Tag: skoðun

Hansen Wheel Wagon shop í USA segir vefsíðueigand álit sittHansen Wheel Wagon shop í USA segir vefsíðueigand álit sitt

0 Comments

Fékk svar við fyrirspurn um hvort heimilt væri vagnsmiðana vegan að þýða og byrta efnið!

RE: Restorations, Roundups & Shop Projects
sent af:hansenwheel.com

Sæll Friðrik,

Kærar þakkir fyrir hlýleg skilaboð og fyrir að deila þýðingunni á vefsíðunni þinni.

Okkur þykir einstaklega vænt um að sjá þessari sögu deilt með öðrum og það er dásamlegt að vita að fólk á Íslandi sé líka að fræðast um hestvagna og sögu þeirra.

Bloggið þitt lítur frábærlega út og við kunnum svo sannarlega að meta þá vinnu sem þú leggur í að hjálpa til við að varðveita og miðla þessari sögu.

Við munum svo sannarlega hafa þig í huga þegar fleiri sögur sem gætu vakið áhuga lesenda þinna koma upp.

Takk aftur fyrir ígrundaða vinnu þína og fyrir að hafa samband við okkur – það er okkur mikils virði!

Með þökkum!

Bréfið á frummálinu

Hi Friðrik,

Thank you so much for your kind message and for sharing the translation on your website.

We love seeing this history being shared with others, and it’s wonderful to know that people in Iceland are also learning about horse-drawn vehicles and their stories.

Your blog looks fantastic, and we truly appreciate the effort you’re putting into helping preserve and pass along this history.

We’ll certainly keep you in mind as more stories come up that may be of interest to your readers.

Thank you again for your thoughtful work and for reaching out to us—it means a lot!


Höfundur bréfs: Hansen Wheel and Wagon Suður Dakota 40979 245th Street

Letcher, SD 57359

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!Mælieiningar Dauðadalsvagnanna!

0 Comments

Tvær mikilvægar teikningar um Dauðadals/Borax vagnana!

Milli 1883 og 1889 skiptu tuttugu múldýr spennt fyrir vagna sköpum við að flytja borax frá Death Valley til Mojave, Kaliforníu.

Þessi flutningsaðferð var skipulögð með múldýrum. Múldýrin skiluðu af sér 264 kílómetra eða 165 mílur til að komast að þar sem járnbrautarteinarnir enduðu.

Staðreyndir um vagnana


Hlutverk vagnanna var að flytja 10 „stutt“ tonn af borax í ferð. USA þyngdareining. Jafngildir 20,000 lb avoirdupois eða 9,071,85 kg sem stutt toon (short ton).

Vagnarnir voru með afturhjólum sem stóðu 2.1336 metra (sjö fet) á hæð, með 2,54 sentimetra eða 1 tommu þykkum járngjörðum á hjólum, smíðaðir upp úr gegnheilli eik.

Rýmið um borð var 4.8768 metrar (16 fet) á lengd og 1.8288 metrar (6 fet) á dýpt og hver tómur vagn vó 3.538 kíló (3.53802 tonn).

Vagnlestin, sem spannaði yfir 54.864 metra (180 fet) með múldýr í eftirdragi til vara, samanstóð af þremur vögnum sem urðu að vera til staðar svo hægt væri að fara af stað.

Fremsti vagninn, „Trailer“ og seinast „Back Action“, og allra síðast var vatnsflutningatankurinn.


Teymisstjórinn var ábyrgðarmaður á stjórn teymisins, notaði langan taum sem kallaður var „Skíthælslína“-1 og langa svartormasvipu.

Hann var venjulega að stjórn við vinstra hjólið og gat teymisstjórinn einnig stjórnað bremsunni frá vagnsætinu niður bratta brekku.

„Skiptirinn“ sem venjulega sat í vagninum stjórnaði bremsunni á mishæðóttu landi.

„Skiptirinn“ var líka með fötu af litlum steinum til að grýta múlhestana til hlýðni. Báðir deildu mennirnir með sér ábyrgð, þar á meðal að undirbúa liðið, sinna þörfum múldýranna og sinna dýralæknis- eða viðgerðarmálum.

Hádegisstopp leyfði að fóðra og vökva múlhestana þótt þeir væru enn beislaðir, og á kvöldin voru múlarnir settir í búr með fóðurkössum.

Ferðalag hvers dags var yfirleitt 10,6 kílómetrar eða nálægt 17 mílum, sem olli því að ferðin aðra leiðina tók um það bil tíu daga. Fyrirtækið sem rak þessa „útgerð“ útvegaði skála á næturstoppum fyrir ökumenn og múldýrin.


Söguleg frásögn Remi Nadeau, „Fraktteymi Nadeau í Mojave“, leggur áherslu á yfirburði múlhestanna til notkunar í eyðimörkinni og undirstrikar mikilvæga hlutverk þeirra í að flytja borax með góðum árangri.

Með því að skilja flutninga, forskriftir og rekstrarstjórnun tuttugu múldýra sem var beitt fyrir vagnana fáum við innsýn í þá ótrúlegu viðleitni sem auðveldaði flutning á borax seint á 19. öld.

Norður-Bandaríkja þyngdareining sem jafngildir 2.000 lb avoirdupois (907,19 kg). nafnorð: stutt tonn


Smelltu á Google Ngram Viewer til að sjá nákvæmari tímalínu og stærri!

Google Ngram Viewer

Heimild: History Shortcut á Facebook

Skráði og þýddi: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Að sjóða nafið eða ekki?Að sjóða nafið eða ekki?

0 Comments

Grein frá 1884 þar sem trésmiðurinn spyr útgefanda nafsins (the Hub, the Nave) áhugaverðra spurninga!

Að sjóða nafið!

Millville, O, March 1884 Spyrjandi

Spurning trésmiðs:

Hver er þín skoðun á að sjóða nafið (the hub) í léttari farartækjum þar sem hægt er að hafa efnið þykkara (öflugra)? Hvort getur orðið að betra hjóli, 1 tommu pílári rekinn í þurrt naf eða sama píláraþykkt rekin í soðið naf, og virkar límið eins vel í soðnu nafi?

Hvaða gerð af lími er best að nota hvítt eða gult? (Ekki er vitað hver munurinn er á hvítu og gulu lími sem notað var 1884).

Yðar einlægur trésmiðurinn.

Við trúum ekki á það að sjóða nafið, né mælum við með að hafa nafið of þurrt. Ef nöfin eru soðin er hægt að reka pílárana í þau af meira afli, þar sem þau eru mýkri og teygjanlegri, en eftir að pílárinn er rekinn í mun náið þorna í fyrri náttúrlega stærð og pílárarnir munu valda yfirálagi sem veldur svo aftur klofningi á nafinu.

Okkar bestu hjólasmiðir hafa nafið eins þurrt og hægt er áður en þeir reka pílárana í nafið; gæta skal að nákvæmri þyngd slaga í að reka pílárana í náið í þurru ástandi og er það þannig bara fyrir þjálfaða smiði. Til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að nafið klofni er gott að dýfa nafinu í heitt vatn smá stund til að taka þurrkinn úr yfirborði nafsins.


Annar leiðinlegur þáttur þess að sjóða nafið er það að límið vill ekki loða eins vel við og við í þurrum viði þegar efnið harðnar, svo sem í álmi eða valhnotu, límið leysist einfaldlega upp í vatninu á náinu og verður því ónothæft. Gott lím er það lím sem er með bestu viðloðunina. Við höfum séð bæði hvítt og gult lím jafn lélegt í þessum tilfellum. Við mælum með að velja besta límið sem markaðurinn býður upp á, sjóðið svo tvo valhnotubúta og límið þá saman, látið bíða í 24 tíma og þá rífið þá í sundur á límingarsvæðinu.

Þá sjáið þér hvort límið er fyrsta flokks eða ekki. (Mun líklega ekki gefa sig á límfletinum ef límið er gott).

Heimildir: The Carriage Monthly, april 1884 (útgefin í heimildarbókinni) Wheelmaking wooden wheel design & construction

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is