Tag: carl

Ný túlkun á Fort Ticonderoga í New YorkNý túlkun á Fort Ticonderoga í New York

0 Comments

Grein • Hápunktar úr styrkveitingum til túlkunar á vígvöllum 2021

Gert fyrir Fort Ticonderoga-samtökin

Í hugum bandarískra nýlendubúa var Ticonderoga-virki í norðurhluta New York-fylkis síðasta vígið gegn breskum hersveitum frá Kanada á árdaga bandaríska frelsisstríðsins.

Hið ógurlega Ticonderoga-virki gnæfir yfir Champlain-vatn í norðurhluta New York-fylkis, norðlægur varnargarður gegn breska Kanada í bandarísku byltingunni
Með leyfi frá Carl Heilman II, Fort Ticonderoga

Fljótlega eftir orustuna við Lexington og Concord 1775 hertóku Benedict Arnold, Ethan Allen og Green Mountain Boys frá Vermont virkið af Bretum, komu þannig í veg fyrir aðgang þeirra að Hudson-ánni og tryggðu bandarísku nýlendurnar héldust heilar.

Ethan Allen og Green Mountain Boys taka Ticonderoga-virki frá Bretum, 1775

Gildi virkisins fólst þó ekki aðeins í staðsetningu þess.

Við undanhald sitt eftir misheppnaða innrás í Quebec árið 1775 leitaði meginlandsherinn skjóls innan veggja þess.

Auk þess sótti Henry Knox fallbyssur og önnur stórskotavopn úr virkinu og flutti þessi nauðsynlegu úrræði aftur til höfuðstöðva meginlandshersins í Massachusetts.

George Washington hershöfðingi notaði þessar fallbyssur á frægan hátt til að neyða Breta til að hörfa og batt þannig enda á umsátrið um Boston 1776.



Í október 2021 veitti American Battlefield Protection Program (Verndaráætlun bandarískra vígvalla) Fort Ticonderoga-samtökunum styrk til túlkunar á vígvöllum til að innleiða nýja túlkunaráætlun.

Eftir margra ára sagnfræði- og fornleifarannsóknir munu samtökin nota þetta fjármagn til að auka aðgengi að svæði þjóðsögulega minnisvarðans sem þekkt er sem „Liberty Hill“.

Verkefnishópurinn mun nýta sér langvarandi tengsl við háskóla og samfélög afkomenda til að skapa aðgengilega og víðtæka upplifun fyrir gesti.

Samtökin munu hefja viðræður við ættbálkasamfélög til að tryggja að sjónarhorn frumbyggja á sögu virkisins séu í fyrirrúmi.

Ability verkefnið við New York-háskóla tekur einnig þátt í verkefnishópnum til að þróa algildar hannaðar gönguleiðir og túlkunarskilti fyrir alla gesti.

Styrkir til túlkunar á vígvöllum frá NPS ABPP styrkja samstarfsaðila í verndun um allt land til að nútímavæða og efla túlkun á vígvöllum – til að vekja undrun, skilning og samkennd á þeim stöðum sem urðu vitni að sumum af erfiðustu atburðum þjóðarinnar.

Auk þess hefur áætlunin umsjón með þremur öðrum styrkjum til landakaupa á vígvöllum, til verndunar skipulags og nýlega heimiluðum styrkjum til endurreisnar vígvalla.

Þessi fjárhagsaðstoð skapar samfélagsdrifna umsjón með sögulegum auðlindum á vettvangi ríkja, ættbálka og sveitarfélaga.


Heimild: Reinterpreting New York’s Fort Ticonderoga (U.S. National Park Service)

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Járnsmiðir í Sod Town, Nebraska smíða hestvagna!Járnsmiðir í Sod Town, Nebraska smíða hestvagna!

0 Comments
torf hús í sod town nevada

Járnsmiðaverkstæði í ,,Sod Town“, Nebraska 1886

1886 í Nebraska stillti hópur landnema, þar á meðal landnámsmaðurinn séra Todd og fjölskylda hans, sér upp fyrir framan torfhúsið sitt nálægt West Union í Custer-sýslu.

Ljósmyndin, sem tekin var af Solomon D. Butcher, fangar frumkvöðlaanda og hrjóstrugt landslag bandaríska vestursins á þessu tímabili.

Lítilfjörlegt heimili Todd-fjölskyldunnar endurspeglar áskoranir og seiglu fyrstu landnemanna þegar þeir unnu að því að koma sér upp nýju lífi á landamærunum.

Sodtown (torfbærinn) var þyrping af bráðabirgðareistum, grófgerðum torfbyggingum á krossgötum fjögurra hlutahorna í Cherry Creek Township, og varð fyrsta blómlega byggðin í norðausturhorni Buffalo-sýslu árið 1879.

Sodtown var þekkt fyrir Sodtown-símafyrirtækið.

Fyrirtækið hófst árið 1904 með því að tveir bændur notuðu gaddavírssímalínu.

Þegar mest var var Sodtown-símafyrirtækið með 130 síma

Hinn alræmdi torfbær

Mánudagur, 2. ágúst 2021

Sögur frá No Man’s Land-safninu – Hinn alræmdi Sod Town
Rannsakandi – Sue Weissinger. Fréttamaður – J. L. Wells

No Man’s Land-safnið í Goodwell er helgað varðveislu sögu Oklahoma Panhandle. Bæirnir í Cimarron-, Texas- og Beaver-sýslum eru vel þekktir, en margir bæir eru hins vegar ekki lengur á kortum og gætu flokkast sem

draugabæir.

Sod Town í Beaver-sýslu er algjörlega horfinn, en á níunda áratug 19. aldar hefði mátt kalla hann

alræmdan.

Í bókinni History of Beaver County: Vol. II segir:

Af öllum bæjum í No Man’s Land hlýtur Sod Town að hafa verið sá harðskeyttasti, illræmdasti og villtasti, með fleiri fylleríisslagsmálum á krám en nokkur annar bær í Oklahoma Panhandle.

Þar var engin kirkja né pósthús.

Skólinn var torfkofi sem aðeins var notaður í fjóra mánuði á ári.

Carl Coke Rister sagði í bók sinni, No Man’s Land, að Sod Town hafi verið tvær mílur norður af Texas-landamærunum og hálfa mílu vestur af ósum Coon Creek.

Hann sagði að rústir og rusl hafi legið um allt svæðið og að brotnar dyr og gluggar hafi verið í illa lyktandi holunum (byggingunum).

Í bókinni Recollections of No Man’s Land – the Memoirs of Fred Carter Tracy var Sod Town lýst sem safni torfhúsa við efri hluta Kiowa Creek nálægt Lockwood-pósthúsinu.

Eitt frægt atvik varðaði ungan landnema frá Ochiltree-sýslu í Texas, (Benjamin) Smith Ellis, sem sótti um land þar 1886.

Hann vann með Chancy Fisk og rak einnig almenna verslun nálægt Sod Town.

Tracy minntist þess þegar meðlimur gengis reyndi að ræna verslun Ellis.

Ungi afgreiðslumaðurinn þóttist ætla að sækja peningaskúffuna en dró í raun fram sexhleypu.

Mennirnir tveir skiptust á skotum í návígi en hittu hvorugan.

Ræninginn hljóp að dyrunum og Ellis hljóp að rifflinum sínum.

Hann skaut á manninn þegar hann klifraði yfir torfvegg.

Um morguninn fannst lík ræningjans.

Rister skrifaði í sögubók sinni að ræninginn hafi verið Wash Stevens, leiðtogi Parsons-gengisins.

Rister bætti við að Ellis hafi setið aftast í verslun sinni alla nóttina með Winchester-riffilinn yfir hnjánum.

Chitwood-bræðurnir voru gengi hrossaþjófa sem réðust á landnema og stálu bestu hrossum þeirra.

Talið var að hrossin hafi verið flutt til Sod Town.

Strákarnir áttu krá, billjarðsal og svefnskála og er talið að þeir hafi notað bæinn sem yfirvarp fyrir hrossaþjófnaðinn áður en þeir fóru með dýrin til Nýju-Mexíkó til að selja þau.

Póstburðarmaður Lockwood-pósthússins sagði sjálfskipuðum varðsveitum frá athæfum Chitwood-bræðranna.

Varðsveitirnar fóru að fylgjast með Sod Town og skipulögðu nefndir frá Blue Grass, Neutral City og Gate City til að gera sameiginlega árás á Sod Town.

Þeir voru staðráðnir í að handsama Chitwood-gengið og ákváðu tíma til að hittast.

Aðeins mennirnir frá Blue Grass komu á réttum tíma, en þeir náðu Kit Chitwood (sem var fatlaður) og föður hans, sem í raun voru ekki hrossaþjófar.

Chitwood-feðgarnir virðast hafa sloppið.

1890, þegar No Man’s Land varð Oklahoma-svæðið, féll Sod Town fljótlega í gleymsku.

No Man’s Land-safnið gefur einnig út bækur til að varðveita sögu Panhandle.

Bók Fred Tracy er dásamleg heimild um líf frumherjanna.

Tracy gat skrifað um Sod Town vegna þess að sem ungur maður var hann þar og reið jafnvel með sjálfskipuðu varðsveitunum sem leituðu að Chitwood-bræðrunum.

Tracy skrifaði endurminningar sínar 1950 og þær voru ritstýrðar af dr. V. Pauline Hodges og gefnar út 1998.

Hægt er að kaupa bókina á safninu ásamt mörgum öðrum frábærum bókum.

Tracy var valinn ásamt T. O. James til að sækja stjórnlagaþing Oklahoma sem fulltrúar frá Beaver-sýslu, Oklahoma-svæðinu.

(Á þeim tíma var allt svæðið Beaver-sýsla.)

Það voru Tracy og James sem komu sér saman um landamæralínurnar sem skiptu Beaver-sýslu í þrjár sýslur og um nöfn sýslnanna.

Hvorum fulltrúa voru sendar leiðbeiningar um að útvega skrifborð með hjörum á lokinu.

Safnið hefur bæði skrifborð Tracy og James til sýnis.

Safnið er opið þriðjudaga til laugardaga, 10:00–12:00 og 13:00–16:00 – lokað á sunnudögum, mánudögum og almennum frídögum.

Vinsamlegast notið grímu.

Fylgist með safninu á Facebook@NoMansLandMuseum.


Heimild: Historical Views á Facebook og https://dawsonpower.com

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Konungsvagninn sem Friðrik VIII vildi ekki nota, 1907?Konungsvagninn sem Friðrik VIII vildi ekki nota, 1907?

0 Comments

Friðrik vildi ríða fremstur í fylgdarliðinu!


Hugsanlegur konungsvagninn er af gerðinni Phæton og voru þeir smíðaðir í mörgum útfærslum.

Þessi útfærsla er að öllum líkindum ensk að uppruna (byggð á járnverkinu á fimmta hjólinu og hönnun yfirbyggingar).

En vefsíðueigandi veit að eigandi vagnsins veit að mikil verðmæti eru í þessum grip.

Myndin er fengin að láni frá Þorkeli Hjaltasyni, eiganda vagnsins þegar þetta er skrifað.


Sagan sem fylgir vagninum: Friðrik settist aldrei upp í þennan vagn enda góður reiðmaður og vildi ekkert með vagninn hafa að gera.

Konungur reið gjarnan fremstur í flokki, því að hann vildi heilsa fólki fyrstur og taka því tali ef honum sýndist svo.

Vagninn eftirlét hann Carl Locher, sem var málari í fylgdarliði hans og var orðinn nokkuð aldraður og þungfær.

Eitt sinn var vagninn dreginn tómur og var þá konungi sagt að Carl væri sjálfur ríðandi.

Reið konungur þá Carl uppi til að spyrja hann hvernig hann hefði komist á bak! Ástæðuna má sjá ef smellt er á hlekkinn að nafni málarans hér ofar í textanum!

Athuga skal að þessi frásögn eru munnmæli ekki staðreindir!


Vagninn er á gúmmíhjólum, það er að segja sérstök gúmmípulsa sem er með einum eða tveimur vírum inn í til að strekkja gúmmíið utan um hjólið og ofan í u-skúffuna sem er úr járni og virkar eins og felgur nútímans.

Reyndar er þessi lausn fyrstu felgurnar, eftir því sem vefsíðueigandi best veit. Gúmmíhjólin komu til skjalanna eftir 1855 eða þar um bil.

Charles Goodyear fann upp aðferð til að efnabreyta gúmmíinu til að nota það í dekk undir ökutæki af slysni.

Goodyear fór í skuldafangelsi og dó öreigi meðan aðrir stórgræddu á uppfinningu hans.


Bogann er búið að spengja í þessum Phaeton. Þessi eða svipaður bogi finnst líka í „Viktoriu“-vagninum og fleiri gerðum vagna.


Fremra sætið vísar farþegum aftur (snúa aftur). Var svoleiðis í Vis a Vis og/eða Social-vögnum.

En hafa ber í huga að Phæton kom í mjög mörgum útgáfum og stundum er svolítið erfitt að skilgreina hverrar gerðar þeir eru.


Kúskurinn eða ökumaðurinn sat að öllum líkindum til vinstri héðan megin séð með taumana en það gæti líka verið að kúskurinn sæti bara á hestinum og æki vagninum þannig; það var vel þekkt, þó aðallega hjá aðlinum og kóngafólki.

Setan eða sessan undir kúskinn var oftast hærri að aftan og myndaði þannig halla fram, líklega til að gefa betri líkamsstöðu til akstursins.


Járnverkið í armhvílunni á sætinu bendir til að sætið sé upprunalegt eða smíðað með vagninum.

Litlu napparnir beggja megin á handriðunum gætu verið vísbending um það, en þeir eru til að krækja hlífðarteppi eða dýrahúð yfir farþega.


Uppstig eru mjög mikilvæg, gerðu mögulegt að byggja vagnana hærra og hærra frá jörðu og komu sér vel þegar stóru og háu póstvagnarnir komu til sögunnar en það var snemma eða á 16. öldinni.

Sagt er frá í sumum lýsingum á vögnum að þeir væru hengdir1lágt til að eldra fólk og konur ættu auðveldara með umgang.

Uppstig á vögnum með yfirbyggingu sem var með hurðum var oft þannig að hlíf var látin koma yfir þrepið/uppstigið. Þegar hurðinni/unum var lokað var hlíf yfir uppstiginu fest undir hurðina/hurðirnar sem hjálpaði til við að halda frá því miklum óhreinindum.


Lögunin á sætinu og brettinu er nokkuð einkennandi fyrir Phæton.

Oft var fellanleg húdd/hlíf2 úr leðri eða öðrum efnum yfir sætinu og kallaðist (Hood) á ensku.

Einnig var Victorían með svipuðu lagi á afturhlutanum.

Nafngiftin Viktoría er í höfði Viktoríu drottningar Stóra Bretlands.


Við erum að horfa á fimmta hjólið, ( the fifth wheel ) með miðjubolta eða ( King pin ) á ensku.

Þetta er, eins og þið sjáið, töluvert járnvirki. Það voru dæmi um að vagnarnir væru liðstýrðir, svona eins og búkollur nútímans eða Pileloader (vélskóflu), sem sagt tengipinni/bolti í miðju farartækis eða framarlega og þá þyrfti ekki fimmta hjólið.

En sú lausn náði ekki vinsældum. Sjá næstu mynd.


Tveir miðjuboltar rétt fyrir framan miðju jafni Phæton, samhverfur Phæton eða miðju Phæton



Fimmta hjóls járnverkið séð framan á.

Þegar síðast var vitað um þennan vagn var hann kominn í uppgerð á Íslandi.

Samantekt af Friðrik Kjartansson Með innilegum þökkum til Þorkells Hjaltasonar fyrir lánið á myndunum.

Yfirlestur: malfridur.is

  1. Talað um að vagnar væru hengdir á undirvagninn ↩︎
  2. Svipað og á barnavagni nema mikið stærri ↩︎