Tag: morð

Var þetta fyrsta árásin á brynvarið ökutæki í fylgdarliði?Var þetta fyrsta árásin á brynvarið ökutæki í fylgdarliði?

0 Comments

Örugglega með fyrstu árásum á farartæki!

Keisarinn ferðaðist bæði til og frá Manège í lokuðum tveggja sæta vagni dregnum af tveimur hestum.

Alexander II var í fylgd fimm riddandi kossaka og Frank (Franciszek) Joseph Jackowski, pólsks aðalsmanns, með sjötta kossakann sitjandi vinstra megin við ökumanninn/kúskinn.

Vagni keisarans var fylgt eftir af þremur sleðum sem fluttu meðal annars lögreglustjórann, herforingja Dvorzhitzky og tvo yfirmenn úr herlögreglunni.

Seinnipartinn 13. mars, 1881. Eftir að hafa horft á æfingar tveggja varðliðssveita í Manège, beygði vagn keisarans inn á Bolshaya Italyanskaya-götuna og forðaðist þannig sprengjuna í Malaya Sadovaya.

Perovskaya sendi morðingjana að síkinu með því að taka upp vasaklút og snýta sér sem fyrir fram ákveðið merki.

Á leiðinni til baka ákvað keisarinn einnig að heimsækja frænku sína, stórhertogaynjuna Katrínu, í stuttan tíma.

Þetta gaf sprengjumönnunum nægan tíma til að ná síkinu fótgangandi; að undanskildum Mikhailov tóku þeir allir nýjar stöður.

Vettvangur morðsins strax eftir sprengingu fyrstu sprengjunnar.

Sundurtættur vagn Alexanders II.

Klukkan 14:15 hafði vagninn farið um 150 metra niður að bryggjunni þegar hann mætti Rysakov sem bar sprengju vafða í vasaklút.

Þegar Perovskaya gaf merkið kastaði Rysakov sprengjunni undir vagn keisarans.

Kossakinn sem reið á eftir (Alexander Maleichev) særðist banvænt og lést síðar þann dag.

Meðal þeirra sem særðust var fjórtán ára gamall sveitadrengur (Nikolai Zakharov) sem starfaði sem sendill í kjötbúð.

Sprengingin hafði þó aðeins skemmt skothelda vagninn.

Keisarinn kom út skelfur en ómeiddur.

Rysakov var handtekinn nánast samstundis.

Lögreglustjórinn Dvorzhitsky heyrði Rysakov kalla til einhvers annars í mannfjöldanum sem safnast hafði saman.

Ökumaðurinn/kúskurinn bað keisarann að stíga ekki út.

Dvorzhitzky bauðst til að aka keisaranum aftur til hallarinnar í sleða sínum.

Keisarinn samþykkti en ákvað fyrst að sjá sökudólginn og skoða skemmdirnar.

Hann lýsti yfir umhyggju sinni fyrir fórnarlömbunum.

Við áhyggjufullar fyrirspurnir fylgdarliðs síns svaraði Alexander:

„Guði sé lof, ég er ómeiddur“.

Einkennisbúningurinn sem Alexander II klæddist við morðið.

Hann var tilbúinn að aka í burtu þegar annar sprengjumaður, Hryniewiecki, sem hafði komist nálægt keisaranum, hreyfði sig skyndilega og kastaði sprengju að fótum hans.

Önnur sprenging reif loftið og keisarinn og morðingi hans féllu til jarðar, báðir særðir til ólífis.

Þar sem fólk hafði þyrpst að keisaranum olli sprengja Hryniewieckis fleiri meiðslum en sú fyrri (samkvæmt Dvorzhitsky, sem sjálfur særðist, voru um 20 manns með misalvarleg sár, af misalvarlegum toga.

Alexander hallaði sér á hægri handlegg sinn.

Fótleggir hans voru sundurtættir fyrir neðan hné og blæddi mikið úr þeim, kviðurinn var rifinn opinn og andlitið afmyndað.

Hryniewiecki sjálfur, einnig alvarlega særður af sprengingunni, lá við hlið keisarans og sendilsins úr kjötbúðinni.

Ivan Yemelyanov, þriðji sprengjumaðurinn í mannfjöldanum, stóð tilbúinn og hélt á skjalatösku sem innihélt sprengju sem átti að nota ef hinir tveir sprengjumennirnir brygðust.

Hins vegar flýtti hann sér ásamt öðrum nærstöddum til að svara varla heyranlegu kalli Alexanders II um hjálp; hann gat varla hvíslað:

„Farið með mig í höllina… þar mun ég deyja.“

Alexander var fluttur með sleða í vinnustofu sína í Vetrarhöllinni, þar sem næstum sama dag tuttugu árum áður hafði hann undirritað frelsunarúrskurðinn sem frelsaði leiguliðana.

Meðlimir Romanov-fjölskyldunnar komu hlaupandi á vettvang.

Deyjandi keisarinn fékk altarissakramentið og síðustu smurninguna.

Þegar læknirinn sem annaðist hann, Sergey Botkin, var spurður hversu lengi það myndi taka, svaraði hann:

„Allt að fimmtán mínútur“.

Klukkan 15:30 þann dag var persónulegi fáni Alexanders II dreginn í hálfa stöng í síðasta sinn.


Heimildir: https://www.britannica.com/ : https://en.wikipedia.org/ : https://isdacenter.org/

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlesturf: malfridur.is (Málstaður)

Fundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinuFundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinu

0 Comments

Til er saga um orustu af Muye árið 1046 f.Kr., á milli 50.000 hermanna fornu kínversku Zhou-ættarinnar og 700.000 frá Shang-ættinni.

Sagan segir að Shang-hermennirnir hafi verið svo óánægðir með leiðtoga sína að margir hlýddu og börðust en aðrir yfirgáfu Zhou, sem vann orrustuna og sannaði styrk þeirra í norðurhluta Kína.

Fornleifar frá Zhou-ættveldinu sem var langlífasta ætt Kína.

Vandaður vagn var losaður úr gröf sinni, skreyttur með dreka, koparbjöllum og jaðri, vagn af konunglegum gæðum.

Leifar af tveimur hestum með bronshjálma ásamt leirmunum og steináhöldum.

Hver veit nema hermaðurinn, sem var þar, hafi tekið þátt í orrustunni um Muye?

Hvort sem hann gerði það eða ekki, var hann greinilega sérstaklega heiðraður af fólki sínu eins og sést af auðlegð grafargripanna.

Mikilvægasta uppgötvunin í þessum uppgreftri var K1-vagninn og hestagryfjan.

Gryfjan er rétthyrnd skaftgryfja, 7,1 m löng frá austri til vesturs, 3 m á breidd frá norðri til suðurs og 2,7 m djúp, með veggjum sem eru næstum bein.

Í gryfjunni voru tveir vagnar og bein tveggja hesta hvers vagns.

Vagnarnir tveir snéru endum saman, með höfuð hestanna beint í austur.

Vagn númer eitt … er hágæða með fallegum skreytingum. Vagninn og hestarnir tveir eru í tiltölulega góðu ástandi.

Yfirbygging vagnsins er þakin rauðbrúnu lakki, með íhlutum eins og trébita undir vagninum og hliðarplankarnir skreyttir með rauðlakkaðri afmyndaðri drekahönnun.

Krosstré á dráttarskaftinu eru skreytt með klingjandi bronsbjöllum.

Bæði nöf öxulsins eru skreyttar með bronshettum.

Framan á vagninum og á hvorri hlið yfirbyggingarinnar eru næstum ferköntuð jaðarstykki.

Fyrir utan mikið af skreytingum á andlitum hestanna, ásamt mörgum leður- eða línhestakviðbúnaði skreyttum með bronsi, voru líka tveir bronshjálmar á höfði þeirra.

Fornleifafræðingar fundu mörg ummerki um daglegt líf í grafreitnum, þar á meðal leirmuni, steináhöld, matreiðslupott og öskuholur.

Þetta sýnir að á þessu grafarsvæði var samtímabúseta.

Að grafreiturinn og búsetusvæðið hafi annaðhvort verið á sama stað eða í nálægð hvort við annað er kannski afleiðing þess að íbúar hafa aðlagast hásléttunni í langan tíma.

Greinin hjá Archaeology News Network gaf ekki til kynna hvaða ár grafreiturinn var virkur nema til að segja að hann væri af Zhou-ættveldistímabilinu.

Eftir orrustuna af Muye framdi konungur Shang-fólksins sjálfsmorð með því að loka sig inni í höll og brenna hana umhverfis sig.

Leiðtogar Zhou-ættarinnar, sem stóð frá 1046 f.Kr. til 256 f.Kr., réttlættu landvinninga sína með því að segja að Shang hefði brotið gegn umboði himnaríkis eða brotið af sér með þeim guðum sem ráðandi voru.

Alfræðiorðabókin Ancient History á netinu segir að hvert síðari kínverska ættarveldi sem tæki við af gömlu myndi réttlæta nýjar reglur með sömu skýringum.

Sumir af mikilvægustu persónum Kína til forna lifðu undir síðari hluta Zhou-ættarinnar, sem var talið tímabil listrænnar og vitsmunalegrar uppljómunar.

Margar af hugmyndunum sem þróaðar voru af persónum eins og Laozi eða Lao-Tsu, Confucius, Mencius og Mozi, sem allir bjuggu á Austur-Zhou tímabilinu, myndu móta eðli kínversks samfélags til dagsins í dag.

Segir í alfræðiorðabókinni.

Málverk sem sýnir fæðingu fornkínverska heimspekingsins Laozi, sem sagði: „Sá sem þjónar höfðingja manna í sátt við Tao mun ekki leggja heimsveldið undir sig með vopnavaldi.

Slík hugsjón er vön að hafa hefnd í lestinni.“ (Málverk eftir Nyo/ Wikimedia Commons)


Heimild: https://waydaily.com/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is