Tag: tré

Skógarhöggsvagnar nokkurra gerða Ástrala #1Skógarhöggsvagnar nokkurra gerða Ástrala #1

0 Comments

Skógarhöggsvagn fyrir utan nýtt hús á „Pine Hill“, Alectown – timbur sagað þar á eigninni – „Pine Hill“, Alectown, NSW sirka 1930.

Maður stendur í vagni kallaður „dray“, horfir á trjábol, með annan hest fyrir aftan, Pine Range, Australian Capital Territory. 1926-45.

Tveir menn með hestaliði og trjávagnhjól kallað „whim“ að draga stóran trjástofn. Sirka 1910-20.

David Watt flutningsteymið. Að draga furu frá Orara-dalnum. Áletrun aftan á mynd: Mjög þurrt ástand, óhentugur klæðnaður fyrir þessi veðurskilyrði.

Draga tré á hestvagni kallaður „timber jinker“ í Barham Forest – Barham, NSW. 1925. D. Watts hestateymi 1909 Heimkoma frá Orange. CHHS.

Hestateymi flytur trjáboli eftir aðalvegi nálægt Toowoomba.

Tveir menn sitja ofan á trjábol á hestvagni á leiðinni til Tennyson Mill. Mynd tekin af Sir John Kemp


Heimild: Waler Data Base á Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

5150 ára gamalt tréhjól finnst!5150 ára gamalt tréhjól finnst!

0 Comments

Ofarlega á lista heimsminjaskár!

Uppfært 28 febrúar 2026

2002 afhjúpuðu fornleifafræðingar elsta þekkta tréhjól í heimi í mýrlendi 20 kílómetra suður af Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, sem nær yfir 5.100 til 5.350 ár aftur í tímann.

Hjólið var uppgötvað af hópi slóvenskra fornleifafræðinga frá fornleifafræðistofnun Ljubljana, sem er hluti af rannsóknarmiðstöð slóvensku Vísinda- og listaakademíunnar, undir leiðsögn Anton Velušček.

Fornleifasvæðið

Leifar staurabyggða fundust í Ljubljansko barje (Ljubljana-mýrinni) strax árið 1875.

Frá 2011 hefur svæðið verið á heimsminjaskrá UNESCO sem dæmi um forsögulegar staurabyggðir í kringum Alpana, sérstakt form íbúða á svæðum með vötnum og mýrum.

Fornleifafræðingar á uppgraftarsvæðinu fundu yfir þúsund staura í árfarvegi Iška-árinnar, nálægt Ig.

Þeir endurgerðu íbúðir sem voru 3,5 sinnum 7 metrar að stærð og með um 2 til 3 metra millibili.

Greining á staurunum leiddi í ljós að íbúðirnar voru lagfærðar á hverju ári og að byggja þurfti nýtt hús á sama stað á aðeins 10 til 20 ára fresti.

Þetta forna hjól varðveittist í blautri jörðu, ekki endilega á mannvænasta staðnum í dag, Ljubljana-mýrarnar voru í raun nokkuð lífvænlegar fyrir fimm þúsund árum.

Upprunalega voru hjólið og eikaröxullinn hluti af uxavagni smíður úr aski og eik og snérist öxullinn með hjólunum.

Samsetningin var svo endingargóð að hún var staðall fyrir evrópska hjólasmiði fram í byrjun 20. aldar.

Ummál hjólsins er 72 sentímetrar.

Spurningunni um hver fann upp hjólið er enn ósvarað, þrátt fyrir vísbendingar sem benda til þess að það hafi komið fram sjálfstætt á mörgum svæðum.

Þó að sérstakir uppfinningamenn eða -maður séu ekki þekktir virðist þróun hjólsins ekki vera ein bylting heldur smám saman uppsöfnun þekkingar, færni og aðlögunar með tímanum.

Í mýrunum bjó nýaldarfólk sem var mjög hæft í að byggja hús á trésúlum í blautri jörðinni.

Fyrir 6000 árum þykir sannað að fólk hafi búið þar og kannski notaði það litla handvagna til að flytja uppskeruna milli staða ásamt því að koma upp verslunarleiðum.

Upprunalega voru hjólið og eikaröxullinn hluti af uxavagni smíðuð úr aski og eik og snérist öxullinn.

Samsetningin var svo endingargóð að hún var staðall fyrir evrópska hjólasmiði fram í byrjun 20. aldar.

Ummál hjólsins er 72 sentímetrar.

Spurningunni um hver fann upp hjólið er enn ósvarað, þrátt fyrir vísbendingar sem benda til þess að það hafi komið fram sjálfstætt á mörgum svæðum.

Þó að sérstakir uppfinningamenn eða -maður séu ekki þekktir virðist þróun hjólsins ekki vera ein bylting heldur smám saman uppsöfnun þekkingar, færni og aðlögunar með tímanum.

Á mýrunum bjó nýaldarfólk sem var mjög hæft í að byggja hús á trésúlum í blautri jörðinni.

Fyrir 6000 árum þykir sannað að fólk hafi búið þar og kannski notaði það litla handvagna til að flytja uppskeruna milli staða ásamt því að koma upp verslunarleiðum.

Mismunandi menningarheimar mótuðu hjólið til að mæta einstökum þörfum þeirra og skapa sérstaka hönnun og notkun sem þróaðist hver í sínu lagi, hver nýsköpun út af fyrir sig.

Næsta stóra nýjungin sem leit dagsins ljós var þegar Egyptar tóku heiðurinn og þróuðu pílárahjól fyrir um 4 þúsund árum.

Fyrsta bandaríska einkaleyfið á hjólinu kom árið 1791, fljótlega eftir að einkaleyfislögin voru samþykkt í Bandaríkjunum.

Hjólið og öxulinn er hægt er að sjá og upplifa í Borgarsafni Ljubljana ókeypis.


Heimild: History’s Mysteries á Facebook og Wikipedia ásamt https://3seaseurope.com/oldest-ljubljana-marshes-wheel-slovenia/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Viðhald við gerð á hjóli og nafi #1Viðhald við gerð á hjóli og nafi #1

0 Comments

Frásögn LeCharron.ch’s


Viðhald.

Auðvitað fann ég feiti í olíuöxlaboxunum1.

Feiti í stað olíu getur valdið mjög miklu sliti á spindlinum og bronslegum.

Ég fann líka plastefni2 í píláratöppunum og í sprungum á nöfunum.

Ég fyllti í helstu sprungur með viði.

Ástand málningarinnar er skelfilegt, allt í lamasessi vegna lélegs undirbúnings og viðhalds.

Viðurinn á pílárum og nöfum er feitur vegna þess að boxþéttingarnar3 eru slitnar og þurrar og hafa lekið.

Viðinn þarf að grunna fyrir málningu.






Viðgerðin felst í því að þétta þornuð hjólin án þess að skipta um parta af þeim.

Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að þessa vinnu ætti að framkvæma af einhverjum sem hefur þekkingu til að ljúka henni með góðum árangri.

Eftir að meta ástand hjólsins þarf að fjarlægja gúmmíhjólbarðann/pulsuna.

Fjarlægðu allan málm.

Finndu út stífleika/þéttleika hjólsins.

Gerðu nauðsynlegar umbætur eins og útskýrt er fyrir neðan myndirnar.

Mótaðu píláratappana eftir þörfum fyrir hvert tappagat.

Límdu á tappana ef þarf.

Búðu til það

hlaup

sem þarf til að hjólið falli í réttar skorður.

Mældu hjólið og færðu það yfir á vinnublað.

Reiknaðu frádrátt.

Að lokum skal sníða tappa og móttökuholur svo þeir passi saman. Þá er allt tilbúið fyrir samsetningu.

Gúmmíið þrifið!

Tapparnir, sem hér sjást, höfðu þegar verið styttir áður (miðað við flötinn sem tekur dýpra í tréhjólbarðann).

Með tímanum og álaginu á hjólið hafa tapparnir þrýst út.

Þá verður að skera slétt við flötinn sem tekinn var dýpra en yfirborðið til að mynda bil á hjólbarðajárngjörðina.

Til að tryggja þrýsting píláranna á nafið mega píláratapparnir aldrei snerta járngjörðina sem er utan um tréhjólbarðann.

Hér er svo búið að stytta tappana slétt við flöt sem tekinn var við smíði hjólsins!

Mæling á utanmáli tréhjólbarðans!

Járngjörðin mæld til að ákvarða ummálið

Búið er að taka ákvörðun um styttingu frá ummálinu frá því fyrir viðgerðina.

Búið að sjóða saman og tilbúið í samsetningu eftir málningarvinnu.


Heimild: LeCharron.ch’s. The Antique Carriage Collectors Club á Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

  1. Sjá neðanmálsgrein 3 ↩︎
  2. Allt notað til að setja á milli í píláratappana þegar viðurinn rýrnar svo hægt sé að halda áfram að aka ↩︎
  3. Þéttihringir inni í nafinu sem eiga að halda smurfeitinni á ákveðnum stað á spindlinum/öxlinum. ↩︎

Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!

0 Comments

Tvær mikilvægar teikningar um Dauðadals/Borax vagnana!

Milli 1883 og 1889 skiptu tuttugu múldýr spennt fyrir vagna sköpum við að flytja borax frá Death Valley til Mojave, Kaliforníu.

Þessi flutningsaðferð var skipulögð með múldýrum. Múldýrin skiluðu af sér 264 kílómetra eða 165 mílur til að komast að þar sem járnbrautarteinarnir enduðu.

Staðreyndir um vagnana


Hlutverk vagnanna var að flytja 10 „stutt“ tonn af borax í ferð. USA þyngdareining. Jafngildir 20,000 lb avoirdupois eða 9,071,85 kg sem stutt toon (short ton).

Vagnarnir voru með afturhjólum sem stóðu 2.1336 metra (sjö fet) á hæð, með 2,54 sentimetra eða 1 tommu þykkum járngjörðum á hjólum, smíðaðir upp úr gegnheilli eik.

Rýmið um borð var 4.8768 metrar (16 fet) á lengd og 1.8288 metrar (6 fet) á dýpt og hver tómur vagn vó 3.538 kíló (3.53802 tonn).

Vagnlestin, sem spannaði yfir 54.864 metra (180 fet) með múldýr í eftirdragi til vara, samanstóð af þremur vögnum sem urðu að vera til staðar svo hægt væri að fara af stað.

Fremsti vagninn, „Trailer“ og seinast „Back Action“, og allra síðast var vatnsflutningatankurinn.


Teymisstjórinn var ábyrgðarmaður á stjórn teymisins, notaði langan taum sem kallaður var „Skíthælslína“-1 og langa svartormasvipu.

Hann var venjulega að stjórn við vinstra hjólið og gat teymisstjórinn einnig stjórnað bremsunni frá vagnsætinu niður bratta brekku.

„Skiptirinn“ sem venjulega sat í vagninum stjórnaði bremsunni á mishæðóttu landi.

„Skiptirinn“ var líka með fötu af litlum steinum til að grýta múlhestana til hlýðni. Báðir deildu mennirnir með sér ábyrgð, þar á meðal að undirbúa liðið, sinna þörfum múldýranna og sinna dýralæknis- eða viðgerðarmálum.

Hádegisstopp leyfði að fóðra og vökva múlhestana þótt þeir væru enn beislaðir, og á kvöldin voru múlarnir settir í búr með fóðurkössum.

Ferðalag hvers dags var yfirleitt 10,6 kílómetrar eða nálægt 17 mílum, sem olli því að ferðin aðra leiðina tók um það bil tíu daga. Fyrirtækið sem rak þessa „útgerð“ útvegaði skála á næturstoppum fyrir ökumenn og múldýrin.


Söguleg frásögn Remi Nadeau, „Fraktteymi Nadeau í Mojave“, leggur áherslu á yfirburði múlhestanna til notkunar í eyðimörkinni og undirstrikar mikilvæga hlutverk þeirra í að flytja borax með góðum árangri.

Með því að skilja flutninga, forskriftir og rekstrarstjórnun tuttugu múldýra sem var beitt fyrir vagnana fáum við innsýn í þá ótrúlegu viðleitni sem auðveldaði flutning á borax seint á 19. öld.

Norður-Bandaríkja þyngdareining sem jafngildir 2.000 lb avoirdupois (907,19 kg). nafnorð: stutt tonn


Smelltu á Google Ngram Viewer til að sjá nákvæmari tímalínu og stærri!

Google Ngram Viewer

Heimild: History Shortcut á Facebook

Skráði og þýddi: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Fundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinuFundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinu

0 Comments

Til er saga um orustu af Muye árið 1046 f.Kr., á milli 50.000 hermanna fornu kínversku Zhou-ættarinnar og 700.000 frá Shang-ættinni.

Sagan segir að Shang-hermennirnir hafi verið svo óánægðir með leiðtoga sína að margir hlýddu og börðust en aðrir yfirgáfu Zhou, sem vann orrustuna og sannaði styrk þeirra í norðurhluta Kína.

Fornleifar frá Zhou-ættveldinu sem var langlífasta ætt Kína.

Vandaður vagn var losaður úr gröf sinni, skreyttur með dreka, koparbjöllum og jaðri, vagn af konunglegum gæðum.

Leifar af tveimur hestum með bronshjálma ásamt leirmunum og steináhöldum.

Hver veit nema hermaðurinn, sem var þar, hafi tekið þátt í orrustunni um Muye?

Hvort sem hann gerði það eða ekki, var hann greinilega sérstaklega heiðraður af fólki sínu eins og sést af auðlegð grafargripanna.

Mikilvægasta uppgötvunin í þessum uppgreftri var K1-vagninn og hestagryfjan.

Gryfjan er rétthyrnd skaftgryfja, 7,1 m löng frá austri til vesturs, 3 m á breidd frá norðri til suðurs og 2,7 m djúp, með veggjum sem eru næstum bein.

Í gryfjunni voru tveir vagnar og bein tveggja hesta hvers vagns.

Vagnarnir tveir snéru endum saman, með höfuð hestanna beint í austur.

Vagn númer eitt … er hágæða með fallegum skreytingum. Vagninn og hestarnir tveir eru í tiltölulega góðu ástandi.

Yfirbygging vagnsins er þakin rauðbrúnu lakki, með íhlutum eins og trébita undir vagninum og hliðarplankarnir skreyttir með rauðlakkaðri afmyndaðri drekahönnun.

Krosstré á dráttarskaftinu eru skreytt með klingjandi bronsbjöllum.

Bæði nöf öxulsins eru skreyttar með bronshettum.

Framan á vagninum og á hvorri hlið yfirbyggingarinnar eru næstum ferköntuð jaðarstykki.

Fyrir utan mikið af skreytingum á andlitum hestanna, ásamt mörgum leður- eða línhestakviðbúnaði skreyttum með bronsi, voru líka tveir bronshjálmar á höfði þeirra.

Fornleifafræðingar fundu mörg ummerki um daglegt líf í grafreitnum, þar á meðal leirmuni, steináhöld, matreiðslupott og öskuholur.

Þetta sýnir að á þessu grafarsvæði var samtímabúseta.

Að grafreiturinn og búsetusvæðið hafi annaðhvort verið á sama stað eða í nálægð hvort við annað er kannski afleiðing þess að íbúar hafa aðlagast hásléttunni í langan tíma.

Greinin hjá Archaeology News Network gaf ekki til kynna hvaða ár grafreiturinn var virkur nema til að segja að hann væri af Zhou-ættveldistímabilinu.

Eftir orrustuna af Muye framdi konungur Shang-fólksins sjálfsmorð með því að loka sig inni í höll og brenna hana umhverfis sig.

Leiðtogar Zhou-ættarinnar, sem stóð frá 1046 f.Kr. til 256 f.Kr., réttlættu landvinninga sína með því að segja að Shang hefði brotið gegn umboði himnaríkis eða brotið af sér með þeim guðum sem ráðandi voru.

Alfræðiorðabókin Ancient History á netinu segir að hvert síðari kínverska ættarveldi sem tæki við af gömlu myndi réttlæta nýjar reglur með sömu skýringum.

Sumir af mikilvægustu persónum Kína til forna lifðu undir síðari hluta Zhou-ættarinnar, sem var talið tímabil listrænnar og vitsmunalegrar uppljómunar.

Margar af hugmyndunum sem þróaðar voru af persónum eins og Laozi eða Lao-Tsu, Confucius, Mencius og Mozi, sem allir bjuggu á Austur-Zhou tímabilinu, myndu móta eðli kínversks samfélags til dagsins í dag.

Segir í alfræðiorðabókinni.

Málverk sem sýnir fæðingu fornkínverska heimspekingsins Laozi, sem sagði: „Sá sem þjónar höfðingja manna í sátt við Tao mun ekki leggja heimsveldið undir sig með vopnavaldi.

Slík hugsjón er vön að hafa hefnd í lestinni.“ (Málverk eftir Nyo/ Wikimedia Commons)


Heimild: https://waydaily.com/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Hjólbörur fyrir Baðmull #1Hjólbörur fyrir Baðmull #1

0 Comments

Það að geta virt fyrir sér hjólbörur síðan í þrælastríðinu eru forréttindi. Finnst ykkur það ekki? Ekki styrktar með járni. Aðeins úr viði!


Bómullarhjólbörur frá tímum borgarastyrjaldarinnar 1861 til 1865.

Þessi handvagn er alveg úr viði án járnstyrkingar.

Það var notað í bómullarvörugeymslu í því sem þá var þekktur sem bærinn Cottonport, Ouachita Parish, Louisiana.

Cottonport varð síðar West Monroe.

Það varð stærsta bómullarhöfnin við Ouachita-fljótið. Gufuknúinn hjólafljótabátur sem hlaðinn var upp í „rjáfur“ og bómullin var flutt niður til New Orleans.

Myndir og texti fengust að láni hjá Randy Breaux, eiganda þessa stórkostlega sögulega grips.






Yfirlestur: yfirlestur.is

Skráning og þýðingar: Friðrik Kjartansson

Vagn Tutankhamun’s #1Vagn Tutankhamun’s #1

0 Comments

Eitt af afrekum 20. aldarinnar í fornleifauppgreftri!

Vagnar voru fyrstu afkastameiri „vélar“ en mannsorkan.

Í gröf Tutankhamuns voru 2 stórir viðhafnarvagnar, annar minni, verulega skreyttur og þrír aðrir léttari gerðir til daglegra nota.


Mynd fengin að láni frá: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)
Fellanlegt sóltjald á vagninum #2 Þýdd grein og mynd!

Vagn Tutankhamons Faraó hafði fellanlegan tjald himinn #2

Hvernig koma vagnarnir fyrir sjónir?

Í burðargrindinni voru tvö hjól en við þau var tengdur dráttarpóstur sem tveir hestar voru tengdir við.

Farartækin tóku allt fram í verkfræði sem Faróarnir tóku sér fyrir hendur í þeirri fræðigrein.

Endurgerð á fullbúnum vagni í Milwaukee Public Museum, 2022. Mynd fengin að láni á Wikapedia.

Vagninn var vel hannaður og glæsilegur að horfa á, gulllitaður og smíðaður úr tré.

Flestir gripirnir voru skreyttir gulli og á hálfeðalsteinum, leirflísum og lituðu gleri.

Hjólin voru hönnuð með nútímalegu móti, úr sveigjanlegu tré sem gat aðlagast ójöfnu yfirborði jarðvegs.

Úr hvaða efni voru vagnarnir?

Smíðin á vögnunum var sambland af handverki sem sjaldan var sameinað í eina iðngrein.

Vegna þess varð að vinna úr margvíslegum efnum eins og tré, bronsi eða eir, gulli, líni og leðri o.s.frv.

Málverk af orustu máluð 1327. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Margir hæfir handverksmenn hljóta að hafa tekið þátt í ýmsum stigum smíðinnar.

Vagnarnir á myndunum voru aðallega úr tré og gyllingu.

Í hvað voru vagnarnir notaðir?

Þessir þrír vagnar voru aðallega notaðir til að sýna Faróinn við opinberar athafnir.

Þótt einn vagninn sé ekki jafn glæsilegur og þeir sem hér hefur verið lýst má túlka að hann hafi verið notaður í almennum tilgangi, til dæmis til veiða og í útilegur.

Stríðsvagn Egypta. Mynd fengin að láni frá: The Chariot in Egyptian Warfare (touregypt.net)

Hvað þýðir þetta eða táknar?

Þetta þýðir að Forn-Egyptar kunnu til verkfræði.

Það táknar að þar sem verkfræði var stunduð til fleiri en einnar aldar var iðnaður háður efnisvali vegna þess að við smíði á vörum skipti ógallað efni mestu máli.

Geymslan á vagninum í gröfinni 1922. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Það má líka lesa úr þessu að stríðsvagnar voru tákn um virðingu, þar sem þeir táknuðu auð og voru notaðir meðal ríkra manna í valdastöðum.

Viðauki

Í Egyptalandi til forna var gullna hásætið tákn valds og sýndi þjóðfélagsstöðu.

Þetta undraverða húsgagn er það forgengilegasta af öllum þeim hásætum sem fundist hafa frá hinu forna samfélagi.

Það fannst í Annexe-héraði í grafhýsi Tutankhamans.

Hann var smíðaður af mikilli leikni og notað í efni eins og gull til að skapa þessa undraverðu list.

Mynd fengin að láni frá: The Golden Throne of Tutankhamun (globalintergold.info)

Heimild: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Sarven nafið kom til sögunnarSarven nafið kom til sögunnar

0 Comments

Sarven einkaleyfisjárnnafið. Myndir. Bylting sem fór alla leið í hjól bíla á fyrstu áratugum bílaframleiðslu.

Sarven kom nánast til notkunar í vagnasögunni 1857.

Dave í Montana sýnir okkur það sem vita þarf um ,,sarven” nafið!





Heimildir: Engelsk Coach Shop, Youtube

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Daði Sigurðsson fyrrum bóndi segir frá!Daði Sigurðsson fyrrum bóndi segir frá!

0 Comments

Upplifanir og frásagnir um vagnasmíði á Íslandi!


Nýlega var ég að skoða myndir á netinu sem sýna hvernig smíðuð eru vagnhjól úr tré, svokölluð pílárahjól.

Aðferðirnar virðast vera býsna þróaðar og beita smiðirnir mikilli færni við verkið.

Einnig eru verkfæri þeirra mörg hver sérhæfð og talsvert flókin að gerð en byggja á gamalli tækni.

Samt sjást þeir nota nútíma rennibekki og hulsubora sem ekki þekktust áður fyrr.

Járngjarðirnar er nú hægt að rafsjóða saman, en fyrr meir var ekki um annað að ræða en eldsjóða þær. “Vagnamenning” í okkar landi var ekki mikil, byrjaði seint og stóð stutt, varla nema áttatíu ár.

Tæplega notaðir nema tveggja hjóla hestvagnar.

Samt munu menn hafa náð tökum á að smíða svona hjól. Um það veit ég samt grátlega lítið.

Samt þekkti ég mann sem á ungum aldri var sendur úr sinni heimasveit, Hvolhreppi, austur undir Eyjafjöll með léleg vagnhjól sem skyldi endursmíða.

Þessi maður var Jón Ingi Jónsson ( 1911-1996 ) sem lengi var bóndi í minni heimasveit, Fljótshlíð, mikill úrvalsmaður og lagtækur vel.

Hefur hann eflaust orðið að liði við smíðarnar. Smiðurinn var aftur á móti Sigurjón Magnússon í Hvammi ( 1889-1969 ).

Hann var einn þessara manna sem virtist geta smíðað hvað sem var.

Hann var jafnvígur á tré- og málmsmíði og jafnt grófa smíði sem fína og ég þykist vita að honumhafi ekki orðið skotaskuld úr að koma saman vagnhjólum.

Þó hygg ég hann ekki hafa átt nein sérhæfð verkfæri til þeirra hluta en það hefur hann bætt upp með hyggjuvitinu. Kristinn Jónsson, alltaf nefndur vagnasmiður, sem var langafkastamestur við vagnasmíði, taldi að vagnhjól hafi ekki borist hingað til lands fyrr en 1874.

Þó eru óljósar sagnir um að stöku vagnar hafi verið til fyrr en notkun þeirra hefur þá verið það lítil að hún skipti engum sköpum.

Þessi hjól voru gjöf Kristjáns konungs til bænda í Grímsnesinu, Lofts Gíslasonar.

Vitað er að þau voru lengi í notkun.

Torfi Bjarnason í Ólafsdal hóf að smíða vagnhjól 1882 og kenndi nemendum í skóla sínum að smíða og nota vagna.

Þar mun einungis hafa verið um að ræða tveggja hjóla kerrur.

Fólksflutningavagnar á fjórum hjólum komu ekki til sögunnar fyrr en 1900, en þá hófust póstferðir frá Reykjavík að Ægissíðu.

Áðurnefndur Kristinn Jónsson hóf að smíða og gera við vagna 1904.

Hann starfaði eingöngu við það til 1917, en þá smíðaði hann yfir fyrsta bílinn og stundaði það lengi síðan. Rak hann talsvert umsvifamikið verkstæði sem varð með tímanum vel búið tækjum.

Þegar kom fram um miðja tuttugustu öldina munu hestvagnar í notkun hafa verið fleiri en bændabýlin í landinu.

Þá áttu allir bændur orðið vagn, sumir tvo, og stöku bændur fleiri.

Mjög fjaraði undan hestvagnanotkun miðja öldina og þar sem ég þekkti til var notkun þeirra hverfandi eftir 1960.

Á þessum tíma urðu dráttarvélar allsráðandi í búskap og bílar voru talsvert fyrr teknir við hlutverki vagnanna í þéttbýli svo þeir fáu vagnar sem enn eru til séu orðnir safngripir.

Með kærum þökkum til Daða fyrir frábæra frásögn og framlag til þessa verkefnis

Yfirlestur: malfridur.is

Myndskreyting Friðrik Kjartansson

P.S. Ef þú hefur frásögn sama hversu lítil sem hún er er þér velkomið að hafa samband. Rafpóstur: elonfk@gmail.com

Mjólkurflutningavagn sterkur #1Mjólkurflutningavagn sterkur #1

0 Comments

Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!

Verð £1900. Lampar / Luktir eru innifaldir í verði og fyrir mjólkurpóstinn.

Bremsur ekki sjáanlegar.

Vagninn er kallaður „sterkur“ vegna öflugrar fjöðrunar.

Á ensku er hann kallaður „Fload“.


Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Að sjóða nafið eða ekki?Að sjóða nafið eða ekki?

0 Comments

Grein frá 1884 þar sem trésmiðurinn spyr útgefanda nafsins (the Hub, the Nave) áhugaverðra spurninga!

Að sjóða nafið!

Millville, O, March 1884 Spyrjandi

Spurning trésmiðs:

Hver er þín skoðun á að sjóða nafið (the hub) í léttari farartækjum þar sem hægt er að hafa efnið þykkara (öflugra)? Hvort getur orðið að betra hjóli, 1 tommu pílári rekinn í þurrt naf eða sama píláraþykkt rekin í soðið naf, og virkar límið eins vel í soðnu nafi?

Hvaða gerð af lími er best að nota hvítt eða gult? (Ekki er vitað hver munurinn er á hvítu og gulu lími sem notað var 1884).

Yðar einlægur trésmiðurinn.

Við trúum ekki á það að sjóða nafið, né mælum við með að hafa nafið of þurrt. Ef nöfin eru soðin er hægt að reka pílárana í þau af meira afli, þar sem þau eru mýkri og teygjanlegri, en eftir að pílárinn er rekinn í mun náið þorna í fyrri náttúrlega stærð og pílárarnir munu valda yfirálagi sem veldur svo aftur klofningi á nafinu.

Okkar bestu hjólasmiðir hafa nafið eins þurrt og hægt er áður en þeir reka pílárana í nafið; gæta skal að nákvæmri þyngd slaga í að reka pílárana í náið í þurru ástandi og er það þannig bara fyrir þjálfaða smiði. Til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að nafið klofni er gott að dýfa nafinu í heitt vatn smá stund til að taka þurrkinn úr yfirborði nafsins.


Annar leiðinlegur þáttur þess að sjóða nafið er það að límið vill ekki loða eins vel við og við í þurrum viði þegar efnið harðnar, svo sem í álmi eða valhnotu, límið leysist einfaldlega upp í vatninu á náinu og verður því ónothæft. Gott lím er það lím sem er með bestu viðloðunina. Við höfum séð bæði hvítt og gult lím jafn lélegt í þessum tilfellum. Við mælum með að velja besta límið sem markaðurinn býður upp á, sjóðið svo tvo valhnotubúta og límið þá saman, látið bíða í 24 tíma og þá rífið þá í sundur á límingarsvæðinu.

Þá sjáið þér hvort límið er fyrsta flokks eða ekki. (Mun líklega ekki gefa sig á límfletinum ef límið er gott).

Heimildir: The Carriage Monthly, april 1884 (útgefin í heimildarbókinni) Wheelmaking wooden wheel design & construction

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Waggon frá Kent #1Waggon frá Kent #1

0 Comments

Waggon´s í Bretlandi svipar saman

Vagnana (Waggons) frá Kent má kannski setja í flokka í einfalda, en einfalt hefur sinn sjarma.

Þeir voru vel hannaðir með tilliti til notkunargildis og burðarstyrks ásamt endingu í þeim þungu og erfiðu verkefnum sem þeim var ætlað að leysa af hendi.

Yfir allt Bretland var smá mismunur í smáatriðum en gróflega séð var samt föst hefð fyrir hönnuninni.

Vagnarnir voru byggðir í mörgum stærðum til að bera frá 30 cwt á 2 tommu hjólum til allt að 5 tonna á 4 1/2 tommu hjólum og þeim stærstu var ætlað að vera dregnir af fjórum hestum fullhlaðnir korni.

Þrátt fyrir að vagnasmiðirnir gerðu ráð fyrir tveimur dráttarsköftum var yfirleitt bara eitt notað tengt við fremri undirvagninn með pinna (splitti).

Hin miðlungsdjúpa yfirbygging/skúffa/miðlungsdjúpi pallur nýttist illa vegna þverbitanna þriggja sem voru lagðir í hliðarnar.

Út frá almennri venju hækkaði efri hluti skjólborðanna fram og aftur í svo að segja beina línu; í flestum vögnum er þetta mjúkur bogi.

Efri mörk skjólborðanna voru ákvörðuð af uppistöðum þeirra og járnramma sem var í laginu eins og N og veitti aukinn stuðning sem var nauðsynlegur.

Undantekningalaust voru allir vagnar með eina uppistöðu úr viði í hverju bili á milli járnramma og járnstyrkingar.

Viðaruppistaða fyrir miðju var aldrei hluti af stöðlum/hefðum nema í blönduðum (hybrid) vögnum en spjaldborðin voru látin halda sér í sömu stöðu að framan.

Skjólborðin voru með 10 – 12 viðaruppistöðum, flötum á hvorri hlið og 3 – 4 að framan.

Enginn vagn frá Kent var með lokuðum palli/skúffu að aftan en þó var þverbiti þar aftan á festur með pinnum/dílum úr tré.

Undir aftasta bitanum var komið fyrir kaðalrúllu svo hægt væri að kasta kaðli yfir og herða vel að með aðstoð hennar.

Allir vagnar voru byggðir með skjólborð sem viðarborðin voru klædd með.

Á fulllestuðum vagni var hlassið skorðað með lóðréttum póstum sem komið var fyrir í járnrömmum í hornunum.

Til þægindaauka var vagnkassi venjulega settur á framborðið en stundum nálægt, rétt fyrir miðju samkvæmt stöðlum.

Allir vagnar höfðu 12 pílára í framhjólum og 14 í afturhjólum.

Á meðan meirihluti vagnanna var með fjögurra tommu hjólabreidd voru næstum jafn margir með 3½ tommu hjól.

Höfundur þessarar bókar hefur engar heimildir um 90 vagna sem skráðir voru hvort væru með breiðari eða mjórri gerð hjóla.

Flestir þeirra voru með öxla sem smurðir voru með dýrafitu en Pope of Chiddingstone smíðaði vagna sem smurðir voru með olíu en ekki dýrafitu.

Þeir öxulendar voru stimplaðir með nafni hans. Fáir, mjög gamlir vagnar voru skrásettir með viðaröxum.

Sem dæmi um blendinga má nefna að W. J. Tedham frá Bodiam í Sussex smíðaði vagna sína í samræmi við hönnunina frá Kent, án hefðbundinna staðla.

Þar fyrir utan voru vagnarnir frá Kent og Sussex venjulega málaðir með lit sem einhvers staðar var á milli þess að vera rjómalitaður og gulur eða brúnn, eða út í rauðan, en í raun var liturinn í 25% skráninga sá sami blái og á Sussex-vögnunum.

Allir vagnar voru með rústrauða undirvagna eða örlítið ljósari lit.

Öll samskeyti í málningu skorti, bæði á yfirbyggingu og undirvögnum.

Varla var þekkt að á efsta borði væri að finna vörumerkið Heathfield en Ashford gerðu á því undantekningu þegar þeir smíðuðu vagn fyrir J. Henley á Pattenden-býlinu í Goudhurst.

Vagnarnir frá Kent báru aldrei nafn eiganda sinna á svörtu plötunni, eins og í flestum öðrum löndum, en allar upplýsingar var að finna á Sans-Serif leturfæti í samfelldri línu á miðjubita eða jafnvel efst á skjólborði.


Heimild: The Farm Waggons of England and Wales, bls. 24 og 25. Útg. John Baker. London.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Miðeind)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Miðeind)