Day: 28 August 2022

Wiklina Wasągu frá Póllandi#1Wiklina Wasągu frá Póllandi#1

0 Comments

Aðeins smíðaður í einu héraði í Póllandi, hvergi annars staðar á jörðu!

Ljósmyndir: Maciej Musiał frá Dobroń héraði í Póllandi. Maciej er líka heimildarmaður minn fyrir miklu af heimildunum sem fram koma um þennan vagn!


Wiklina na Wasągu. Við höldum okkur við frumnafnið enda heppilegast.

Maciej Musial og faðir hans smíðuðu þennan vagn saman en þeir reka hestvagnaleigu til skemmtiaksturs, brúðkaupaaksturs og alls þar á milli.

Hérna sjáum við ótrúlega hreinan ásetning í að bjarga sér við lítil efni.

Efnið er ekki meira en nauðsynlega þarf til að úr verði traustur vagn með nógan burð til daglegs brúks.


Sætin ofan úr stráum á járngrind, armhvílur úr járni, uppstig úr járni og bogakjálki til að styrkja burð vagnsins á afturhjólum.

Yfirbyggingin er úr harðviðargrind að innanverðu með tágum.

Hefðbundnar járngjarðir á hjólunum ásamt nafböndum.

Bátalag á yfirbyggingunni er líka sérstakt vegna þess að það er aðeins táknrænt fyrir þetta svæði/hérað í Póllandi, Dobroń.


Smurfeiti fatan hangir á sínum stað aftur undir vagninum.

Í árdaga hefur hún innihaldið jurta- eða dýrafitu til smurningar hjólanna og nýtist kannski enn?

550.000 ísl. kr. þarf að borga fyrir þennan grip. En svo vill til að ég veit að hann er seldur.


Harðviðargrind vagnsins sést vel á þessari mynd, með ívafi járnstyrkingar á afturhlið.

Þessi lausn í formi harðviðarbogans sem nær út fyrir hjólin og niður í nafið er þekkt í Austur-Evrópu og er snilldarbragð til að auka burð vagna.

Bátalagið á yfirbyggingunni er sérstakt fyrir þetta svæði/hérað en hefur engan annan tilgang en að vera nokkurs konar einkenni svæðisins.

Líklega er einn aðalburðarbiti fram eftir miðju vagnsins sem tengist á báða öxlana sem og tveir bitar hvor sínu megin við miðjubitann en þeir eru stuttir og ná ekki á milli öxla.

Járngrind ber uppi sætin sem ofin er með stráum. Þetta sést vel í enda járngrindarinnar þar sem endarnir hvíla bognir yfir efsta burðarbita.

Uppstigin sækja líka styrk sinn í þrjá punkta til að auka styrk þrepanna. Tveir burðarpunktar þrepanna sækja burð upp í efsta bita.


Líklega er þessi vagn mest notaður til fólksflutninga en gæti líka verið notaður til lítilla aðdrátta fyrir heimilið í formi vöru.

Fjórar manneskjur fá pláss í einu. Hér eru Maciej Musial, faðir hans, fremst í vagninum en kona Maciej Musial í aftara sætinu og móðir Maciej Musial.

Heimild: Maciej Musial

Skráð: Friðrik Kjartansson.

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður).

Skrifað 2021

Viktoríu létta vagninn #41Viktoríu létta vagninn #41

0 Comments

G. & D. Cook & co sölubæklingur hestvagna 1860


Fallega útskorin, skreytt og sveigð yfirbygging. Viðarhlíf framan (dash). Fellanlegur toppur vandaður, full rafhúðað járnverk, járnstífur, gegnheilar lykkjur, járn, þrep og járn armhvíla. Ásýndin falleg með góða afspurn. Lítill beygjuradíus og gott að ganga um. Bremsur ekki sjáanlegar. Vagninn er á þver fjöðrum, ekki hliðar fjöðrum sem lágu samsíða langhlið vagnanna. Varð svo ofan á í hönnun síðar. Rafhúðun fundin upp 1805. Þrátt fyrir að rafhúðun hafi verið almenn um 1840 þá er hægt að rekja uppruna aftur til 1805. Heimild: Tomasnet.com Þýðing og skrásetning: Friðrik Kjartansson. Yfirlestur: Yfirlestur.is