Sauðfjárbúið var hornsteinn fortíðar dreifbýlisins
Falin í hjarta vesturhluta Nýja Suður-Wales er Brenda-búið/stöðin meira en bara bújörð.
Hún er kafli úr arfleifð áströlsku öræfanna/dreifbýlisins (outback).
Brenda var stofnuð um miðja 19. öld og varð ein af stærstu sauðfjárbúum svæðisins, þekkt fyrir gríðarstórar hjarðir sínar, þrautseiga verkamenn og harðgert, sólbrunnið land.
Staðsett nálægt Goodooga, á bökkum Bokhara-árinnar, var Brenda mikilvægur hluti af blómstrandi ullarframleiðslu Ástralíu á tímabili þegar merínóull var gull og fjárrekstrarmenn voru lífæð landsins.
Lífið á Brenda var aldrei auðvelt.
Það einkenndist af einangrun, hugvitssemi og hreinni þrautseigju.
Hjarðmenn unnu frá sólarupprás til sólarlags, smöluðu á hestbaki, rúðu undir bárujárnsþökum í 40 stiga hita og börðust við flóð, elda og þurkka.
En þetta var líka staður órofa tengsla milli manns, hunds og hests og vitnisburður um seiglu dreifbýlissamfélaga sem byggðu Ástralíu upp frá grunni.
Saga Brenda snýst ekki bara um sauðfé og kjarr heldur fjallar hún um fólkið sem þraukaði, nýskapaði og miðlaði áfram hefð þrautseigju og stolts.
Hvort sem þú manst eftir Brenda frá rúningsdögum, póstferðum eða fjölsögum sem sagðar voru við arineldinn, er eitt víst að nafnið er ritað í rauða moldina í sögu dreifbýlisins (the outback).
Mallina-býlið/stöðin
Mallina-stöðin er beitarland sem var eitt sinn sauðfjárbú en er nú rekið sem nautgripabú í Vestur-Ástralíu.
Ull lestuð á Malina-stöðinni um 1910.
Mallina-stöðin er beitarland í Vestur-Ástralíu sem var eitt sinn sauðfjárbú en er nú rekið sem nautgripabú. Hún er staðsett við Peawah-ána í Pilbara-héraðinu í Vestur-Ástralíu.
Stöðin var ein af elstu beitarlöndunum í norðvesturhlutanum, en Withnell-fjölskyldan tók landið á leigu seint á áttunda áratug 19. aldar eða snemma á þeim níunda.
Gull fannst á eigninni í janúar 1888. Jimmy og Harding Withnell voru að vinna á landinu þegar þeir sáu hrafn sitja í nestisboxinu sínu.
Jimmy tók upp stein til að kasta í hrafninn og tók eftir ljósi sem endurkastaðist af gullögnum. Þetta var einn af fyrstu skráðu gullfundunum í norðvesturhlutanum.
Árið 1910 stóð rúningartímabilið yfir í 9 vikur og framleiddi 450 ullarbagga og það var síðasta árið sem handklippur voru notaðar á Malina-stöðinni (SLWA).
Hreyfing á Claverton-býlinu/stöðinni
Claverton-stöðin er sögufræg 20.077 hektara (49.610 ekra) eign við Warrego-ána, staðsett við Mitchell-þjóðveginn 22 km sunnan við Wyandra og 75 km norðan við Cunnamulla í Queensland.
Allt að fimmtán hestar drógu flatan tréfleka hlaðinn að minnsta kosti 35 böggum af rúlluðri merínóull. Þessir baggar eru jafnt og þétt pakkaðir í risastóra saumabagga og festir með sterkum reipum. Umbúðirnar voru merktar með nafni þeirrar stöðvar þar sem ullin var framleidd.
Bæjarnafnið Cunnamulla er dregið af Cunnamullah sem Samuel Smith stofnaði árið 1863 en það er frumbyggjanafn á djúpri tjörn í Warrego-ánni. Mynd: Ullarbaggar frá Claverton-stöðinni hlaðnir á vagna með verkamönnum í nágrenninu – um 1897. Heimild: Queensland ríkisskjalasafnið
Ómerktar almennar myndir af ullarflutningi
Heimild: Australian Stockman’s Hall of Fame and Outback Heritage Centre Facebook
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Grein frá 1884 þar sem trésmiðurinn spyr útgefanda nafsins (the Hub, the Nave) áhugaverðra spurninga!
Að sjóða nafið!
Millville, O, March 1884 Spyrjandi
Spurning trésmiðs:
Hver er þín skoðun á að sjóða nafið (the hub) í léttari farartækjum þar sem hægt er að hafa efnið þykkara (öflugra)? Hvort getur orðið að betra hjóli, 1 tommu pílári rekinn í þurrt naf eða sama píláraþykkt rekin í soðið naf, og virkar límið eins vel í soðnu nafi?
Hvaða gerð af lími er best að nota hvítt eða gult? (Ekki er vitað hver munurinn er á hvítu og gulu lími sem notað var 1884).
Yðar einlægur trésmiðurinn.
Við trúum ekki á það að sjóða nafið, né mælum við með að hafa nafið of þurrt. Ef nöfin eru soðin er hægt að reka pílárana í þau af meira afli, þar sem þau eru mýkri og teygjanlegri, en eftir að pílárinn er rekinn í mun náið þorna í fyrri náttúrlega stærð og pílárarnir munu valda yfirálagi sem veldur svo aftur klofningi á nafinu.
Okkar bestu hjólasmiðir hafa nafið eins þurrt og hægt er áður en þeir reka pílárana í nafið; gæta skal að nákvæmri þyngd slaga í að reka pílárana í náið í þurru ástandi og er það þannig bara fyrir þjálfaða smiði. Til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að nafið klofni er gott að dýfa nafinu í heitt vatn smá stund til að taka þurrkinn úr yfirborði nafsins.
Annar leiðinlegur þáttur þess að sjóða nafið er það að límið vill ekki loða eins vel við og við í þurrum viði þegar efnið harðnar, svo sem í álmi eða valhnotu, límið leysist einfaldlega upp í vatninu á náinu og verður því ónothæft. Gott lím er það lím sem er með bestu viðloðunina. Við höfum séð bæði hvítt og gult lím jafn lélegt í þessum tilfellum. Við mælum með að velja besta límið sem markaðurinn býður upp á, sjóðið svo tvo valhnotubúta og límið þá saman, látið bíða í 24 tíma og þá rífið þá í sundur á límingarsvæðinu.
Þá sjáið þér hvort límið er fyrsta flokks eða ekki. (Mun líklega ekki gefa sig á límfletinum ef límið er gott).
Heimildir: The Carriage Monthly, april 1884 (útgefin í heimildarbókinni) Wheelmaking wooden wheel design & construction