Tag: hest

Vagnar í Vísundaveiði 1870-80Vagnar í Vísundaveiði 1870-80

0 Comments

Eins og flestir vita voru Vísundar nánast veiddir upp til agna meðan frumbyggjarnir veiddu sér aðeins til veiða!

Frásögn af Vísundaveiðiæðinu 1870!


Vísundaveiðimenn með yfirbyggða vagna. Í Grate Bent, Kansas. Tekið milli 1870 og 1880.

Slátrað fyrir skinnin.“ 1874. Frá Bandaríska þjóðarbókasafninu.

Frumbyggi Ameríku á hestbaki að veiða Vísunda með spjóti.“ Charles Schreyvogel, listamaður. Um 1901. Frá Bandaríska þjóðarbókasafninu.

Innfæddur Ameríkani á hestbaki að veiða Vísunda.“ Um 1897. Frá Bandaríska þjóðarbókasafninu.

Veiði á Vísundum í fjarlægu vestri á leið Kansas-Kyrrahafsjárnbrautarinnar.“ 1871. Frá Bandaríska þjóðarbókasafninu.

Veiði á Vísundum.“ Um 1873. Frá Bandaríska þjóðarbókasafninu.

Fjall eða fell af vísundahauskúpum!


Vísundar í girðingu í Garden City

Heimild: Legacy of the WestFacebook. Sögufélag Kansas.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is

Skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Cutter uppgerður eftir minni #6Cutter uppgerður eftir minni #6

0 Comments

Frásögn: Paul DeLongpre

Ég bjargaði hlutunum úr harðviðar-hestasleðanum mínum er geymslustaðurinn hans var seldur.

Meðfylgjandi er mynd af bílakerru með hlutum sem ég bjargaði.

Meiðunum virðist fylgja nóg af járnhlutum og fyrri viðum til að komast að því hvernig hann leit út.

Þegar kemur að yfirbyggingunni hef ég mun minna tiltækt til að nota fyrirmynd.

Ég held að ég sé með aðalharðviðinn réttan úr járnverkingu og harðviðarleifar sem eftir voru en ég get ekki fundið út hvernig fuglafígúran, sem er líka með lítið ryðgaðan járnbút sem hangir við, samlagast aðalgrindinni.

Ég er líka ekki viss um hvernig gólfið er skipulagt og smíðað.

Allar myndir sem ég finn eru ekki nógu góðar til að gefa mér hugmyndir ásamt því að ég er ekki viss um gerðina/heiti sleðans þar sem ég hef ekki séð hann í 40 ár.

Ég gaf samt út myndina af því sem mér finnst komast næst upprunanum.

Allar hugmyndir, eða betri myndir af smáatriðunum eða jafnvel uppflettibók, væri frábær hjálp!

Með fyrir fram þökk. Paul.

Ekki minnst á smíðaár eða tímabil.


Teikning úr bókinni

Horse Drawn Sleighs,

eftir Susan Green. Önnur útgáfa 2003: Teikning af Cutter sem kemst hvað næst á þessum myndunum.

Sést fuglahöfuðið (ornimentið), hvernig gengið er frá því, og hvar það er staðsett.




Heimild: Paul DeLongpre Facebook og teiknaðar myndir. Horsed Drawn Sleights, önnur útgáfa; Susan Green.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Elgir og Vísundar og fleiri ekki venjubundin dráttardýr #1Elgir og Vísundar og fleiri ekki venjubundin dráttardýr #1

0 Comments

Í Alaska og Kanada voru Elgir furðu vinsælir og næstum venjubundin.

Uppfært 27. mars 2026.

Elgir náðu furðu langt í vinsældum en hestar hafa verið venjubundnir til að draga vagna ásamt öðru í gegnum aldirnar.

Aðferðafræði og sálfræði þess að beita uxum fyrir vagn

Venjubundin dýr á eftir koma uxar, múldýr og asnar.

Allir voru þeir nokkuð venjubundin þegar draga átti farartæki.

Hvernig á að stjórna Uxum fyrir vagni

Hér eru nokkur minna þekkt dýr sem notuð voru til að draga farartæki í Ameríku og Evrópu á 19. öld. og snemma á 20. öld.

Í Alaska og Kanada voru elgir furðu vinsælir, sérstaklega þar sem erfiðara var að finna hesta eða komast út á þessum einangruðu og villtu stöðum.

Í óbyggðum Ameríku voru vísundar og elgur tamdir að vissu marki.

Svo áttum við sebrahesta vinsæla meðal yfirstéttarinnar í Evrópu og Bretlandi.

Frá 1890 til 1940 var augljóslega einbeitt viðleitni elítunnar til að temja sebrahesta frá Afríku.

Sebrahestar voru þjálfaðir til að draga farartæki og jafnvel til reiðar, allt þó ekki til mikillar velgengni.

Um 1940 höfðu flestir aðalsmenn gefist upp á að temja sebrahestinn og létu sér nægja að láta hann eftir villtan og óstýrilátan eins og náttúran ætlaðist til.

dráttardýr

Ég elska að halda sögunni lifandi!


Heimild: Northwest Carriage Museum á Facebook.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og Erlendur

skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is