Tag: afrek

Uppruni hinna fornu hjóla rakinn á byltingakenndan háttUppruni hinna fornu hjóla rakinn á byltingakenndan hátt

0 Comments

Höfundur: Wu Mingren (‘Dhwty’) Greinin var uppfærð 2014. Höfundur er með BA-gráðu í fornaldarsögu og fornleifafræði.


Í heimi nútímans þróast tæknin á áður óþekktum hraða.

Nýjasta tækið í dag er forngripur morgundagsins.

Vegna þessarar hröðu tækniþróunar tökum við oft hlutunum sem sjálfsögðum.

Eitt af því er hjólið.

Líttu í kringum þig og þú munt sjá hjól alls staðar, hvort sem er í formi dekkja eða í hversdagslegum vélbúnaði.

Hjólið hefur meira að segja fengið táknræna merkingu, og er ef til vill frægast sem myndlíking fyrir endalausa hringrás lífsins.

Uppfinningin hjólið og ferðalagið til siðmenningar!

Áhrif á fyrstu siðmenningarsamfélögin

Það kann að virðast freistandi að hugsa að hjólið sé aðeins lítilfjörleg eða jafnvel frumstæð uppfinning í samanburði við sumar af þeim flottu græjum sem við höfum í dag.

Engu að síður var hjólið sem farartæki í raun fundið upp seint á tímalínu í sögu mannkyns.

Elsta þekkta hjólið sem fundist hefur við fornleifauppgröft er frá Mesópótamíu og er talið vera frá um 3500 f.Kr.

Þetta tímabil var þekkt sem bronsöld sem er tiltölulega seinn kafli í þróunarsögu mannlegrar siðmenningar.

Á þessum tíma voru menn þegar farnir að rækta nytjaplöntur, halda húsdýr og höfðu einhvers konar stigveldi í samfélaginu.

Mynd af vagni dregnum af villiasna á súmerska „orrustufána Úr“.

Ein af ástæðunum fyrir því að hjólið var ekki fundið upp fyrr en á þessum tímapunkti sögunnar er sú að það þurfti málmverkfæri til að tálga nákvæm göt og ása.

Þetta leiðir okkur að næstu ástæðu – hjólið var ekki bara sívalningur sem valt á röndinni.

Það var sívalningur sem var tengdur við stöðugan, kyrrstæðan pall.

Þessi hugmynd um hjól og ás var snilldarleg en það var áskorun að smíða slíkan búnað.

Endar ássins, sem og götin í miðju hjólanna, þurftu að vera næstum fullkomlega slétt og kringlótt.

Ef það tækist ekki yrði of mikill núningur á milli þessara hluta og hjólið myndi ekki snúast.

Þrátt fyrir að ásinn þyrfti að passa þétt í götin á hjólunum þurfti hann að hafa nægilegt pláss til að þau gætu snúist frjálslega.

Í grein okkar á Ancient Origins sýnum við hvernig ásinn á stríðsvagni frá járnöld er fágætt dæmi um forna tækni.

Þar sem samsetning hjóls og öxuls er flókin kemur það kannski ekki á óvart að hjólið hafi ekki upphaflega verið fundið upp til nota í samgöngum.

Þess í stað hefur því verið haldið fram að hjól hafi fyrst verið notuð af leirkerasmiðum.

Manstu eftir 5.500 ára gömlu hjóli frá Mesópótamíu?

Svo virðist sem það hafi verið renniskífa (notkun hjóla við leirkerasmíði gæti jafnvel náð lengra aftur, eða allt til nýsteinaldar.

Notkun hjóla í samgöngum virðist ekki hafa hafist fyrr en 300 árum síðar.

Talið er að elstu hjólin hafi verið notuð við leirkeragerð.

Þótt elsta hjól heims hafi fundist í Mesópótamíu fundust elstu myndirnar af hjólförnum vagna í Póllandi og víðar á evrasísku sléttunum.

Sumir hafa haldið því fram að vegna þeirrar gríðarlegu áskorunar sem uppfinning hjólsins var fyrir mannkynið hafi hún líklega aðeins átt sér stað einu sinni og breiðst út frá upprunastað sínum til annarra heimshluta.

Aðrir telja þó að hún hafi þróast sjálfstætt á ólíkum stöðum í heiminum á svipuðum tíma.

Sem dæmi má nefna að Ljubljana-mýrarhjólið er tréhjól sem fannst í höfuðborg Slóveníu árið 2002 og var aldursgreint til 3150 f.Kr.

Sem stendur er talið að fæðingarstaður hjólsins sé annaðhvort í Mesópótamíu eða á evrasísku sléttunum.

Þetta hjól með öxli frá Mýrunum við Ljubljana er elsta viðarhjól sem fundist hefur og er frá koparöld (3130 f.Kr.) (Petar Milošević/CC BY-SA 4.0).

Þrátt fyrir að Mesópótamía státi af elsta þekkta hjólinu eru málfræðileg rök notuð til að styðja þá fullyrðingu að hjólið eigi uppruna sinn á evrasísku sléttunum.

Þótt hjólið hafi valdið byltingu í ferðalögum og vöruflutningum í árdaga mannkyns var það ekki fullkomin uppfinning.

Til dæmis voru úlfaldar mun skilvirkari ferðamáti í eyðimerkurumhverfi í samanburði við hjólið.

Því hefur einnig verið haldið fram að á tímabilinu frá 2. til 6. aldar hafi úlfaldinn leyst hjólið af hólmi sem aðalferðamáti í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Hjólið var þó enn notað til heimilisnota, svo sem við áveitur, mölun og leirkeragerð.

Þetta sýnir fjölbreytta notkun hjólsins og mikilvægi þess fyrir mannkynið.

Sennilega ættum við að breyta viðhorfi okkar til hjólsins og líta ekki á það sem einfalda uppfinningu „frumstæðs manns“.

Þess í stað ættum við að líta á það sem eitt af stóru afrekum mannlegs samfélags.


Heimild: https://www.ancient-origins.net/

Höfundur greinar: Wu Mingren (‘Dhwty’)

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Vagnar hafsins í Portúgal!Vagnar hafsins í Portúgal!

0 Comments
vagnar hafsins

16. nóvember er þjóðhátíðardagurinn haldinn hátíðlegur!

Hátíðin á þessum degi miðar að því að varpa ljósi á mikilvægi hafsins fyrir sögu og sjálfsmynd Portúgals, sem er grundvallarþáttur í menningu okkar og arfleifð.

Sjórinn var eitt merkasta tákn portúgalskrar sögu.

Í samgöngusafninu sjáum við tvo vagna sem heiðra hafið og mikilvægi þess í sögu Portúgals beint: Vagn hafsins og vagn sendiherrans.

Þessir tveir vagnar í eigu þjóðar eru hluti af hópi fimm þemavagna og tíu fylgdarmanna sem voru hluti af göngu sendinefndar til Klemens páfa XI, sem D. João V konungur sendi til Rómar árið 1716.

Coche dos Oceanos sýnir á bakhlið sinni mynd af siglingunni fyrir Góðrarvonarhöfða, sem er eitt mesta afrek portúgalskra siglinga.

Vagn sendiherrans sýnir, á bakhliðinni, mynd af siglingagyðjunni og ímynd Adamastor, sem tákna hætturnar og áskoranirnar sem siglingar okkar standa frammi fyrir í leiðangrum sínum um heiminn.

Þessir tveir vagnar eru ekki aðeins listaverk, heldur einnig sönn virðing til sjófarararfsins sem mótaði Portúgal.

Komdu að heimsækja okkur og uppgötvaðu sjávararfleifð Portúgals!




Heimild: Museu Nacional dos Coches á Facebook

þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is