Pólska útgáfan af bændavagni virðist vera léttbyggður og er bara einn hestur spenntur fyrir. Engar bremsur eru sjáanlegar. Mynd fengin að láni frá: POWOŻENIE KONNE POCZĄTKI , WIEDZA, PORADY,NAUKA,SPRZĘT eða á íslensku: Hestaakstur byrjun, þekking, ábendingar, nám og búnaður á Facebook.
Carbriolet með fullvaxna toppnum hefur enga textalýsingu í sölubæklingnum. Við sjáum á myndinni að hann er með uppstig, hlíf framan, sæti fyrir fjórar manneskjur og svo er hann byggður á körfu stöngin sem er neðst undir vagninum. Ég tel fullvíst að vagninn sé á Sarven nöfum þótt teikningin sé ónákvæm með það. Engar bremsur eru sjáanlegar. Þessir vagnar er á þver fjöðrum að framan og aftan. Langsum fjaðrir urðu svo ofan á í hönnun síðar.