Hefðbundin miðdegisstaða fyrir nautgripabændur. Engir eldar loga og flestir að melta eftir kássu eða salt svínakjöt og kex sem er skolað niður með kaffi. Nautgripahjörð þurfti beit og hvíld eftir akstur morgunsins sem hófst fyrir kl. 6. Fengið að láni hjá John Clark á Facebook.
Hefðbundin miðdegisstaða fyrir nautgripabændur. Engir eldar loga og flestir að melta eftir kássu eða salt svínakjöt og kex sem er skolað niður með kaffi. Nautgripahjörð þurfti beit og hvíld eftir akstur morgunsins sem hófst fyrir kl. 6. Fengið að láni hjá John Clark á Facebook.
Kúrekar að njóta matartíma við eldhúsvagninn sinn (Chuck Wagon) einhvers staðar í USA. Mynd fengin að láni frá Old West Remembered Facebook.
Ameríska vestrið, Sýn úr vestrinu Texas 1909. Chuck Wagon eða eldhúsvagn á íslensku. Dæmigerður Chuck Wagon. Frá Erwin Evans Smith ásamt J. Paul Getty Safninu.
Wayne’s Wagon Works in Amarillo,Texas, er með þennan. John Deere Triumph chuck wagon.
Myndir fengnar að láni á Wagon Masters Facebook
John Deere Triumph uppgerður og fínn með eldhúsi (Chuck Wagon), bogum, bremsum, kúsksæti, fótaskemli, grönnum trjábolum til að tjalda, sennilega yfir aftan við eldunaraðstöðuna. Verkfæra- eða birgðakassi með loki, fram á undir fóthvílunni.
Fyrir neðan myndir fyrir uppgerð og svo neðst nokkrar eftir viðgerð
Liturinn á yfirbyggingunni er fölur, svona eins og við myndum kalla það í dag, hálfþekjandi.
En líklega er þetta málað með Seed Olíu eða lífrænni olíu og svolítill litur settur í.
Á þessari mynd er vagninn strípaður af öllu sem átti að fylgja honum frá verksmiðju.
Hér sjáum við hvar búið er að saga trébogana á ská að ofan.
Myndirnar af vagninum nýuppgerðum upplýsa hvernig þetta var í upphafi.
Gömul áletrun máluð í gegnum stimpil á sínum tíma
Heillegur og myndarlegur vagn sem gott er að koma í rétt stand.
Hér sjáum við merkilegan hlut, „Skein“ á ensku, járnhólka sem þið sjáið í hverfa inn í hjólnafið báðum megin sem er svo festur með flatjárni undir öxulinn ásamt járnhring utan um endana á járnhólknum innan við nafið.
Hólkurinn (Skein) er líka skrúfaður beint inn í öxulinn í endana bak við hjólnafið þannig að taka þarf hjólin af til að losa þá skrúfu sem er nokkuð löng og við köllum stundum franskar skrúfur.
Þessi útbúnaður tók við af berstrípaðri eik sem var þá slitflötur hjólsins og öxulendi.
Uppgerður að fullu
Teikning af undirvagni fyrir Wagon. Ofan á þetta var hægt að setja margar gerðir af yfir byggingum. Í USA er þessi samstæða kölluð ,,Running Gear”