Franskur Coupé #1 6 April 2023 FrikkiFrikki 0 Comments Belgía Evrópa Frakkland Londerzeel París uncategorized Til sölu í Belgiu í april 2023. Á aðeins kr: 1.850.000. Tilheyrði ríkustu fjölskyldu heims þá! Copé staðsettur nálægt Londerzeel í Belgíu. Smíðaður af þá ríkustu fjölskyldu heims: Rothschild & Ellis. sem framleiddu Renault í byrjun bílaaldar og fram á 20 öldina. Smíðuðu líka utan um Mercedes, ásamt fleiri tegunda í þann tíma. Æviágrip Rothschild Þessi Coupé virðist vera upprunalegur ef dæma má af handfangi hurðarinnar og uppstiginu! Þessi mynd upplýsir okkur um franska bogann í fram hornpóstinum sem var sér-Frönsk aðferð í vagnasmíði. Takið eftir að lok er fest neðan í hurðina sem lokar yfir uppstigið og hlífir uppstiginu fyrir drullu og aur á ferðinni. Svo eru ,,rimlar” fyrir hurðargluggunum til að auka næði inn í vagninum og líka stjórna ljósi og loftun. Engin vafi smíðaður í París. Smíða ár ekki vitað. Sennilega í kring um 1900. Ekki uppgerður heldur vel viðhaldið. Bastkarfan aftan á, kemur vel út og hefur hátt notagildi. Á þessari mynd sjáum við en betur hvernig hlífin yfir uppstiginu er frágengin. Næs baksvipur en glugginn er í stærra lagi miðað við aðra Copué Upprunalegir og fallegir lampar. Græni liturinn á vel við þennan virðulega vagn. Alvöru aðstaða fyrir Kúskinn. Tags: armhvíla, bólstrun, bremsulaus, coupé, engar bremsur, fjögra fjaðra vagn, fjögra hjóla vagn, franska aðferðin, franskur coupé, hlíf framan, lampar, mercedes, renault, rothschild & ellis, upprunalegt handfang, uppstig, vagnasmiðir, yfirbyggingasmiðir Post navigation Fyrri Previous Post Næst Next Post
Rockaway Indjánavagninn #55 & #55B Rockaway Indjánavagninn #55 & #55B G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860[...] Lesa áfram ...Lesa áfram ...