Tag: raf

Vagnaumferðin og hrossamykjuvandamál 1894 #1Vagnaumferðin og hrossamykjuvandamál 1894 #1

0 Comments

Uppfært 6. mars 2026

Mikla vagnaumferðin og hrossamykjuvandamálið 1894.

Á 18. öld voru jafnvel smábæir eins og Kingston, Twickenham og jafnvel Richmond að vakna upp við frekar ósmekklegt borgarvandamál – hrossaskít um götur.

Þetta var þó lítið miðað við vandamálið sem byrjaði að koma upp í stórum bæjum og borgum.

Í lok 1800 voru bæir og borgir um allt land að

drukkna í hrossastaði

vegna þess að í auknum mæli urðu íbúarnir háðir hestum til að flytja bæði fólk og vörur.

Til að setja það í samhengi má benda á að á 19. öld voru yfir 11.000 Hansom-leiguvagnar á götum London einum saman.

Það voru líka nokkur þúsund hestavagnar, sem hver þurfti 12 hesta á dag, sem gerir samtals yfir 50.000 hesta sem flytja fólk um borgina á hverjum degi.


Því til viðbótar voru enn fleiri hestvagnar og þungaflutningavagnar um stræti borgar sem þá var stærsta borg í heimi.

Jafnvel í smærri bæjum eins og Richmond, þar sem tiltölulega fáir hestar voru til samanburðar, skapaði það samt vandamál.

Helsta áhyggjuefnið var auðvitað mykjumagnið sem skilið var eftir á götunum.

Að meðaltali mun hestur framleiða á milli tæp 7 og tæp 16 kíló af mykju á dag, svo lesandinn getur ímyndað sér hversu stórt vandamálið er.

Hver hestur framleiddi líka um 2 lítra af þvagi á dag og til að gera illt verra voru meðallífslíkur vinnuhests aðeins um 3 ár.

Því þurfti einnig að fjarlægja hestahræ af götum bæja og borga.

Hræin voru oft látin rotna svo auðveldara væri að saga þau í sundur til að fjarlægja þau.


hrossamykja

Málið kom af krafti í umræðuna þegar The Times 1894 spáði…

Eftir 50 ár munu allar götur í London verða grafnar undir rúmlega 90 sentímetra af mykju.

Þetta varð þekkt sem

stóra hestaskítskreppan 1894.

Hins vegar þegar vandamálið var verst var björgunin í formi uppfinningarinnar eða bílsins.

Sem betur fer byrjaði Henry Ford að smíða bíla á viðráðanlegu verði.

Rafmagnssporvagnar og vélknúnir almenningsvagnar birtust einnig á götunum í stað hestavagnanna.

1912 hafði það sem áður virtist óyfirstíganlegt vandamál verið leyst og vélknúin farartæki urðu aðaluppspretta flutninga.


Heimild: Bill Taylor á Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is