Tag: enn

J. O’Connor og hesturinn hans Darkwing, akandi Hansom vagninumJ. O’Connor og hesturinn hans Darkwing, akandi Hansom vagninum

0 Comments
Mr J. O’Connor akandi Hansom leiguvagninum sínum og hesturinn hans Darkwing.

Þetta er herra J. O’Connor og hesturinn hans Darkwing, akandi Hansom vagninum sínum, ljósmynduð einhvers staðar í borginni árið 1937.

Ljósmyndin er merkileg af tveimur ástæðum …

Herra O’Connor var með síðasta rekstrarleyfið fyrir Hansom-vagn í Sydney og því lauk næstum 90 ára sögu þegar hann fór á eftirlaun.

Vínrauði vagninn er enn til.

Herra O’Connor gaf hann safninu og hann er í dag varðveittur í Powerhouse safninu. (Mynd hér að neðan).

STUTT SÖGULEGT YFIRLIT …

Enski uppfinningamaðurinn Joseph A. Hansom þróaði sína einstöku vagnahönnun í Birmingham árið 1833.

Hönnunin var frábrugðin fyrri almenningsvögnum að því leyti að farþegarnir sátu beint yfir öxlinum með ökumanninn fyrir aftan, sem jafnaði þyngdina.

Þetta gerði hestinum auðveldara fyrir að draga vagninn en var einnig þægilegra fyrir farþega.

Þar að auki gátu dömur í viktorískum klæðnaði farið inn og út með meiri glæsibrag.

Framdyrnar, sem ökumaðurinn opnaði og lokaði með fótstigi, hjálpuðu einnig til við að koma í veg fyrir fargjaldasvik.

Innan fárra ára og með nokkrum breytingum urðu þeir vinsælasta tegund léttra almenningssamgangna í hinum vestræna heimi.

Hansom leiguvagninn hans Hr. O’Connor í Powerhouse-safninu í nútímanum.

Fyrsti Hansom-vagninn í Ástralíu er skráður í Melbourne á fimmta áratug 19. aldar.

Vinsældir þeirra náðu hámarki seint á 19. öld en fljótlega fengu þeir samkeppni frá sporvögnum.

Um 6–10 vagnar hafa varðveist í Ástralíu, þar á meðal þessi, þökk sé hugulsemi herra O’Connor.


(Myndheimild: State Library of NSW/Powerhouse Museum)

Heimild: David Panther’s HISTORIC PICTURES and their stories. Pat Hughes. Historic Harness Photos, Facebook

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Uppfært 1. apil 2026 Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Berliner frá París 1763 #10Berliner frá París 1763 #10

0 Comments

Hversdagsútréttingavagn Katrínar miklu!

Þessi fjögurra sæta vagn geislar af yndislegri fágun.

Portrett af Katrín II keisaraynju.
Rússland, 19. öld, óþekktur listamaður.
Olíumálverk á striga.

Lítil yfirbygging (hlutfallslega), sporöskjulaga í neðri hlutanum, hefur rólegar línur og fínleg hlutföll sem eru enn frekar undirstrikuð af mýkt hins gyllta útskurðar.

Breið rönd strangra rúmfræðilegra skreytinga umhverfis efri brún vagnyfirbyggingarinnar skapar léttleika í útlitinu.

Hinn skýri og rólegi útskurður inniheldur lauf, fléttur, hringlaga skraut, fornaldarlegar blómaskreytingar og smágerð líkneski.

Vagninn byggir á taktföstum endurtekningum sama mynsturs.

Samhverfa ræður ríkjum í skreytingunum.

Útskurðurinn er fíngerður og blúndulíkur, unninn af mikilli færni.

Málverkið með sínum fágaða litaskala er í samræmi við hinn vandaða útskurð.

Málverk með goðsögulegum þemum, eitt af aðalatriðum í listrænu yfirbragði vagnsins, þekur nánast alla yfirbygginguna.

Blómstrandi og blíð náttúra myndar yndislegan landslagsbakgrunn.

Málverkið sýnir þroskaða færni og fínlega hönd listamannsins, en nafn hans er enn óþekkt.

Einnig er mikið notað af bronsi í skreytingunum.

Meðfram þakbrúninni eru bronsskreytingar í formi knippis af stilkum og útskornir bronsborði/renningur.

Þótt þær séu undirskipaðar heildarsamsetningunni eru þær gerðar í lágmynd, fínlega unnar og skartgripalíkar.

Perlumóðursskraut, sem myndar hringlaga skrautmyndir, er notað í listrænum skreytingum fram- og bakhliða og hurða.

Berlíner frá París, meistari Breighteil (?), 1763-1765; flauel – Rússland, 18. öld, 19. öld. Askiviður, flauel, perlumóðir, brons; olíumálun, gyllingar á gifsi og tréskurður. Vagninn tilheyrði Katrínu keisaraynju II. Á 19. öld var hann til sýnis í Hesthúsasafni hirðarinnar í Sankti Pétursborg. Árið 1917 var hann fluttur í Vagnasafnið, þar sem það var til sýnis þar til safninu var lokað.

Gluggarnir og hurðirnar innihalda vel fægða glerplötu með vandlega slípuðum fleti.

Vandlega unnin litasamsetning innréttingarinnar og skjaldarmerkisins samanstendur af gullsaumi í upphleyptum saumi (á hliðunum inni í vagninum), frönskum köntum og skúfum ásamt rauðu flaueli.

Undirvagninn er skreyttur með upphleyptu skrauti og er, ásamt grindinni og hjólunum, þétt gylltur þannig að hægt er að sjá hinar fágætu útlínur hins glitrandi gullvagns langt að.

Skrá frá 19. öld í vopnabúrsskjalasafninu hefur hjálpað til við að staðfesta að upphaflega var allur undirvagninn og hjólin gyllt.

Málverk og útskorið skraut á hurð yfirbyggingarinnar
Berliner. frá París, 1763-1765.

Hjólin fengu sitt núverandi útlit (máluð rauð) þegar vagninn var gerður upp 1881.

Við smíði vagnsins notaði franski meistarinn Breighteil nýjustu tækniframfarir síns tíma, nánar tiltekið lagskiptar (fjaðrablöð) hálfmánalagaðar fjaðrir, stöng á hvorri hlið vagnsins sem dró verulega úr höggum og veltingi, og útitröppu.

Vagninn var pantaður fyrir Katrínu miklu frá Breighteil 1763 og fluttur til Rússlands af verslunarumboðsmanni 1765.

Vitað er að þetta var uppáhaldsferðavagn Katrínar og hún notaði hann til daglegra útréttinga.

Heimild: www.kreml.ru/en-Us/

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

5150 ára gamalt tréhjól finnst!5150 ára gamalt tréhjól finnst!

0 Comments

Ofarlega á lista heimsminjaskár!

Uppfært 28 febrúar 2026

2002 afhjúpuðu fornleifafræðingar elsta þekkta tréhjól í heimi í mýrlendi 20 kílómetra suður af Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, sem nær yfir 5.100 til 5.350 ár aftur í tímann.

Hjólið var uppgötvað af hópi slóvenskra fornleifafræðinga frá fornleifafræðistofnun Ljubljana, sem er hluti af rannsóknarmiðstöð slóvensku Vísinda- og listaakademíunnar, undir leiðsögn Anton Velušček.

Fornleifasvæðið

Leifar staurabyggða fundust í Ljubljansko barje (Ljubljana-mýrinni) strax árið 1875.

Frá 2011 hefur svæðið verið á heimsminjaskrá UNESCO sem dæmi um forsögulegar staurabyggðir í kringum Alpana, sérstakt form íbúða á svæðum með vötnum og mýrum.

Fornleifafræðingar á uppgraftarsvæðinu fundu yfir þúsund staura í árfarvegi Iška-árinnar, nálægt Ig.

Þeir endurgerðu íbúðir sem voru 3,5 sinnum 7 metrar að stærð og með um 2 til 3 metra millibili.

Greining á staurunum leiddi í ljós að íbúðirnar voru lagfærðar á hverju ári og að byggja þurfti nýtt hús á sama stað á aðeins 10 til 20 ára fresti.

Þetta forna hjól varðveittist í blautri jörðu, ekki endilega á mannvænasta staðnum í dag, Ljubljana-mýrarnar voru í raun nokkuð lífvænlegar fyrir fimm þúsund árum.

Upprunalega voru hjólið og eikaröxullinn hluti af uxavagni smíður úr aski og eik og snérist öxullinn með hjólunum.

Samsetningin var svo endingargóð að hún var staðall fyrir evrópska hjólasmiði fram í byrjun 20. aldar.

Ummál hjólsins er 72 sentímetrar.

Spurningunni um hver fann upp hjólið er enn ósvarað, þrátt fyrir vísbendingar sem benda til þess að það hafi komið fram sjálfstætt á mörgum svæðum.

Þó að sérstakir uppfinningamenn eða -maður séu ekki þekktir virðist þróun hjólsins ekki vera ein bylting heldur smám saman uppsöfnun þekkingar, færni og aðlögunar með tímanum.

Í mýrunum bjó nýaldarfólk sem var mjög hæft í að byggja hús á trésúlum í blautri jörðinni.

Fyrir 6000 árum þykir sannað að fólk hafi búið þar og kannski notaði það litla handvagna til að flytja uppskeruna milli staða ásamt því að koma upp verslunarleiðum.

Upprunalega voru hjólið og eikaröxullinn hluti af uxavagni smíðuð úr aski og eik og snérist öxullinn.

Samsetningin var svo endingargóð að hún var staðall fyrir evrópska hjólasmiði fram í byrjun 20. aldar.

Ummál hjólsins er 72 sentímetrar.

Spurningunni um hver fann upp hjólið er enn ósvarað, þrátt fyrir vísbendingar sem benda til þess að það hafi komið fram sjálfstætt á mörgum svæðum.

Þó að sérstakir uppfinningamenn eða -maður séu ekki þekktir virðist þróun hjólsins ekki vera ein bylting heldur smám saman uppsöfnun þekkingar, færni og aðlögunar með tímanum.

Á mýrunum bjó nýaldarfólk sem var mjög hæft í að byggja hús á trésúlum í blautri jörðinni.

Fyrir 6000 árum þykir sannað að fólk hafi búið þar og kannski notaði það litla handvagna til að flytja uppskeruna milli staða ásamt því að koma upp verslunarleiðum.

Mismunandi menningarheimar mótuðu hjólið til að mæta einstökum þörfum þeirra og skapa sérstaka hönnun og notkun sem þróaðist hver í sínu lagi, hver nýsköpun út af fyrir sig.

Næsta stóra nýjungin sem leit dagsins ljós var þegar Egyptar tóku heiðurinn og þróuðu pílárahjól fyrir um 4 þúsund árum.

Fyrsta bandaríska einkaleyfið á hjólinu kom árið 1791, fljótlega eftir að einkaleyfislögin voru samþykkt í Bandaríkjunum.

Hjólið og öxulinn er hægt er að sjá og upplifa í Borgarsafni Ljubljana ókeypis.


Heimild: History’s Mysteries á Facebook og Wikipedia ásamt https://3seaseurope.com/oldest-ljubljana-marshes-wheel-slovenia/

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is