Brewster Pæton með tágofnu sæti #12 30 October 2022 FrikkiFrikki 0 Comments 08:21 Bandaríkin Norður Ameríka Holmes sýsla New York Brewster Pæton. Hefur verið geymdur í hlöðu með loftslagsstýringu. Vagninn er með Dickie sæti þar sem tágakarfan er staðsett núna. Farkosturinn var endurnýjaður að fullu með nýrri bólstrun og línumálun. Var sýningarvagn á Morgan Gold Cup Heritage Class og vann fyrsta sæti. Hjólin eru glæný frá Statesman í Hólms sýslu. Ný dráttarsköft frá Middlefield Ohio. Efnið í bólstrunina er frá Woodland Coach í Hólmes sýslu. Upprunalega er vagninn smíðaður af Brewster eftir 1838 og einhvern tímann á líftíma Brewster framleiðandans. En þar sem vagninn er búinn Sarven nöfum þá er líklegast að hann hafi smíðast eftir 1857 en það ár komu Sarven nöfin fram. Þess má geta að Brewster var talið toppframleiðandi hvað gæði varðaði á líftíma sínum. Tags: 1838, 1857, armhvíla, bólstrun, brewster, dickie sæti, fjögra hjóla vagnar, hlíf framan, langsum fjaðrir, middlefield, ohio, pæton, sarven nöf, statesman, tágofin, topplaus, uppstig, þriggja fjaðra vagn, þversum fjaðrir Post navigation Fyrri Previous Post Næst Next Post
Hansen Hjóla og vagnasmiðjan Smíða vagna fyrir kvikmyndaiðnaðinn; meðal annars frá 1978! Horfið og hlustið bara á Hansen í myndbandinu! Jólakveðja 2023 – 2024[...] Lesa áfram ...Lesa áfram ...
Veltisætis vagninn #70 Veltisætis vagninn #70 G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860[...] Lesa áfram ...Lesa áfram ...