uncategorized Omini bus #1Omini bus #1 FrikkiFrikki 0 Comments Almennings vagn eða strætó fyrri alda! Þreyttur Omini bus eða strætó. Engar upplýsingar um smíðaár eða neitt viðkomandi vagninum. Hann er staðsettur á Spáni. Sjaldan maður sér Omini bus með húddi/skerm/blæju yfir Kúsikinum. Það er mikil vinna að ná þessum til baka í gott ástand! Lesa áfram ...Lesa áfram ...
uncategorized Prest Pæton körfuvagn #2Prest Pæton körfuvagn #2 FrikkiFrikki 0 Comments Heillegur Bast körfu Pæton fyrir prest. Ekki upplýsingar um smíða ár. Vagninn er með bremsur, járn hjólbarða, kúskurinn situr aftan við prestinn, langsum fjaðrir, hlíf framan úr Bast -tágum, vandaðar bremsur, uppstig fremst og aftan fyrir kúsk. (Kúskur ekki til í íslenskri orðabók!? Á milli píláranna sést uppstigið fyrir prestinn en uppstigin er vönduð og öflug. þverfjöður framan sem algengt í þessum vögnum. Eftirtektarvert hve fáir pílárar eru í framhjólinu eða 10 stykki vegna þess að í þá daga var reynt að hafa vagnanna eins létta og efnið leyfði sem smiðirnir höfðu að vinna úr. Pílárafjöldinn þarf alltaf að vera slétt tala svo tveir pílárar gangi í hvern félaga (ysti boginn), félagarnir eru stundum í hálfboga eins og mér sýnist vera upp á teningnum hér. Vandað járnvirkið allt og líka bremsurnar ásamt bremsustönginni. Hér er sameinað uppistaðan fyrir bakið og kúsksvipu haldarinn. Væri augnayndi þessi vagn ef hann væri uppgerður og vel til hafður. Hugsanlega gæti þetta verið framleiðslunúmer? Hér sjáum við undir setuna! Sköftin eru nett en samt sterkir. Lesa áfram ...Lesa áfram ...
uncategorized Prest Pæton körfuvagn #1Prest Pæton körfuvagn #1 FrikkiFrikki 0 Comments Frá Flæmingjalandi, Prest Pæton. Gegnheill yfirbygging, allur málmur er heill og með sköftum/dráttar kjálkum. Hjólin eru slæm. Var keyptur til að gera upp en hefur breyst. $650 staðsett nálægt Fredericksburg, Virginia. Tímans tönn hefur beitt sér! Skilti frá framleiðanda. Erfitt að lesa úr þessu en möguleiki er að hann hafi verið smíðaður 1895? Lesa áfram ...Lesa áfram ...