Tag: brake

Omini brake bus sem ferðarannsóknarstofa í Buenos Aires #3Omini brake bus sem ferðarannsóknarstofa í Buenos Aires #3

0 Comments
omini_bus

Sirka 1879. hestinn og Omini-vagninn í Mar del Plata, Buenos Aires-héraði.

Christiano Junior Ljósmyndari

Áður höfum við talað um þennan ágæta ljósmyndara, sem við eigum ótal frásagnir um daglegt líf að þakka.

José Christiano de Freitas Henriques Junior, fæddist árið 1832. í Portúgal og var betur þekktur sem Christiano Junior.

Á þessari mynd sjáum við hann með heimilisrannsóknarstofu sína sem hann ferðaðist um landið á árunum 1878 til 1882.

AEPR-brúin yfir Riachuelo. Járnbrautarbrúin sem gerði lestum kleift að fara yfir Riachuelo, byggð og rekin af Buenos Aires and Ensenada Port Railway. Hún var staðsett í Barracas og vígð árið 1872, en eyðilagðist í flóði árið 1884 og var skipt út fyrir annað mannvirk

Vagninn er Break Omnibus1, einn af svokölluðum Capuchino.


Heimild: El caballo y el carruaje Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

  1. Break þýðir að framhásingin gat gengið undir (undirhlaup) svo vagninn gæti tekið krappari beygjur! ↩︎

Pæton Brake #2Pæton Brake #2

0 Comments

Í Portúgal, Golega

1901 Pæton Brake heitir brake vegna þess að framhjólin ganga undir bogann undir sætinu. Þessi Pæton tekur að minnsta kosti átta farþega með kúskinum. Þessi ætti því að vera lipur í þröngum aðstæðum. Þetta eintak hefur þörf fyrir heildaruppgerð; ástandið er orðið þannig að aðeins algjörs niðurrifs og uppbyggingar er þörf ásamt málaravinnu. Vagninn er samt vel heillegur og viðráðanlegur í uppgerð.


Öflugt og vel skapað járnverk.


Bremsubúnaðurinn er vel vandaður miðað við sambærilega vagna þessa tíma og gerðar. Uppstigin eru líka sterklega og vönduð til að endast.



Afsakið léleg myndgæði.





Þýðing og skrásetning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is