Markaðsvagn Garðyrkjumannsins #1Markaðsvagn Garðyrkjumannsins #1
Framleiddur af Thomas Stell, vagna og yfirbyggingasmið 1909!

Verð £ 3000 burðaþol 30 cwt
Verð £ 3200 burðarþol 40 cwt
Verðin innihalda bremsur og allt eins og myndin sýnir!


1901 Pæton Brake heitir brake vegna þess að framhjólin ganga undir bogann undir sætinu. Þessi Pæton tekur að minnsta kosti átta farþega með kúskinum. Þessi ætti því að vera lipur í þröngum aðstæðum. Þetta eintak hefur þörf fyrir heildaruppgerð; ástandið er orðið þannig að aðeins algjörs niðurrifs og uppbyggingar er þörf ásamt málaravinnu. Vagninn er samt vel heillegur og viðráðanlegur í uppgerð.

Öflugt og vel skapað járnverk.

Bremsubúnaðurinn er vel vandaður miðað við sambærilega vagna þessa tíma og gerðar. Uppstigin eru líka sterklega og vönduð til að endast.


Afsakið léleg myndgæði.



Þýðing og skrásetning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is