Tag: sonur

Órómantískt romanfólk í Kent-aðstæður á Corke´s MeadowÓrómantískt romanfólk í Kent-aðstæður á Corke´s Meadow

0 Comments

Heillandi svarthvítar myndir sýna líf farandfólksins á Corke’s Meadow sem settist að í Kent á sjötta áratugnum

Heillandi myndir og raunsannar fanga líf farandfólks sem bjó í Kent á sjötta áratugnum og eru lýsandi dæmi um þann stað sem fólkinu var ætlað í samfélaginu en fáir vildu vera gestgjafar þessara sála yfirleitt og gengu Nazistar fremstir í flokki þar með nafngiftum sínum og miskunnarlausri framkomu sinni við þennan hóp samfélagsins sem og marga aðra. Nazistar héldu orðinu Síguni/Gypsies á lofti þannig að það festist í sessi.

Skrifað af Friðrik Kjartansini eigand þessa vefssvæðis.


Ljósmyndablaðamaðurinn Bert Hardy, sem fæddur var í London, tók svarthvítu myndirnar sem birtust í safni sem bar heitið The Unromantic Gypsies.

Börn að hnefaleika í sígauna-búðum í Kent, Englandi, 1. júlí 1951.

Eins og allir drengir vilja þessir Sígauna-strákar spreyta sig í hnefaleikum.

Með hvatningu frá vinum sínum berjast þeir á Corke’s Meadow.

Roman-kona og -stúlka í hjólhýsi sínu í búðum á Corke’s Meadow í Kent, júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Hulton Archive/Getty Images).

Gamall Roman-maður spreytti sig á hefðbundinni iðn Rómana, málmbraski (ruslmálmasölu), í búðunum á Corke’s Meadow í Kent 25. júlí 1951 (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Móðir þvær barn sitt í Roman-búðum í Corke’s Meadow, Kent, 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Getty Images).

Romanakona og barn í búðum á Corke’s Meadow í Kent, júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Hulton Archive/Getty Images).

Hópur Romanfólks í tjaldbúðum á Corke’s Meadow í Kent, júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Hulton Archive/Getty Images).

Hópur Roman-fólks í tjaldbúðum á Corke’s Meadow í Kent, júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Hulton Archive/Getty Images).

Hópur Roman-barna í tjaldbúðum á Corke’s Meadow í Kent, júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Hulton Archive/Getty Images)

Roman-fólk í tjaldbúðum í skugga gasklukkunnar á Corke’s Meadow í Kent þann 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Roman-börn leika sér í sóðalegum og yfirfullum tjaldbúðum á Corke’s Meadow í Kent, 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Lítil Romani-stúlka situr við hjól á hjólhýsi og heldur á dúkku, 28. júlí 1951.

Föt hennar eru skítug og andlitið óhreint.

Hún er ein af þrjú hundruð úr hópi hústökufólks á Corke’s Meadow í Kent.

Í hópnum eru sannir Sígaunar, betlarar, flækingar og farandverkamenn (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Roman-kona greiðir flókið hár sonar síns fyrir utan tjald sitt í búðum á Corke’s Meadow í Kent þann 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Tvær Roman-konur fægja silfurmuni sína á tröppum hjólhýsis síns í Corke’s Meadow-búðunum í Kent þann 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Getty Images)

Aldraður Roman-maður í útilegu á Corke’s Meadow í Kent, 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images)

Roman-fjölskylda á tröppum hjólhýsis síns í Corke’s Meadow-búðunum í Kent, 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Ung Roman-kona í búðum á Corke’s Meadow í Kent, 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Roman-kona eldar kvöldmat í járnpotti sem hangir yfir opnum eldi í Corke’s Meadow-búðunum í Kent 28. júlí 1951. (Mynd: Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Ein af 300 Roman-manneskjum sem bjó á Corke’s Meadow í Kent, 28. júlí 1951.

Hinir sönnu Sigunar óttast tvennt, yfirvöld og að búa í húsum.

Það fyrra er þegar orðið að vandamáli og þeim stendur ógn af því síðarnefnda. (Mynd eftir Bert Hardy/Picture Post/Getty Images).

Nátengt efni!

Arfleið Romanfólksins að lokinni heimstyrjöldinni seinni

Örsýn inn í líf Roman-fólksins 1900


Heimild: designyoutrust.com

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

„Beinahristir“ reiðhjól frakkans Paul Nadar um 1865„Beinahristir“ reiðhjól frakkans Paul Nadar um 1865

0 Comments

,,Beinahristir”

Unglingurinn Paul Nadar (1856-1939), sonur hins fræga franska ljósmyndara Felix Nadar, situr á reyðhjólinu (beinahristir)1 sínu um miðjan sjöunda áratug 19. aldar.

Myndin er fengin með leyfi frá Þjóðarbókhlöðu Frakklands.

Ef þú heldur áfram að fletta í gegnum nokkrar myndir í viðbót kemstu að Felix Nadar, frægum frumkvöðli í ljósmyndun og loftbelgsfara frá París… þetta er sonur hans.

Það er líka til mynd frá 1856/57 af Paul á brjósti móður sinnar eða fóstru, tekin þegar hann var ungbarn.

Frásögn: The Daguerreian Dandy.


  1. Breinahristir voru þessi farartæki kölluð af samtímafólki (Bone Shaker) ↩︎

Heimild: Daguerreian Dandy – Ljósmyndun 19. alda Facebook

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Viktorían hennar Shirley Temple #3Viktorían hennar Shirley Temple #3

0 Comments

8 fjaðra vagn með fjórar C-fjaðrir og fjórar sporöskjulaga blaðfjaðrir

Viktoría er franskur vagn að uppruna nefndur eftir Viktoríu drottningu árið 1844.

Hann var fyrst fluttur inn til Englands af prinsinum af Wales (aka Edward VII, elsti sonur Viktoríu og Alberts) árið 1869 þegar C-Spring sporöskjulaga kerfinu var bætt við hönnunina.

Victoria C-Spring vagninn okkar var notaður af 20th Century Fox í kvikmynd sinni A Little Princess frá 1939 með Shirley Temple í aðalhlutverki.

Það hefur meira að segja stafir kvikmyndafyrirtækisins verið málaðir undir sætinu!

Komdu og láttu fara með þig alla daga frá 10:00 til 16:00 og lærðu allt um spennandi heim 19. og snemma 20. aldar hestaflutninga!

Við elskum að halda sögunni lifandi!



Merking 20th Century Fox!


Heimild: Northwest Carriage Museum Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is