Category: Derbyshire

15 ára táningur vill læra vagnhjólasmíði15 ára táningur vill læra vagnhjólasmíði

0 Comments

Stúlkan vill gerast sérfræðingur í hjólasmíði (Wheelwright)

7 August 2024

Höfundur: Alan Webber
BBC News

Sophie

Vagnhjólasmíði (Wheelwright) hefur verið Daniel Garner atvinna í 25 ár, og fetaði hann í fótspor föður síns

Garner, 47 ára, sagði að starf hjólasmiðs hefði þróast í mörg hundruð ár.

Hvað sem er harðviðarhjól, allt frá fyrstu dögum vagnsins til hestvagnanna, alveg til fornbílanna sem munu fara með þig fram undir lok 1920 eða snemma árs 1930.

Hann er vongóður um örugga framtíð fyrir fyrirtækið.

Það eru alltaf vagnar, bílar og farartæki að koma út úr geymslum og fólk er að gera við þau,

sagði hann.

Við erum líka að fara í gegnum fyrstu stig endursmíði hjólanna sem voru gerðar á sjöunda og áttunda áratug tuttugustu aldar og eru að endurnýjast aftur.

The Worshipful Company of Wheelwrights áætlaði að það væru um 25 starfandi hjólasmiðir en ekki allir í fullu starfi.

Samtökin sögðust ekki vita af neinum kvenkyns hjólasmiðum.

Örugg framtíð!

Daniel Garner hefur verið hjólasmiður í 25 ár, fetað í fótspor föður síns

Garner, 47 ára, sagði að starf hjólasmiðs hefði þróast í mörg hundruð ár.

Hvað sem er harðviðarhjól, allt frá fyrstu dögum vagnsins til hestvagnanna, alveg til fornbílanna sem munu fara með þig fram undir lok 1920 eða snemma árs 1930.

Hann er vongóður um örugga framtíð fyrir fyrirtækið.

Það eru alltaf vagnar, bílar og farartæki að koma út úr geymslum og fólk er að gera við þau,

sagði hann.

Við erum líka að fara í gegnum fyrstu stig endursmíði hjólanna sem voru gerðar á sjöunda og áttunda áratug tuttugustu aldar og eru að endurnýjast aftur.

The Worshipful Company of Wheelwrights áætlaði að það væru um 25 starfandi hjólasmiðir en ekki allir í fullu starfi.

Samtökin sögðust ekki vita af neinum kvenkyns hjólasmiðum.

Sophie sagðist vera spennt að vinna við hlið Garner þar sem hún elskaði handavinnu.

Að vera hjólasmiður er meira eins og hendur vinna frekar en að vera í kennslustofunni svo ég nýt þess meira,

sagði hún.

Mér finnst gaman að vinna með mismunandi viðartegundir og verkfæri.

Ást Sophie á hestum laðaði hana líka að handverkinu.

Vagnarnir vekja áhuga minn og sagan á bak við þá og það sem vakti áhuga minn á vögnunum voru hestarnir.

Garner var fullur af lofi fyrir unga nemanda sinn og lýsti henni sem

mjög, mjög áhugasöm

og

hvati hennar sé einlægur.

Hún er mjög handlagin manneskja og vill bara taka þátt, satt best að segja,

sagði hann.

Það vill ekki hvert barn sitja fyrir framan tölvu.

Garner vonast til að koma á sérsniðnu hjólasmiðsnámi fyrir Sophie en ef það tekst ekki mun hann senda hana í Lincoln College til að fá próf í samsetningu harðviðarhluta.

Robert Hadfield

Robert Hadfield hjá fornbílaklúbbi Stóra-Bretlands segir að hjólasmiðir gegni mikilvægu hlutverki

Nokkrir meðlimir fornbílaklúbbs Stóra-Bretlands heimsóttu nýlega verkstæði Garner.

Stjórnarformaður, Robert Hadfield, 68, sagði:

Við getum ekki verið án Daníels vegna þess að það eru ekki margir í kringum okkur sem gætu endurbyggt tréhjól af bílum sem við erum með, svo við þurfum Daníel eins mikið og hann þarf okkur.

Fylgdu BBC Lincolnshire á Facebook, X (áður Twitter) og Instagram.

Sendu sögurnar þínar á eastyorkslincs.news@bbc.co.uk


Heimild: www.bbc.com

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Fótgetavagninn sem fannst í hlöðuFótgetavagninn sem fannst í hlöðu

0 Comments

Einstakur vagnfundur í Lincon!

Sérstæður hlöðufundur í Lincolnshire.

Mario Broekhuis höfundur greinarinnar. Birtist á Facebook í október 2022

Þýðandi og skrásetjari Friðrik Kjartansson

Hvernig er hægt að hafa virðulegri viðurgjörning en þennan?

Í desember 2021 skrifaði ég grein um fógetavagninn í The Road, fréttabréf The Road Club. Í kjölfarið gerði ég frekari rannsókn á því efni, eins og því sem komið hefur fyrir suma vagnanna, sérstaklega þá sem eru á myndum í safninu mínu. Það varð til endurfundar á vagninum í Lincolnshire. Í september 1948 greindi Lincolnshire Echo frá því, nánar tiltekið hvernig vagn fógetans í Lincolnshire fór í síðasta sinn um borgina eftir að hafa verið tekinn í notkun, en síðan var hann færður á Lincoln Museum. Par af gráum vinnuhestum lötraði frá háskóladeildinni með vagninn, og tók vagninn án hamarsklæðis á rigningardegi.

Síðasta ferðalag Fótgetavagnsins 1948!

Frá Stamp End Highways til Burton-safns, þar sem hann yrði geymdur þar til mögulegt væri að setja hann á sýningu. Sýningin komst aldrei á og stjórn og safnkostur safnsins/safnanna í Lincolnshire breyttist margsinnis. Erfitt var að fá svar við aðalspurningunni: „Er þessi vagn enn til?“ Sara Basquill, deildarstjóri innheimtu- og þróunarmála hjá sýsluráðinu Lincolnshire – sýslu, tók áskoruninni. Hún var ánægð með þær gömlu ljósmyndir sem hún hafði fengið í hendur. Hún vissi af vagni sem ekki var rétt skráður, sem var falinn í geymslu undir rykugum yfirbreiðslum.

Eftir nokkra stund reyndist það vera rétti hlöðufundurinn. Sara svipti yfirbreiðslunni af: „Mér fannst sumt af hnignun vagnsins hafa eldri uppruna en hann lítur ágætlega út á myndunum. Mig grunar að vagninn hafi einhvern tíma verið geymdur við slæmar aðstæður, jafnvel utan dyra. Ég er hrifinn af hlutum í upprunalegu ástandi og finnst ekki gott að þurfa að fara í fulla endurgerð. Ég er ekki viss um hvaða safn Vagninn átti að fara á árið 1948 þar sem Lífslistasafnið í Lincolnshire var ekki opnað fyrr en 1969. Mögulega hefur verið boðið upp á Borgar- og héraðslistasafnið (nú The County Collection)?

Leifarnar af skjaldarmerkinu!

Ég held að skjaldarmerkið á ljósmyndinni sé sama og skjaldarmerkið sem varðveittist á vagninum. Ég myndi gjarnan vilja finna út hver átti þetta skjaldarmerki. Það næsta sem ég hef komist að er að hugsanlega var það Marsden of Panton. Hafandi þá athygli sem forstöðumaðurinn hefur á málinu núna gæti runnið upp sá tími að þessi háttsetti vagn snúi aftur í sviðsljósið eins glæsilegur og áhugaverður og hann var fyrr á tímum. Aðeins þegar búið er að greina uppruna vagnsins ótvírætt er hægt að elska hann aftur.

Yfirlestur: malfridur.is

Cumberland Cart bænda vagninn #1Cumberland Cart bænda vagninn #1

0 Comments

Skemmtilegt er að sjá skyldleika milli þessa grips og vagns eftir Thomas Stell sem þið getið séð fyrir neðan aðra mynd með því að smella á!


Vagninn var smíðaður á nítjándu öldinni á Hutton Le Forest Estate nálægt Penrith í Cumverland af vagnasmið (Wheelwrights) af því svæði. Sá vagnasmiður notaði tré frá því svæði. Vagninn var keyptur af bóndabýli í nágrenninu á níunda áratugnum. Vagninn er 99% upprunalegur, upphafleg heygrind og upphækkunarborð. Gólf vagnsins er upprunalegt líka og í frábæru ástandi. Kannski þarfnast vagninn pínulítillar vinnu til að vera tilbúinn í bústörfin, skemmtiakstur eða sýningu. Staðsetning í Suður Derbyshire.


Grindin ofan á vagninum á þessari mynd er til að flytja laust hey og hefur komið sér vel. Smellið hér þá sjáið þið skyldan vagn smíðaðan af Thomas Stell En þessi greining milli vagnasmiða á sama svæði og/eða milli landsvæða og jafnvel landa ásamt heimsálfum finnst mér skemmtileg!


Ef einhver hefur áhuga er verðið 750 pund.




Vagninn er smíðaður til að bera þungar byrðar


Hækkun á skjólborðunum var líka aukabúnaður eins og heygrindin sem velja mátti um hvort fylgja ætti í kaupunum. Svona er hefð fyrir að geyma vagnana uppi á aftari endanum, hvort sem hann er úti eða inni.


Heimild: Carriage and driving Equipment For Sale or Trade Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is