Tag: notaðir

Olíuflutningar í Vestur-Virginíu #2Olíuflutningar í Vestur-Virginíu #2

0 Comments

Nokkrar gerðir vökva fluttar í einum tankvagni!

1899 var olíuflutningur í Eckman, McDowell-sýslu og um allt fjallaríkið enn framkvæmdur með fjórhjóla vögnum.

Þessir sterkbyggðu vagnar voru notaðir til að flytja og afhenda brennsluolíu og steinolíu frá járnbrautarstöðvum til viðskiptavina fram á þriðja áratug 20. aldar.



Samkvæmt Henry Ford-safninu voru sumir þessara vagna með þrjú aðskilin hólf til að geyma steinolíu, smurolíu og bensín.

Í Petroleum History Almanac kemur einnig fram að

tankvagnar voru algengir í þéttbýli og dreifbýli frá síðari hluta 10. áratugar 19. aldar fram á þriðja áratug 20. aldar.

Í bók hans frá 1977, Discovering Horse-Drawn Commercial Vehicles, segir höfundurinn D.J. Smith að slíkir tankvagnar hafi verið notaðir af stórum olíu- og jarðolíufyrirtækjum á fyrstu árum 20. aldar.

Hins vegar voru þeir nógu fjölhæfir til að flytja ýmsa vökva í lausu, þar á meðal vatn og paraffín.

Eckman, óskipulagt samfélag í McDowell-sýslu, Vestur-Virginíu, er staðsett meðfram U.S. Route 52, vestan við Keystone.

Það var áður þekkt sem Shawnee Camp.


Texti fenginn að láni: Hatfield and McCoy Feud Facebook
Heimild: WVRHC; Mynd birt af Vicki Thomas frá West Virginia History, Heritage and

Þýðing og skráning: Friðrik Kjartansson og erlendur.is

Yfirlestur: malfridur.is

Nátengt efni!
Olíuflutningavagn #1

Texti undir myndum!

Viktoria #1Viktoria #1

0 Comments

Uppgerð í upprunalegu ástandi eins og ný!

Súper vel uppgerð Viktoría, í toppstandi, fallega bólstruð.

Lítið og sætt sæti fyrir blómastúlku og dreng í fremri hluta farþegarýmis.

Smíðaár er ekki tilgreint né framleiðandi eða vagnsmiður.

Sérstaklega passlegur vagn í brúðkaup, skrúðgöngur og kynningarviðburði.

Sérstakt verð líka eða £3450.

Er staðsett í Blackpool.


Það vita kannski flestir en Viktoria var skírð eftir Viktoríu fyrrverandi Englandsdrottningu.


Reisn og stíll yfir þessum fallega vagni.


Hér sjáum við niðurfellanlega barnasætið fyrir aftan kúsksætið.

T.d. er Milod með svipað sæti og Pæton svo einhverjar tegundir séu nefndar.


Glæsileiki!


Fer vagninum vel að hafa „húddið“ (blæjuna eða skerminn) uppi.


Hér er Viktorían fyrir uppgerð og hafa sennilega verið notaðir tveir vagnar í að endurbyggja hana því á bílkerrunni er önnur Viktoría.


Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is