Tag: flokka

Vínuppskeruvagn: Sannanirnar fyrir víngerð í S-Frakklandi eru frá 425 f.Kr.Vínuppskeruvagn: Sannanirnar fyrir víngerð í S-Frakklandi eru frá 425 f.Kr.

0 Comments

Uppfært 12. apri 2026.

Frakkland 1910, vínberjatínslumaður, autochrome-litmynd úr safni Alberts Kahn

Vín og Frakkland: Stutt yfirlit

Skrifað af Stefan K. Estreicher. Janúar 2023.

Ágrip og myndir

Elstu fornleifafræðilegu sannanirnar fyrir víngerð í Suður-Frakklandi eru frá árinu 425 f.Kr.

Vínrækt var stunduð meðfram Miðjarðarhafsströnd Frakklands þegar Rómverjar komu þangað (á annarri öld f.Kr.) og blómstraði alls staðar þegar þeir fóru (á fimmtu öld e.Kr.).

Í nokkrar aldir hurfu langferðaviðskipti nánast alveg og innviðir lögðust í rúst.

Arðbær vínrækt var að mestu staðbundin og í höndum auðugs aðals og kirkjunnar.

Eftir fyrstu aldamótin uxu bæir í borgir og millistétt myndaðist.

Á tólftu öld urðu vínviðskipti við England mikilvægari.

Vín voru flutt út frá Rouen, Nantes, La Rochelle og síðar Bordeaux.

Klausturreglur réðu yfir frjósamasta landinu, sérstaklega í Champagne og Búrgúndí.

Á þrettándu öld varð Languedoc hluti af Frakklandi.

Á tímum páfastólsins í Avignon voru nýjar vínekrur gróðursettar, einkum í Châteauneuf-du-Pape.

Eftir endurreisnina bættu vísindarannsóknir smám saman vínrækt og víngerð.

Að lokum var gerjun skilin.

Hollendingar juku vínviðskipti til muna.

Þá voru fyrstu freyðivínin, eimuðu vínin og grámygluvínin framleidd af ásettu ráði.

Óformleg röðun Bordeaux-vína leiddi til hinnar frægu flokkunar árið 1855.

Seint á nítjándu öld breyttu náttúruhamfarir, sérstaklega vínlúsin, Frakklandi í stærsta víninnflutningsland heims.

Óvönduð og blönduð vín urðu algeng, sem skaðaði orðspor allra franskra vína.

Heimsstyrjaldirnar tvær, kreppan mikla og bannárin drógu saman markaðinn fyrir vín.

Leiðin út úr því fólst í ströngu gæðaeftirliti og mikilli vinnu.

Næsta vandamál gæti vel orðið hlýnun jarðar.

Heimild: researchgate.net/


Heimild: New England Region/Carriage Association Of America
Nick Buck, Facebook.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2Viktoría C. Fjarða 8 fjaðra vagn #2

0 Comments

Smíðaður af Morgan & Co. London 1865

Uppfært 14. mars 2026.

C – fjarðirnar líka með sporöskjulaga blaðfjarðir fara Viktoríu. 8 fjaðra vagn.

Fara vel enda er þessi vagn listasmíði og safn-fínn!

Bólstrunin er fagmannleg og bara falleg alla leið. Litli glugginn aftan á húddinu/blæjunni er líka á sínum stað.

Boglaga sætið efst á myndinni er til þæginda fyrir kúskinn/ökumanninn og tryggir rétta setstöðu til verndunar bakinu.

Stóra svarta járnstöngin með flatjárninu á endanum er bremsustöngin og kúskurinn/ökumaðurinn notar fótinn til að virkja bremsurnar en bara á afturhjólin.

Ekki var algilt að hestvagnar væru með bremsum og oftar en ekki þótti það óþarfi.

Bremsuskaftið er svona langt til að ná ákveðnu vogarafli á bremsukerfið í undirvagninum og þar með öflugri virkni.

Járnverkið í vagninum er vægast sagt fyrsta flokks! Fallegar C-fjaðrir.

Hér sést vel hvernig sporöskjulaga blaðfjaðrirnar koma saman undir C-fjöðrunum.

Taktu eftir leðurbeltinu sem er lagt alla leið yfir C-fjaðrirnar og niður í strekkjara sem notaður er til að slaka eða herða á til að fá mismunandi eiginleika, meiri stífleika eða meiri mýkt út í fjöðrunina, með sér lykli sem passar á endann á strekkjarnum.

Hefðbundinn staður fyrir stimplun framleiðanda.

Annar staður gæti verið á enda öxulsins eða plata á yfirbyggingu vagnsins.

Það síðastnefnda er sjaldgæfast.

Vel hannað uppstig, bretti og líka vel unnin alla leið.

Ljóskerin eru líka alvöru með strompi og bara falleg. Takið eftir litla þrepinu fyrir kúskinn.

Hér að framan sést samtengingin sæmilega milli C-fjaðranna og sporöskjulaga fjaðranna.

Fimmta hjólið (beygjuhjólið) er líka sjáanlegt þótt það sé ekki skýrt.

Litla hringlaga platan fyrir framan hjólið er þrep ásamt hjólnafinu til aukinna þæginda fyrir kúskinn að stíga upp í ökumannssætið.

Lítil panna er á gólfinu til að hirða hugsanlega fitu/olíu sem fellur af fimmta hjólinu en það þarf alltaf að vera smurt en þó hóflega.



Heimild: Bob Vanden Berghe Facebook

Skráning og þýðing: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is