Tag: ljós

Cut Under Runnabout #1Cut Under Runnabout #1

0 Comments

Skorin undir, Nýmáluð og bólstruð!


Topp ástand
Nýmálaður og bólstraður. Er með skiptisæti/bráðabrygðasæti. Lampar og yfirbreiðsla innifalin verð $5500.
Ef við horfum vel sjáum við ,,Undirskurð” (cut under) undir Kúsksætinu sem hleypir framhjólunum undir vagninn við krappar beygjur. Staðsett í Scottsville, New York

Heimild: Mynd fengin að láni frá Carriages for sale and wanted north America only Facebook

Ekki er minnst á smíðaár eða aldur.


Vagn til veiða #1Vagn til veiða #1

0 Comments

Sýninga og keppnis eintak

Fallegur Stevenson frá Lemington1 veiðihundavagn.

Hentar hvort sem er einum eða pari, tekur upp í 15 veiðihunda.

Er með dráttarstöng og svanahálsasköftum.

Smíðaður nálægt 1900.

Dökkgrænn.

Tilbúinn til keppni.

Léttur og fínn.

Hentar bæði smáhestum og venjulegum hestum í Englandi.

Hjól frá Warner.

Hafður verið sýningarvagn undanfarin þrjú tímabil í „Private Driving & Attelege“-klúbbnum.

Fínir lampar.

Verð £ 6000.











  1. „Lamingtons-hestavagn“ vísar til hestavagnsins sem Lord Lamington, ríkisstjóri Queensland, notaði þegar hann kom til að setja þing Queensland árið 1899. ↩︎

Surrey #1Surrey #1

0 Comments

Alltaf geymd inni, ekið aðeins í örfá skipti!


Surrey, ekki talað um aldur, lítið notaður, vandaður vagn í alla staði.
Surrey-vagnar eru hurðalausir fjögurra hjóla, vinsælir í USA á 19. og 20. öldinni. Þeir eru venjulega tveggja sæta fyrir fjóra farþega. Surrey var með nokkrar mismunandi gerðir af blæjum/húddum eða segli (notað í regnhlífar), oft með kögri. Sætahefð þessarar gerðar voru með renndum pílárum í baki, oftast bólstruð sæti. Nafnið er komið frá

Heimid: Wikipedia






Búslóða fluttninga vagn!Búslóða fluttninga vagn!

0 Comments

Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!

No 1. 1– Stærð yfirbyggingar 353,68 m x 170,7 m Verð £ 5500
No 2. 2- Stærð yfirbyggingar 396,24 m x 182,88 m Verð £ 6400
No 3. 3- Stærð yfirbyggingar 445,08 m x 211,68 m Verð £ 7200
No 4. 4- Stærð yfirbyggingar 487,68 m x 213,12 m Verð £ 8000
Með bremsum og fjöðrum. Skaft fyrir tvo hesta er innifalið í verði. Niðurtekin afturöxull til að geta aftur fellt gólfið niður til frekara rýmis.


Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Konfekt vagninn!Konfekt vagninn!

0 Comments

Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!

Verð £ 3810. Sendiferðavagn sem flutti sælgæti og gotterí, líklega líka konfekt, annaðhvort í búðirnar eða til almennings. Útbúinn með lömpum og letur útfært í listrænum stíl úr gæða enskri gyllingu. Góð uppstig, vönduð hlíf framan við kúskinn, fjaðrir þrjár, ein þversum aftan tengd við enda beggja langsum fjaðranna og falleg skreyting í þaki yfir kúskinum og neðarlega á miðri hlið. Stærð yfirbyggingar: Lengd 152,4 cm x breidd 1097,28 cm x hæð 121,92 cm


Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Mjólkurflutningavagn sterkur #1Mjólkurflutningavagn sterkur #1

0 Comments

Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!

Verð £1900. Lampar / Luktir eru innifaldir í verði og fyrir mjólkurpóstinn.

Bremsur ekki sjáanlegar.

Vagninn er kallaður „sterkur“ vegna öflugrar fjöðrunar.

Á ensku er hann kallaður „Fload“.


Heimild: Sölubæklingur Thomas Stell frá 1909

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Brougham frá Hooper and Co með stöðugleikabúnað #8Brougham frá Hooper and Co með stöðugleikabúnað #8

0 Comments

Brougham í körfu hengdur á C-fjaðrir

8 fjaðra vagn

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2020/11/Hooper-Brougham.jpg

Hestvagnaframleiðandi í London sem virðist hafa lagt mikla vinnu í að losna við brak og hávaða auk hliðarsveiflunnar í akstri Brougham.

Þessari gerð Brougham er lýst svona:

Brougham á körfu (stöngin undir vagninum sem fylgir lagi hans að neðan í meginatriðum) og hengdur upp á C-fjaðrir.

Hooper and Co var sérstakur vagnasmiður hennar hátignar í Englandi en ef þið stækkið myndina (þarf að smella einu sinni á myndina kemur nýr póstur með stækkaðri mynd) þá sjáið þið betur gylltu stafina vinstra megin við myndina.

1860-70 Hooper and Co. Járnstöng milli öxlanna með tengingu út í fjaðrirnar með stífum festi undir Miðfjarðarjárnplötuna.

Í lýsingu með teikningunum af vagninum segir að þessi búnaður hafi tekið hliðarhreyfinguna af vagninum í akstri.

Til að minnka hreyfingu líkama farþega og ökumanns kastast ekkert til hliðanna við akstur.

Svo tók þessi búnaður af hljóðum sem bárust annars inn í vagninn á ferð; skrölt- ískur eða nuddhljóð sem annars væri þekkt í Brougham án þessa búnaðar.


Heimildir: The Carriage Foundation í Englandi (vefsíða, í flokknum hlutir) Brewster Skrapbook, bls. 279.

Þaðan koma heimildir í þá bók úr HUB frá september 1883 bls.

Myndin kemur úr bókinni Brewter en er með uppruna í ameríska tímaritinu HUB frá september 1883, bls. 278.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)