Tag: fjögra hjóla vagn

Carbriolet búinn fullvöxnum topp #69Carbriolet búinn fullvöxnum topp #69

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Carbriolet með fullvaxna toppnum hefur enga textalýsingu í sölubæklingnum. Við sjáum á myndinni að hann er með uppstig, hlíf framan, sæti fyrir fjórar manneskjur og svo er hann byggður á körfu stöngin sem er neðst undir vagninum. Ég tel fullvíst að vagninn sé á Sarven nöfum þótt teikningin sé ónákvæm með það. Engar bremsur eru sjáanlegar. Þessir vagnar er á þver fjöðrum að framan og aftan. Langsum fjaðrir urðu svo ofan á í hönnun síðar.

Pæton smáhesta körfuvagn #2Pæton smáhesta körfuvagn #2

0 Comments

Pæton með yfirbyggingu úr ofnum tágum. Ekkert minnst á smíða ár. Vagninn situr á tveim þver fjöðrum og gúmmí pulsu yst á hjól hringnum. Svo er vagninn með dráttarsköft ásamt aurbrettum.

Listarlega ofninn yfirbygging situr vel á undirvagninum og vagninn er heillegur en þarfnast samt alúðar.

Yfirlestur: yfirlestur.is

Brett #1Brett #1

0 Comments

Brett er mjög sjaldgæfur og hreint ævintýri að finna þá gerð hvar sem er í heiminum!


Teikning frá nítjándu öld af Brett svona til hliðsjónar myndunum hér fyrir neðan.

Mikil vinna ef taka á þennan sjaldgæfa grip til endurbóta. En það væri samt verðugt verkefni. Fundinn sennilega nýlega í hlöðu eða úti húsi. Þetta hefði ég haldið að væri mjög sjaldgæfur vagn í nútímanum en það var töluvert mikið af þeim á Vagna öldum. Brett mun þessi gerð heita ef mér skjöplast ekki. Líklega er hann dýr í innkaupi í núverandi mynd en samt betra að kaupa hann en smíða samkvæmt íslensku verðlagi. Vinnan of dýr. Til Samanburðar er gömul teikning frá nítjándu öld af Brett hestvagni. Þeir voru stórir sport vagnar fyrir þá ríku á vagna öldum. Hér er um dýrgrip að ræða!

Hér þarf nýtt húdd! Aurbrettin eru á sínum stað.

Vandaður fjaðrabúnaður sem þarf að hreinsa og mála til fyrra útlits!

Hjólkopparnir hafa áletrun skapara síns trúlega en það var venjan!

Allt járnverk er vandað í upphafi sem auðveldar að hreinsa það og koma í fyrra horf!

Buneos Aires og heiti smiðsins!

Vandað og aftur vandað!

Það sem eftir er af þessari bólstrun sýnir að vandaður hugur og hönd hefur verið lögð í verkið!

Armhvíla, uppstig og festingar fyrir lampa. Yfirbyggingin er frekar löng og töluvert í hana lagt bæði í vinnu og efni!

Undirhlaup fyrir framhjólasamstæðuna, litlar og sætar hurðar og vönduð uppstig smíðuð eins og rist svo skíturinn falli til jarðar þegar skafið var af botni skóbúnaði. Veitti ekki af því fyrir 150 árum var mikið um drullu á vegum og strætum.

Cabriolet #4Cabriolet #4

0 Comments

Nafnsins vagnsins er Cabriolet uppruninn í Frakklandi einhvern tímann á sautjándu öldinni


Fjögra hjóla Amerískur Cabriolet
Gozzandini

Gozzadini greifi segir í verki sínu um hestvagnar á fornöld að Cabriolet hafi verið kynntur á Ítalíu 1672. Hann lýsti fyrstu hönnun vagnsins sem hefði verið svipuð í laginu og Gig með bogadregna yfirbyggingu sem hvíldi á tveimur dráttarsköftum á tveimur hjólum á öndverðum hesta enda vagnsins. G.A. Thrupp hélt að þessi gerð farartækis gæti verið frá ýmsum stöðum veraldar t.d. Carriole frá Noregi, Calesso frá Napolí og Volante frá Kúbu. Þegar Cabriolet kom til Englands var vagninn með eftirmynd skeljar yfirbyggingu skýlt með niðurfellanlegu húddi/skerm ásamt því að vera búin litlum sætum. Eðlilega undirgekkst hönnunin breytingar á tilverutíma sínum og Cabriolet frá nítjándu öldinni voru ekki ólíkar Curricle eða Gig.


Að mestu leyti voru vagnarnir byggðir fyrir eina eða tvær persónur sem voru varðar með leðurhúddi/skerm yfir sætið ásamt háum bogadreginni hlíf framan. Falleg bogadregin yfirbyggingin var búinn bogadregnum dráttarsköftum staðsett neðst til beggja hliða yfirbyggingarinnar svo gengu sköftin aftur og tengdist C fjöðrum. Þjóna pallur aftast. Önnur hönnun/gerð Cabriolet var fjögra hjóla prívat vagn þekktir undir nafninu Pæton til styttingar. Cab, leiguvagn á íslensku kom fram 1823 frá David Davies sem var fyrstur til að koma leyfis háðum leiguvögnum á stræti London en þeir fengu fræga nafnið Hackney Cabriolets. Þeir vagnar voru tveggja hjóla útgáfa af Cabriolet með sér sæti fyrir kúskinn.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760 höfundur: Arthur Ingram
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Gullvagn enska heimsveldisins #3Gullvagn enska heimsveldisins #3

0 Comments

Gullvagn stóra Bretlands er en til sýnis í Royal Mews í Buckinham höllinni


Mynd úr bókinni Horse -Drawn Vehicles Since 1760.

Smíðaður 1762 og notaður af ríkjandi konungum og drottningum til krýninga og flestra opnana þingsins síðan 1762. Eins og flestir vagnar í eigu hins opinbera stór og fyrirferðamikið farartæki sem viktar um fjögur tonn, mælist 24 feta langur 7,3152 metra , 8,3 fet á breidd 2,52984 metrar og 10 feta á heildarhæð 3,048 metrar.

Það eru mikið magn gyllinga á vagninum og myndin á panel hlið vagnsins gerði Florentine málari Clipriani. Sir William Chambers hannaði vagninn en það eru engar heimildir um hverjir smíðuðu hann. Skreytingar vagnsins eru mjög vandaðar og hafa allar fígúrur eru ásamt konunga hefðum heimsveldisins.

Grind yfirbyggingar vagnsins er bogadregin og endurspeglar átta Pálmatré með greinar út úr toppnum sem forma stoðir fyrir þakið. í miðju þaksins eru útskornir þrír kerúbar sem bera konungs/drottningar kórónuna og halda ýmsum ríkistáknum í höndum sér. Vagninn er hengdur upp á leðursólum sem haldnir eru af fjórum útskornum fígúrum í líkamsstærð og fótstykki kúsksins er stór hörpuskel sem studd er á reyrbúntum. Átta hestar draga venjulega vagninn og upphaflega var Kúskur á fótstykkinu plús einn þjónn. Í seinni tíð var kassinn fyrir Kúskinn tekinn. Í staðinn sitja fjórir þjónar hestanna.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760 höfundur: Arthur Ingram
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Hálfmána vagninn #68Hálfmána vagninn #68

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Hálfmánavagninum fylgir engin lýsing en við sjáum að hann er með uppstig, hlíf frama og svo fimm toppboga vandaðan topp. Sarvin nöf, Engar bremsur sjáanlegar og vagninn er byggður á körfu (perk) Þessir vagnar er á þver fjöðrum að framan og aftan. Langsum fjaðrir urðu svo svo ofan á í hönnun síðar

Búslóðarflutninga vagninn #2Búslóðarflutninga vagninn #2

0 Comments

Í stórum dráttum voru vagnarnir ferkantaður kassi í laginu


Búferla flutninga vagn.

Húsgagnaflutninga vagninn voru smíðaðir í þremur stærðum sem kalla mætti litlar, meðalstór og stórir. Voru á milli 12 til 18 fet að lengd. Í stórum dráttum voru vagnarnir ferkantaður kassi í laginu til að geta
rúmar sem mest af húsgögnum og öðrum hlutum heimilis. Boga þakið skilar regnvatninu hratt af þakinu. Aðgengið að vagnrýminu var haft eins gott og hægt var með stórum hurðum hliðarhengdum að aftan. Kúsksætið var staðsett venjulega fremst hátt uppi og stundum bókstaflega á þakinu. Í viðleitni til að nýta sem best 7 feta breiðan kassann voru hjólin höfð það lítil að hæð þeirra var neðan við gólflínu yfirbyggingar. Ef stór hjól voru aftan var boga dregin innfelling tekin rúmlega fyrir hjólin inn í hliðarnar. Þessir boga hjólaskálar þurfa bara að vera fimm tommur inn í hliðina svo lítið af innra rými flutningakassans var lítið skert.


Áður framkomnir búferlaflutningavagnar höfðu flatt gólf en eftir að Purdy kynnti sina hönnun sem var niðurfellt gólf alla leið frá um miðju vagnsins og aftur úr og notaði niðurfelldan öxul til að framkvæma það tóku margir þessa hönnun til notkunar. Vegna risastórra flata á hliðum og bakhlið máluðu eða létu eigendurnir mála auglýsingar á alla fleti. Heimilsfang, fyrirtækisnafn, svæði þjónustunnar og allt annað sem hver og einn eigandi vagnanna ákvað. Ólíkt í nútímanum þar sem stórir fletir eru hafðir auðir en lógó sem lítið segir í raun. Allar þessar áritanir litu út eins og ferðabæklingar sem í leiðinni voru framlag listamanna til auglýsingar á handverki sýnu sem var svo aftur auglýsing.

Ekki endaði þetta þó þarna. Margir vagnar voru með efnismikil borð boltuð á þakbrúnir yfirbygginga vagna sinna og þá var hægt að taka auka kassa eða annan farangur upp á þak. Oft voru auglýsingarnar klisjur, dæmi. Flytjum alla hluti, vegalengd skiptir ekki máli, útibú í öllum stærri bæjum. Sérstakt var að sjá suma vagnanna með heilu málverkunum á hliðinni, oft túlkuðu málverkin flutningsakstur um sveitir þar sem húsbúnaðurinn var hamingjusamur að fá nýtt heimili.

Þegar járnbrautirnar komu tóku þær rjómann af hestvagnaflutningum og vagnarnir voru bundnir niður á járnbrautar vagna með reipum kvíslast lengri leiðir en hægt hefði verið að fara með hestvagna teymi. Upphaflega var þetta sparnaðarhugmynd sem var aftur hagstæð járnbrautarfélögum í að samræmt vega-/járnbrautarkerfi svo fremi að flutningavagnarnir væru innan hleðslu áætlunar. Við skulum snúa okkur aftur að flutninga vögnunum og málum.

Meðalstór búferlaflutningavagn

Heildarlengd 16 fet = 4,87.68 metrar
Heildarbreidd yfirbyggingar 6 fet og 8 tommur = 2,072.64 metrar
Niðurfellingin á gólfinu lengd 9 fet og 8 tommur og breidd 4 fet og 8 tommur = 1,463.04 metrar
Hæð framhjóla 2 fet og 8 tommur = 0,853.44 metrar
Hæð afturhjóla 4 fet og 2 tommur = 1,280.16 metrar
Fjaðrir framan 3 fet og 8 tommur = 1,158.24 metrar
Fjaðrir aftan 3 fet og 4 tommur = 1,158.24 metra
Afturöxull niðurfelldur um 1 fet og 5 tommur = 0,548.64 metrar
Þakið með radíusinn 8 tommur = 0,20.32 metrar
Þakborðin voru í 1. feta hæð = 0,30.48 metrar
Bakhliðinni er lokað með tvöfaldri hurð sem er hliðarhengd. Þar fyrir neðan er hleri sem lokaði niður fellingunni. Lamirnar hengdar í gólfbotn á niðurfellingunni. Að vissu marki var niður fellingar hlerinn notaður sem rampur til að auðvelda vinnuna við að afferma eða ferma koffort eða koffort með skúffum, fataskápa og mörgu fleiru. Hlutir sem var nægilega varið fyrir veðrum og vindi fór upp á þak og var bundið niður með reipum.

Að mörgu leyti má rekja hagnýtingu þessara búferlaflutninga vagna til þess að þeir úreltust fyrir mörgum árum. Með tilkomu eimreiðanna fæddist nýr líftími vagnanna. Oft voru þeir dregnir tveir til þrír í einu með
gufu eða bensínvél og eigendur vagnanna varð ljóst að þeir gætu nýtt gömlu búferlaflutninga hestvagnanna sína með tilkomu dráttarvélanna. Vagnarnir luku oft líftíma sínum á gúmmíhjólbörðum loftfylltum dregnir sem tengivagnar aftan í Leyland, Dennis eða Saurer bensín bílsins á öðrum áratug tuttugustu aldar.

Heimild: Horse -Drawn Vehicles Since 1760. Höfundur Arthur Ingram

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: yfirlestur.is

Fótgetavagninn sem fannst í hlöðuFótgetavagninn sem fannst í hlöðu

0 Comments

Einstakur vagnfundur í Lincon!

Sérstæður hlöðufundur í Lincolnshire.

Mario Broekhuis höfundur greinarinnar. Birtist á Facebook í október 2022

Þýðandi og skrásetjari Friðrik Kjartansson

Hvernig er hægt að hafa virðulegri viðurgjörning en þennan?

Í desember 2021 skrifaði ég grein um fógeta vagninn í The Road, fréttabréf The Road Club. Í kjölfarið gerði ég frekari rannsókn á því efni, eins og því sem komið hefur fyrir suma vagnanna, sérstaklega þá sem eru á myndum í safninu mínu. Það varð til endurfundar á vagninum í Lincoshire. Í september 1948 greindi Lincolnshire Echo frá því, nánar tiltekið hvernig vagn fógetans í Lincolnshire fór í síðasta sinn um borgina eftir að hafa verið tekinn í notkun, en síðan var hann færður á Lincoln Museum. Par af gráum vinnuhestum lötruðu frá háskóladeildinni með vagninn, og tók vagninn án hamarsklæðis á rigningardegi.

Síðasta ferðalag Fótgetavagnsins 1948!

Frá Stamp End Highways til Burton-safns, þar sem hann yrði geymdur þar til mögulegt væri til að setja hann á sýningu. Sýningin komst aldrei á og stjórn og safnkosti safnsins/safnanna í Lincolnshire breyttust margsinnis. Erfitt var að fá svar við aðalspurningunni: „Er þessi vagn enn til?“ Sara Basquill, deildarstjóri innheimtu- og þróunarmála hjá sýsluráðinu Lincolnshire – sýslu, tók áskoruninni. Hún var ánægð með þær gömlu ljósmyndir sem hún hafði fengið í hendur. Hún vissi af vagni sem ekki var rétt skráður, sem var falinn í geymslu undir rykugum yfirbreiðslum.

Eftir nokkra stund reyndist það vera rétti hlöðufundurinn. Sara svipti yfirbreiðslunni af: „Mér fannst sumt af hnignun vagnsins hafa eldri uppruna en hann lítur ágætlega út á myndunum. Mig grunar að vagninn hafi einhvern tíma verið geymt við slæmar aðstæður jafnvel utan dyra. Ég er hrifinn af hlutum í upprunalegu ástandi og finnst ekki gott að þurfa að fara í fullri endurgerð. Ég er ekki viss um hvaða safn Vagninn átti að fara á árið 1948 þar sem Lífslistasafnið í Lincolnshire var ekki opnað fyrr en 1969. Mögulega hefur verið boðið upp á Borgar og héraðslistasafnið (nú The County Collection)?

Leifarnar af skjaldarmerkinu!

Ég held að skjaldarmerkið á ljósmyndinni sé sú sama og skjaldarmerkið sem varðveittist á vagninum. Ég myndi gjarnan vilja finna út hver átti þetta skjaldarmerkið. Það næsta sem ég hef komist að hugsanlega var það Marsden of Panton. Hafandi þá athygli sem forstöðumaðurinn hefur á málinu núna gæti runnið upp sá tími að þessi háttsetti vagn snúi aftur í sviðsljósið eins glæsilegur og áhugaverður og hann var fyrr á tímum. Aðeins þegar búið er að greina uppruna vagnsins ótvírætt er hægt að elska hann aftur.

Viktoria #1Viktoria #1

0 Comments

Uppgerð í upprunalegu ástandi eins og ný!


Súper vel uppgerð Viktoría. Í topp standi. Fallega bólstruð. Lítið og sætt sæti fyrir blómastúlku og dreng í fremri hluta farþegarýmis. Smíðaár ekki tilgreint né framleiðandi eða vagnsmiður. Sér stakleg passlegur vagn í brúðkaup, skrúðgöngur og kynningarviðburði. Sérstakt verð líka eða £3450. Er staðsett í Blackpool.

Það vita kannski flestir en Viktoria var skírð eftir Viktoríu Englandsdrottningu þegar hún ríkti.

Eistök reisn og stíll yfir þessum fallega vagni.

Hér sjáum við niðurfellanlega barnasætið fyrir aftan Kúsk sætið. T.d. Milrod er með svipað sæti og Pæton svo einhverjir séu nefndir.

Glæsileiki!

Fer vagninum vel húddið þegar það er uppi.

Hér er Viktorían fyrir uppgerð og hafa sennileg verið notaðir tveir vagnar í að endurbyggja hana því á kerrunni eru önnur Viktoría.

Meistarinn #64Meistarinn #64

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Meistarinn hefur ekki neina lýsingu í sölubæklingnum. Við sjáum fjögra boga vandaðan topp ásamt Sarven nöfum. Hlíf og þverfjaðrir. Númer 61, 63 og 64 eru allar með nýjum stíl (ný kynslóð) og verða að skoðast í raunveruleikanum til að hægt sé að meta þær að verðleikum en vegna stíls og lokafrágangs eru fáir vagnar sem standa þeim jafnfætis. Í frágangi eru vagnarnir allar af léttari gerðinni. Engar bremsur sjáanlegar. Meistarinn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar.

Jagger vagninn #62Jagger vagninn #62

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Jagger er þessi vagn nefndur og það fylgir engin lýsingartexti. Samkvæmt myndinni að vagninn er á þver fjörðum. Sarven nöf sjáum við líka í hjólmiðju. Tvær persónur hafa sætispláss. Hlíf fremst. Engar bremsur sjáanlegar. Þessir vagnar er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar.

Gasellu vagninn #61Gasellu vagninn #61

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Gasellan er ekki með textalýsingar í sölubæklingnum. Við sjáum hins vegar á myndinni að hún er með þverfjaðrir, hlíf framan ásamt því að byggð á körfu en það eru stangirnar langsum undir yfirbyggingunni svo er sennilega gott skott að aftan, en það er bara ágiskun. Sarvin nöf sjáum við líka á myndinni. Engar bremsur sjáanlegar. Verulega léttur vagn eins og sjá má af teikningunni og nafninu.

Whitney vagninn #59Whitney vagninn #59

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Whitney heitir þessi myndarlegi vagn. Þrjár sætaraðir. Yfirbyggingin er hengd á þverfjaðrir svo er meira að segja sætisbak hátt á aftasta sætinu einig er hann búin hlíf að framan uppstigum á sex stöðum. Stöng milli öxlanna er kölluð karfa svo vagninn er byggður á körfu. Nýjungin í þessum vagni felast í Sarven nöfunum. Bremsur ekki sjáanlegar. Vagninn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar

Kriket vagninn #57Kriket vagninn #57

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Kriket vagninn er ekki með topp. Er á hliðar fjöðrum, fjaðra stangirnar langsum með yfir byggingunni. Bein yfirbygging og járnhlíf fremst. Einstaklega létt sæti. Sérbyggð fyrir gangstigið brokk. Flott skott, Skreytt og útskorin. Sarven nöf er nýung á þessum tíma. Léttasti vagninn sem er í notkun nú um stundir. Þyngd frá 72,5748 kíló til 102,058 kíló. Bremsur ekki sjáanlegar.Vagninn er á langsum fjöðrum, eða hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar

Fangavagnar #2Fangavagnar #2

0 Comments

Endursmíðaður af Hansen Wheel & Wagon shop USA!


Skrifað af forráðamanni Hansen til skemmtunar og fróðleiks!
Við hjá Hansen Wheel & Shop vorum að enda við að lúka smíði þessa fangavagns fyrir viðskiptavin. Strákarnir okkar hika ekki við að læsa inni reglubrjótar sem kunna að verða á vegi þeirra. Einhverjir hafa meira að segja skar fangamarkið sitt inni í vagninum, þið vitið til að hjálpa til við auðkenninguna.

Falleg vinna á þessum vagni eins og öllu frá Hansen!

Hér eru svo fangamörkin sem minns er á undir fyrstu myndinni efst.

Meira af fangamörkum í bókstaflegum skilningi!

Snyrtilegur og vel smíðaður fram úr hófi. Passlega fínn og eða grófur! Er byggður á hjólasamstæður fjögra hjóla eins og hefð var fyrir í USA (Gear)

Þýddi og skrásetti: Friðrik Kjartansson Yfirlestur: yfirlestur.is

Olíu flutninga vagn #1Olíu flutninga vagn #1

0 Comments

Algjörlega upprunalegur!


Upplýsingar ekki fyrir hendi en er staðsettur í Englandi. Smíða ár ekki tilgreint.

Vagninn var byggður til að bera á milli 3 til 4 tonn kannski meira. Það met ég út frá uppbyggingu undirvagnsins ( the gear). Gengju teinn/skrúfteinninn með hjólið ofan á vinstra megin í myndinni, er til að bremsa og taka bremsurnar af og hefur þurft að vera öflugt enda sýnist manni það.

Þýðing og skráning Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: yfirlestur.is Heimild: Myndir fengnar að láni hjá The Antique Carriage Collectors Club Facebook.

Rockaway Indjánavagninn #55 & #55BRockaway Indjánavagninn #55 & #55B

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Rockaway vagn, mjög fallegur og léttur . Sætin eru stillanleg og annað sætanna er útskiptanlegt. Fyrir einn hest og fjölskylduna er þessi vagn passlegur. Sveigð yfirbygging, skreytingar á hliðum. Sarven nöf í hjólamiðju. Geymsla undir sætum, leðurhlíf framan (dash). Hátt bak. Snyrtilegur frágangur, tvöfalt uppstig. Nýr stíll sem vekur aðdáun fyrir þægindi og hagkvæmni. Bremsur ekki sjáanlegar. Vagninn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar.

Eins vagn og númer 55 en með fjórum sætum sem hægt er að taka burtu eftir þörf. Bremsur ekki sjáanlegar.

Útfarar vagn #2Útfarar vagn #2

0 Comments

Mertz & Riddle


Þessir eru ekki lengur að aka almennt um á jarðafarardegi. Frá 19 öldinni, Gull Laufavagn í miðborg Norður Karólínu. Ásett verð eða besta boð; $9000 eða besta boð.




Mér finnst gaman að sjá hinar ýmsu útgáfur af tengi- aðferðum við t.d. tvítréð og eða flest allar tengingar og festingar. Þær eru barn síns tíma en samt talandi dæmi um ráðdeild og vönduð vinnubrögð. Það liggja alltaf ákveðnar forsendur á bak við hönnun festinga og samsetninga.

Hertoga vagninn #54Hertoga vagninn #54

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Stílhrein með út skiptanlegu sæti og með viðbætur í toppi. Fremra sætið brotið saman aftur á bak og aftara sætið er hægt að taka, eins og sést á mynd númer 54 B. Þægileg og passleg fyrir tvær persónur. Þegar eitt sæti er notað er hægt að brjóta saman toppinn upp. Er hægt að breyta á einni mínútu. Sarven nöf sjáum við líka. Svo er líka hægt að fá þessa kerru (buggy) með tveimur föstum sætum, sama útlit. Það er ekki minnst á það í lýsingunni á kerrunni en það eru greinilega lampar á henni. Bremsur ekki sjáanlegar. Þessi vagn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar

New Orleans vagninn #53New Orleans vagninn #53

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Sveigð yfirbygging og viðar hlíf framan (dash). Með sömu fylgi hlutunum og Box skutla númer 6. Fellanlegur toppur með 5 bogum, hátt bak og allt járn rafhúðað, Sarven nöf. Fallega skreytt á hliðunum. Fín og elegant létt vagn í útliti og fer gott orð af honum. Sjá meðmæla vottorð hér fyrir neðan. Bremsur ekki sjáanlegar. Vagninn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar. Rafhúðun fundin upp 1805. Þrátt fyrir að rafhúðun hafi verið almenn um 1840, þá er hægt að rekja uppruna aftur til 1805. Heimild: Tomasnet.com

Vottorð fyrir aukasæti, bráðabrygða.