Tag: svartur

Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2

0 Comments

Smíðaður af Morgan & Co. London 1865

Uppfært 14. mars 2026.

C – fjarðirnar líka með sporöskjulaga blaðfjarðir fara Viktoríu. 8 fjaðra vagn.

Fara vel enda er þessi vagn listasmíði og safn-fínn!

Bólstrunin er fagmannleg og bara falleg alla leið. Litli glugginn aftan á húddinu/blæjunni er líka á sínum stað.

Boglaga sætið efst á myndinni er til þæginda fyrir kúskinn/ökumanninn og tryggir rétta setstöðu til verndunar bakinu.

Stóra svarta járnstöngin með flatjárninu á endanum er bremsustöngin og kúskurinn/ökumaðurinn notar fótinn til að virkja bremsurnar en bara á afturhjólin.

Ekki var algilt að hestvagnar væru með bremsum og oftar en ekki þótti það óþarfi.

Bremsuskaftið er svona langt til að ná ákveðnu vogarafli á bremsukerfið í undirvagninum og þar með öflugri virkni.

Járnverkið í vagninum er vægast sagt fyrsta flokks! Fallegar C-fjaðrir.

Hér sést vel hvernig sporöskjulaga blaðfjaðrirnar koma saman undir C-fjöðrunum.

Taktu eftir leðurbeltinu sem er lagt alla leið yfir C-fjaðrirnar og niður í strekkjara sem notaður er til að slaka eða herða á til að fá mismunandi eiginleika, meiri stífleika eða meiri mýkt út í fjöðrunina, með sér lykli sem passar á endann á strekkjarnum.

Hefðbundinn staður fyrir stimplun framleiðanda.

Annar staður gæti verið á enda öxulsins eða plata á yfirbyggingu vagnsins.

Það síðastnefnda er sjaldgæfast.

Vel hannað uppstig, bretti og líka vel unnin alla leið.

Ljóskerin eru líka alvöru með strompi og bara falleg. Takið eftir litla þrepinu fyrir kúskinn.

Hér að framan sést samtengingin sæmilega milli C-fjaðranna og sporöskjulaga fjaðranna.

Fimmta hjólið (beygjuhjólið) er líka sjáanlegt þótt það sé ekki skýrt.

Litla hringlaga platan fyrir framan hjólið er þrep ásamt hjólnafinu til aukinna þæginda fyrir kúskinn að stíga upp í ökumannssætið.

Lítil panna er á gólfinu til að hirða hugsanlega fitu/olíu sem fellur af fimmta hjólinu en það þarf alltaf að vera smurt en þó hóflega.



Heimild: Bob Vanden Berghe Facebook

Skráning og þýðing: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Brougham #6Brougham #6

0 Comments

Smíðaður einhvern tímann á 19. öld í Englandi og uppgerður vandlega 1978


Lítill Brougham tveggja manna smíðaður á Long Acre í London


Falleg og hefðbundin tígul eða -demantamunstur og virkilega hlýlegur( deep button). Gott að vera í með fóthitara á veturna. Hefur verið notaður í giftingum og kvikmyndum í nokkra áratugi.


Kostar aðeins kr: 542.000 ísl. Fyrir flutning. Einstaklega vandaður gripur.


Heimildir: Ben Gray á Facebook. Sem er líka eigandi og seljandi að þessum demanti. Myndir fengnar að láni hjá Ben Gray.

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Nátengt efni!

Vagninn sem tilheyrði Marian drottningu 1670Vagninn sem tilheyrði Marian drottningu 1670

0 Comments

Varðveittur í konungshöllinni í Matrid!


Þessi vagn tilheyrði Marian drottningu Austurríkis sem var seinni eiginkona Filippus IV konungs.

Um er að ræða eitt elsta varðveitta eintakið af því sem þekkt er sem „stóri vagninn“.

Vagninn varð lúxusvagn, sem Frakkar smíðuðu fyrstir með, og varð vinsæll við konungshirðar um alla Evrópu.

Flokkast vagninn í barokkstíl vegna stærðar hans.

Nýjungin er að farþegarýmið er fulllokað með glerjuðum gluggum.

Skreytingarnar eru víða snúningar og svanahálsar.

Fjöðrunin er leðurbelti eða -borði.

Húsið var byggt milli 1670 og 1680 með lituðum hnotuharðvið og palo santo sem er og var notaður sem reykelsi, sennilega vegna lyktarinnar. Innréttingin er flauelsklæði útsaumað með silfurþræði.