Gamla Vestrið og Oregon slóðin #2Gamla Vestrið og Oregon slóðin #2
Flutningsvagnar silast um Tahoe á um 1880!

Heimildir: Myndin fengin að láni af Old American Photos á Facebook












Meiri háttar frágangur og hönnun. Smíðaár vantar og flestar upplýsingar nema að armarnir sem ganga frá efri brún yfirbyggingarinnar niður í hjól eru til styrktar á öxlunum. Svo sjáum við að bremsubitar undir pallinum ganga yfir afturhjólin. Myndatökumaðurinn Kristján Björn Ólafsson var staddur í Búdapest og tók þessa mynd. Ég kann honum stórar þakkir fyrir að lána mér á Hestvagnasetrinu þessa mynd vegna þess að það vantar mikið af upplýsingum frá Austurlöndum um hestvagna. Takk innilega, kæri Kristján.
Vel þegnar myndir íslenskra og annarra landa ferðamanna um allan heim af hestvögnum og öllu því tengdu. Væri líka gott að fá allar þær upplýsingar með sem fyrir hendi eru í hvert skipti. Rafpóstur: elonfk@gmail.com
...
Skráð: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is

Númer 1 burðarþol 15 cwt verð £1400

Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909
Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is






Smíðaður í Berlin.Joe Neuss No: 5978 Fallegur og eigulegur gripur. Njótið myndanna!

Lamparnir eru upprunalegir








Tungan (dráttarstöngin) er upprunaleg með númeri. Öll saga hans fylgir með í kaupunum.










Flott ástand, tveggja sæta fjarlægjanleg sem taka 4.
Líka hægt að fella bökin fram.
Harðviðarhjól með járngjörð.
Bremsur og uppstig til að auðvelda aðgengi.
Opnanlegur afturhleri og niðurfellanlegur dúkur á þrjá vegu til að verjast úrkomu og vindi.
Ekkert er minnst á smíðaár.
Helstu mál. Framhjól 38″ eða 96,52 cm
Afturhjól 42″ eða 106,68 cm.
Single tree (Eintré) 40″ eða 101,6 cm
Dráttarsköft 78 frá Single tree eru 198,12 cm og heildarlengd 962 eða 243,84 cm.
Vagnskúffa 37″ X 72″ eða 93,98 cm X 182,88 cm.
Vagninn er 84″ eða 213,36 cm, heildarhæð X 68″ eða 172,72 cm.
Heildarbreidd með hjólnöfum er vagninn 192 cm og heildarlengd með dráttarsköftum er 487,68 cm.

Wagnon Buggy hlýtur að þýða að þessi vagn sé millistig milli Wagons og Buggy ( bændavagns og kerru/léttavagns).








Gerður upp af Lemuel King í Chambersburg, Pennsylvaniu segir textinn með myndunum en ég hallast að því að það eigi að vera upphaflegi vagnsmiðurinn vegna þess að skiltið/merkingin á vagninum lítur út fyrir að hafa verið á vagninum um aldur hans og ævi!
Þýtt og yfirlesið Friðrik Kjartansson ásamt skrásetningu
Yfirlestur: malfridur.is










Vinkovci er bær í Austur-Króatíu og í nágrenninu er lítið þorp, Stari Jankovaca, en svæðið var undir yfirráðum Rómverja 300–400 eftir Krist.
Fornleifafræðingar grófu upp heillega steingervinga af tveggja hjóla vagni, þekktur á latínu sem Cisium = léttur hjólavagn, ásamt steingerðum beinagrindum af hestum.
Hestarnir og vagninn voru saman í rými sem greinilega var nokkurs konar haugur þekktur úr greftrunarsiðum víkinga að leggja til höfðingja í skipum sínum sem eru sjaldgæfir greftrunarsiður meðal Rómverja.
Vel efnuð fjölskylda mun hafa greftrað hesta og vagn með þessum hætti samkvæmt fræðimönnum en auðmenn þessara tíma voru stundum greftraðir með þessari aðferð með hestunum sínum.
Sviðstjórinn Boris Katofil útskýrði fyrir þarlendum fjölmiðlum að sá siður að grafa í kumli (forngrafhaugur) væri óvenjuleg aðferð þarna suður af Pannoinan-vatnasvæðinu.
Boris bætti við: Siðurinn er í tengslum við afar auðugar fjölskyldur sem hafa gegnt áberandi hlutverki í stjórnsýslunni, félagslegu og efnahagslegu í samfélaginu í héraðinu.
Fundurinn er talinn vera frá þriðju öld e.Kr. en teymi vísindamanna vinnur að því að staðfesta aldurinn.
Marko Dizdar sagði þetta einstaka uppgötvun í Króatíu.
Hann sagði: Það næsta sem unnið verður að er langt ferli hreinsunar og varðveislu fundarins samhliða rannsóknum og skilgreiningum.
Við höfum meiri áhuga á hestunum, hvort sem þeir eru ræktaðir hér eða koma frá öðru heimsveldi, sem mun segja okkur meira um hversu mikilvæg og auðug þessi fjölskylda var.
Við finnum út úr því með samvinnu við innlendar stofnanir sem og fjölda evrópskra stofnana.
Heimild: Dailymail.co.uk
Þýddi og skrásetti: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is