Tag: hilla

Hansen Wheel & Wagon Shop gerði upp fjárhirðavagnHansen Wheel & Wagon Shop gerði upp fjárhirðavagn

0 Comments

Uppfært 14. April 2026. Nýtt Jane Gilvay. Þýdd grein um uppruna og þróun fjárhirðavagna. Skrolla niður!

Bréf til Hestvagnasetursins með handverksfréttum úr USA.

Sendandi: Hansen Wheel & Wagon Shop, Suður-Dakota

Sæll Friðrik Kjartansson.

Nú þegar helgin er gengin í garð langaði okkur að deila með þér nokkrum hápunktum, sögum og fréttum af verkstæðinu.

Hvort sem þú ert að slaka á heima eða að koma þér aftur á strik eftir annasama viku vonum við að þú hafir gaman af þessari innsýn í verkefnin, söguna og handverkið sem veitir okkur innblástur á hverjum degi.


Þegar þú gengur inn um hina fallegu tvískiptu hurð – með opnanlegum glugga og flugnaneti – tekurðu strax eftir bogadreginni hálfhillu sem situr snyrtilega í horninu vinstra megin við þig.

Á sama vegg er rofi fyrir útiljósið staðsettur þannig að hægt er að ná til hans bæði innan úr vagninum og jafnvel af jörðinni fyrir utan.

Glæsileg eikartunna með krana bætir við bæði sveitalegum stíl og hagkvæmni.

Bremsulúgan lokuð
Bremsulúgan opin

Ef þú skoðar hliðarbekkinn vel sérðu litla, næstum falda hurð sem opnast og afhjúpar hefðbundna bremsu.

Þegar stöngin er ekki í notkun er hægt að fjarlægja hana og loka hurðinni til að halda öllu snyrtilegu.

Sætisskápurinn opin
Sætiskápur lokaður

Tveir stór hliðarrými veita aukið geymslupláss.

Svefn- og dvalarsvæðið snýst um drottningarstærð dýnu sem er komið fyrir á sérsmíðuðum ramma.

Í rammanum eru innbyggðar ýmsar snjallar geymslulausnir: tvær litlar skúffur á hvorri hlið, stórar skúffur á hvorum enda með klassískum skálahandföngum og tvöfaldar hurðir undir sem veita aðgang að aftara geymslurýminu.

Útdraganlegt borð með eigin stuðningsfæti er snyrtilega geymt undir rúminu, tilbúið til að draga út þegar komið er að því að elda, vinna eða borða saman.

Fyrir ofan liggur hangandi slá með færanlegum krókum meðfram miðjubitanum sem gerir þér kleift að hengja upp hluti þar sem þér hentar best.

Öðrum megin hangir leðurslíður og hinum megin er rennandi luktarkrókur.

Í hjarta vagnsins stendur glæsileg, fornleg fjögurra hellna viðareldavél, ásamt loftslá og krókum til að halda eldunaráhöldum skipulögðum fyrir ofan eldavélina og skápasvæðið.

vagn

Í fallegum búrskáp er hnífahaldari og kryddhilla sem eykur bæði notagildi og sjarma.

Hver er þín uppáhaldsútfærsla eða innréttingarhluti?

Viltu að við deilum nokkrum myndum af útsýninu þegar þessi vagn er kominn á nýja heimilið sitt?



Fjárhirðavagnar og mótun bandaríska vestursins

Eftir Jane Gilvary. 17. febrúar 2026

Einsamall fjárhirðir á hásléttum Wyoming vaknar við lyktina af viðarreyk sem liðast úr ofnpípu og jarm sauðfjár rýfur þögnina í óbyggðum.

Hann býr í sex sinnum tólf feta færanlegum búðum: fjárhirðisvagni, upprunalega litla húsinu á hjólum í Wyoming.

Fjárhirðisvagninn, útsjónarsöm frumherjauppfinning og varanlegt tákn um þrautseigju Vestursins, bauð upp á færanlega lausn fyrir lífið á beitilöndunum, allt frá vaxandi sauðfjárrækt seint á 19. öld til nútíma tjald- og lúxusútilegu.

1.69.2722 Fjárhirðavagn; viðgerð og endurgerð lokið af Rawhide Johnson árið 1997. Gjöf frá Quintin Blair-fjölskyldunni.

Uppruni á hásléttunum

Hið harðneskjulega líf fjárhirðisins krafðist færanlegs skjóls og bækistöðvar til að flytja hjarðir yfir afskekkt landsvæði í alls kyns slæmu veðri.

Líf fjárhirðisins, sem einkenndist af einveru, árvekni og tíðum flutningum, krafðist skynsamlegs skjóls fyrir veðri og vindum.

Flestir sagnfræðingar rekja uppruna fjárhirðavagnsins til Rawlins í Wyoming þar sem kanadískur járnsmiður, James Candlish, smíðaði þann fyrsta eftir hugmynd frá vini sínum, George Ferris.

Innan skamms fóru fjárbændur víðs vegar um Wyoming, Montana og Idaho að útbúa fjárhirða sína með fjárhirðavögnum, sem gerði þeim kleift að fylgjast betur með hjörðum sínum og flytja sig árstíðabundið milli sumar- og vetrarhaga.

1.69.2722 Smalavagn; viðgerð og endurgerð lokið af Rawhide Johnson árið 1997. Gjöf frá Quintin Blair-fjölskyldunni.
Smíðað fyrir óbyggðirnar

Snilldin á bak við hönnunina liggur í fyrirferðarlitlu og einföldu skipulagi, sambærilegu við nútíma

teardrop

hjólhýsi.

Fyrstu vagnarnir voru með undirvagn úr viði, Studebaker-hjólabúnaði og viðarhjólum.

Í notalegri innréttingunni var lítið rúm, viðareldavél, geymsluskúffur og niðurfellanlegt borð.

Eins og sagnfræðingurinn Nancy Weidel bendir á í bókinni Sheep Wagon: Home on the Range, er hvert rými nýtt

með nýjungum eins og krókum til að hengja upp föt eða kúrekabúnað.

Engir tveir vagnar voru nákvæmlega eins.

Þessi landnemagerð af Airstream-hjólhýsinu var með tvískiptri hurð til loftræstingar og bogadregnu strigaþaki sem síðar vék fyrir tini til að auka endingu og hlýju.

Menning á faraldsfæti

Eftir því sem sauðfjárrækt breiddist út um vestrið jókst eftirspurn eftir faglærðu vinnuafli til að sinna bæði hjörðunum og hinum nýstárlegu vögnum.

Basknesku innflytjendurnir, einn af áhrifamestu innflytjendahópunum sem mótuðu sauðfjárrækt í vesturríkjum Bandaríkjanna, komu frá Pýreneafjöllunum á Norður-Spáni og í Suður-Frakklandi.

Þar sem búgarðseigendur þurftu áreiðanlegt vinnuafl pössuðu Baskarnir vel við ímynd sauðfjárhirðisins: vinnusamir og úrræðagóðir.

Sumir Baskar komu einnig frá hirðingjasamfélögum í Evrópu og höfðu þekkingu sína með sér.

Basknesku hirðarnir, sem voru skilvirkir og sjálfbjarga, hjálpuðu til við að betrumbæta hvernig búgarðseigendur stjórnuðu og útveguðu sauðfjárvagna, um leið og þeir gáfu tungumál sitt og siði áfram til næstu kynslóða.

Að sögn Nancy Weidel nutu baskneskir hirðar svo mikillar virðingar að orðið

Baski

varð að lokum samheiti yfir

sauðfjárhirði.

Árlegir viðburðir eins og Þjóðhátíð Baska í Buffalo í Wyoming fagna gríðarlegu og varanlegu framlagi Baska til sauðfjárræktar.

Fjárhirðirinn Jack Scott spilar á gítar í vagni með hundi, um 1930. Ljósmynd eftir Charles J. Belden; glerplötunegatíva. MS 3 Charles Belden Collection. PN. 67.370 (smáatriði).

Landamerkjastríð

Þótt baskneskir fjárhirðar hafi mótað sauðfjárræktina með erfiði og sjálfsbjargarviðleitni leiddi hraður vöxtur sauðfjárbúskapar almennt til beinna átaka við rótgróna nautgriparæktendur.

Hinar víðáttumiklu sléttur Bandaríkjanna virtust endalausar og stór landsvæði voru enn óbyggð.

Þrátt fyrir það blossaði upp spenna milli fjárhirða og nautgriparæktenda, sérstaklega í Wyoming þar sem fjárhirðar ráku hjarðir sínar á beit.

Sam Hanna, aðstoðarsafnstjóri Buffalo Bill-safnsins, segir:

William F. ‚Buffalo Bill‘ Cody lýsti þessu í bréfi frá 1903 til yfirmanns landmælingaskrifstofunnar og fyrrverandi ríkisstjóra Wyoming, William A. Richards, þar sem hann bað hann um að gera eitthvað í sauðfjárbeit á Cody-svæðinu.

Hann skrifaði að dýrin myndu ‚eyðileggja landið‘ og að aðeins tvær hjarðir gætu ‚gert Norður- og Suður-árgöngin ofan við Cody að auðn.

Deilurnar snerust um aðgang að beitilöndum almennings.

Nautgriparæktendur, sem höfðu ráðið yfir opnum beitilöndum í áratugi, töldu landið sitt vegna hefðar og venju.

Síðan komu fjárhirðarnir, sem nautgriparæktendur sökuðu um ofbeit, mengun vatnsbóla og að eyðileggja landið með hvössum klaufum sauðfjárins.

Þessi spenna kveikti röð beitilandastríða um allt vestrið sem oft urðu ofbeldisfull og brutu niður rómantíska ímynd hins

friðsæla

opna beitilands.

Einn dramatískasti og mannskæðasti atburðurinn átti sér stað í Spring Creek-árásinni árið 1909, þegar sjö nautgriparæktendur réðust á fjárbúðir nálægt Ten Sleep í Wyoming.

Þeir drápu þrjá fjárhirða og eyddu vögnum og búfé.

Í sögulegum réttarhöldum voru fimm árásarmenn sakfelldir – fyrsta ákæran sem náði fram að ganga gegn árásarmönnum á fjárhirða í Wyoming.

Sagnfræðingurinn John W. Davis frá Worland útskýrir:

Sakfellingarnar í Spring Creek-árásinni bundu enda á ofbeldið sem beitt var gegn fjármönnum í Wyoming. Eftir 1909 urðu aðeins tvær minniháttar árásir í öllu fylkinu og enginn slasaðist í hvorugri þeirra.

Frá nauðsyn til nostalgíu

Ofbeldið í sauðfjárstríðunum dvínaði með tímanum en mesta umbreyting greinarinnar varð vegna framfara.

Eftir seinni heimsstyrjöldina mótuðu ný tækni og efnahagslegar breytingar sauðfjárbúskapinn.

Fjórhjóladrifnir vörubílar komu í stað hesta og vagna og betri girðingar drógu úr þörfinni fyrir langvarandi smölun á opnum beitilöndum.

Um 1960 var fjárvagninn orðinn minjar um liðna tíð.

Á hjólum inn í 21. öldina

Þótt tímabil fjárvagna sé löngu liðið hefur nýr sess sprottið upp: endurgerð og endurnýting þessara sögulegu vagna sem hagnýtra afþreyingarhúsa.

Margir eru nú útbúnir með vönduðum innréttingum og öllum nútímaþægindum húsbíls.

Í dag flykkjast borgarbúar vestur í leit að upplifun af

opnum beitilöndum

og lúxusútgáfa fjárvagnsins veitir einmitt það.

Eitt slíkt dæmi er K3 Guest Ranch í Cody, sem býður upp á fullkomlega endurnýjaðan fjárvagn frá 1897 frá Worland í Wyoming sem einstakan gistimöguleika.

Eigandinn Jerry Kincaid segir að

innviðir vagnsins haldi upprunalegri hönnun fjárhirðavagns frá 19. öld, en með nokkrum endurbótum fyrir gesti, svo sem þægilegu rúmi, loftkælingu, hita og rennandi vatni.

Arfleifð á hjólum

Endurbætur færs handverksfólks á borð við Rawhide Johnson í Cody gegna mikilvægu hlutverki í að varðveita arfleifð villta vestursins fyrir komandi kynslóðir.

Johnson gerði upp smalavagninn sem nú er til sýnis í Center of the West.

Sá vagn veitti eitt sinn smölum frá Two Dot-búgarðinum nálægt Cody, en hann er frá árinu 1910.

Verk hans umbreytti minjum frá upphafi 20. aldar í landbúnaðarminnisvarða um horfinn lífsstíl.

Á verkstæði Johnsons við Meeteetse-hraðbrautina í Cody má finna fagmannlega endurgerða smalavagna (og póstvagna) sem eru smíðaðir til að heiðra mikilvægan grip úr sögu villta vestursins.

Smalavagnar eru kannski ekki eins áberandi á fjallstindum og í dölum vestursins og þeir voru eitt sinn, en arfleifð þeirra lifir áfram á söfnum og í endurnýjuðum fjallakofum eins og K3 Guest Ranch.

Þegar þessi litlu hús á hjólum fá nýjan tilgang á okkar tímum varðveita þau lífshætti sem mótuðu villta vestrið og minna okkur á harðgeran landnemalífsstíl sem einkennir Wyoming.

Heimild fyrir Fjárhirðavagnar og mótun bandaríska vestursins : Buffalo Bill Center of the West

Höfundur Frásagnar: Hansen Wheel & Wagon Shop

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Brougham á safni lýst #2Brougham á safni lýst #2

0 Comments

 

Hefðbundinn einfaldur Brougham að mestu leyti, með hyrnu (skáhorni) [franska aðferðin].

Ferhyrnt svartlituð ljósker með ávölum hornum. Brougham-ljósker. Ljóskerin eru úr Brassi (kopar); á þeim eru (loftræsting) skorsteinar en eru skrúfaðir fastir á vagninn (á framhornin, súlurnar) hefðbundnar sérstakar vagnaskrúfur.

Kertahaldarahlífarnar eru týndar (vísað til vagnsins á The Carriage Foundation mynd efst á síðunni „Söguágrip Brougham”) og það eru göt á botninum, líklega til að tengja inn rafmagnsvíra. Þessi Brougham (vísað er til vagnsins á The Hálfmána-fjöður. Carriage Foundation mynd efst á síðunni „Söguágrip Brougham”) er byggður á ,,hálfmána” fjöðrun framan og aftan. Þessi Brougham er með opið farangursrými.

Bremsurnar eru viðarblokkir sem passa vel við hjólbogann og bremsuhaldfangið er kopar (brass) slegið. Litaskemað er þannig að þakið, efri panel bodysins, lægri panel og hjólin og undirvagninn eru í bláu með rauðum röndum (lining).

Stíllinn á málningarverkinu sýnir að þessi vagn (vísað til vagnsins á The Carriage Foundation mynd efst á síðunni „söguágrip Brougham“) var síðast málaður af málara sem þekkti meira til verslunarfarartækja en farþegavagna. Hins vegar eru rauðu rendurnar á venjubundnum stöðum á listum og skrautlistum. Blátt ullarklæði er nýlegt á einu sætinu. Kúsk (ökumanns) sætið er dökkblátt með leðurklæði aftan á bakinu, brúnirnar eru dökkbláum breiðum blúndum beggja megin.

Á fótstiginu er ný gúmmímotta. Inni í vagninum (vísað til vagnsins á The Carriage Foundation mynd efst á síðunni „söguágrip Brougham“)

er hann bólstraður með djúphnöppuðu svörtu morocco-leðri.

Samsvarandi ljóst þykkbólstrað í efri hluta hússins í vagninum. Það eru svartir morocco-vasars á báðum hurðunum, festir aðeins að ofan. Á framvegg farþegarýmisins er bólstrað með dökkbláu ofnu ullartweed.

Það er fótahvíla á bak við bogið borð með hillu fyrir ofan í leggjahæð barns, hvílandi á litlu hjarahengdu sæti sem er fest á fremri hlið sætisborðsins.

Hæla- og fótahvílan upp að hillunni er klædd með teppi. Það lítur út fyrir að teppið hafi slitnað á hurðasillunni, sem er núna klætt með leðri. Á gólfinu er ný riffluð gúmmímotta (en hefur upphaflega verið klædd með orginal teppi). Breiðu blúndurnar eru af þremur mismunandi hönnunum. Tvöfaldar lykkjur til handfestu þegar stigið er inn og út og breiður blúndurammi á hurðunum með grísku lyklamynstri og þríhyrningamynstri á brúnum.

Gluggastrengirnir eru með svipuðu munstri en með bylgjumunstri á brúnunum. Ytri gluggastrengurinn á framglugganum er með tvöföldu sik-sak lagi. Innri gluggastrengurinn er horfinn. Smágerðari blúndur passa við breiðu línurnar og dökkbláu ,, taffeta” fjaðradýnurnar sem eru sniðnar fyrir hvern einasta glugga. Það er öskubakki og upphengja fyrir regnhlíf á framveggnum í farþegarýminu.

Áritanir á vagninum: Á öxulhettunum er áletrunin: BAKER & Co CHANDOS ST


Heimildir ásamt myndum fengnar hjá: www.thecarriagefoundation.org.uk

Þýðandi og skrásetjari Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is