns Tutankhamons í aðdraganda sýningar þeirra á GEM, með aðstoð Alþjóðasamvinnustofnunarinnar í Japan. „Tjaldhiminninn til að loka fyrir sólarljósið gegndi lykilhlutverki í að auka enn frekar vald konungsins sem var fulltrúi sólguðsins,“ sagði Kawai. Samkvæmt Kawai sýnir musterisveggmynd frá tímum Ramesses II, sem var virkur 100 árum eftir Tutankhamon, vagn með tjaldhimin, en nýjasta uppgötvunin þýðir að slík tegund farartækis var til miklu fyrr.
Vagninn og tjaldhiminninn, báðir úr viði, voru lengi vel ekki tengdir vegna þess að þeir voru grafnir upp hvor í sínu lagi.
En kanadíski fornleifafræðingurinn Edwin C. Brock benti í blaði sem gefið var út árið 2012 á möguleikann á því að seglið gæti passað á farartækið.
Talið er að tveir hestar hafi dregið gullhúðaða farartækið sem kom til að vera einn af sex vögnum sem grafnir voru upp.
Hann er með farþegarými sem er 1,02 metrar á breidd og 44 sentímetrar á lengd.
Ef dráttarpósturinn að framan er innifalinn er ökutækið 2,03 metrar að lengd. Tjaldið er 98 cm á breidd, 44 cm á lengd og 2,01 metri á hæð.
Hægt er að brjóta saman 28 rimla sem standa út frá trapísulaga rammanum og er talið að ramminn hafi verið þakinn hör.
Könnun rannsóknarhópsins leiddi í ljós að fjögur göt á ytri hlið botns vagnsins er stöngunum raðað eins og stöngunum fjórum sem halda uppi seglinu.
Teymið komst að þeirri niðurstöðu að sólhlífin hafi upphaflega verið sett á vagninn.
Yfirlestur: malfridur.is





















