Tag: teikningar

Ágrip af sögu StudebakerÁgrip af sögu Studebaker

0 Comments

Stórbrotin saga einkaframtaks!

Í árdaga Studebakerfyrirtækisins í febrúar 1852 var aðstaðan lítil og boðið var upp á járningar á hestum ásamt viðgerðum á hestvögnum. Fáein verkfæri, þau nauðsynlegustu, voru til við stofnun og samtals 68 dollarar var útlagt hlutafé í fyrirtækið.

Faðir Studebaker-bræðranna hafði kennt þeim í litlu vagnasmiðjunni í Ashland, Ohio.

Á fyrsta starfsárinu voru tveir vagnar smíðaðir.

Mikil harka var sett í að vekja athygli á sér í nærliggjandi bæjum og fylkjum.

1857 gerðu þeir samning við herinn í Utah, sem gerði þeim kleift að rísa upp á við.

Þeir höfðu verið viðurkenndir erlendis! (segir textinn beinþýddur en líklega átt við í öðru fylki).

Þeir notfærðu sér vel hvert tækifæri sem bauðst og töpuðu hlutunum aldrei niður eða fengu stór bakslög í reksturinn.

Studebaker var skráð á hlutabréfamarkað 1868 og þörfin á vinnuaflinu hjá þeim óx í raun, næstum eins og náttúruafl.

Fyrirtækinu var skipt upp í nokkrar deildir og vinnuaflið endaði í 1860 manns það ár.


Smíði og framleiðsla hestvagna hjá Studebaker einskorðaðist fyrst bara við vagna (Wagons) en snemma í sögu fyrirtækisins bauð þeim að smíða líka hestvagna til fólksflutninga sem voru meðal fínni hágæðavagna á þeirra tíma mælikvarða.

Teikningar sem fylgja þessari grein sýna aðstöðu fyrirtækisins í byggingum og leiðandi farartæki smíðuð af fyrirtækinu.

Studebaker framleiddi allar gerðir vagna, svo sem vagna til að aka sér til ánægju, Landau hefðarvagn fyrir forsetann og alla aðra venjulega notkun.

Í vögnunum gat fjölbreytnin frá fyrirtækinu þjónað flestum.

Ekki einungis bændum heldur líka fjallabúum, námum, sléttunum og síðast en ekki síst var þrýst á að þjónusta viðskiptalífið í borgunum.

Innan verksmiðjunnar voru margar deildir sem þjónuðu framleiðslunni: feiti fyrir stál, feiti fyrir steypt járn, Studebaker einkaleyfisvarin spón- kerru (buggy) og kerru (wagon) sæti, spónhlíf að framan og aukahlíf.

Mjög svo nauðsynlegur hluti af Studebaker-framleiðslunni var vatnsúðaravagninn sem gerði fyrirtækið landsfrægt fyrir.

Verksmiðja og vöruhús Studebaker í Chicago talar sínu máli í einu og öllu á teikningunum. Hestvagnasýningarnar eru einstakar, jafnvel í heiminum.

Efri hæðir bygginganna í Chicago eru notaðar til að smíða flottari, meira elegant og dýrari gerða hestvagna, líka fyrir fínni og minni vagnaviðgerðir.

Byggingin er meðal þekktustu bygginga í Chicago og er umkringd frægum húsum svo sem Óperuhúsinu, Chicago klúbbhúsinu á aðra hönd og Listastofnun Chicago á þriðju hliðinni.

Farartæki framleidd af Studebaker sem send voru á heimssýninguna sýndu fram á án efa fallegasta safn sem aðeins eitt fyrirtæki sendi frá sér.

Peningar voru vel nýttir í undirbúning og innkaup á efni fyrir heimssýninguna og allt sem kom að hæfileikum og smekk var ekki skorið við nögl.

Studebaker Bros. MFG CO.,
South Bend, Indiana, U.S.A.

Heimildir

Internet Archive – Illustrated souvenir – [of carriages] Of the Studebaker Brothers MFG.Co. South Bend, Indiana, U.S.A.

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur/malfridur.is

Formáli að ensku bændavögnunumFormáli að ensku bændavögnunum

0 Comments

Þessir vagnar urðu svo með tímanum samþykktir sem hefðarhönnun hvers lands og landsvæðis.

Fyrstu rituðu heimildirnar eru frá 1440.

Í sumum löndum urðu til tvær eða þrjár gerðir vagna sem voru samþykktar sem hefðarhönnun meðan í öðrum löndum urðu mun fleiri sem uppfylltu samþykktar hefðir.

Þeim tuttugu og fjórum plötum ( plates ) í réttum litum er ætlað að gefa innsýn í vídd og útbreiðslu vagnanna eins og mögulegt er landfræðilega.

Þetta verkefni inniheldur lýsingu á vögnunum, byggða á persónulegum og upplýsingum sem koma víða að.

Smíði vagnanna er lýst fyrst og fremst vegna þess að höfundurinn (James Arnold) er ekki vagnasmiður (wheelwright) og í öðru lagi vegna þess að höfundur vill ekki troða sér inn á svið bókar sem nú þegar hefur verið gefin út sem lýsir öllu ferlinu frá því áður en tréð er fellt til lokaafurðar, meðfylgjandi sú tilfinning að sú útgáfa sé fullnægjandi og verði ekki endurbætt.

Í þá bók, The Wheelwrights heildsala George Sturt, sem gefin var út af Cambridge University Press, verður vitnað nokkrum sinnum.

Eins er saga vagnanna (History of waggons).

Bók sem fjallar um frumstætt flutningaáframhald (the primitive transport onward) er ekki meðal tilvísunarbóka.

Vegna þess að hún hefur verið tekin fyrir af Geraint Jenkins í bókinni enski búvagninn (the English farm wagon) útgefin af David og Charles ásamt Landbúnaðarflutningar í Wales (Agricultural Transport in Wales), útgefin af Þjóðarsafni Wales (National Museum of Wales).

Verkefninu gæti verið best lýst sem samantekt til 25 ára af heimildaöflun, allt saman framkvæmt með mikilli notkun á hjólhesti.

Jafnvel að stríði loknu var nóg af vögnum til.

Suma fundum við á ótrúlegustu stöðum og enn í notkun, aðrir voru svo langt gengnir að aðeins var hægt að draga af þeim verðmætar upplýsingar.

Teikningarnar hafa verið unnar úr skissum af vögnum víðs vegar í umhverfi sveitanna og annarra aðstæðna.

Mikil rannsóknarvinna liggur að baki og heldur áfram að vera framkvæmd því viðfangsefnið er nánast óþrjótandi.

Höfundurinn mun alltaf vera djúpt þakklátur fyrir allar upplýsingar og lán á myndum, gömlum listum og svo framvegis.

Þær upplýsingar sem stundum þykja léttvægar geta sannað sig til að vera ómetanlegar að verðmætum.

Eitt af verðmætustu hlutum í fórum höfundar er bréf frá Járnsmið á eftirlaunum frá áttunda áratugnum skrifað með vandlátri hendi.

Þýtt úr formála (Preface) bókarinnar The farm waggons of England and Wales, fyrst útgefin 1969 og svo núna endurprentuð með leiðréttingum 1974.

Skrásett og þýtt af Friðriki Kjartanssyni

Yfirlestur: malfridur.is

Notaðu hlekkina hér fyrir neðan og lestu um vagnana og hönnun þeirra ásamt sögu!

Hlekkir á vísindalegar greinar um ensku bændavagnana!

Hestvagninn frá Kent Teikning í lit og greinarstúfur!

Brougham frá Brewster með stöðugleikabúnað #1Brougham frá Brewster með stöðugleikabúnað #1

0 Comments

Stífur úr járni milli hjóla þaggaði hávaða og minnkaði hliðarsveifluna!

Brewster & Co tók að sér að framleiða Brogham-vagninn fyrir enska lávarðinn Brougham.

Hann var fyrst smíðaður í Bretlandi 1838 – 1839 af Robinson & Cook fyrir Brougham lávarð. Stöðugleikabúnaðurinn var upphaflega frá Hooper and Co.

1860-70. Ein nýjungin var járnstöng tengd milli fram- og afturöxuls undir miðju yfirbyggingarinnar sem tengdist svo út með sömu gerð járns og undir fjaðrirnar.

Þetta segir í greininni sem fylgir teikningunum af vagninum að þessi búnaður hafi tekið hliðarsveifluna (hreyfinguna) af vagninum á ferð, sem sagt gert það að verkum að farþegar og kúskur kastast minna eða ekkert til hliðanna við akstur.

Svo þaggaði þessi búnaður ákveðin hljóð sem bárust annars inn í vagninn á ferð; skrölt-írskur sem annars var þekkt í Brougham án þessa búnaðar.

Brewster & Company kalla þessa uppfinningu (patent) tvöföldu fjöðrun (Double-Suspension).

Vagninn er með átta fjöðrum sem voru hannaðar og teiknaðar af H.F. Stahmer, yfirmanni og yfirmanni teiknideildar hjá Brewster.

Patentið (einkaleyfið) var skírt í höfuð hans. Mikið af prófunum fóru fram sem sönnuðu að búnaðurinn virkaði sem áður sagði.

Heimildir: Brewster Skrapbook bls 279 Þaðan koma heimildir í þá bók úr HUB september 1883 bls Mynd kemur úr bókinni Brewter en með uppruna í Ameríska tímaritinu HUB frá september 1883 bls 278

Heimild 2: The Carriage Foundation í Englandi (Vefsíða)

Samantekt og þýðing: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is