Tag: hlutabréfamarkaður

Ágrip af sögu StudebakerÁgrip af sögu Studebaker

0 Comments

Stórbrotin saga einkaframtaks!

Í árdaga Studebakerfyrirtækisins í febrúar 1852 var aðstaðan lítil og boðið var upp á járningar á hestum ásamt viðgerðum á hestvögnum. Fáein verkfæri, þau nauðsynlegustu, voru til við stofnun og samtals 68 dollarar var útlagt hlutafé í fyrirtækið.

Faðir Studebaker-bræðranna hafði kennt þeim í litlu vagnasmiðjunni í Ashland, Ohio.

Á fyrsta starfsárinu voru tveir vagnar smíðaðir.

Mikil harka var sett í að vekja athygli á sér í nærliggjandi bæjum og fylkjum.

1857 gerðu þeir samning við herinn í Utah, sem gerði þeim kleift að rísa upp á við.

Þeir höfðu verið viðurkenndir erlendis! (segir textinn beinþýddur en líklega átt við í öðru fylki).

Þeir notfærðu sér vel hvert tækifæri sem bauðst og töpuðu hlutunum aldrei niður eða fengu stór bakslög í reksturinn.

Studebaker var skráð á hlutabréfamarkað 1868 og þörfin á vinnuaflinu hjá þeim óx í raun, næstum eins og náttúruafl.

Fyrirtækinu var skipt upp í nokkrar deildir og vinnuaflið endaði í 1860 manns það ár.


Smíði og framleiðsla hestvagna hjá Studebaker einskorðaðist fyrst bara við vagna (Wagons) en snemma í sögu fyrirtækisins bauð þeim að smíða líka hestvagna til fólksflutninga sem voru meðal fínni hágæðavagna á þeirra tíma mælikvarða.

Teikningar sem fylgja þessari grein sýna aðstöðu fyrirtækisins í byggingum og leiðandi farartæki smíðuð af fyrirtækinu.

Studebaker framleiddi allar gerðir vagna, svo sem vagna til að aka sér til ánægju, Landau hefðarvagn fyrir forsetann og alla aðra venjulega notkun.

Í vögnunum gat fjölbreytnin frá fyrirtækinu þjónað flestum.

Ekki einungis bændum heldur líka fjallabúum, námum, sléttunum og síðast en ekki síst var þrýst á að þjónusta viðskiptalífið í borgunum.

Innan verksmiðjunnar voru margar deildir sem þjónuðu framleiðslunni: feiti fyrir stál, feiti fyrir steypt járn, Studebaker einkaleyfisvarin spón- kerru (buggy) og kerru (wagon) sæti, spónhlíf að framan og aukahlíf.

Mjög svo nauðsynlegur hluti af Studebaker-framleiðslunni var vatnsúðaravagninn sem gerði fyrirtækið landsfrægt fyrir.

Verksmiðja og vöruhús Studebaker í Chicago talar sínu máli í einu og öllu á teikningunum. Hestvagnasýningarnar eru einstakar, jafnvel í heiminum.

Efri hæðir bygginganna í Chicago eru notaðar til að smíða flottari, meira elegant og dýrari gerða hestvagna, líka fyrir fínni og minni vagnaviðgerðir.

Byggingin er meðal þekktustu bygginga í Chicago og er umkringd frægum húsum svo sem Óperuhúsinu, Chicago klúbbhúsinu á aðra hönd og Listastofnun Chicago á þriðju hliðinni.

Farartæki framleidd af Studebaker sem send voru á heimssýninguna sýndu fram á án efa fallegasta safn sem aðeins eitt fyrirtæki sendi frá sér.

Peningar voru vel nýttir í undirbúning og innkaup á efni fyrir heimssýninguna og allt sem kom að hæfileikum og smekk var ekki skorið við nögl.

Studebaker Bros. MFG CO.,
South Bend, Indiana, U.S.A.

Heimildir

Internet Archive – Illustrated souvenir – [of carriages] Of the Studebaker Brothers MFG.Co. South Bend, Indiana, U.S.A.

Þýðandi og skrásetjari: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur/malfridur.is