Lestarstöðva Wagon #4Lestarstöðva Wagon #4
Wagon til aksturs hópa frá og til lestarstöðva!








Hansom leiguvagninn er hannaður og prófaður hjá Hinckley sem fékk líka einkaleyfi fyrir honum 1834 af Joseph Hansom, arkitekt frá York.
Þessi Hansom stundaði þróun vagnsins í Hincley, í Leicesterskíri á Englandi.
Upphaflega var vagninn kallaður Hansom öruggi taxinn.
Hann var hannaður með hraða og öryggi í huga, lágur þyngdarpunktur svo hann væri öruggari í beygjum og fyrir horn og jafnvægi milli hests og vagns.
Hansom orginal hönnunin var endurbætt af John Chapman verkfræðing (1801-1854) en vagninn hélt þó nafni fyrsta skapara síns.
Enska orðið Cab er stytting af Cabriolet sem endurspeglar hönnun vagnsins.
Hann tók við af Hackney Carriage og þróaðist svo í farartæki til leigu með tilkomu taxa-mælirs sem mældi ferðirnar.
Sú breyting varð svo enn aftur fyrir breytingu og varð taxicab leiguvagn/bifreið.
Hansom-leiguvagnarnir nutu vaxandi vinsælda vegna hversu fljótir þeir voru í förum og nógu léttir til að vera dregnir af einum hesti sem gerði túrinn ódýrari en á fjögurra hjóla vagni.
Hansom ók auðveldlega í gegnum umferðarteppur hestvagna nítjándu aldar.
Þegar Hansom var sem vinsælastur voru um 7.500 eintök í notkun og vinsældir þeirra dreifðu sér um borgir og bæi Stóra-Bretlands og líka til Írlands, Dublinar t.d. einnig um Evrópu, sérstaklega til Parísar, Berlínar og St. Pétursborgar.
Svo voru Hansom-vagnarnir líka kynntir í USA á nítjándu öld en enduðu á að vera vinsælastir í New York City.
Leiguvagn sem var kallaður flugan the fly, rúmaði tvo farþega (þrjá ef troðið var) og kúskurinn (vagnstjórinn) sat í fjaðrandi sæti aftan á farartækinu.
Farþegarnir gátu kallað skipanir til kúsksins gegnum lúgu á þakinu aftanverðu; svo gátu þeir borgað fargjaldið líka í gegnum sömu lúgu, sem svo læsti hurðum framan á vagninum með útbúnaði.
Á sumum Hansom-vögnunum gátu kúskarnir stjórnað með sérstökum búnaði jafnvægi vagnsins til að minnka álag á hestana.
Farþegarnir voru náttúrulega í skjóli gagnvart veðrum og vindi í vagnhúsinu, en fætur ásamt fötum gátu verið varir gegn drulluskvettum með litlum hliðarfeldum hurðum sem gáfu þeim skjól.
Seinni útgáfur Hansom-vagnanna voru útbúnar með gluggum ofarlega og yfir dyrunum.
Svo var bretti/hlíf (Dashboard) til varnar farþegunum vegna grjótkasts frá hófum hestanna.
Heimsfrægur á ÍslandiVið Íslendingar þekkjum vel útlit þessara farartækja eftir að við kynntumst Sherlock Holmes á skjánum.
Hann og Watson eru stöðugt á ferð og flugi í Hansom-hestvagni um London og allar trissur á því svæði í frægum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, þannig að þessi vagn varð á meðal frægustu hestvagna heims, held ég að megi fullyrða með nokkru öryggi.
Heimildir: https://en.wikipedia.org/wiki/Hansom_cab
Tók saman og þýddi: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur/Próförk: malfridur.is


Meiri háttar frágangur og hönnun. Smíðaár vantar og flestar upplýsingar nema að armarnir sem ganga frá efri brún yfirbyggingarinnar niður í hjól eru til styrktar á öxlunum. Svo sjáum við að bremsubitar undir pallinum ganga yfir afturhjólin. Myndatökumaðurinn Kristján Björn Ólafsson var staddur í Búdapest og tók þessa mynd. Ég kann honum stórar þakkir fyrir að lána mér á Hestvagnasetrinu þessa mynd vegna þess að það vantar mikið af upplýsingum frá Austurlöndum um hestvagna. Takk innilega, kæri Kristján.
Vel þegnar myndir íslenskra og annarra landa ferðamanna um allan heim af hestvögnum og öllu því tengdu. Væri líka gott að fá allar þær upplýsingar með sem fyrir hendi eru í hvert skipti. Rafpóstur: elonfk@gmail.com
...
Skráð: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

Verð £2300. Takið eftir hversu fjaðrirnar eru ofarlega til að kerrugólfið geti verið sem næst jörðu svo þægilegra sé að lest svínin á fæti. Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

Númer 1 burðarþol 15 cwt verð £1400

Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is






Smíðaður í Berlin.Joe Neuss No: 5978 Fallegur og eigulegur gripur. Njótið myndanna!

Lamparnir eru upprunalegir








Tungan (dráttarstöngin) er upprunaleg með númeri. Öll saga hans fylgir með í kaupunum.


Fallegur Stevenson frá Lemington1 veiðihundavagn.
Hentar hvort sem er einum eða pari, tekur upp í 15 veiðihunda.
Er með dráttarstöng og svanahálsasköftum.
Smíðaður nálægt 1900.
Dökkgrænn.
Tilbúinn til keppni.
Léttur og fínn.
Hentar bæði smáhestum og venjulegum hestum í Englandi.
Hjól frá Warner.
Hafður verið sýningarvagn undanfarin þrjú tímabil í „Private Driving & Attelege“-klúbbnum.
Fínir lampar.
Verð £ 6000.









Skjólborðin eru hækkanleg eða lækkanleg um helming með viðbót ofan á grunnskjólborðin svo hægt væri að taka meira af kolum. Ef vel er að gáð er eins og teiknaðir séu bremsudiskar á bak við hjólin?
Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is









Tuttugu múldýr með Borax-vagna og einn vagn með vatni einhvers staðar í Dauðadalnum í Suður-Kaliforníu sirka um 1890. Heimild: Western Mining History Facebook.

Múldýrateymið. Þegar þessar myndir voru teknar 1890 var komið að lokum flutninga Borax. Á næsta ári kemur járnbrautarspor í Borax-námurnar sem ýtir múldýrunum úr starfi, flestum þeirra var sleppt út í náttúruna.

Múldýrin 18 og tvö hross voru fest í 80 feta keðju sem lá alla röðina sem dýrin voru spennt í. Þótt kúskurinn, „MuleSkinner“, hafi svipu með handfangi um sex fet og 22 feta svipu var hans aðalhlutverk að gefa fyrirmæli við að hagræða þessari keðju sem var kölluð bjánalína. Kúskar teymisins sáu um að beisla múlasnana á hverjum morgni. Tveir hestar fóru fyrir hópnum. Þótt hestarnir væru stærri en múlasnarnir og hefðu meiri styrk til að koma vögnunum á hreyfingu hentuðu þeir ekki eins vel inni í eyðimörkinni og múlasnarnir. Mule Skinner hefur unnið sér inn 100 til 120 dali á mánuði, mjög há laun fyrir vinnu sína.

18 múldýr, tveir hestar og 20 manna lið sem þurfti til að knýja Bótox-vagnana. 18 múldýr og tveir hestar sem voru spenntir fyrir stóra vagna sem fluttu Bótox úr Dauðadal í Kaliforníu frá 1883 til 1889. Teymin fóru frá námum yfir Mojave-eyðimörkina að næsta járnbrautarspori sem var í 165 mílna fjarlægð frá Mojave CA.








Þýðing og skráning: Friðrik Kjartansson
Heimild: OLD WEST LEGENDS, Outlaws, Gunfighters, Lawmen Facebook 3 myndir taldar ofan frá.
Yfirlestur: malfridur.is






Flott ástand, tveggja sæta fjarlægjanleg sem taka 4.
Líka hægt að fella bökin fram.
Harðviðarhjól með járngjörð.
Bremsur og uppstig til að auðvelda aðgengi.
Opnanlegur afturhleri og niðurfellanlegur dúkur á þrjá vegu til að verjast úrkomu og vindi.
Ekkert er minnst á smíðaár.
Helstu mál. Framhjól 38″ eða 96,52 cm
Afturhjól 42″ eða 106,68 cm.
Single tree (Eintré) 40″ eða 101,6 cm
Dráttarsköft 78 frá Single tree eru 198,12 cm og heildarlengd 962 eða 243,84 cm.
Vagnskúffa 37″ X 72″ eða 93,98 cm X 182,88 cm.
Vagninn er 84″ eða 213,36 cm, heildarhæð X 68″ eða 172,72 cm.
Heildarbreidd með hjólnöfum er vagninn 192 cm og heildarlengd með dráttarsköftum er 487,68 cm.

Wagnon Buggy hlýtur að þýða að þessi vagn sé millistig milli Wagons og Buggy ( bændavagns og kerru/léttavagns).








Gerður upp af Lemuel King í Chambersburg, Pennsylvaniu segir textinn með myndunum en ég hallast að því að það eigi að vera upphaflegi vagnsmiðurinn vegna þess að skiltið/merkingin á vagninum lítur út fyrir að hafa verið á vagninum um aldur hans og ævi!
Þýtt og yfirlesið Friðrik Kjartansson ásamt skrásetningu
Yfirlestur: malfridur.is

No 1. 1– Stærð yfirbyggingar 353,68 m x 170,7 m Verð £ 5500
No 2. 2- Stærð yfirbyggingar 396,24 m x 182,88 m Verð £ 6400
No 3. 3- Stærð yfirbyggingar 445,08 m x 211,68 m Verð £ 7200
No 4. 4- Stærð yfirbyggingar 487,68 m x 213,12 m Verð £ 8000
Með bremsum og fjöðrum. Skaft fyrir tvo hesta er innifalið í verði. Niðurtekin afturöxull til að geta aftur fellt gólfið niður til frekara rýmis.
Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

















Skráð: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Verð £ 3810. Sendiferðavagn sem flutti sælgæti og gotterí, líklega líka konfekt, annaðhvort í búðirnar eða til almennings. Útbúinn með lömpum og letur útfært í listrænum stíl úr gæða enskri gyllingu. Góð uppstig, vönduð hlíf framan við kúskinn, fjaðrir þrjár, ein þversum aftan tengd við enda beggja langsum fjaðranna og falleg skreyting í þaki yfir kúskinum og neðarlega á miðri hlið. Stærð yfirbyggingar: Lengd 152,4 cm x breidd 1097,28 cm x hæð 121,92 cm
Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

1901 Pæton Brake heitir brake vegna þess að framhjólin ganga undir bogann undir sætinu. Þessi Pæton tekur að minnsta kosti átta farþega með kúskinum. Þessi ætti því að vera lipur í þröngum aðstæðum. Þetta eintak hefur þörf fyrir heildaruppgerð; ástandið er orðið þannig að aðeins algjörs niðurrifs og uppbyggingar er þörf ásamt málaravinnu. Vagninn er samt vel heillegur og viðráðanlegur í uppgerð.

Öflugt og vel skapað járnverk.

Bremsubúnaðurinn er vel vandaður miðað við sambærilega vagna þessa tíma og gerðar. Uppstigin eru líka sterklega og vönduð til að endast.


Afsakið léleg myndgæði.



Þýðing og skrásetning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

Vagn til nota á býlinu.
Hann er smíðaður úr harðviði sem er vottaður að sé hogginn á mesta vaxtartímanum.
Vagninn er með rekka sem nota má sem t.d. heygrind fyrir búfénað þegar hann er ekki í notkun.
Vagninn kemur með einkaleyfisöxlum og 4 tommu hjólum (10,16 cm á breidd).
Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Engar fjaðrir.
Hjólin eru með koppum til að smyrja öxlanna.
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Buffalo Bill’s Wild West Show í London, 1893.
Maðurinn lengst til hægri er Buck Taylor, „konungur kúrekanna“.
Buck fæddist í Fredericksburg, Texas árið 1857.
Faðir hans var drepinn í borgarastríðinu og þegar hann var fjórtán ára réð Buck sig sem kúreka og vann að lokum til Nebraska.
Þar hitti hann Buffalo Bill Cody.
Buck var sláandi tala því hann var 6’4′ á hæð á þeim tíma þegar flestir kúrekar voru um 5’8.
Bill bjó til ævisögu fyrir Buck þar sem Buck var „hugrakkur, munaðarlaus drengur frá Texas“ sem ólst upp við miklar hörmungar.
Hann var óspilltur, barðist alltaf á góðum vegum, góður við móður sína, lítillátur og hafði gaman af krökkum.
Cody gerði hann að „konungi kúrekanna“.
Prentice Ingraham skrifaði nokkrar tígulskáldsögur um Buck Taylor og breytti honum í þjóðhetju.
Enginn var jafn hissa og Buck sjálfur. P.S. Sami póstvagninn og á myndinni hér fyrir neðan.
Hefur líklega verið leikmunur.

Goðsögnin í myndauppstillingu.
Wells Fargo smíðaði þennan póstvagn en „fingraför“ (gæti líka verið logo).
Fargo stofnað 1852 eru þrír listar á fremri hlið vagnsins vinstra megin við Buffalo Bill, 31 árs.
Myndin er sögð tekin 1877.
Merkilegast við þessa mynd er fjöðrunarbúnaðurinn sem eru leðurborðar í mörgum lögum hringaður fram og aftur undir yfirbyggingunni fyrir aftan Billy.
Útlit vagnsins bendir til að hann sé orðinn aldraður en samt ekki eldri en 25 ára….
Fengin að láni frá Riccardo Marcassoli á Facebook
Heimild: Traces of Texas Facebookhópur
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Skýringarmynd: Heiti vagnhluta sem gæti gert þig að létt – vagnssérfræðingi.
Lærðu bara öll partanöfn létta vagnsins.
Létta-vagnar og vagnar höfðu lítið sameiginlegt.
Létta-vagninn var byggður með hraða í huga en vagninn byggður fyrir styrk og notkunargildi.
Léttavagnar voru byggðir í stíl þæginda og tísku yfirstandandi tímabils líkt og sportbílar nútímans.
Smellið á myndirnar hér að neðan til að stækka!

Partaheiti í fremri hluta topps efri hluti

Partheiti í aftari hluta topps efri hluti

Partaheiti miðhluti framan

Partaheiti í miðhluta aftan

Partaheiti neðri hluti framan

Partaheiti í neðri hluta aftan
Þýðing og skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)