Lýsing á Brougham Shofle í The English Coach Builders Sýningarskránni, heimssýningunni 1862
Þegar ég vaknaði í morgun vissi ég ekki að Brougham hefði líka komið í svona formi, því verð ég að pósta þessu og þetta er stór frétt fyrir mig. Ég treysti mér ekki til að þýða seinna nafn þessa Broughams en læt bara enska heitið halda sér en það gæti verið þýtt sem skóflan.
Svo lærði ég líka að Brougham er borið fram „Brom“: Vefsíðueigandi
Ef hugmyndin er að auglýsa þægindi Brougham samfara léttleika yfirbyggingarinnar, hneigjumst við að því að geta ekki sagt sannar frá.
Hugmyndin er að vissu leyti reynd, kannski ekki alveg orginal.
Líkindi meðal vagna.
Ef okkur skjátlast ekki þá var sýndur svipaður vagn á sýningunni 1851 og síðan hafa verið gerðar margar tilraunir svipaðar þessari.
Nokkrir vagnar voru líka sameinaðir í hugmyndinni.
Fram á sjónarsviðið komu bæði almennings- og prívatfarartæki en hurfu á stuttum tíma í limbói vannýttra og síðan eyðingar. Shofle-formið á vagninum varð vinsælt upp á síðkastið meðal aðalsmanna.
Sama hvaðan vagninn fær líkindin, en í þessu tilviki þróaðist vagninn lengra samfara notadrýgri.
Hann er líklegri til að ná vinsældum núna en áður fyrr vegna þess að tískan er ekki þröskuldur núna sem áður fyrr.
Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Heimildir: The English Coach Builders 1887, bls. 19-20 Yfirlestur: malfridur.is
Þýddi og tók saman Friðrik Kjartansson
Nátengt efni!
1978
Enskur Brougham uppgerður #6
1901
Brougham lestarstöðvar verðlaunavagn #4
1860
Brougham frá Brewser með stöðugleikabúnaði!
1860
Brougham frá Hooper and Co með stöðugleikabúnað #8
Nýjasta greinin er frá Old Historical Pictures á Facebook
Nálægt Sevanvatni grófu fornleifafræðingar upp 4.000 ára gamlan eikarvagn í Lchashen, sem var einstaklega vel varðveittur í jarðveginum.
Þessi óvenjulegi fundur veitir innsýn í samgöngur og tréverkskunnáttu á bronsöld.
Eikarviður vagnsins var að mestu leyti óskemmdur, þar á meðal burðarbitar, staðsetning öxla og leifar af hjólum.
Varðveislan er einstök og gerir vísindamönnum kleift að rannsaka byggingaraðferðir, samskeytingar og verkfræðilegar ákvarðanir sem handverksmenn til forna tóku.
Merki um vandaða samsetningu benda til djúps skilnings á álagsdreifingu, endingu og hreyfanleika í samfélögum bronsaldar.
Vagnar sem þessir hefðu verið nauðsynlegir til að flytja vörur, korn eða hráefni yfir torfærur.
Fundurinn varpar ljósi á hversu þróuð flutningsnet voru á armenska hálendinu og sýnir hvernig samfélög aðlöguðust umhverfi sínu með hagnýtum verkfræðilausnum.
Greining á verkfæramerkjum á viðnum leiðir í ljós að brons- og steinverkfæri voru notuð til að móta og tálga íhlutina.
Þetta eykur skilning okkar á sérhæfingu í handverki á þessu tímabili og tæknilegri getu þessara fornu samfélaga.
Vagninn frá Lchashen býður upp á áþreifanlega tengingu við daglegt líf fyrir 4.000 árum og brúar bilið milli fortíðar og nútíðar.
Hann minnir okkur á að nýsköpun, færni og hugvit hafa alltaf verið hluti af afkomu mannsins og að jafnvel hversdagslegir hlutir eins og vagnar geta haft óvenjulega sögulega þýðingu.
Heimild: Old Historical Pictures Facebook
Ótrúlega vel varðveitt eintak miðað við aldur!
Skrifað af Aleksa Vučković sem segir aðeins af sjáfum sér.
Ég er útgefinn höfundur yfir tíu sögulegra skáldsagna og er sérfræðingur í slavneskum málvísindum.
Ég fylgi ávallt ástríðu minni fyrir skrifum, sögu og bókmenntum og leitast við að skila spennandi og heillandi lestri sem snertir dularfyllstu viðfangsefni sögunnar.
Með margra ára reynslu sem rithöfundur tek ég víðtæka þekkingu mína á sögu, málvísindum og mannfræði og færi hana yfir á ritað form með góðum árangri.
Þessi frábærlega varðveitti 4.000 ára gamli vagn, aðeins úr eik, fannst neðanjarðar í þorpinu Lchashen nálægt Sevan-vatni í Armeníu. Eikarvagninn er meðal elstu vagna í heiminum.
Þegar fornleifafræðingar grafa upp forn svæði standa þeir oft uppi með leifar sem eru úr óforgengilegum hlutum.
Viður, leður, hold, klæði og öll lífræn efni finnast nánast aldrei þar sem þau rotna og hverfa í aldanna rás.
En ef réttu aðstæðurnar eru til staðar og jarðvegurinn hefur rétta efnasamsetningu geta jafnvel þessi lífrænu efni varðveist í mjög langan tíma.
Þökk sé þessu tókst rússneskum fornleifafræðingum að grafa upp Lchashen-vagninn, merkilega fornleifar úr fornöld, sem veitir heillandi innsýn í tæknilegar framfarir og menningarlegar venjur frá fyrri tímum
Þessi ótrúlega vel varðveitti 4.000 ára gamli vagn úr eik er grafinn upp í þorpinu Lchashen nálægt Sevan-vatni í Armeníu. Þetta er elsti vagn í heimi sem vitað er um. Er vagninn til sýnis í sögusafni Armeníu í Yerevan. Þessi vagn var smíðaður af Lchashen-Metsamor Culture (aka Etiuni). Það er almennt talið að þeir hafi verið indóevrópskir og töluðu mjög líklega frumarmensku. „Timeline of the Development of the Horse“ skrifar Beverley Davis. Framhald undir næstu mynd.
Lchachsen-vagninn og vísbendingar um forna samgöngumáta
Vagninn, sem er frábærlega vel varðveittur, veitir okkur mikilvæga innsýn í hugvit og handverk skapara sinna.
Þessi forngripur varpar ekki aðeins ljósi á þróun samgöngumáta til forna heldur er hann einnig mikilvæg sönnun þegar kemur að því að skilja félags-, efnahags- og menningarlega þætti svæðisins á þeim tíma
Frumstæðir vagnar frá þessum tíma (2000 f.Kr.) hafa fundist í ágætu ásigkomulagi í Armeníu. Þetta eru elstu þekktu vagnar í heimi.“ Vagnarnir í Lchashen voru einnig í bók Stuart Piggott „Fyrsti flutningur á hjólum: frá Atlantshafsströndinni að Kaspíahafinu“. Elsta víngerðin, elstu leðurskórnir, elsta strápilsið, elsti mannsheilinn og elsti vagninn-þeir fundust allir í Armeníu.
Vagninn fannst árið 1956 við uppgröft á Lchashen-grafreitnum við bakka Sevanvatns í Armeníu.
Til að geta vökvað hið víðfeðma Ararat-sléttlendi í nágrenninu þurftu rússarnir að tæma hluta vatnsins, lækka yfirborð þess og afhjúpa þannig gríðarstóran sögulegan stað.
Þessi staður er ríkur af fornleifum og hefur gefið af sér fjölda gripa frá brons- og járnöld.
Grafreiturinn, með sínum víðfeðmu grafhaugum og haugfé, veitir heildstæða sýn á forna íbúa svæðisins sem líklega tilheyrðu Lchashen-Metsamor-menningunni.
Meðal mikilvægustu fundanna var Lchashen-vagninn, sem er frá 15.–14. öld f.Kr.
Þessi uppgötvun var afgerandi til að sýna fram á tæknilega getu fólksins sem bjó á þessu svæði á fyrri hluta járnaldar.
Vagninn er talinn vera undur fornrar verkfræði.
Hann er um það bil 2 metrar (6,5 fet) að lengd og er aðallega smíðaður úr eik, með bronsfestingum sem undirstrika málmsmíðakunnáttu smiðanna.
Grind vagnsins er gerð úr sterkum viðarbitum sem eru flókið tengdir saman til að veita styrk og endingu.
Hjólin, sem einnig eru úr viði, eru styrkt með bronshjólnöfum og -gjörðum, sem tryggir að þau þoli álag ferðalaga um ógreiðfært landslag.
Notkun brons, ekki aðeins í hagnýtum tilgangi heldur einnig fyrir skrautelement, bendir til mikillar handverkskunnáttu og skilnings á bæði fagurfræði og notagildi.
Ef litið er á biblíukortin er Armenía þar sem Edensgarðurinn var og Eden þar sem Adam og Eva voru sköpuð og þar af leiðandi er það fæðingarstaður mannkynsins. Í raun er Armenía þar sem mannkynið fæddist og endurfæðist svo…
Ferðast á ströndum Sevanvatns
Ítarlegar rannsóknir og skönnun benda til þess að hlutar vagnsins hafi verið með flóknum útskurði og skrautlegum þáttum.
Viðaryfirborðið var líklega skreytt með rúmfræðilegum mynstrum og dýramyndum, sem endurspegla listrænan smekk þess tíma og benda til þess að vagninn hafi verið gerður fyrir valdamikinn einstakling, líklega staðbundinn höfðingja.
Þessar skreytingar eru ekki aðeins til skrauts heldur þjóna þær einnig sem menningarlegir vísar og veita innsýn í táknræna og trúarlega trú fornra Armena.
Tilvist slíkrar ítarlegrar listar á hagnýtum hlut eins og vagni bendir til mikilvægis listar og táknmynda í daglegu lífi þeirra.
Uppgötvun Lchashen-vagnsins hefur mikilvægar afleiðingar fyrir skilning okkar á fornum samgöngum og viðskiptum.
Vagnar eins og þessi voru líklega notaðir í ýmsum tilgangi, þar á meðal til að flytja vörur, landbúnaðarafurðir og mögulega jafnvel fólk.
Tilvist svo þróaðs farartækis bendir til þess að á svæðinu hafi þróast net viðskiptaleiða sem auðveldaði skipti á vörum og hugmyndum.
Þetta gefur í skyn ákveðið stig félagslegs og efnahagslegs þroska og skipulags innan samfélagsins.
Auk þessa vagns fundust alls 12 vagnar á svæðinu í mismunandi ástandi varðveislu.
Hæfnin til að búa til endingargóð og nothæf farartæki hefði verið afar mikilvæg fyrir flutninga á vörum og fólki og þannig stuðlað að efnahagslegri og menningarlegri þróun svæðisins.
Notkun brons í hönnun vagnanna undirstrikar málmvinnslugetu samfélagsins og bendir til þess að það hafi haft aðgang að auðlindum og viðskiptanetum sem gerðu því kleift að nálgast og nýta þetta verðmæta efni og mikil færni í trésmíði segir okkur að það hafi kostað margar vinnustundir og mikla fyrirhöfn að smíða eitt slíkt farartæki.
Tíu stórmerkilegar fornminjar sem fundist hafa í Armeníu!
Varðveitt undir botni Sevan-vatns
Þar sem vagninn fannst innan marka stórs greftrunarsvæðis er talið að hann hafi tilheyrt einstaklingi af hárri stöðu og verið grafinn með honum sem eitthvað til að nota í handanheiminum.
Þannig segir fundurinn okkur einnig eitthvað um greftrunartrú fólksins sem tilheyrði hinu forna Lchashen-Metsamor-menningarsamfélagi.
En án efa er þessi fundur ótrúlega mikilvægur til að hjálpa okkur að öðlast betri skilning á frumtímasögu Armeníu og fólksflutningum Indó-Evrópubúa, sem þessi forna menning tilheyrði líklega.
Enn fremur stuðla smíði vagnsins, skreytingar hans og samhengi innan Lchashen-grafreitsins að betri skilningi á fornum trúarbrögðum og hefðum, sem og tæknilegri getu fornrar menningar.
Höfum við efast um hæfileika sameiginlegra forfeðra okkar?
Heimildir: https://www.ancient-origins.net/ Frásögn Aleksa Vučković. Historic Photographs á Facebook og Phoenix Tour Armenia Facebook myndir og texti undir myndum.
1800 ára gamall Þrakíuvagn með beinagrindum af hestum fannst í Karanovo í Búlgaríu.
1800 ára gamall Þrakíuvagn með beinagrindum af hestum fannst í Karanovo í Búlgaríu, fornminjafræðilegt sambýli þorpsins Karanovo.
Hópur fornleifafræðinga undir forystu Veselin Ignatov, Istoricheskis massans Nova Zagora, sem er safn í Búlgaríu, uppgötvaði 1.800 ára gamlan hestvagn árið 2008.
Vagninn var þakinn bronsi og hafði verið skreyttur með atriðum úr þarakískri goðafræði sem nú er erfitt að sjá.
Óvíst er um nákvæman aldur en vagninn getur verið nær 1.800 ára.
Vagninn er á fjórum stórum hjólum, 1,2 metrar í þvermál, skreyttur ríkulega með silfurhúðuðum smámyndum af Eros og goðsagnaverum á ferðinni.
Beinagrindur af tveimur hestum og hundi fundust við hliðina á vagninum.
Sagan á bak við 1800 ára gamlan Þrakaríuhestvagninn
Eftir Owen Jarus, útgefin 13. október 2017
Myndin af fornum Þrakíuvagni við hlið beina tveggja hesta og hunds hefur skjótt risið upp á topp Reddit í dag, 13. október, og er meira en 65.000 manns líkað við söguna.
En hvað er svona spennandi við uppgötvunina og hver var grafinn innan vagnsins?
Hópur fornleifafræðinga undir forystu Veselin Ignatov, Istoricheskis massans Nova Zagora, sem er safn í Búlgaríu, uppgötvaði 1.800 ára gamlan trévagn árið 2008.
Frönsk greftrun. Mynd fengin að láni á Wikipedia.
Hann var þakinn bronsi og hafði verið skreyttur með atriðum úr Þrakíugoðafræði sem nú er erfitt að sjá. Óvíst er um nákvæman aldur hennar og hún getur verið nær 1.800 ára.
Árið 2009 fundu Ignatov og teymi hans einnig múrsteinsgrafhýsi, sem í eru leifar manns sem var klæddur í, að því er virðist, brynju, nálægt vagninum.
Maðurinn var grafinn með nokkrum hlutum, þar á meðal gullpeningum, gullhringjum og silfurbikar sem sýnir mynd af gríska guðinum Eros (ígildi Rómverja var Cupid).
Vagnagrafir eru grafhýsi þar sem hinum látna var komið fyrir ásamt vagni sínum, yfirleitt með hestum og öðrum eigum. Þegar einstaklingur er grafinn með hesti sínum (án vagns) er það kallað hestagröf. Mynd fengin að láni á Wikipedia.
Hann hefði verið aðalsmaður eða hugsanlega jafnvel höfðingi sem bjó í Þrændalögum til forna, í því sem nú er Búlgaría. (Í myndum: Chariot Burial) á bronsöld
Algengt er að slíkar vagnagrafir séu í Búlgaríu.
Sú venja að aðalsmenn séu grafnir nálægt vögnum virðist hafa hafist í Búlgaríu fyrir um 2.500 árum, skrifaði Ignatov í grein sem birtist árið 2007 í tímaritinu Archaeologia Bulgarica.
Hann tók fram að iðkunin væri sérstaklega vinsæl á tímum Rómaveldis sem stóð yfir frá því fyrir hartnær 1.500 til 2.100 árum.
Þótt íbúar sumra annarra héraða Rómaveldis hafi einnig stundum grafið aðalsmenn sína nærri stríðsvögnum var þessi háttur langvinsælastur og langvinnastur í Þrakíu,“ skrifaði Ignatov í tímaritsgreinina.
Í öllum tilvikum tákna vagnarnir orðstír, völd og vald,“ skrifaði Ignatov og tók fram að vagnarnir væru líklega ætlaðir til notkunar fyrir hinn látna í framhaldinu.
Þegar vagninn var grafinn hefðu hrossin sem drógu vagninn líklega verið drepin.
Dýrafórnir, s.s. svín, hundar, kindur og hjartardýr, hefðu verið færðar guðunum, ásamt fóðurgjöfum (s.s. víni), skrifaði Ignatov.
Skreyting í grafhýsinu sýnir tvo til þrjá hesta, Drómeta og vagna
Stundum voru vagnarnir sjálfir teknir í sundur eða brotnir í sundur áður en þeir voru grafnir, skrifaði Ignatov.
Þar sem vagnar eru algengir í Búlgaríu og stundum með verðmæta hluti með reyna landtökumenn að finna þá og selja á svörtum markaði, að því er Ignatov tekur fram.
Þetta þýðir að fornleifafræðingar í Búlgaríu keppast oft við að uppgötva og grafa upp vagna áður en þeir finna þá og ræna þá.
Þar sem fornleifafræðingarnir grófu upp þessi farartæki áður en þjófar komu að þeim er hægt að sýna gersemarnar opinberlega á safni og myndum sem sýna vagnförina er miðlað opinberlega á Reddit og öðrum samfélagsmiðlum.
Heimild: Frumgrein á Live Science. Þýðandi og samantekt: Friðrik Kjartansson Yfirlestur: malfridur.is
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
Verð £ 1100 Stærð yfirbyggingar 121,92 cm eða 4 fet Breidd 79,248 cm eða 2 fet og 6 tommur Hæð 79,248 cm eða 2 fet og 6 tommur. Bremsur eru ekki sjáanlegar. Þessi vagn er handvagn dreginn af manni.
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
Verð £2300. Takið eftir hversu fjaðrirnar eru ofarlega til að kerrugólfið geti verið sem næst jörðu svo þægilegra sé að lest svínin á fæti. Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
Skjólborðin eru hækkanleg eða lækkanleg um helming með viðbót ofan á grunnskjólborðin svo hægt væri að taka meira af kolum. Ef vel er að gáð er eins og teiknaðir séu bremsudiskar á bak við hjólin?
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
No 1. 1– Stærð yfirbyggingar 353,68 m x 170,7 m Verð £ 5500 No 2. 2- Stærð yfirbyggingar 396,24 m x 182,88 m Verð £ 6400 No 3. 3- Stærð yfirbyggingar 445,08 m x 211,68 m Verð £ 7200 No 4. 4- Stærð yfirbyggingar 487,68 m x 213,12 m Verð £ 8000 Með bremsum og fjöðrum. Skaft fyrir tvo hesta er innifalið í verði. Niðurtekin afturöxull til að geta aftur fellt gólfið niður til frekara rýmis.
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
Verð £ 3810. Sendiferðavagn sem flutti sælgæti og gotterí, líklega líka konfekt, annaðhvort í búðirnar eða til almennings. Útbúinn með lömpum og letur útfært í listrænum stíl úr gæða enskri gyllingu. Góð uppstig, vönduð hlíf framan við kúskinn, fjaðrir þrjár, ein þversum aftan tengd við enda beggja langsum fjaðranna og falleg skreyting í þaki yfir kúskinum og neðarlega á miðri hlið. Stærð yfirbyggingar: Lengd 152,4 cm x breidd 1097,28 cm x hæð 121,92 cm
Nýlega var ég að skoða myndir á netinu sem sýna hvernig smíðuð eru vagnhjól úr tré, svokölluð pílárahjól.
Aðferðirnar virðast vera býsna þróaðar og beita smiðirnir mikilli færni við verkið.
Einnig eru verkfæri þeirra mörg hver sérhæfð og talsvert flókin að gerð en byggja á gamalli tækni.
Samt sjást þeir nota nútíma rennibekki og hulsubora sem ekki þekktust áður fyrr.
Járngjarðirnar er nú hægt að rafsjóða saman, en fyrr meir var ekki um annað að ræða en eldsjóða þær. “Vagnamenning” í okkar landi var ekki mikil, byrjaði seint og stóð stutt, varla nema áttatíu ár.
Tæplega notaðir nema tveggja hjóla hestvagnar.
Samt munu menn hafa náð tökum á að smíða svona hjól. Um það veit ég samt grátlega lítið.
Samt þekkti ég mann sem á ungum aldri var sendur úr sinni heimasveit, Hvolhreppi, austur undir Eyjafjöll með léleg vagnhjól sem skyldi endursmíða.
Þessi maður var Jón Ingi Jónsson ( 1911-1996 ) sem lengi var bóndi í minni heimasveit, Fljótshlíð, mikill úrvalsmaður og lagtækur vel.
Hefur hann eflaust orðið að liði við smíðarnar. Smiðurinn var aftur á móti Sigurjón Magnússon í Hvammi ( 1889-1969 ).
Hann var einn þessara manna sem virtist geta smíðað hvað sem var.
Hann var jafnvígur á tré- og málmsmíði og jafnt grófa smíði sem fína og ég þykist vita að honumhafi ekki orðið skotaskuld úr að koma saman vagnhjólum.
Þó hygg ég hann ekki hafa átt nein sérhæfð verkfæri til þeirra hluta en það hefur hann bætt upp með hyggjuvitinu. Kristinn Jónsson, alltaf nefndur vagnasmiður, sem var langafkastamestur við vagnasmíði, taldi að vagnhjól hafi ekki borist hingað til lands fyrr en 1874.
Þó eru óljósar sagnir um að stöku vagnar hafi verið til fyrr en notkun þeirra hefur þá verið það lítil að hún skipti engum sköpum.
Þessi hjól voru gjöf Kristjáns konungs til bænda í Grímsnesinu, Lofts Gíslasonar.
Vitað er að þau voru lengi í notkun.
Torfi Bjarnason í Ólafsdal hóf að smíða vagnhjól 1882 og kenndi nemendum í skóla sínum að smíða og nota vagna.
Þar mun einungis hafa verið um að ræða tveggja hjóla kerrur.
Fólksflutningavagnar á fjórum hjólum komu ekki til sögunnar fyrr en 1900, en þá hófust póstferðir frá Reykjavík að Ægissíðu.
Áðurnefndur Kristinn Jónsson hóf að smíða og gera við vagna 1904.
Hann starfaði eingöngu við það til 1917, en þá smíðaði hann yfir fyrsta bílinn og stundaði það lengi síðan. Rak hann talsvert umsvifamikið verkstæði sem varð með tímanum vel búið tækjum.
Þegar kom fram um miðja tuttugustu öldina munu hestvagnar í notkun hafa verið fleiri en bændabýlin í landinu.
Þá áttu allir bændur orðið vagn, sumir tvo, og stöku bændur fleiri.
Mjög fjaraði undan hestvagnanotkun miðja öldina og þar sem ég þekkti til var notkun þeirra hverfandi eftir 1960.
Á þessum tíma urðu dráttarvélar allsráðandi í búskap og bílar voru talsvert fyrr teknir við hlutverki vagnanna í þéttbýli svo þeir fáu vagnar sem enn eru til séu orðnir safngripir.
Með kærum þökkum til Daða fyrir frábæra frásögn og framlag til þessa verkefnis
Yfirlestur: malfridur.is
Myndskreyting Friðrik Kjartansson
P.S. Ef þú hefur frásögn sama hversu lítil sem hún er er þér velkomið að hafa samband. Rafpóstur: elonfk@gmail.com
Wagon on Sandford Lane Hverjum finnst þessir vagnar yfirleitt ekki skúlptúr eða listaverk á sína vísu? Ótrúlegt að einhver eða einhverjir leggi alla þessa vinnu á sig, sem greinilega þarf til að skapa og viðhalda þessari hefð. Myndin fengin að láni hjá myndasmið: John McKale.
Romanvagn í Englandi. Vel málaður og snyrtilegur Heimild: Gypsy Life in Britain FacebookRomanfjölskylda, ár ekki vitað Heimild: Gypsy Life in Britain FacebookFallegur, sterkur og burðarmikill vagn Heimild: Gypsy Life in Britain FacebookÁ leið á hitting hjá romanfólki. Farkosturinn / heimilið ekki af verra taginu. Heimild: Mynd fengin að láni á ,,Gypsy life in Britain” á Facebook.
Smíðaður af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!
Verð og burðarþol. Númer 1 getur borið 10 cwt £1000 ‡ Númer 2 getur borið 15 cwt £1600 ‡ Númer 3 getur borið 20 cwt £2000 ‡ Númer 4 getur borið 30 cwt £2300 ‡ Númer 5 getur borið 40 cwt £2500 ‡ Númer 6 getur borið 50 cwt £2800 ‡ Númer 7 getur borið 60 cwt £3000. Pallur vagnsins er eilítið boginn niður í miðju en það er til að hlassið sitji frekar kyrrt í bröttum brekkum upp eða niður. Innifalið í verði eru lamir á gaflloki og bremsur eins og teikningin sýni
Sagan sem fylgir vagninum: Friðrik settist aldrei upp í þennan vagn enda góður reiðmaður og vildi ekkert með vagninn hafa að gera.
Konungur reið gjarnan fremstur í flokki, því að hann vildi heilsa fólki fyrstur og taka því tali ef honum sýndist svo.
Vagninn eftirlét hann Carl Locher, sem var málari í fylgdarliði hans og var orðinn nokkuð aldraður og þungfær.
Eitt sinn var vagninn dreginn tómur og var þá konungi sagt að Carl væri sjálfur ríðandi.
Reið konungur þá Carl uppi til að spyrja hann hvernig hann hefði komist á bak! Ástæðuna má sjá ef smellt er á hlekkinn að nafni málarans hér ofar í textanum!
Athuga skal að þessi frásögn eru munnmæli ekki staðreindir!
Vagninn er á gúmmíhjólum, það er að segja sérstök gúmmípulsa sem er með einum eða tveimur vírum inn í til að strekkja gúmmíið utan um hjólið og ofan í u-skúffuna sem er úr járni og virkar eins og felgur nútímans.
Reyndar er þessi lausn fyrstu felgurnar, eftir því sem vefsíðueigandi best veit. Gúmmíhjólin komu til skjalanna eftir 1855 eða þar um bil.
Charles Goodyear fann upp aðferð til að efnabreyta gúmmíinu til að nota það í dekk undir ökutæki af slysni.
Goodyear fór í skuldafangelsi og dó öreigi meðan aðrir stórgræddu á uppfinningu hans.
Bogann er búið að spengja í þessum Phaeton. Þessi eða svipaður bogi finnst líka í „Viktoriu“-vagninum og fleiri gerðum vagna.
Fremra sætið vísar farþegum aftur (snúa aftur). Var svoleiðis í Vis a Vis og/eða Social-vögnum.
En hafa ber í huga að Phæton kom í mjög mörgum útgáfum og stundum er svolítið erfitt að skilgreina hverrar gerðar þeir eru.
Kúskurinn eða ökumaðurinn sat að öllum líkindum til vinstri héðan megin séð með taumana en það gæti líka verið að kúskurinn sæti bara á hestinum og æki vagninum þannig; það var vel þekkt, þó aðallega hjá aðlinum og kóngafólki.
Setan eða sessan undir kúskinn var oftast hærri að aftan og myndaði þannig halla fram, líklega til að gefa betri líkamsstöðu til akstursins.
Járnverkið í armhvílunni á sætinu bendir til að sætið sé upprunalegt eða smíðað með vagninum.
Litlu napparnir beggja megin á handriðunum gætu verið vísbending um það, en þeir eru til að krækja hlífðarteppi eða dýrahúð yfir farþega.
Uppstig eru mjög mikilvæg, gerðu mögulegt að byggja vagnana hærra og hærra frá jörðu og komu sér vel þegar stóru og háu póstvagnarnir komu til sögunnar en það var snemma eða á 16. öldinni.
Sagt er frá í sumum lýsingum á vögnum að þeir væru hengdir1lágt til að eldra fólk og konur ættu auðveldara með umgang.
Uppstig á vögnum með yfirbyggingu sem var með hurðum var oft þannig að hlíf var látin koma yfir þrepið/uppstigið. Þegar hurðinni/unum var lokað var hlíf yfir uppstiginu fest undir hurðina/hurðirnar sem hjálpaði til við að halda frá því miklum óhreinindum.
Lögunin á sætinu og brettinu er nokkuð einkennandi fyrir Phæton.
Oft var fellanleg húdd/hlíf2 úr leðri eða öðrum efnum yfir sætinu og kallaðist (Hood) á ensku.
Einnig var Victorían með svipuðu lagi á afturhlutanum.
Nafngiftin Viktoría er í höfði Viktoríu drottningar Stóra Bretlands.
Við erum að horfa á fimmta hjólið, ( the fifth wheel ) með miðjubolta eða ( King pin ) á ensku.
Þetta er, eins og þið sjáið, töluvert járnvirki. Það voru dæmi um að vagnarnir væru liðstýrðir, svona eins og búkollur nútímans eða Pileloader (vélskóflu), sem sagt tengipinni/bolti í miðju farartækis eða framarlega og þá þyrfti ekki fimmta hjólið.
En sú lausn náði ekki vinsældum. Sjá næstu mynd.
Tveir miðjuboltar rétt fyrir framan miðju jafni Phæton, samhverfur Phæton eða miðju Phæton
Fimmta hjóls járnverkið séð framan á.
Þegar síðast var vitað um þennan vagn var hann kominn í uppgerð á Íslandi.
Samantekt af Friðrik Kjartansson Með innilegum þökkum til Þorkells Hjaltasonar fyrir lánið á myndunum.
Steingerðar leifar rómversks tveggja hjóla hestvagns í Króatíu
Vinkovci er bær í Austur-Króatíu og í nágrenninu er lítið þorp, Stari Jankovaca, en svæðið var undir yfirráðum Rómverja 300–400 eftir Krist.
Fornleifafræðingar grófu upp heillega steingervinga af tveggja hjóla vagni, þekktur á latínu sem Cisium = léttur hjólavagn, ásamt steingerðum beinagrindum af hestum.
Hestarnir og vagninn voru saman í rými sem greinilega var nokkurs konar haugur þekktur úr greftrunarsiðum víkinga að leggja til höfðingja í skipum sínum sem eru sjaldgæfir greftrunarsiður meðal Rómverja.
Vel efnuð fjölskylda mun hafa greftrað hesta og vagn með þessum hætti samkvæmt fræðimönnum en auðmenn þessara tíma voru stundum greftraðir með þessari aðferð með hestunum sínum.
Sviðstjórinn Boris Katofil útskýrði fyrir þarlendum fjölmiðlum að sá siður að grafa í kumli (forngrafhaugur) væri óvenjuleg aðferð þarna suður af Pannoinan-vatnasvæðinu.
Boris bætti við: Siðurinn er í tengslum við afar auðugar fjölskyldur sem hafa gegnt áberandi hlutverki í stjórnsýslunni, félagslegu og efnahagslegu í samfélaginu í héraðinu.
Fundurinn er talinn vera frá þriðju öld e.Kr. en teymi vísindamanna vinnur að því að staðfesta aldurinn.
Marko Dizdar sagði þetta einstaka uppgötvun í Króatíu.
Hann sagði: Það næsta sem unnið verður að er langt ferli hreinsunar og varðveislu fundarins samhliða rannsóknum og skilgreiningum.
Við höfum meiri áhuga á hestunum, hvort sem þeir eru ræktaðir hér eða koma frá öðru heimsveldi, sem mun segja okkur meira um hversu mikilvæg og auðug þessi fjölskylda var.
Við finnum út úr því með samvinnu við innlendar stofnanir sem og fjölda evrópskra stofnana.
Fornleifafundur sem á sér engan líka á Ítalíu þó víðar væri leitað!
2019. Fornleifafræðingar fundu Rómverskan vagn grafinn í ösku og rykiPompeii hörmunganna frá 79 fyrir Kristsburð.
Vagninn mun hafa verið viðhafnarvagn notaður á bæjarhátíðum og tillidögum en hann var grafinn upp úr öskunni í einbýlishúsi (villu Civita Giuliana) 700 metrum norður af veggjum Pompei og er mjög heillegur og vel varðveittur miðað við 2000 ára geymslu.
Vagninn er fjögurra hjóla úr járni, bronsi og tini. Massimo Osanna stjórnandi uppgraftrarins segir að vagninn sé eini sinnar tegundar grafinn upp á svæðinu.
Uppgraftarvinna hefur áður skilað ýmsum hagnýtum ökutækjum notuð til flutninga og vinnu en aldrei þeim sem notuð voru til hátíðarathafna.
Ósanna bætti við: „Þetta er óvenjuleg uppgötvun sem efldi skilning okkar á lífinu til forna.“
Hann bætti við: „Vagninn hefði verið notaður við hátíðargöngur og prósessíur“. Menningarráðuneytið kallar það „einstaka uppgötvun til fordæmis á Ítalíu“.
Pompeii var 13.000 manna bær þegar hamfarirnar gengu yfir og fólk og lífsgögn grófust undir ösku og ryki og eyðileggingarmátturinn jafngilti mörgum kjarnorkusprengjum.
Um það bil 2/3 af 165 hektara bæjarins hafa verið afhjúpaðir.
Rústirnar uppgötvuðust ekki fyrr en á 16. öld og skipulagður uppgröftur hófst 1750.
Pompeii heldur áfram að koma okkur á óvart með opinberun við uppgröft og hreinsun, í mörg ár enn ef að líkum lætur segir menningarmálaráðherrann Dario Franceschini.
Einstakt skjal um líf grísk-rómverska Pompeii stórt aðdráttarafl ferðafólks um Ítalíu og er það á heimsminjaskrá UNESCO.
Myndband um uppgröft hátíðarvagnsins í Pompei ásamt tengdu efni
Boxing = Borunin á nafinu og fóðrun á því. Felloes = Hlutarnir í hjólbarðahringnum. Hub = Naf. Flat steel tire = Stálgjörð utan um hjólbarðan. Hub band = Stálgjörð utan um nafið. Spokes = Pílárar.
Heimild: A Wagon Wheels | A Wagon Wheel Information | A Wagon Wheel History
CWT er mælieining, líka þekkt sem hundredweight, notuð í sérstökum samfélögum viðskipta. Í Norður-Ameríku mun hundredweight jafngilda 100 pundum og mælieiningin er líka þekkt sem stutt hundredweight. Í Stóra-Bretlandi er hundredweight 112 pund og líka þekkt sem hundredweight.undredweight.
Heimild útskýringar: Google leitarstrengur: What is cwt?