Tag: evrópa

Garðvagn Keisaraynjunnar Önnu LoannovuGarðvagn Keisaraynjunnar Önnu Loannovu

0 Comments
Portrett af Önnu Ioannovnu keisaraynju. Sankti Pétursborg, 1913. House of Fabergé, meistari H. Wigström, listamaður Zuev Vasily Ivanovich. Gull, silfur, brilliant, rósslípnir demöntar, purpurine, stál, gler, túrkís, bergkristall, bein, vatnslitur, glerung. Steypa, glerung, vatnslitir, elting, leturgröftur, guilloché, bláun, gylling. Gjöf Nikulásar II keisara til Alexöndru Fyodorovnu keisaraynju um páskana 1913.

Tveggja sæta opinn vagninn fyrir Önnu Loannovnu keisaraynju síðan 1730 í Rússlandi.

Samsetningin, innréttingar og samanburðargreiningar á svipuðum vögnum staðfestir þessa tímagreiningu.

Tilheyrði Önnu Ioannovna keisaraynju. 1797 var það flutt frá Sankti Pétursborg til Moskvu-hestvagnagarðsins og keypt af vopnageymslu (Moscow Coach Yard) 1834.

Það er ómögulegt að segja með vissu hvar vagninn var smíðaður.

Verkstæðin á þeim tíma voru til staðar bæði í Sankti, Pétursborg og Moskvu.

Hins vegar sanna skjölin að á árunum 1728-1732 höfðu bestu vagnsmíðameistararnir yfirgefið Sankti Pétursborg og fluttu í kjölfarið keisaraembættið til Moskvu eða annarra höfuðborga Evrópu.

Á sama tíma héldu verkstæðin í Kreml í Moskvu áfram virku starfi sínu.

Á birgðaskrá frá 1770 yfir reiðtygi og hestvagna sem varðveitt er í vagnagarðinum í Kreml er minnst á garðvagninn sem hafði verið yfirfarinn hér snemma á 18.öld sem

fyrirmynd að nýjum svipuðum útbúnaði.

Samkvæmt þessu og öðrum gögnum frá hallarhesthúsum kanslara, var þessi vagn líklega smíðaður af meisturum Kreml í Moskvu.

Vagninn er opinn fyrir tvo, ekki lokaður né með hurðum.

Farartækið geislar af Barokkoeinkennum og er glæsilegt.

Yfirbyggingin er með fínum bogalímum að ofan ásamt neðri hluta yfirbyggingarinnar.

Innréttingin er úr gullhúðuðum og sniðnum bylgjuskífum, útskornum léttarskeljum, laufblöðum og einnig málverki.

Á úthliðunum er merki rússneska ríkisins og kvenfígúra í ramma af bókrollum og kertum á grænum bakgrunni.

Af táknmyndinni að dæma er myndin Anna keisaraynja.

Sjá má tilraun í málverkinu til að miðla líkingu við fyrirmyndina.

Andlitsmyndir fóru að birtast í vagnasmíði á fyrsta fjórðungi 18. aldar.

Vagninn er ekkert sérstaklega íburðarmikill og innréttingin ekki mjög glæsileg.

Þessi dálítið óvenjulega meðferð á umgjörð keisaraveldis skýrist líklega af því að farartækið var aðeins notað til að rúnta um hallargarðinn.

Þetta kemur aftur á móti líka fram í byggingu vagnsins.

Hann er lítill og með efnismiklum og breiðum hjólum til að spilla ekki og sökkva í stíga hallargarðsins.

Málverk á hlið yfirbyggingarinnar. Portrett af Önnu Ioannovna (?) Garðs opinn vagn. Moskvu, 1725-1730.

Útfærsla skreytingarinnar kunni að hafa verið ákveðin af þeim sem sá um vagninn.

Skjöl í vopnabúrinu staðfesta að vagninn hafi verið gerður fyrir Önnu keisaraynju í Moskvu.

Bólstrunin var endurnýjuð ekki löngu síðar en 1740.

Áklæði af grænu ullarefni var skipt út fyrir daufari lit af rauðleitu flaueli.

Þetta er einnig staðfest af eftirlifandi bútum af græna áklæðinu.

Vagninn var endurbyggður 1994. Hann hefur nú fengið sína upprunalegu mynd enn og aftur með áherslu á fágun.


Heimild: Moscow Kremlin Museums: – GARDEN OPEN CARRIAGE

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Forn vegur horfins samfélags #3Forn vegur horfins samfélags #3

0 Comments

Á áttunda áratug tuttugustu aldar afhjúpuðu fornleifafræðingar merkilegan steinaldartréveg nálægt Nieuw-Dordrecht í Hollandi.

Þessi forni vegur, sem er tilkomumikill 4.573 ára, teygir sig í að minnsta kosti 800 metra.

Með því að lesa með ákveðinni vísindalegri aðferð í tréð, hafa sérfræðingar tímasett smíði hennar til 2.549 f.Kr.

Þessi uppgötvun dregur ekki aðeins fram háþróaða verkfræðikunnáttu síðari hluta steinaldar, þegar slípuð steinvopn og áhöld voru ríkjandi, heldur býður einnig upp á ómetanlega innsýn í samgöngur þeirra og viðskiptahætti.

Varðveisla vegarins í mýrkenndum jarðveginum hefur veitt sjaldgæfa innsýn í fágaða innviði forsögulegrar Evrópu.


Hreimild: Farmer Trade Facebook

Þýddi og skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Elgir og Vísundar og fleiri ekki venjubundin dráttardýr #1Elgir og Vísundar og fleiri ekki venjubundin dráttardýr #1

0 Comments

Í Alaska og Kanada voru Elgir furðu vinsælir og næstum venjubundin.

Uppfært 27. mars 2026.

Elgir náðu furðu langt í vinsældum en hestar hafa verið venjubundnir til að draga vagna ásamt öðru í gegnum aldirnar.

Aðferðafræði og sálfræði þess að beita uxum fyrir vagn

Venjubundin dýr á eftir koma uxar, múldýr og asnar.

Allir voru þeir nokkuð venjubundin þegar draga átti farartæki.

Hvernig á að stjórna Uxum fyrir vagni

Hér eru nokkur minna þekkt dýr sem notuð voru til að draga farartæki í Ameríku og Evrópu á 19. öld. og snemma á 20. öld.

Í Alaska og Kanada voru elgir furðu vinsælir, sérstaklega þar sem erfiðara var að finna hesta eða komast út á þessum einangruðu og villtu stöðum.

Í óbyggðum Ameríku voru vísundar og elgur tamdir að vissu marki.

Svo áttum við sebrahesta vinsæla meðal yfirstéttarinnar í Evrópu og Bretlandi.

Frá 1890 til 1940 var augljóslega einbeitt viðleitni elítunnar til að temja sebrahesta frá Afríku.

Sebrahestar voru þjálfaðir til að draga farartæki og jafnvel til reiðar, allt þó ekki til mikillar velgengni.

Um 1940 höfðu flestir aðalsmenn gefist upp á að temja sebrahestinn og létu sér nægja að láta hann eftir villtan og óstýrilátan eins og náttúran ætlaðist til.

dráttardýr

Ég elska að halda sögunni lifandi!


Heimild: Northwest Carriage Museum á Facebook.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og Erlendur

skráði: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is

Rómverskur hestvagn sautján alda gamall!Rómverskur hestvagn sautján alda gamall!

0 Comments

Steingerðar leifar rómversks tveggja hjóla hestvagns í Króatíu

Vinkovci er bær í Austur-Króatíu og í nágrenninu er lítið þorp, Stari Jankovaca, en svæðið var undir yfirráðum Rómverja 300–400 eftir Krist.

Fornleifafræðingar grófu upp heillega steingervinga af tveggja hjóla vagni, þekktur á latínu sem Cisium = léttur hjólavagn, ásamt steingerðum beinagrindum af hestum.

Hestarnir og vagninn voru saman í rými sem greinilega var nokkurs konar haugur þekktur úr greftrunarsiðum víkinga að leggja til höfðingja í skipum sínum sem eru sjaldgæfir greftrunarsiður meðal Rómverja.

Vel efnuð fjölskylda mun hafa greftrað hesta og vagn með þessum hætti samkvæmt fræðimönnum en auðmenn þessara tíma voru stundum greftraðir með þessari aðferð með hestunum sínum.

Sviðstjórinn Boris Katofil útskýrði fyrir þarlendum fjölmiðlum að sá siður að grafa í kumli (forngrafhaugur) væri óvenjuleg aðferð þarna suður af Pannoinan-vatnasvæðinu.

Boris bætti við: Siðurinn er í tengslum við afar auðugar fjölskyldur sem hafa gegnt áberandi hlutverki í stjórnsýslunni, félagslegu og efnahagslegu í samfélaginu í héraðinu.

Fundurinn er talinn vera frá þriðju öld e.Kr. en teymi vísindamanna vinnur að því að staðfesta aldurinn.

Marko Dizdar sagði þetta einstaka uppgötvun í Króatíu.

Hann sagði: Það næsta sem unnið verður að er langt ferli hreinsunar og varðveislu fundarins samhliða rannsóknum og skilgreiningum.

Við höfum meiri áhuga á hestunum, hvort sem þeir eru ræktaðir hér eða koma frá öðru heimsveldi, sem mun segja okkur meira um hversu mikilvæg og auðug þessi fjölskylda var.

Við finnum út úr því með samvinnu við innlendar stofnanir sem og fjölda evrópskra stofnana.

 

Heimild: Dailymail.co.uk

Þýddi og skrásetti: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is