Tontine toppurinn #24Tontine toppurinn #24
G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860




Léttur og smekklegur vagn, mikið notaður í Vestur- og Norðurhluta USA í þéttbýlum, en er þó minna vinsæll en á árum áður.
Leðurhlíf fremst (Dash).
Reisanlegur og fellanlegur skermur.
Vagninn (buggy) er byggður á körfustönginni á milli öxlanna sem veitir stöðugleika.
Vagninn er með einföldum lokafrágangi en samt sem áður gerðarlegur.
Þessi vagn er á þverfjöðrum, ekki hliðarfjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna.
Vagninn er útbúinn með Serven nöfum.
Bremsur ekki sjáanlegar.
Það varð svo ofan á í vagnahönnun síðar.
Heimild: Tomasnet.com
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Þessi stíll er tekur mið vagnasmiðjunnar í Concord, N.H. þar sem nafnið tekur nafn af bænum.
Léttvagninn er vandaður, með herta öxla og enskar stál- fjaðrir.
Concord er hannaður fyrir erfiðar aðstæður og mikla notkun og misjafna og engin Létti vagn (buggy) ekur ljúfar eða er betra að sitja í sem gefur grunnánægju, það er að segja ef þessi gerð er vel smíðuð.
Vagninn fær mikil meðmæli og í notkun í öllum landshlutum (USA).
Vagninn er útbúinn Serven nöfum.
Bremsur eru ekki sjáanlegar.

Concord–vagninn er á 2 fjöðrum langsum undir yfirbyggingunni, ekki hliðarfjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna úti við hjól.
Þær voru svo ofan á í vagnahönnun síðar.
Vegna skemmda í 160 ára bæklingnum var þetta næsta kerra að kynna en vafalaust eru einhverjir demantar týndir inn í fortíðina og koma aldrei til með að sjást aftur, því miður.
Á milli fjaðranna langsum með yfirbyggingunni báðum megin liggja stangir sem eru partur af fjarðakerfi þessa létta vagns og eru með fjaðrir langsum undir yfirbyggingunni.

Hér er svo ljósmynd af að vísu stærri Concord en samt má greina fjaðrabúnaðinn sem segja má að sé sérstakur.
Vinsældartímabil þessarar vagngerðar var frá 1850 til 1880.
Heimild: Tomasnet.com
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)


Númer 6. Besti og vinsælasti létti vagninn (buggy)1.
Bráðabirgðasæti. Ný uppfinning.
Vagninn er rúmgóður, léttur og hannaður fyrir tvo eða fjóra farþega með tveimur sætum að framan og tveimur að aftan.
Lokafrágangur með fimm boga topp, sem er fellanlegur og með handfangi sem er fjarðartengt til að fella og reisa toppinn; járnuð samskeyti og flott skraut.
Þessu farartæki er skilað einföldu en vel frágengnu2.
Létti vagninn (the buggy) er byggður á „körfu“; stöng milli öxla sem gefur stöðugleika og tekur fyrir skrölt. Bremsur ekki sjáanlegar. 6 b Sama og númer 6 nema með aukasæti. Bremsur ekki sjáanlegar.


Stílhreinn og sérstaklega aðlagaður fyrir eldra fólk og kvenfólk sýnir vagninum áhuga.
Hangir lágt yfir jörðu.
Auðvelt að fara um borð og frá borði.
5. boga toppur með fjaðrarstýringu í handfangi, hátt og þægilegt gormabak, þægilegur, stílhreinn og fallegur.
Ekki verður litið fram hjá þessum létta vagni (buggy).
Vagninum er skilað í góðum frágangi, silfurslegnu skrauti (ornament) á hliðum og svo framvegis.
Hún lítur mjög ríkulega út í einfaldleika sínum í lokafrágangi.
Bremsur eru ekki sjáanlegar.
Vagninn er á þverfjöðrum ekki hliðarfjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna.
Þetta varð svo vinsælt í vagnahönnun síðar.
Heimild: Tomasnet.com
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Viðeigandi nafn fyrir þennan vagn (buggy) sem er vel viðurkennt og notað í hverju horni Suðursins.
Sambrjótanlegt og reisanlegt húdd með handfangi staðsett í vagninum.
Frábær þekking virkjuð af gamla skólanum.
Sarven nöf prýða vagninn.
Bremsur ekki sjáanlegar.
Vagninn er byggður á körfu, stöngin milli öxlanna.
Samsetning að fullu járnstyrktar ásamt armhvílu, spöngum og svo framvegis.
Kaupandi ræður hvort hann fær venjulega lokavinnu eða fína lokavinnu á vagninum.
Heimild: Tomasnet.com
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)





