Tag: gler

Fundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinuFundur 3.070 ára vagna og hesta frá Zhou-ættveldinu

0 Comments

Til er saga um orustu af Muye árið 1046 f.Kr., á milli 50.000 hermanna fornu kínversku Zhou-ættarinnar og 700.000 frá Shang-ættinni.

Sagan segir að Shang-hermennirnir hafi verið svo óánægðir með leiðtoga sína að margir hlýddu og börðust en aðrir yfirgáfu Zhou, sem vann orrustuna og sannaði styrk þeirra í norðurhluta Kína.

Fornleifar frá Zhou-ættveldinu sem var langlífasta ætt Kína.

Vandaður vagn var losaður úr gröf sinni, skreyttur með dreka, koparbjöllum og jaðri, vagn af konunglegum gæðum.

Leifar af tveimur hestum með bronshjálma ásamt leirmunum og steináhöldum.

Hver veit nema hermaðurinn, sem var þar, hafi tekið þátt í orrustunni um Muye?

Hvort sem hann gerði það eða ekki, var hann greinilega sérstaklega heiðraður af fólki sínu eins og sést af auðlegð grafargripanna.

Mikilvægasta uppgötvunin í þessum uppgreftri var K1-vagninn og hestagryfjan.

Gryfjan er rétthyrnd skaftgryfja, 7,1 m löng frá austri til vesturs, 3 m á breidd frá norðri til suðurs og 2,7 m djúp, með veggjum sem eru næstum bein.

Í gryfjunni voru tveir vagnar og bein tveggja hesta hvers vagns.

Vagnarnir tveir snéru endum saman, með höfuð hestanna beint í austur.

Vagn númer eitt … er hágæða með fallegum skreytingum. Vagninn og hestarnir tveir eru í tiltölulega góðu ástandi.

Yfirbygging vagnsins er þakin rauðbrúnu lakki, með íhlutum eins og trébita undir vagninum og hliðarplankarnir skreyttir með rauðlakkaðri afmyndaðri drekahönnun.

Krosstré á dráttarskaftinu eru skreytt með klingjandi bronsbjöllum.

Bæði nöf öxulsins eru skreyttar með bronshettum.

Framan á vagninum og á hvorri hlið yfirbyggingarinnar eru næstum ferköntuð jaðarstykki.

Fyrir utan mikið af skreytingum á andlitum hestanna, ásamt mörgum leður- eða línhestakviðbúnaði skreyttum með bronsi, voru líka tveir bronshjálmar á höfði þeirra.

Fornleifafræðingar fundu mörg ummerki um daglegt líf í grafreitnum, þar á meðal leirmuni, steináhöld, matreiðslupott og öskuholur.

Þetta sýnir að á þessu grafarsvæði var samtímabúseta.

Að grafreiturinn og búsetusvæðið hafi annaðhvort verið á sama stað eða í nálægð hvort við annað er kannski afleiðing þess að íbúar hafa aðlagast hásléttunni í langan tíma.

Greinin hjá Archaeology News Network gaf ekki til kynna hvaða ár grafreiturinn var virkur nema til að segja að hann væri af Zhou-ættveldistímabilinu.

Eftir orrustuna af Muye framdi konungur Shang-fólksins sjálfsmorð með því að loka sig inni í höll og brenna hana umhverfis sig.

Leiðtogar Zhou-ættarinnar, sem stóð frá 1046 f.Kr. til 256 f.Kr., réttlættu landvinninga sína með því að segja að Shang hefði brotið gegn umboði himnaríkis eða brotið af sér með þeim guðum sem ráðandi voru.

Alfræðiorðabókin Ancient History á netinu segir að hvert síðari kínverska ættarveldi sem tæki við af gömlu myndi réttlæta nýjar reglur með sömu skýringum.

Sumir af mikilvægustu persónum Kína til forna lifðu undir síðari hluta Zhou-ættarinnar, sem var talið tímabil listrænnar og vitsmunalegrar uppljómunar.

Margar af hugmyndunum sem þróaðar voru af persónum eins og Laozi eða Lao-Tsu, Confucius, Mencius og Mozi, sem allir bjuggu á Austur-Zhou tímabilinu, myndu móta eðli kínversks samfélags til dagsins í dag.

Segir í alfræðiorðabókinni.

Málverk sem sýnir fæðingu fornkínverska heimspekingsins Laozi, sem sagði: „Sá sem þjónar höfðingja manna í sátt við Tao mun ekki leggja heimsveldið undir sig með vopnavaldi.

Slík hugsjón er vön að hafa hefnd í lestinni.“ (Málverk eftir Nyo/ Wikimedia Commons)


Heimild: https://waydaily.com/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Franskur Coupé #1Franskur Coupé #1

0 Comments

Til sölu í Belgíu í apríl 2023. Á aðeins kr: 1.850.000. Tilheyrði ríkustu fjölskyldu heims þá!


Coupé er staðsettur nálægt Londerzeel í Belgíu. Hann er smíðaður af ríkustu fjölskyldu heims, Rothschild & Ellis.

Þeir framleiddu Renault í byrjun bílaaldar og fram á 20. öldina.

Þeir smíðuðu einnig utan um Mercedes, ásamt fleiri tegundum þann tíma. Æviágrip Rothschild


Þessi Coupé virðist vera upprunalegur ef dæma má af handfangi hurðarinnar og uppstiginu!

Þessi mynd upplýsir okkur um franska bogann í framhornpóstinum sem var sérfrönsk aðferð í vagnasmíði.

Takið eftir að lok er fest neðan í hurðina sem lokar yfir uppstigið og hlífir uppstiginu fyrir drullu og aur á ferðinni.

Svo eru „rimlar“ fyrir hurðargluggunum til að auka næði inni í vagninum og stjórna ljósi og loftun.


Enginn vafi er á því að hann var smíðaður í París. Smíðaár er ekki vitað. Sennilega í kringum 1900.


Vagninn er ekki uppgerður heldur er honum vel viðhaldið. Bastkarfan aftan á kemur vel út og hefur hátt notagildi. Á þessari mynd sjáum við enn betur hvernig hlífin yfir uppstiginu er frágengin.


Næs baksvipur en glugginn er í stærra lagi miðað við aðra Copué.


Upprunalegir og fallegir lampar. Græni liturinn á vel við þennan virðulega vagn.


Alvöru aðstaða fyrir Kúskinn.

Omini bus #2Omini bus #2

0 Comments

Smíðaður í Frakklandi hjá Dufour Frere & Fils a Perigueux


Omnibus er staðsettur í Danmörku en smíðaður hjá Dufour freres & Fils í Perigueux í Frakklandi. Smíðaár er ekki nefnt.


Myndarlegur og snyrtilegur strætó fyrri tíma.


Takið eftir afturljósinu vinstra megin og það er að sjálfsögðu með rauðu gleri. Svo eru afturfjaðrirnar sérstaklega fallegar og gefa vagninum sérstakan blæ.


Vagninn er ágætlega bólstraður og snyrtilegur að innan. Það er skemmtilegt „kýrauga“ í hægra framhorninu. Sennilega er svona gluggi í hægra framhorninu líka!


Nafn framleiðandans, skaparans á hjólkoppunum.


Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Vagn Tutankhamun’s #1Vagn Tutankhamun’s #1

0 Comments

Eitt af afrekum 20. aldarinnar í fornleifauppgreftri!

Vagnar voru fyrstu afkastameiri „vélar“ en mannsorkan.

Í gröf Tutankhamuns voru 2 stórir viðhafnarvagnar, annar minni, verulega skreyttur og þrír aðrir léttari gerðir til daglegra nota.


Mynd fengin að láni frá: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)
Fellanlegt sóltjald á vagninum #2 Þýdd grein og mynd!

Vagn Tutankhamons Faraó hafði fellanlegan tjald himinn #2

Hvernig koma vagnarnir fyrir sjónir?

Í burðargrindinni voru tvö hjól en við þau var tengdur dráttarpóstur sem tveir hestar voru tengdir við.

Farartækin tóku allt fram í verkfræði sem Faróarnir tóku sér fyrir hendur í þeirri fræðigrein.

Endurgerð á fullbúnum vagni í Milwaukee Public Museum, 2022. Mynd fengin að láni á Wikapedia.

Vagninn var vel hannaður og glæsilegur að horfa á, gulllitaður og smíðaður úr tré.

Flestir gripirnir voru skreyttir gulli og á hálfeðalsteinum, leirflísum og lituðu gleri.

Hjólin voru hönnuð með nútímalegu móti, úr sveigjanlegu tré sem gat aðlagast ójöfnu yfirborði jarðvegs.

Úr hvaða efni voru vagnarnir?

Smíðin á vögnunum var sambland af handverki sem sjaldan var sameinað í eina iðngrein.

Vegna þess varð að vinna úr margvíslegum efnum eins og tré, bronsi eða eir, gulli, líni og leðri o.s.frv.

Málverk af orustu máluð 1327. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Margir hæfir handverksmenn hljóta að hafa tekið þátt í ýmsum stigum smíðinnar.

Vagnarnir á myndunum voru aðallega úr tré og gyllingu.

Í hvað voru vagnarnir notaðir?

Þessir þrír vagnar voru aðallega notaðir til að sýna Faróinn við opinberar athafnir.

Þótt einn vagninn sé ekki jafn glæsilegur og þeir sem hér hefur verið lýst má túlka að hann hafi verið notaður í almennum tilgangi, til dæmis til veiða og í útilegur.

Stríðsvagn Egypta. Mynd fengin að láni frá: The Chariot in Egyptian Warfare (touregypt.net)

Hvað þýðir þetta eða táknar?

Þetta þýðir að Forn-Egyptar kunnu til verkfræði.

Það táknar að þar sem verkfræði var stunduð til fleiri en einnar aldar var iðnaður háður efnisvali vegna þess að við smíði á vörum skipti ógallað efni mestu máli.

Geymslan á vagninum í gröfinni 1922. Mynd fengin að láni á Wikipedia.

Það má líka lesa úr þessu að stríðsvagnar voru tákn um virðingu, þar sem þeir táknuðu auð og voru notaðir meðal ríkra manna í valdastöðum.

Viðauki

Í Egyptalandi til forna var gullna hásætið tákn valds og sýndi þjóðfélagsstöðu.

Þetta undraverða húsgagn er það forgengilegasta af öllum þeim hásætum sem fundist hafa frá hinu forna samfélagi.

Það fannst í Annexe-héraði í grafhýsi Tutankhamans.

Hann var smíðaður af mikilli leikni og notað í efni eins og gull til að skapa þessa undraverðu list.

Mynd fengin að láni frá: The Golden Throne of Tutankhamun (globalintergold.info)

Heimild: Golden Chariot – TUTANKHAMUN’S WORLD (weebly.com)

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is