Tag: facebook

Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2

0 Comments

Smíðaður af Morgan & Co. London 1865

Uppfært 14. mars 2026.

C – fjarðirnar líka með sporöskjulaga blaðfjarðir fara Viktoríu. 8 fjaðra vagn.

Fara vel enda er þessi vagn listasmíði og safn-fínn!

Bólstrunin er fagmannleg og bara falleg alla leið. Litli glugginn aftan á húddinu/blæjunni er líka á sínum stað.

Boglaga sætið efst á myndinni er til þæginda fyrir kúskinn/ökumanninn og tryggir rétta setstöðu til verndunar bakinu.

Stóra svarta járnstöngin með flatjárninu á endanum er bremsustöngin og kúskurinn/ökumaðurinn notar fótinn til að virkja bremsurnar en bara á afturhjólin.

Ekki var algilt að hestvagnar væru með bremsum og oftar en ekki þótti það óþarfi.

Bremsuskaftið er svona langt til að ná ákveðnu vogarafli á bremsukerfið í undirvagninum og þar með öflugri virkni.

Járnverkið í vagninum er vægast sagt fyrsta flokks! Fallegar C-fjaðrir.

Hér sést vel hvernig sporöskjulaga blaðfjaðrirnar koma saman undir C-fjöðrunum.

Taktu eftir leðurbeltinu sem er lagt alla leið yfir C-fjaðrirnar og niður í strekkjara sem notaður er til að slaka eða herða á til að fá mismunandi eiginleika, meiri stífleika eða meiri mýkt út í fjöðrunina, með sér lykli sem passar á endann á strekkjarnum.

Hefðbundinn staður fyrir stimplun framleiðanda.

Annar staður gæti verið á enda öxulsins eða plata á yfirbyggingu vagnsins.

Það síðastnefnda er sjaldgæfast.

Vel hannað uppstig, bretti og líka vel unnin alla leið.

Ljóskerin eru líka alvöru með strompi og bara falleg. Takið eftir litla þrepinu fyrir kúskinn.

Hér að framan sést samtengingin sæmilega milli C-fjaðranna og sporöskjulaga fjaðranna.

Fimmta hjólið (beygjuhjólið) er líka sjáanlegt þótt það sé ekki skýrt.

Litla hringlaga platan fyrir framan hjólið er þrep ásamt hjólnafinu til aukinna þæginda fyrir kúskinn að stíga upp í ökumannssætið.

Lítil panna er á gólfinu til að hirða hugsanlega fitu/olíu sem fellur af fimmta hjólinu en það þarf alltaf að vera smurt en þó hóflega.



Heimild: Bob Vanden Berghe Facebook

Skráning og þýðing: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Fílar sem dráttardýr konungleg í Evrópu og Indland #1Fílar sem dráttardýr konungleg í Evrópu og Indland #1

0 Comments
Konungleg skjalasöfnin
27. mars 2021 ·
Ljósmynd af fílavagni sem tilheyrði hans hátign maharadjanum Saheb af Alwar með mörgum Evrópubúum í vagninum og á fílunum.

Þetta var tveggja hæða skrúðgönguvagn sem hannaður var til að flytja 50 manns og var dreginn af fjórum fílum.

© Royal Collection Trust.
— í/á Alwar, Rajasthan, Indlandi.

Skrifað við færsluna sem var á Facebook. Hópur: British Carriage Drivers. Höfundur: Alan Downing.

Ekkert ár tilgreint.

Ég myndi giska á að þetta hafi verið sett inn oft áður.

Ekki hika við að samþykkja ekki-Lizzie sirkusfíllinn hjálpaði stríðsátakinu með því að skipta um hesta á Sheffield’s T.W. Wards Albion Works



Vagninn sem fíllinn dregur er að fullu hannaður og smíðaður í Bretlandi og er kallaður

Waggon

með tveimur g-um. Hér fyrir neðan er teikning úr bókinni

The Farm Waggons Of England and Wales

sem fjallar eingöngu um þessa gerð vagna sem eru innfæddir enskir vagnar að uppruna.


Bókin ,,The Waggons of England and Wales“.

Skrásetti: Uppfært 1. april 2026. Friðrik Kjartansson

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is

Yfirlestur: malfridur.is

Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!

0 Comments

Tvær mikilvægar teikningar um Dauðadals/Borax vagnana!

Milli 1883 og 1889 skiptu tuttugu múldýr spennt fyrir vagna sköpum við að flytja borax frá Death Valley til Mojave, Kaliforníu.

Þessi flutningsaðferð var skipulögð með múldýrum. Múldýrin skiluðu af sér 264 kílómetra eða 165 mílur til að komast að þar sem járnbrautarteinarnir enduðu.

Staðreyndir um vagnana


Hlutverk vagnanna var að flytja 10 „stutt“ tonn af borax í ferð. USA þyngdareining. Jafngildir 20,000 lb avoirdupois eða 9,071,85 kg sem stutt toon (short ton).

Vagnarnir voru með afturhjólum sem stóðu 2.1336 metra (sjö fet) á hæð, með 2,54 sentimetra eða 1 tommu þykkum járngjörðum á hjólum, smíðaðir upp úr gegnheilli eik.

Rýmið um borð var 4.8768 metrar (16 fet) á lengd og 1.8288 metrar (6 fet) á dýpt og hver tómur vagn vó 3.538 kíló (3.53802 tonn).

Vagnlestin, sem spannaði yfir 54.864 metra (180 fet) með múldýr í eftirdragi til vara, samanstóð af þremur vögnum sem urðu að vera til staðar svo hægt væri að fara af stað.

Fremsti vagninn, „Trailer“ og seinast „Back Action“, og allra síðast var vatnsflutningatankurinn.


Teymisstjórinn var ábyrgðarmaður á stjórn teymisins, notaði langan taum sem kallaður var „Skíthælslína“-1 og langa svartormasvipu.

Hann var venjulega að stjórn við vinstra hjólið og gat teymisstjórinn einnig stjórnað bremsunni frá vagnsætinu niður bratta brekku.

„Skiptirinn“ sem venjulega sat í vagninum stjórnaði bremsunni á mishæðóttu landi.

„Skiptirinn“ var líka með fötu af litlum steinum til að grýta múlhestana til hlýðni. Báðir deildu mennirnir með sér ábyrgð, þar á meðal að undirbúa liðið, sinna þörfum múldýranna og sinna dýralæknis- eða viðgerðarmálum.

Hádegisstopp leyfði að fóðra og vökva múlhestana þótt þeir væru enn beislaðir, og á kvöldin voru múlarnir settir í búr með fóðurkössum.

Ferðalag hvers dags var yfirleitt 10,6 kílómetrar eða nálægt 17 mílum, sem olli því að ferðin aðra leiðina tók um það bil tíu daga. Fyrirtækið sem rak þessa „útgerð“ útvegaði skála á næturstoppum fyrir ökumenn og múldýrin.


Söguleg frásögn Remi Nadeau, „Fraktteymi Nadeau í Mojave“, leggur áherslu á yfirburði múlhestanna til notkunar í eyðimörkinni og undirstrikar mikilvæga hlutverk þeirra í að flytja borax með góðum árangri.

Með því að skilja flutninga, forskriftir og rekstrarstjórnun tuttugu múldýra sem var beitt fyrir vagnana fáum við innsýn í þá ótrúlegu viðleitni sem auðveldaði flutning á borax seint á 19. öld.

Norður-Bandaríkja þyngdareining sem jafngildir 2.000 lb avoirdupois (907,19 kg). nafnorð: stutt tonn


Smelltu á Google Ngram Viewer til að sjá nákvæmari tímalínu og stærri!

Google Ngram Viewer

Heimild: History Shortcut á Facebook

Skráði og þýddi: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Sjúkravagn #1Sjúkravagn #1

0 Comments

,,Royal Alert Edward Wigan.” Stendur á skjaldar -skiltinu efst á yfirbyggingunni. Svo það mætti komast að þeirri niðurstöðu að vagninn sé á vegum kóngsins af Englandi.

Vagninn virðist vandaður og snyrtilegur í frágangi.

Lítið meira er hægt að segja því ekki fylgja meiri upplýsingar með aðrar en að myndin er tekin 1889.

Yfirlestur: yfirlestur.is

Mynd fengin að láni frá Lester Dagge á Facebook

Texti: Friðrik Kjartansson

Hestasleði #2Hestasleði #2

0 Comments

Brewster & Co / Brewster & Baldvin!

Sleði frá Brewster & Co í New York smíðaður um og í kringum 1890.

Liturinn heitir Brewster-grænn með Maroon-rönd.

Bólstrunin dökkgræn. Hlífin framan við skrautið og dráttarsköftin eru háð einkaleyfi.

Sett af dráttarsköftum með upprunalegum bjöllunum festir við dráttarsköftin fylgja með.





Heimild: Antique carriages sales Facebook.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Dauðadals Borax vagna myndasafn!Dauðadals Borax vagna myndasafn!

0 Comments

Áhugaverð myndbönd um vagnana og notkun þeirra eru neðst í póstinum!


Tuttugu múldýr með Borax-vagna og einn vagn með vatni einhvers staðar í Dauðadalnum í Suður-Kaliforníu sirka um 1890. Heimild: Western Mining History Facebook.


Múldýrateymið. Þegar þessar myndir voru teknar 1890 var komið að lokum flutninga Borax. Á næsta ári kemur járnbrautarspor í Borax-námurnar sem ýtir múldýrunum úr starfi, flestum þeirra var sleppt út í náttúruna.


Múldýrin 18 og tvö hross voru fest í 80 feta keðju sem lá alla röðina sem dýrin voru spennt í. Þótt kúskurinn, „MuleSkinner“, hafi svipu með handfangi um sex fet og 22 feta svipu var hans aðalhlutverk að gefa fyrirmæli við að hagræða þessari keðju sem var kölluð bjánalína. Kúskar teymisins sáu um að beisla múlasnana á hverjum morgni. Tveir hestar fóru fyrir hópnum. Þótt hestarnir væru stærri en múlasnarnir og hefðu meiri styrk til að koma vögnunum á hreyfingu hentuðu þeir ekki eins vel inni í eyðimörkinni og múlasnarnir. Mule Skinner hefur unnið sér inn 100 til 120 dali á mánuði, mjög há laun fyrir vinnu sína.


18 múldýr, tveir hestar og 20 manna lið sem þurfti til að knýja Bótox-vagnana. 18 múldýr og tveir hestar sem voru spenntir fyrir stóra vagna sem fluttu Bótox úr Dauðadal í Kaliforníu frá 1883 til 1889. Teymin fóru frá námum yfir Mojave-eyðimörkina að næsta járnbrautarspori sem var í 165 mílna fjarlægð frá Mojave CA.









Myndband um hvernig vagnarnir voru notaðir og hvernig Múldýrunum var stýrt!



Hefð er komin á að aka Borax-vögnunum ásamt fleirum síðan 1967

Dauðadals vagnlestin síðan 1967

Dave vagnsmiður frá Montana að skila og prufuaka „nýju“ vögnunum!

Borax vagnarnir endurbyggðir af Dave í Montana!

Horfið á þjálfaðan vagnasmið til 42 ára vinna krefjandi verk!

Hröð yfirferð á smíði Borax-vagnanna frá Dave í Montana!

Þýðing og skráning: Friðrik Kjartansson

Heimild: OLD WEST LEGENDS, Outlaws, Gunfighters, Lawmen Facebook 3 myndir taldar ofan frá.

Yfirlestur: malfridur.is

Póstvagnatengd málverk!Póstvagnatengd málverk!

0 Comments

Hér er hvert meistaraverkið á fætur öðru!


Next Stop Cheyenne
Eftir Gary Kapp (bandarískur, f. 1942)
Olía á striga
30 x 48 tommur (76,2 x 121,9 cm)
Áritað neðst til vinstri: Gary Kapp

Málari óþekktur og nafnið á málverkinu.

The Cowboys. Eftir Linhsiang

Mark Twain in Nevada. Eftir Andy Thomas

3 Shotgun Shipment. Eftir Sheila Cottrell.

Út úr mystrinu. Eftir Frank McCarthy

Dash For the Way Station málari: Jack Sorenson

Castles In The Sand eftir Dieter Carlton

„Behind Schedule“ eftir Jack Sorenson. Fengin að láni frá Western pulp Art Facebook

Nafnlaust málverk. Höfundar ekki getið. Fengið að láni frá Western pulp Art Facebook

Oleg Stavrowsky,
(1927–2020),-byssubardagi, olíumálverk á striga,-34-x-54_2
Fengin að láni hjá Lane DeWitt Facebook

Jerry Hall
Skipt um hjól. 24×36 olía á striga.
Fengin að láni frá Jerry Hall Facebook.

Póstvagn rændur #1

Póstvagn rændur. Málari óþekktur.
fengin að láni á Westren Pulp Art Facebook

Skráð: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)