Tag: heimild

Brougham #6Brougham #6

0 Comments

Smíðaður einhvern tímann á 19. öld í Englandi og uppgerður vandlega 1978


Lítill Brougham tveggja manna smíðaður á Long Acre í London


Falleg og hefðbundin tígul eða -demantamunstur og virkilega hlýlegur( deep button). Gott að vera í með fóthitara á veturna. Hefur verið notaður í giftingum og kvikmyndum í nokkra áratugi.


Kostar aðeins kr: 542.000 ísl. Fyrir flutning. Einstaklega vandaður gripur.


Heimildir: Ben Gray á Facebook. Sem er líka eigandi og seljandi að þessum demanti. Myndir fengnar að láni hjá Ben Gray.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Nátengt efni!

Póstvagn #602Póstvagn #602

0 Comments

Concord vagn til sýnis á alþjóðafluvellinum í El Paso!



Á skiltinu stendur eftirfarandi:

Concord póstvagn #602 – Saga og menningararfur

Þessi níu farþega Concord langferðavagn var pantaður 25. mars 1899 af Mr. F.J. Woodside til heimilis í El Paso, Texas. Vagninn var smíðaður af Abbott & Dowing póstvagna

fyrirtækið Concord, NH og var fluttur 31. júlí 1899.

Á átjándu og nítjándu öld Ameríku varð póstvagninn aðalfarartækið að meirihluta beggja alda. Þrátt fyrir velgengni voru eldri póstvagnar mjög óþægileg farartæki oftast.

1827 breytti Concord-póstvagninn hlutunum svo um munaði. Til sögunnar komu leðurbelti/borðar undir yfirbygginguna sem kom með sveifluhreyfinguna sem gerði ferðalagið þolanlegra.

Með framþróun póstvagnsins uxu ræningjar og banditar. Með aukningu á ránum á gullæðistímabilinu gerðu eigendur miklar ráðstafanir til að vernda farþega og farangur.

Langferðavagnaeigendur réðu vopnaða verði og festu öryggisskápa og box við gólfið og réðu silfursmiði til að smíða járn utan um þá svo þyngd öryggisskápanna var ekki of mikil

fyrir ræningjana til að flytja. Með komu járnbrautanna byrjaði endir gullaldarskeiðs póstvagnanna. Concord-póstvagnaarfleifðin lifir áfram sem minnismerki um hughreysti frumkvöðla og hjálpaði til við að þróa landið okkar inn í framtíðina.




Texti og myndir Fengngið að láni frá Wagon Masters á Facebook Co Dave Mason

Skráði og þýddi: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is


Enskir listivagnar #1Enskir listivagnar #1

0 Comments

Innanbæjar Chariot

Teikning no. I, táknar bæjarvagn, almennt talinn umfram alla aðra sem kjóla1– eða dómvagn2.

Er vagninn sérstaklega skreyttur af þessu tilefni, þó að hann sé almennt notaður í öðrum tilgangi, þó að hann sé almennt notaður í öðrum tilgangi.

Þessi vagn er af Frökkum kallaður Coupe3, enda í raun niðurskorinn vagn; hluti af framendanum er skorinn í burtu og aðeins eitt sæti eftir.

Áhrifin eru ánægjuleg; línurnar á framendanum falla hver í aðra í tignarlegum sveigjum, og minnkandi hlutinn fyrir ofan gefur pláss fyrir lampann án þess að trufla útlínurnar.

Að öðru leyti líkist vagninn bæjarvagninum sem áður er lýst.

Hægt að gera sömu breytingar í þeim tilgangi að ferðast, þegar vagninn verður að póstvagni (post chase). — Á þessari teikningu mun glöggur áhorfandi uppgötva nokkra galla.

Undirfjöðrin að framan er of lágt niður og fjarlægðin er of mikil á milli efri og neðri beygjunnar.

C-fjaðririn að framan rís ekki tignarlega úr rokkernum4 sínum.

Lykkjan að framan er ekki fínlega mjókkuð og er illa sett á yfirbygginguna.

Afturhluti C-fjaðranna er líka gallaður og botninn á undirstöðu kúsksætisins (Salisbury-boot) hefur enga ákveðna línu.

Neðsti bogaferill yfirbyggingarinnar er líka ójafn.

„Salsbury boot“ er strikað kringum með gulu. Uppstigið er með tveimur þrepum til að vagnstjórinn fái aðgang að kassasætinu.

Svipaður vagn er smíðaður, án undirfjaðra og með hreyfanlegan fram- og afturenda hangandi í C-fjöðrunum; farþegar og farangur hvíla allt á C-fjöðrum.

Á afturendanum er pallur fyrir tvo þjóna og á framendanum er pallur, sem getur borið kystil að innan.

Á þaki yfirbyggingarinnar getur verið farangursbox (imperial)5 og í fremri enda vagnsins er fest stór aurhlíf klædd japönsku leðri; á milli þess og hússins er staðsetning fyrir kúskinn.

Þetta formar að öllu leyti venjulegan póst Chariot (Post Chaise).

Lamparnir eru svartir og færanlegir og hlíf yfir glerið á daginn.

Til notkunar í langferðum er hægt að færa sæti til og skipta út hamarsklæðissæti og fylgihlutum.

Ef ekki er hægt að liggja endilangt inni í húsinu er hægt að taka neðri hluta framhliðarinnar af og lengja framendann í pall sem kallast svefnhús.

(dormeuse)6. Sjá mynd.

Þessi vagn er með Imperial box á þaki og imperial insigli á hurðum. Svo er hann útbúinn sem svefnhús.

  1. Kjólavagn: Konur notuðu stundum þennan vagn frekar en að ganga uppstrílaðar í miklum kjólum. ↩︎
  2. Eftirfylgni, eftirlit og ábyrgð á umsjón með meðferð lögfræðilegs máls fyrir skjólstæðing (með framkvæmd málsins). Fagleg ábyrgð er persónuleg. ↩︎
  3. Þýðir hálfur. ↩︎
  4. Vagngrindin ↩︎
  5. Imperial-vagninn var merktur innsigli um vald ættarinnar og var aðeins notaður við mikilvægustu atburði. Í fyrsta lagi var hann teiknaður af sex hvítum hestum frá Kladrub-keisarafola. Breyttist það snemma á 19. öld í átta. ↩︎
  6. Dome þýðir að sofa og er latína. ↩︎

Heimild: English plesaure carriages on internet archive

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: málfríður.is

Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!

0 Comments

Tvær mikilvægar teikningar um Dauðadals/Borax vagnana!

Milli 1883 og 1889 skiptu tuttugu múldýr spennt fyrir vagna sköpum við að flytja borax frá Death Valley til Mojave, Kaliforníu.

Þessi flutningsaðferð var skipulögð með múldýrum. Múldýrin skiluðu af sér 264 kílómetra eða 165 mílur til að komast að þar sem járnbrautarteinarnir enduðu.

Staðreyndir um vagnana


Hlutverk vagnanna var að flytja 10 „stutt“ tonn af borax í ferð. USA þyngdareining. Jafngildir 20,000 lb avoirdupois eða 9,071,85 kg sem stutt toon (short ton).

Vagnarnir voru með afturhjólum sem stóðu 2.1336 metra (sjö fet) á hæð, með 2,54 sentimetra eða 1 tommu þykkum járngjörðum á hjólum, smíðaðir upp úr gegnheilli eik.

Rýmið um borð var 4.8768 metrar (16 fet) á lengd og 1.8288 metrar (6 fet) á dýpt og hver tómur vagn vó 3.538 kíló (3.53802 tonn).

Vagnlestin, sem spannaði yfir 54.864 metra (180 fet) með múldýr í eftirdragi til vara, samanstóð af þremur vögnum sem urðu að vera til staðar svo hægt væri að fara af stað.

Fremsti vagninn, „Trailer“ og seinast „Back Action“, og allra síðast var vatnsflutningatankurinn.


Teymisstjórinn var ábyrgðarmaður á stjórn teymisins, notaði langan taum sem kallaður var „Skíthælslína“-1 og langa svartormasvipu.

Hann var venjulega að stjórn við vinstra hjólið og gat teymisstjórinn einnig stjórnað bremsunni frá vagnsætinu niður bratta brekku.

„Skiptirinn“ sem venjulega sat í vagninum stjórnaði bremsunni á mishæðóttu landi.

„Skiptirinn“ var líka með fötu af litlum steinum til að grýta múlhestana til hlýðni. Báðir deildu mennirnir með sér ábyrgð, þar á meðal að undirbúa liðið, sinna þörfum múldýranna og sinna dýralæknis- eða viðgerðarmálum.

Hádegisstopp leyfði að fóðra og vökva múlhestana þótt þeir væru enn beislaðir, og á kvöldin voru múlarnir settir í búr með fóðurkössum.

Ferðalag hvers dags var yfirleitt 10,6 kílómetrar eða nálægt 17 mílum, sem olli því að ferðin aðra leiðina tók um það bil tíu daga. Fyrirtækið sem rak þessa „útgerð“ útvegaði skála á næturstoppum fyrir ökumenn og múldýrin.


Söguleg frásögn Remi Nadeau, „Fraktteymi Nadeau í Mojave“, leggur áherslu á yfirburði múlhestanna til notkunar í eyðimörkinni og undirstrikar mikilvæga hlutverk þeirra í að flytja borax með góðum árangri.

Með því að skilja flutninga, forskriftir og rekstrarstjórnun tuttugu múldýra sem var beitt fyrir vagnana fáum við innsýn í þá ótrúlegu viðleitni sem auðveldaði flutning á borax seint á 19. öld.

Norður-Bandaríkja þyngdareining sem jafngildir 2.000 lb avoirdupois (907,19 kg). nafnorð: stutt tonn


Smelltu á Google Ngram Viewer til að sjá nákvæmari tímalínu og stærri!

Google Ngram Viewer

Heimild: History Shortcut á Facebook

Skráði og þýddi: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Hestvögnum fylgdu Dalmantíuhundar með uppruna í austurhluta MiðjarðarhafsinsHestvögnum fylgdu Dalmantíuhundar með uppruna í austurhluta Miðjarðarhafsins

0 Comments

Uppfært 4. april 2026.

Hestvagnar höfðu Dalmatíuhunda sem fylgdardýr.

Hreinræktaður Dalmantíuhundur.

Við erum enn ekki alveg viss um nákvæmlegan uppruna dalmatíuhundsins sem er líklega ekki í Dalmantíu.

Hann kom seint til sögunnar miðað við alla mannkynssöguna eða um 1790.

Áreiðanlegustu heimildirnar benda til þess að þær séu upprunnar í austurhluta Miðjarðarhafs þaðan sem þær dreifðust til Indlands og yfir Evrópu.

Hreinræktaður Dalmantíuhundur

Sumir benda á að þeir hafi gert þetta á ferðalögum með roman fólkinu.

Nafnið gefur okkur upprunatengingu til Dalmatíu, sögulegs svæðis Króatíu á austurströnd Adríahafs, en vísindamenn hafa komist að því að svo var ekki.

Dalmantíuhundar hafa sterka veiðieðlishvöt og eru frábær kostur til veiða á rottum og meindýrum.

Þeir hafa verið notaðir sem fuglahundar, slóðrakningarhundar, sóknarhundar eða á galta- og/eða hjartarveiðar.

Dalmatíuhundar eru kannski þekktastir fyrir hlutverk sitt sem fylgdardýr slökkviliða og lukkudýr í eldhúsum.

Dramatísk merking þeirra og greind hafa gert þá farsæla sirkushunda í gegnum tíðina.

Þar sem Dalmatían og hestar eru mjög samhæfðir var auðvelt að þjálfa hundana í að hlaupa á undan hestvögnum til að hjálpa til við að ryðja brautina og leiðbeina hestunum og slökkviliðsmönnum fljótt að eldunum.

Slökkviliðslukkuhundur með varanlegan heiðurssess í liðsheildinni.

Upplýsingar um og úr myndbandinu.

Ég náði tali af Stacy Henderson Foster á nýlegri AKC-staðfestingarsýningu.

Tíkin hennar, Fancy, vann tegundina þann daginn og það er engin furða því hún er gullfalleg.

Í þessu myndbandi sest ég niður með Eleanor Green Winters, sem ræktaði Fancy, og hún segir mér allt um Dalmatíuhunda.

Hinir yndislegu og áberandi svörtu eða lifurbrúnu dílar Dalmatíuhundsins prýða einn sérstæðasta feld í dýraríkinu.

Undir dílunum er tignarlegur og vel skapaður brokkari sem er á milli 48 og 58 cm á herðakamb. Dalmatíuhundar eru vöðvastæltir og byggðir til að þola álag; kröftugir afturhlutarnir veita drifkraftinn á bak við mjúkt og áreynslulaust brokkið.

Dalmatíuhundurinn var upphaflega ræktaður til að gæta hesta og vagna og eitthvað af gamla verndareðlinu er enn til staðar.

Þeir eru hlédrægir og virðulegir, geta verið frábitnir ókunnugum og eru áreiðanlegir varðhundar.

Með sínu fólki eru Dalmatíuhundar gáfaðir, tryggir og ástríkir heimilishundar.

Þeir eru sterkir og virkir íþróttamenn með mikið úthald – dásamlegir félagar fyrir hlaupara og göngufólk.


Dalmatían eru oft taldir vera góðir varðhundar og þeir gætu hafa nýst slökkviliðum sem varðhundar til að vernda eldhús og búnað þess.

Slökkvivagnar voru áður dregnir af hröðum og öflugum hestum, freistandi skotmark fyrir þjófa, svo Dalmatían voru haldnir í eldhúsinu til að hindra þjófnað.

Jafnvel í dag er Dalmatían-hundurinn lukkudýr slökkviliðsins og þú getur jafnvel fundið lifandi dæmi í nánast hvaða stórborg sem er um allan heim.

Sjónvarpið, eða RÚV, sýnir þætti sem heita Neyðarvaktin sem fjalla á vandaðan hátt um líf slökkviliðsmanna og á stöðinni er hreinræktaður Dalmantíuhundur.

Það er ekki tilviljun.


Heimild: https://ccdalmatians.com.au/historyorigin-of-the-dalmatian/ You Tube og Dogumentary TV

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Minning

Þýtt og unnið í minningu hundsins hennar dóttur minnar sem lifir alla tíð í hjörtum okkar. Líka til minningar um Aragon sem varð 17 ára og þriggja mánaða.

Hún var samt bara hálf Dalmatía en eiginleikar Dalmantíunnar komu sterkir í gegnum Kollíblönduna. Konan mín Unnur Vikar er í einu af aðalhlutverkunum.

Fundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinuFundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinu

0 Comments

Til er saga um orustu af Muye árið 1046 f.Kr., á milli 50.000 hermanna fornu kínversku Zhou-ættarinnar og 700.000 frá Shang-ættinni.

Sagan segir að Shang-hermennirnir hafi verið svo óánægðir með leiðtoga sína að margir hlýddu og börðust en aðrir yfirgáfu Zhou, sem vann orrustuna og sannaði styrk þeirra í norðurhluta Kína.

Fornleifar frá Zhou-ættveldinu sem var langlífasta ætt Kína.

Vandaður vagn var losaður úr gröf sinni, skreyttur með dreka, koparbjöllum og jaðri, vagn af konunglegum gæðum.

Leifar af tveimur hestum með bronshjálma ásamt leirmunum og steináhöldum.

Hver veit nema hermaðurinn, sem var þar, hafi tekið þátt í orrustunni um Muye?

Hvort sem hann gerði það eða ekki, var hann greinilega sérstaklega heiðraður af fólki sínu eins og sést af auðlegð grafargripanna.

Mikilvægasta uppgötvunin í þessum uppgreftri var K1-vagninn og hestagryfjan.

Gryfjan er rétthyrnd skaftgryfja, 7,1 m löng frá austri til vesturs, 3 m á breidd frá norðri til suðurs og 2,7 m djúp, með veggjum sem eru næstum bein.

Í gryfjunni voru tveir vagnar og bein tveggja hesta hvers vagns.

Vagnarnir tveir snéru endum saman, með höfuð hestanna beint í austur.

Vagn númer eitt … er hágæða með fallegum skreytingum. Vagninn og hestarnir tveir eru í tiltölulega góðu ástandi.

Yfirbygging vagnsins er þakin rauðbrúnu lakki, með íhlutum eins og trébita undir vagninum og hliðarplankarnir skreyttir með rauðlakkaðri afmyndaðri drekahönnun.

Krosstré á dráttarskaftinu eru skreytt með klingjandi bronsbjöllum.

Bæði nöf öxulsins eru skreyttar með bronshettum.

Framan á vagninum og á hvorri hlið yfirbyggingarinnar eru næstum ferköntuð jaðarstykki.

Fyrir utan mikið af skreytingum á andlitum hestanna, ásamt mörgum leður- eða línhestakviðbúnaði skreyttum með bronsi, voru líka tveir bronshjálmar á höfði þeirra.

Fornleifafræðingar fundu mörg ummerki um daglegt líf í grafreitnum, þar á meðal leirmuni, steináhöld, matreiðslupott og öskuholur.

Þetta sýnir að á þessu grafarsvæði var samtímabúseta.

Að grafreiturinn og búsetusvæðið hafi annaðhvort verið á sama stað eða í nálægð hvort við annað er kannski afleiðing þess að íbúar hafa aðlagast hásléttunni í langan tíma.

Greinin hjá Archaeology News Network gaf ekki til kynna hvaða ár grafreiturinn var virkur nema til að segja að hann væri af Zhou-ættveldistímabilinu.

Eftir orrustuna af Muye framdi konungur Shang-fólksins sjálfsmorð með því að loka sig inni í höll og brenna hana umhverfis sig.

Leiðtogar Zhou-ættarinnar, sem stóð frá 1046 f.Kr. til 256 f.Kr., réttlættu landvinninga sína með því að segja að Shang hefði brotið gegn umboði himnaríkis eða brotið af sér með þeim guðum sem ráðandi voru.

Alfræðiorðabókin Ancient History á netinu segir að hvert síðari kínverska ættarveldi sem tæki við af gömlu myndi réttlæta nýjar reglur með sömu skýringum.

Sumir af mikilvægustu persónum Kína til forna lifðu undir síðari hluta Zhou-ættarinnar, sem var talið tímabil listrænnar og vitsmunalegrar uppljómunar.

Margar af hugmyndunum sem þróaðar voru af persónum eins og Laozi eða Lao-Tsu, Confucius, Mencius og Mozi, sem allir bjuggu á Austur-Zhou tímabilinu, myndu móta eðli kínversks samfélags til dagsins í dag.

Segir í alfræðiorðabókinni.

Málverk sem sýnir fæðingu fornkínverska heimspekingsins Laozi, sem sagði: „Sá sem þjónar höfðingja manna í sátt við Tao mun ekki leggja heimsveldið undir sig með vopnavaldi.

Slík hugsjón er vön að hafa hefnd í lestinni.“ (Málverk eftir Nyo/ Wikimedia Commons)


Heimild: https://waydaily.com/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Vagninn hans Emils og fjölskyldu í Kattholti?Vagninn hans Emils og fjölskyldu í Kattholti?

0 Comments

Alþýðuvagn smíðaður í Noregi milli 1850–1925. Líkist vagninum hans Emils í Kattholti.

Ekki er til heimild fyrir árgerð þessa eintaks sem alþýðuvagn eða heimilisvagn er smíðaður.

Aldurinn er einhvers staðar á bilinu 99 til 174 ára.

Voru vagnarnir smíðaðir í Noregi á því tímabili? Það er það sem til er um hann: Kjökkenvogn eða eldhúsvagn frá Grimstad.

Heimildin sem fyrri eigandi fræddi mig um. Til Íslands kom hann með Herjólfi sem kom frá Noregi úr slipp 1996.

Heillegur og tilbúinn í dekrið sem mér vonandi veitist að fá að fást við.

Ekki hefur þótt ástæða til að „eyða“ í bremsur eða önnur þægindi fyrir alþýðuna.

Holt fyrir okkur að sjá fyrir okkur ferðalög á þennan máta.

Takið eftir hvernig hjólbarðinn er samsettur.

Festur saman! Járnvinnan á bekkjaburðarvirkinu er í senn einföld, snjöll og langt umfram amerísku útfærsluna sem er seinleg og flókin í smíði en samt falleg að mínu mati.

Sjást vel á aftara sætinu, armhvílunni og nabbinu sem heldur yfirbreiðslunni fyrir farþega en oftar en ekki var yfirbreiðslan kindagæra.

Blessuð jólin koma einu sinni á ári. Skreytum þennan aldursforseta, vagninum og skapara hans til heiðurs.


Járnverkið er bara með ágætum í eldhúsvagninum. Það verður gaman að sandblása og breyta til hins betra.

Myndir af svipuðum eða eins vagni í Noregi

Sést vel hvernig undirhlaupið kemur upp úr gólfinu.

Svo eru dráttarkjálkarnir tengdir beint inn á fimmta hjólið í stað þess að á mínum vagni sé tengt í fjaðrirnar að framan.

Til sölu: Ásett verð Ísl kr. 242.000 — (2023)



Í Noregi er svipað loftslag og á Íslandi og því er gamla góða gæran velkomin þegar kalt er.

Sérstakir nabbar eða pinnar eru á armhvílunum á sætunum til að krækja gærunni á svo hún haldist á sínum stað.


Vagn með svipaðri hönnun og yfirbragði er næstum alveg eins.

Þar eru meira að segja bólstraðir bekkir, bara sófi.

Undantekningin er undirhlaupið fyrir framhjólin í beygju, framhjólin því stærri.

Vagnasmiður í Noregi sem heitir/hét Omnia er skrifaður af þessum og fleirum. Er skapari norska vagnsins fundinn?

Fortíðin er heillandi að mér finnst.

Fátæktin var líka mikil.

Ég gæti hugsað mér heim án fátæktar en að öðru leyti eins og á sautjándu, átjándu og nítjándu öldinni, án fátæktar en með allsnægtum án spillingar jarðarinnar okkar.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Síams Pæton #1Síams Pæton #1

0 Comments

Ingenhoes-De Bilt er þrykkt á hjólkoppana og er skapari vagnsins í Hollandi!

Vandaður vagn eins og skapari hans lítur út fyrir að hafa verið. Vefsíða um vagnasmiðinn í Hollandi

Smíðaár þessa vagns kemur ekki fram en Ingenhoes & Buitenweg stofnuðu framleiðsluna 1837.


Greinilega er lagður metnaður í smíði og frágang.



Ekki hægt að segja annað en að öll vinna og frágangur sé með betra móti.

Handfangið til að losa sætið/sófann svo hann snúist aftur þannig að hægt sé að hleypa fólki um boð.

Sætið eða sófinn snýr nú aftur svo farþegar geta farið um borð

Skapari vagnsins. Nafn og staður þrykktur á hjólkoppana.

Geymsla fyrir svipuna og eða regnhlífarnar.

Öflugur og vel smíðaður bremsugír.

Ekki amaleg sæti til ferðalaga. Svo eru sessurnar lausar til þrifa. Bara losa beltin sem halda þeim.

Glæsivagn Síams Pæton í fullri notkun. Smíðaár er ekki minnst á.


Cabriolet #4Cabriolet #4

0 Comments

Nafn vagnsins er Cabriolet og er upprunnið í Frakklandi einhvern tímann á sautjándu öld.


Fjögra hjóla Amerískur Cabriolet
Gozzandini

Gozzadini greifi segir í verki sínu um hestvagna á fornöld að Cabriolet hafi verið kynntur á Ítalíu 1672.

Greifinn lýsti fyrstu hönnun vagnsins sem hefði verið svipuð í laginu og Gig, með bogadregna yfirbyggingu sem hvíldi á tveimur dráttarsköftum á tveimur hjólum á öndverðum hestaenda vagnsins.

G.A. Thrupp hélt að þessi gerð farartækis gæti verið frá ýmsum stöðum veraldar, t.d. Carriole frá Noregi, Calesso frá Napolí og Volante frá Kúbu.

Þegar Cabriolet kom til Englands var vagninn eftirmynd skeljaryfirbyggingar skýldur með niðurfellanlegu húddi/skerm ásamt því að vera búinn litlum sætum. Carriage of Britain

Eðlilega undirgekkst hönnunin breytingar á tilverutíma sínum og Cabriolet frá nítjándu öld var ekki ólík Curricle eða Gig.


mestu leyti voru vagnarnir byggðir fyrir eina eða tvær persónur og voru þeir varðaðir með leðurhúddi/skerm yfir sætið ásamt háum bogadreginni hlíf framan.

Fallega bogadregin yfirbyggingin var búin bogadregnum dráttarsköftum staðsettum neðst til beggja hliða yfirbyggingarinnar, svo gengu sköftin aftur og tengdust C-fjöðrum.

Þjónapallur var aftast. Önnur hönnun/gerð Cabriolet var fjögurra hjóla prívatvagn, þekktur undir nafninu Pæton til styttingar.

Cab (leigurvagn) kom fram 1823 frá David Davies sem var fyrstur til að koma leyfisháðum leiguvögnum á stræti London en þeir fengu fræga nafnið Hackney Cabriolets.

Þeir vagnar voru tveggja hjóla útgáfa af Cabriolet með sæti fyrir kúskinn.

Frásögn af Britannica

Cabriole (franska: „caper“) vegna þess hve létt og skoppandi hreyfingin var.

Síðar voru cabriolet-vagnar smíðaðir með fjórum hjólum.

Þegar þeir voru notaðir sem leiguvagnar voru þeir oft með aukasæti eða hliðarsæti fyrir ökumanninn.

Seinna var orðið cabriolet, stytt í „cab“, notað yfir hvaða leiguvagn sem var, eins og hackney-vagn.


Samantekt

Árið 1830 var cabriolet vinsæll, tvíhjóla vagn fyrir einn hest.

  • Uppruni: Frakkland.
  • Táknmynd: Varð táknmynd fágaðs heimsborgara, sérstaklega á Englandi.
  • Þróun: Þróaðist úr eldri tveggjahjólahönnun með yfirbreiðslu yfir í fágaðri útgáfur.
  • Einkenni: Léttleiki og mjúkar hoppandi hreyfingar.
  • Notkun: Leyfði farþegum að njóta útiverunnar.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760 höfundur: Arthur Ingram


Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Írski hliðarsæta vagninn #1Írski hliðarsæta vagninn #1

0 Comments

Lýsing hliðarsætavagnsins á írsku á frummálinu Irish outsite car


Mynd fengin að láni frá Irish Roots Facegook: Sirka 1884.

Írski hliðarsætavagninn. Bianconi hannaði þennan vagn. Myndirnar tvær að ofan. The Irish Outsite car

Áningarstaður Gweedore á langri leið um vesturhluta Donegalsýslu – þar sem ferðalangar drógu andann milli fjallshlíða og Atlantshafsstrandarinnar á myndinni frá Irish Roots.


Elsta gerð hliðarsætisvagnsins.

Forveri vagnsins að ofan og eldri gerðin á Írlandi.


Eldri gerð hliðarvagnsins með hjólum úr heilu tré. Cushendall, Co Antrim um 1900.
Birt með leyfi Þjóðminjasafna Norður-Írlands.

Ef einn vagn ætti að vera fulltrúi eins lands væri það án efa þessi einstaki og vel hannaði tveggja hjóla vagn á myndinni.

Fallegur vagn sem verðskuldar réttan titil.

Írski vagninn með hliðarsætin.

Vagn sem sameinar bæði einkavagn og leiguvagn.

Í þessu tilviki getur Kúskurinn setið til hliðar og snúið fram á ská.

Til að bjóða fjórum farþegum far mætti hafa framvísandi sæti á miðju fremst og vagnasmiðir gætu útbúið afturvísandi sæti að aftan fyrir þjónustufólkið.

Vagnar til prívatnotkunar voru yfirleitt alltaf betur frágengnir en leiguvagnar með leðurhlíf framan, vönduðu áklæði í bólstruðum sætum, rafhúðuðu járnverki og lömpum.

Málsetningar hliðarsæta vagnsins

Heildarlengd með dráttarsköftum 9 fet og 7 tommur = 2.956.56 sentimetrar.

Heildarbreidd með uppstigum 6 fet og 10 tommur = 1.859.28 sentimetrar. Heildarhæð 4 fet og 11 tommur = 1.252.728 sentimetrar.

Hæð hjóla 3 fet og 0 tommur = 0,914.4 sentimetrar.

Lengd fjaðra 4 fet og 0 tommur = 1,219.2 sentimetrar. Sporvídd 3 fet og 9 tommur = 1,188.72 sentimetrar.

Önnur hönnun eða gerð sem var af írskri gerð var póstvagn kynntur af Bianconi. Sá vagn var verulega stækkuð gerð af hliðarsætavagninum og fjögurra hjóla vagni sem er ekki til upprunalega í dag. Mynd að neðan.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760. Höfundur Arthur Ingram

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Nátengt efni!

Vagn Tutankhamun’s #1Vagn Tutankhamun’s #1

0 Comments

Eitt af afrekum 20. aldarinnar í fornleifauppgreftri!

Vagnar voru fyrstu afkastameiri „vélar“ en mannsorkan.

Í gröf Tutankhamuns voru 2 stórir viðhafnarvagnar, annar minni, verulega skreyttur og þrír aðrir léttari gerðir til daglegra nota.


Mynd fengin að láni frá: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)
Fellanlegt sóltjald á vagninum #2 Þýdd grein og mynd!

Vagn Tutankhamons Faraó hafði fellanlegan tjald himinn #2

Hvernig koma vagnarnir fyrir sjónir?

Í burðargrindinni voru tvö hjól en við þau var tengdur dráttarpóstur sem tveir hestar voru tengdir við.

Farartækin tóku allt fram í verkfræði sem Faróarnir tóku sér fyrir hendur í þeirri fræðigrein.

Endurgerð á fullbúnum vagni í Milwaukee Public Museum, 2022. Mynd fengin að láni á Wikapedia.

Vagninn var vel hannaður og glæsilegur að horfa á, gulllitaður og smíðaður úr tré.

Flestir gripirnir voru skreyttir gulli og á hálfeðalsteinum, leirflísum og lituðu gleri.

Hjólin voru hönnuð með nútímalegu móti, úr sveigjanlegu tré sem gat aðlagast ójöfnu yfirborði jarðvegs.

Úr hvaða efni voru vagnarnir?

Smíðin á vögnunum var sambland af handverki sem sjaldan var sameinað í eina iðngrein.

Vegna þess varð að vinna úr margvíslegum efnum eins og tré, bronsi eða eir, gulli, líni og leðri o.s.frv.

Málverk af orustu máluð 1327. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Margir hæfir handverksmenn hljóta að hafa tekið þátt í ýmsum stigum smíðinnar.

Vagnarnir á myndunum voru aðallega úr tré og gyllingu.

Í hvað voru vagnarnir notaðir?

Þessir þrír vagnar voru aðallega notaðir til að sýna Faróinn við opinberar athafnir.

Þótt einn vagninn sé ekki jafn glæsilegur og þeir sem hér hefur verið lýst má túlka að hann hafi verið notaður í almennum tilgangi, til dæmis til veiða og í útilegur.

Stríðsvagn Egypta. Mynd fengin að láni frá: The Chariot in Egyptian Warfare (touregypt.net)

Hvað þýðir þetta eða táknar?

Þetta þýðir að Forn-Egyptar kunnu til verkfræði.

Það táknar að þar sem verkfræði var stunduð til fleiri en einnar aldar var iðnaður háður efnisvali vegna þess að við smíði á vörum skipti ógallað efni mestu máli.

Geymslan á vagninum í gröfinni 1922. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Það má líka lesa úr þessu að stríðsvagnar voru tákn um virðingu, þar sem þeir táknuðu auð og voru notaðir meðal ríkra manna í valdastöðum.

Viðauki

Í Egyptalandi til forna var gullna hásætið tákn valds og sýndi þjóðfélagsstöðu.

Þetta undraverða húsgagn er það forgengilegasta af öllum þeim hásætum sem fundist hafa frá hinu forna samfélagi.

Það fannst í Annexe-héraði í grafhýsi Tutankhamans.

Hann var smíðaður af mikilli leikni og notað í efni eins og gull til að skapa þessa undraverðu list.

Mynd fengin að láni frá: The Golden Throne of Tutankhamun (globalintergold.info)

Heimild: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Fangavagn #2Fangavagn #2

0 Comments

Endursmíðaður af Hansen Wheel & Wagon shop USA!



Við hjá Hansen Wheel & Shop vorum að enda við að lúka smíði þessa fangavagns fyrir viðskiptavin. Strákarnir okkar hika ekki við að læsa inni reglubrjóta sem kunna að verða á vegi þeirra. Einhverjir hafa meira að segja skartað fangamarkið sitt inni í vagninum, þið vitið til að hjálpa til við auðkenninguna.


Falleg vinna á þessum vagni, eins og öllu frá Hansen!


Hér eru svo fangamörkin sem minnst er á undir fyrstu myndinni efst.


Meira af fangamörkum í bókstaflegum skilningi!


Snyrtilegur og vel smíðaður fram úr hófi. Passlega fínn og eða grófur! Er byggður á hjólasamstæður fjögurra hjóla eins og hefð var fyrir í USA (Gear).


Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Olíuflutningavagn #1Olíuflutningavagn #1

0 Comments

Algjörlega upprunalegur!


Upplýsingar eru ekki fyrir hendi en hann er staðsettur í Englandi. Smíðaár er ekki tilgreint.

Vagninn var byggður til að bera á milli 3 og 4 tonn, kannski meira.

Það er metið út frá uppbyggingu undirvagnsins ( the gear ).

Gengjuteinn/skrúfteinninn með hjólið ofan á vinstra megin í myndinni er til að bremsa og taka bremsurnar af og hefur þurft að vera öflugt, enda sýnist manni það.


Nátengt efni!
Olíuflutningavagn í Vestur-Virginíu #2

Frásögn/lýsing Myndir!

Heimild: Myndir fengnar að láni hjá The Antique Carriage Collectors Club Facebook.

Þýðing og skráning Friðrik Kjartansson.

Yfirlestur: malfridur.is

Aðferð við að aka torfærar brekkur #1Aðferð við að aka torfærar brekkur #1

0 Comments

Málverkið sem sýnt er heitir „The Plot 11“ eftir Harold von Schmidt og sýnir landnema sem nota blakkakerfi til að flytja vagn upp bratta brekku. Von Schmidt, sem fæddist árið 1893, var bandarískur teiknari þekktur fyrir myndskreytingar sínar af villta vestrinu.

Heimild: True Fans of Western Art – Official á Facebook

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Yfirlestu: malfridur.is (Málstaður)


Í október 1876 ályktaði Charles Goodnight að Palo Doro Canyon yrði frábær heimabúgarður.

Viðráðanlegt var að flytja nautgripina yfir gilið í einu lagi. Þröng skriða eða skor var notuð til að láta eldhúsvagnanna síga niður.

Kúrekarnir hans stóðu frammi fyrir því stóra verkefni að koma vagninum, nautgripum og birgðum niður 213 metra vegg í gilið.

Þegar mennirnir létu vagninn síga niður bröttu hlíðina, notuðu þeir múldýrin með því að hlaða þau með þungum birgðum og ráku nautgripina niður á gilbotn.

Til þess að láta vagninn síga var notuð blokk og festur. Blokkin og stífufestingar gátu þannig þolað óhóflega þungt hlass.

Slíkar stífufestingar voru oft notaðar til að hjálpa vögnum að komast yfir ár líka. Oft var þetta kölluð Manila-lína ( reipi ).

En hættulegra en uxagripadregna vagna var að fara yfir Klettafjöllin ( Rocky Montains ) með hesta og uxavagna og láta þá síga niður brattann til að komast leiðar sinnar.

Yfirlestur: malfridur.is

Þýddi: Friðrik Kjartansson

Wiklina Wasągu frá Póllandi#1Wiklina Wasągu frá Póllandi#1

0 Comments

Aðeins smíðaður í einu héraði í Póllandi, hvergi annars staðar á jörðu!

Ljósmyndir: Maciej Musiał frá Dobroń héraði í Póllandi. Maciej er líka heimildarmaður minn fyrir miklu af heimildunum sem fram koma um þennan vagn!


Wiklina na Wasągu. Við höldum okkur við frumnafnið enda heppilegast.

Maciej Musial og faðir hans smíðuðu þennan vagn saman en þeir reka hestvagnaleigu til skemmtiaksturs, brúðkaupaaksturs og alls þar á milli.

Hérna sjáum við ótrúlega hreinan ásetning í að bjarga sér við lítil efni.

Efnið er ekki meira en nauðsynlega þarf til að úr verði traustur vagn með nógan burð til daglegs brúks.


Sætin ofan úr stráum á járngrind, armhvílur úr járni, uppstig úr járni og bogakjálki til að styrkja burð vagnsins á afturhjólum.

Yfirbyggingin er úr harðviðargrind að innanverðu með tágum.

Hefðbundnar járngjarðir á hjólunum ásamt nafböndum.

Bátalag á yfirbyggingunni er líka sérstakt vegna þess að það er aðeins táknrænt fyrir þetta svæði/hérað í Póllandi, Dobroń.


Smurfeiti fatan hangir á sínum stað aftur undir vagninum.

Í árdaga hefur hún innihaldið jurta- eða dýrafitu til smurningar hjólanna og nýtist kannski enn?

550.000 ísl. kr. þarf að borga fyrir þennan grip. En svo vill til að ég veit að hann er seldur.


Harðviðargrind vagnsins sést vel á þessari mynd, með ívafi járnstyrkingar á afturhlið.

Þessi lausn í formi harðviðarbogans sem nær út fyrir hjólin og niður í nafið er þekkt í Austur-Evrópu og er snilldarbragð til að auka burð vagna.

Bátalagið á yfirbyggingunni er sérstakt fyrir þetta svæði/hérað en hefur engan annan tilgang en að vera nokkurs konar einkenni svæðisins.

Líklega er einn aðalburðarbiti fram eftir miðju vagnsins sem tengist á báða öxlana sem og tveir bitar hvor sínu megin við miðjubitann en þeir eru stuttir og ná ekki á milli öxla.

Járngrind ber uppi sætin sem ofin er með stráum. Þetta sést vel í enda járngrindarinnar þar sem endarnir hvíla bognir yfir efsta burðarbita.

Uppstigin sækja líka styrk sinn í þrjá punkta til að auka styrk þrepanna. Tveir burðarpunktar þrepanna sækja burð upp í efsta bita.


Líklega er þessi vagn mest notaður til fólksflutninga en gæti líka verið notaður til lítilla aðdrátta fyrir heimilið í formi vöru.

Fjórar manneskjur fá pláss í einu. Hér eru Maciej Musial, faðir hans, fremst í vagninum en kona Maciej Musial í aftara sætinu og móðir Maciej Musial.

Heimild: Maciej Musial

Skráð: Friðrik Kjartansson.

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Skrifað 2021

Hestasleði #2Hestasleði #2

0 Comments

Brewster & Co / Brewster & Baldvin!

Sleði frá Brewster & Co í New York smíðaður um og í kringum 1890.

Liturinn heitir Brewster-grænn með Maroon-rönd.

Bólstrunin dökkgræn. Hlífin framan við skrautið og dráttarsköftin eru háð einkaleyfi.

Sett af dráttarsköftum með upprunalegum bjöllunum festir við dráttarsköftin fylgja með.





Heimild: Antique carriages sales Facebook.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Brougham Shofle #7Brougham Shofle #7

0 Comments

Lýsing á Brougham Shofle í The English Coach Builders Sýningarskránni, heimssýningunni 1862

Þegar ég vaknaði í morgun vissi ég ekki að Brougham hefði líka komið í svona formi, því verð ég að pósta þessu og þetta er stór frétt fyrir mig. Ég treysti mér ekki til að þýða seinna nafn þessa Broughams en læt bara enska heitið halda sér en það gæti verið þýtt sem skóflan.

Svo lærði ég líka að Brougham er borið fram „Brom“: Vefsíðueigandi

Ef hugmyndin er að auglýsa þægindi Brougham samfara léttleika yfirbyggingarinnar, hneigjumst við að því að geta ekki sagt sannar frá.

Hugmyndin er að vissu leyti reynd, kannski ekki alveg orginal.

Líkindi meðal vagna.

Ef okkur skjátlast ekki þá var sýndur svipaður vagn á sýningunni 1851 og síðan hafa verið gerðar margar tilraunir svipaðar þessari.

Nokkrir vagnar voru líka sameinaðir í hugmyndinni.

Fram á sjónarsviðið komu bæði almennings- og prívatfarartæki en hurfu á stuttum tíma í limbói vannýttra og síðan eyðingar. Shofle-formið á vagninum varð vinsælt upp á síðkastið meðal aðalsmanna.

Sama hvaðan vagninn fær líkindin, en í þessu tilviki þróaðist vagninn lengra samfara notadrýgri.

Hann er líklegri til að ná vinsældum núna en áður fyrr vegna þess að tískan er ekki þröskuldur núna sem áður fyrr.

Bremsur eru ekki sjáanlegar.

Heimildir: The English Coach Builders 1887, bls. 19-20
Yfirlestur: malfridur.is

Þýddi og tók saman Friðrik Kjartansson

Nátengt efni!

Lchashen-vagninn, einstaklega vel varðveitt fornt farartækiLchashen-vagninn, einstaklega vel varðveitt fornt farartæki

0 Comments

Uppfært 18. April 2026.

Nýjasta greinin er frá Old Historical Pictures á Facebook

Nálægt Sevanvatni grófu fornleifafræðingar upp 4.000 ára gamlan eikarvagn í Lchashen, sem var einstaklega vel varðveittur í jarðveginum.

Þessi óvenjulegi fundur veitir innsýn í samgöngur og tréverkskunnáttu á bronsöld.

Eikarviður vagnsins var að mestu leyti óskemmdur, þar á meðal burðarbitar, staðsetning öxla og leifar af hjólum.

Varðveislan er einstök og gerir vísindamönnum kleift að rannsaka byggingaraðferðir, samskeytingar og verkfræðilegar ákvarðanir sem handverksmenn til forna tóku.

Merki um vandaða samsetningu benda til djúps skilnings á álagsdreifingu, endingu og hreyfanleika í samfélögum bronsaldar.

Vagnar sem þessir hefðu verið nauðsynlegir til að flytja vörur, korn eða hráefni yfir torfærur.

Fundurinn varpar ljósi á hversu þróuð flutningsnet voru á armenska hálendinu og sýnir hvernig samfélög aðlöguðust umhverfi sínu með hagnýtum verkfræðilausnum.

Greining á verkfæramerkjum á viðnum leiðir í ljós að brons- og steinverkfæri voru notuð til að móta og tálga íhlutina.

Þetta eykur skilning okkar á sérhæfingu í handverki á þessu tímabili og tæknilegri getu þessara fornu samfélaga.

Vagninn frá Lchashen býður upp á áþreifanlega tengingu við daglegt líf fyrir 4.000 árum og brúar bilið milli fortíðar og nútíðar.

Hann minnir okkur á að nýsköpun, færni og hugvit hafa alltaf verið hluti af afkomu mannsins og að jafnvel hversdagslegir hlutir eins og vagnar geta haft óvenjulega sögulega þýðingu.

Heimild: Old Historical Pictures Facebook

Ótrúlega vel varðveitt eintak miðað við aldur!

Skrifað af Aleksa Vučković sem segir aðeins af sjáfum sér.

Ég er útgefinn höfundur yfir tíu sögulegra skáldsagna og er sérfræðingur í slavneskum málvísindum.

Ég fylgi ávallt ástríðu minni fyrir skrifum, sögu og bókmenntum og leitast við að skila spennandi og heillandi lestri sem snertir dularfyllstu viðfangsefni sögunnar.

Með margra ára reynslu sem rithöfundur tek ég víðtæka þekkingu mína á sögu, málvísindum og mannfræði og færi hana yfir á ritað form með góðum árangri.


https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/07/4000-ara-eikarvagninn.jpg
Þessi frábærlega varðveitti 4.000 ára gamli vagn, aðeins úr eik, fannst neðanjarðar í þorpinu Lchashen nálægt Sevan-vatni í Armeníu. Eikarvagninn er meðal elstu vagna í heiminum.

Þegar fornleifafræðingar grafa upp forn svæði standa þeir oft uppi með leifar sem eru úr óforgengilegum hlutum.

Viður, leður, hold, klæði og öll lífræn efni finnast nánast aldrei þar sem þau rotna og hverfa í aldanna rás.

En ef réttu aðstæðurnar eru til staðar og jarðvegurinn hefur rétta efnasamsetningu geta jafnvel þessi lífrænu efni varðveist í mjög langan tíma.

Þökk sé þessu tókst rússneskum fornleifafræðingum að grafa upp Lchashen-vagninn, merkilega fornleifar úr fornöld, sem veitir heillandi innsýn í tæknilegar framfarir og menningarlegar venjur frá fyrri tímum


Þessi ótrúlega vel varðveitti 4.000 ára gamli vagn úr eik er grafinn upp í þorpinu Lchashen nálægt Sevan-vatni í Armeníu. Þetta er elsti vagn í heimi sem vitað er um. Er vagninn til sýnis í sögusafni Armeníu í Yerevan. Þessi vagn var smíðaður af Lchashen-Metsamor Culture (aka Etiuni). Það er almennt talið að þeir hafi verið indóevrópskir og töluðu mjög líklega frumarmensku. „Timeline of the Development of the Horse“ skrifar Beverley Davis. Framhald undir næstu mynd.

Lchachsen-vagninn og vísbendingar um forna samgöngumáta

Vagninn, sem er frábærlega vel varðveittur, veitir okkur mikilvæga innsýn í hugvit og handverk skapara sinna.

Þessi forngripur varpar ekki aðeins ljósi á þróun samgöngumáta til forna heldur er hann einnig mikilvæg sönnun þegar kemur að því að skilja félags-, efnahags- og menningarlega þætti svæðisins á þeim tíma


Frumstæðir vagnar frá þessum tíma (2000 f.Kr.) hafa fundist í ágætu ásigkomulagi í Armeníu. Þetta eru elstu þekktu vagnar í heimi.“ Vagnarnir í Lchashen voru einnig í bók Stuart Piggott „Fyrsti flutningur á hjólum: frá Atlantshafsströndinni að Kaspíahafinu“. Elsta víngerðin, elstu leðurskórnir, elsta strápilsið, elsti mannsheilinn og elsti vagninn-þeir fundust allir í Armeníu.

Vagninn fannst árið 1956 við uppgröft á Lchashen-grafreitnum við bakka Sevanvatns í Armeníu.

Til að geta vökvað hið víðfeðma Ararat-sléttlendi í nágrenninu þurftu rússarnir að tæma hluta vatnsins, lækka yfirborð þess og afhjúpa þannig gríðarstóran sögulegan stað.

Þessi staður er ríkur af fornleifum og hefur gefið af sér fjölda gripa frá brons- og járnöld.

Grafreiturinn, með sínum víðfeðmu grafhaugum og haugfé, veitir heildstæða sýn á forna íbúa svæðisins sem líklega tilheyrðu Lchashen-Metsamor-menningunni.

Meðal mikilvægustu fundanna var Lchashen-vagninn, sem er frá 15.–14. öld f.Kr.

Þessi uppgötvun var afgerandi til að sýna fram á tæknilega getu fólksins sem bjó á þessu svæði á fyrri hluta járnaldar.

Vagninn er talinn vera undur fornrar verkfræði.

Hann er um það bil 2 metrar (6,5 fet) að lengd og er aðallega smíðaður úr eik, með bronsfestingum sem undirstrika málmsmíðakunnáttu smiðanna.

Grind vagnsins er gerð úr sterkum viðarbitum sem eru flókið tengdir saman til að veita styrk og endingu.

Hjólin, sem einnig eru úr viði, eru styrkt með bronshjólnöfum og -gjörðum, sem tryggir að þau þoli álag ferðalaga um ógreiðfært landslag.

Notkun brons, ekki aðeins í hagnýtum tilgangi heldur einnig fyrir skrautelement, bendir til mikillar handverkskunnáttu og skilnings á bæði fagurfræði og notagildi.

Ef litið er á biblíukortin er Armenía þar sem Edensgarðurinn var og Eden þar sem Adam og Eva voru sköpuð og þar af leiðandi er það fæðingarstaður mannkynsins. Í raun er Armenía þar sem mannkynið fæddist og endurfæðist svo…

Ferðast á ströndum Sevanvatns

Ítarlegar rannsóknir og skönnun benda til þess að hlutar vagnsins hafi verið með flóknum útskurði og skrautlegum þáttum.

Viðaryfirborðið var líklega skreytt með rúmfræðilegum mynstrum og dýramyndum, sem endurspegla listrænan smekk þess tíma og benda til þess að vagninn hafi verið gerður fyrir valdamikinn einstakling, líklega staðbundinn höfðingja.

Þessar skreytingar eru ekki aðeins til skrauts heldur þjóna þær einnig sem menningarlegir vísar og veita innsýn í táknræna og trúarlega trú fornra Armena.

Tilvist slíkrar ítarlegrar listar á hagnýtum hlut eins og vagni bendir til mikilvægis listar og táknmynda í daglegu lífi þeirra.

Uppgötvun Lchashen-vagnsins hefur mikilvægar afleiðingar fyrir skilning okkar á fornum samgöngum og viðskiptum.

Vagnar eins og þessi voru líklega notaðir í ýmsum tilgangi, þar á meðal til að flytja vörur, landbúnaðarafurðir og mögulega jafnvel fólk.

Tilvist svo þróaðs farartækis bendir til þess að á svæðinu hafi þróast net viðskiptaleiða sem auðveldaði skipti á vörum og hugmyndum.

Þetta gefur í skyn ákveðið stig félagslegs og efnahagslegs þroska og skipulags innan samfélagsins.

Auk þessa vagns fundust alls 12 vagnar á svæðinu í mismunandi ástandi varðveislu.

Hæfnin til að búa til endingargóð og nothæf farartæki hefði verið afar mikilvæg fyrir flutninga á vörum og fólki og þannig stuðlað að efnahagslegri og menningarlegri þróun svæðisins.

Notkun brons í hönnun vagnanna undirstrikar málmvinnslugetu samfélagsins og bendir til þess að það hafi haft aðgang að auðlindum og viðskiptanetum sem gerðu því kleift að nálgast og nýta þetta verðmæta efni og mikil færni í trésmíði segir okkur að það hafi kostað margar vinnustundir og mikla fyrirhöfn að smíða eitt slíkt farartæki.

Tíu stórmerkilegar fornminjar sem fundist hafa í Armeníu!

Varðveitt undir botni Sevan-vatns

Þar sem vagninn fannst innan marka stórs greftrunarsvæðis er talið að hann hafi tilheyrt einstaklingi af hárri stöðu og verið grafinn með honum sem eitthvað til að nota í handanheiminum.

Þannig segir fundurinn okkur einnig eitthvað um greftrunartrú fólksins sem tilheyrði hinu forna Lchashen-Metsamor-menningarsamfélagi.

En án efa er þessi fundur ótrúlega mikilvægur til að hjálpa okkur að öðlast betri skilning á frumtímasögu Armeníu og fólksflutningum Indó-Evrópubúa, sem þessi forna menning tilheyrði líklega.

Enn fremur stuðla smíði vagnsins, skreytingar hans og samhengi innan Lchashen-grafreitsins að betri skilningi á fornum trúarbrögðum og hefðum, sem og tæknilegri getu fornrar menningar.

Höfum við efast um hæfileika sameiginlegra forfeðra okkar?


Heimildir: https://www.ancient-origins.net/ Frásögn Aleksa Vučković. Historic Photographs á Facebook og Phoenix Tour Armenia Facebook myndir og texti undir myndum.

Þýðing og skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Barouche Landau #1Barouche Landau #1

0 Comments

Hestvagn fyrirmenna Stóra-Bretlands nítjándu aldar

Snemma á öldinni (1800) voru fjórir í hönd (sem voru ekki stimplaðir með „gildi“ í vagnasmíði) með vinsælasta vagninn, Barouche Landau.

Þetta er fjögurra hjóla hestvagn með niðurfellanlegt húdd toppur/blæja yfir helming vagnsins.

Sæti framarlega fyrir kúskinn, ásamt sætum fyrir farþega sem sátu gegn hver öðrum, var algengt á 19. öldinni sem vagn „fyrirmenna“.

Bremsur voru ekki sjáanlegar. Kúsksætið var hátt uppi og tvö sæti fyrir þjóna neðar.

Prins Regent í Brighton notaði t.d. svona vagn.


Heimild: Carriage & coaches: theyr history & their evolution úgefin 1912

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)