Tag: viking

Eftirgerð víkingavagnsins í vinnslu úr OsebergskipinuEftirgerð víkingavagnsins í vinnslu úr Osebergskipinu

0 Comments

Talið er að upprunalega eintakið hafi verið notað við athafnir tengdar Freyju

Þetta er mögnuð eftirgerð í vinnslu af víkingaaldarvagninum sem fannst í Osebergskipinu.

Talið er að upprunalegi vagninn hafi verið notaður við athafnir tengdar Freyju.

Vísbendingar um það eru níu kettir sem eru skornir út á afturhluta vagnsins, hjólin sem leyfa vagninum aðeins að fara beint áfram (eftir helgislóð) og margir aðrir munir sem fundust í grafhaugnum.

Þú getur séð upprunalega vagninn í Víkingaskipasafninu í Osló og þessa eftirgerð í langhúsinu í Borre.




Tengt efni:

Oseberg víkingavagninn

Oseberg víkingasleðinn

Heimild: Grimfrost Facebook. Vefsíða: Oseberg víkingaarfurinn Og Vefur safns víkingaaldarinnar

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)