Tag: faðir

Strætismynd frá Panama, NY á póstkortiStrætismynd frá Panama, NY á póstkorti

0 Comments

Nafnið var innblásið af klettamyndunum

Ódagsett mynd af póstkorti sem sýnir götumynd í Panama, NY.

Saga Panama-þorps

Þorpið Panama var opinberlega stofnað árið 1861.

Nafnið „Panama“ var fyrst notað opinberlega þegar bandaríska pósthúsið var stofnað árið 1826.

Nafnið var innblásið af klettamyndunum sem minntu snemmbúa á þær sem sáust á Panamaskaganum. Talið er að Moses Cushman Marsh, fyrsti póstmeistari þorpsins og rekstraraðili verslunarfélags á staðnum, kunni að hafa átt þátt í nafngiftinni vegna fyrri viðskipta sinna á Kúbu og hugsanlegra ferða yfir Panamaskagann.

Fyrstu landnemar

Einn af merkum fyrstu landnemum í Panama var George Hawkins.

Fæddur árið 1802 í Oneida-sýslu, New York, keypti George lóð 50 í þorpinu árið 1825.

Um 1827 giftist hann Rhode Powers, sem fædd var árið 1806.

Hjónin unnu saman að því að ryðja land sitt og byggja upp lífsviðurværi.

George Hawkins lést árið 1883 og Rhoda fylgdi á eftir árið 1900. Þau eru grafin í Panama Union-kirkjugarðinum og deila einnig legsteini.

Fjölskyldubakgrunnur

Faðir Rhodu Powers, Simeon Powers, gegndi mikilvægu hlutverki í trúarlífi Panama á fyrstu árunum með því að stofna baptistakirkju á svæðinu.

Ættir og bakgrunnur foreldra George Hawkins eru óþekkt, sem bætir dulúð við fjölskyldusögu hans.

Fyrstu ár sögu Panama benda til þeirra algengu áskorana og viðleitni sem 19. aldar landnemar stóðu frammi fyrir við að skapa samfélög og þróa innviði á nýjum svæðum.


Heimild: Historical Memories á Facebook

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Wiklina Wasągu frá Póllandi#1Wiklina Wasągu frá Póllandi#1

0 Comments

Aðeins smíðaður í einu héraði í Póllandi, hvergi annars staðar á jörðu!

Ljósmyndir: Maciej Musiał frá Dobroń héraði í Póllandi. Maciej er líka heimildarmaður minn fyrir miklu af heimildunum sem fram koma um þennan vagn!


Wiklina na Wasągu. Við höldum okkur við frumnafnið enda heppilegast. Maciej Musial og faðir hans smíðuðu þennan vagn saman en þeir reka hestvagnaleigu til skemmtiaksturs, brúðkaupaaksturs og alls þar á milli. Hérna sjáum við ótrúlega hreinan ásetning í að bjarga sér við lítil efni. Efnið er ekki meira en nauðsynlega þarf til að úr verði traustur vagn með nógan burð til daglegs brúks. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).


Sætin ofan úr stráum á járngrind, armhvílur úr járni, uppstig úr járni og bogakjálki til að styrkja burð vagnsins á afturhjólum. Yfirbyggingin er úr harðviðargrind að innanverðu með tágum. Hefðbundnar járngjarðir á hjólunum ásamt nafböndum. Bátalag á yfirbyggingunni er líka sérstakt vegna þess að það er aðeins táknrænt fyrir þetta svæði/hérað í Póllandi, Dobroń. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).


Smurfeiti fatan hangir á sínum stað aftur undir vagninum. Í árdaga hefur hún innihaldið jurta- eða dýrafitu til smurningar hjólanna og nýtist kannski enn? Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

550.000 ísl. kr. þarf að borga fyrir þennan grip. En svo vill til að ég veit að hann er seldur.


Harðviðargrind vagnsins sést vel á þessari mynd, með ívafi járnstyrkingar á afturhlið. Þessi lausn í formi harðviðarbogans sem nær út fyrir hjólin og niður í nafið er þekkt í Austur-Evrópu og er snilldarbragð til að auka burð vagna. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Bátalagið á yfirbyggingunni er sérstakt fyrir þetta svæði/hérað en hefur engan annan tilgang en að vera nokkurs konar einkenni svæðisins. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Líklega er einn aðalburðarbiti fram eftir miðju vagnsins sem tengist á báða öxlana sem og tveir bitar hvor sínu megin við miðjubitann en þeir eru stuttir og ná ekki á milli öxla. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Járngrind ber uppi sætin sem ofin er með stráum. Þetta sést vel í enda járngrindarinnar þar sem endarnir hvíla bognir yfir efsta burðarbita. Uppstigin sækja líka styrk sinn í þrjá punkta til að auka styrk þrepanna. Tveir burðarpunktar þrepanna sækja burð upp í efsta bita. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).


Líklega er þessi vagn mest notaður til fólksflutninga en gæti líka verið notaður til lítilla aðdrátta fyrir heimilið í formi vöru. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Fjórar manneskjur fá pláss í einu. Hér eru Maciej Musial, faðir hans, fremst í vagninum en kona Maciej Musial í aftara sætinu og móðir Maciej Musial. Skráð: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður). Skrifað 2021

Gamla Vestrið: Goðsagnir, mýtur og Oregon-slóðin #1Gamla Vestrið: Goðsagnir, mýtur og Oregon-slóðin #1

0 Comments

Sögur aðallega tengdar Oregon-slóðinni! #1

Hó! Fyrir Oregon og Kaliforníu

Mynd 1. James og Margaret Reed

14. apríl 1846, fyrir 176 árum, fluttist Reed og Donner-hópurinn frá Springfield, Illinois. Sagt var frá brottför þeirra í Sangomo Journal, Springfield, Illinois, 23. apríl 1846, undir þeirri fyrirsögn sem prýðir þessa frásögn. Hópurinn sem héðan fór í síðustu viku taldi 15 karla, 8 konur og 16 börn. Þau höfðu níu vagna til fararinnar. Þau voru í góðu ferðaskapi og við treystum á að þau næðu áfangastað.

Mynd 2. Hvernig á að hlaða vagn í 1840 stílnum

 

Mynd 3. Vagn

Í endurminningum sínum frá 1891 minntist Virginia Reed Donner-Reeds fjölskyldnanna. Aldrei get ég gleymt morgninum er við kvöddum ættingja og vini. Donnarnir voru þarna og höfðu komið kvöldið áður með fjölskyldur sínar til að geta lagt snemma af stað daginn eftir. Amma Keyes var borin út úr húsinu og sett í vagninum á fjaðrarúmi ásamt nógu af púðum. Synir hennar báðu hana um að fara ekki og klára ævi sína hjá þeim. Amma Keyes mátti ekki með nokkru móti skilja við einkadóttur sína. Við vorum umkringd ástvinum og þarna stóðu allir mínir litlu skólafélagar sem voru komnir til að kyssa mig, bless. Pabbi minn var með tár í augum og smá bros þegar hver vinurinn af fætur öðrum greip í hönd hans á síðustu kveðjustundinni. Loks sveifluðu kúskarnir svipum sínum og nautin færðu sig hægt af stað og langa ferðin var hafin …

Mynd 4. Vel slitnar Uxa skeifur

Margir vinir fylgdu okkur fyrstu nóttina og tjölduðu með okkur og frændur mínir ferðuðust en áfram í nokkra daga áður en þeir kvöddu svo endanlega. Kannski sýndist það vera skrýtið að ferðast með Uxateymi og við börnin vorum hrædd við Uxana. Ímynduðum við okkur að Uxarnir gætu farið með okkur hvert sem er svona án beislis.

Heimild Facebook Diana Pratt-Simar

Yfirlestur: malfridur.is
Þýðing og skrásetning Friðrik Kjartansson

Frábært heimildarmyndband af heildarferðinni og þar kemur meira fram en í greininni



RÚV

Í ljósi sögunnar. Vera Illugadóttir umsjón og les ásamt öðrum Fyrri þáttur!

Í ljósi sögunnar. Vera Illugadóttir umsjón og les ásamt öðrum Seinni þáttur!