Governess vagn #1 England & Norður Írland Governess vagn #1Governess vagn #1 FrikkiFrikki 0 Comments Gullfalleg! Húsfrúin, Húsmóðir eða Hússtýran mættu kannski þýða á íslensku. En líklega væri Forstöðukonan næst enska heitinu. Allar tillögur eru vel þegnar kæru lesendur! Þvi miður er smíðaár ekki vitað.Rafpóstur: [email protected] og svo má skrá sig inn á bloggið hér fyrir neðan og mæli ég eindregið með því til að fá líflega umræðu! Dásamlega fallega handverk. Yfirbyggingin ásamt sætisbökunum beygð í gufu ásamt dráttarkjálkunum og aurbrettunum. Sennilega er þessi fallegi vagn úr Aski. Neðarlega að framan á hvoru horni eru svo hulsur fyrir lampana/ljósin. Engar bremsur eru á vagninum. Það er hugsað fyrir öllu sem þarf. Hylki upp úr miðju aurbrettinu fyrir svipuna svo Þessi smekklega grind sem taum -hvíla. Snyrtilega og vel bólstrað, svo er valið á klæðinu fyrsta flokks með tilliti til enska upprunans og tískunnar á blómatíma vagnsins.. Ef við lítum á undirvagninn þá sjáum við að bæði öxullinn og gólfið er niðurfellt ásamt því að fjaðrirnar eru látnar taka hærra á undir yfirbyggingunni. Þetta er svona hannað til að auðveldara sé að ganga út og inn í vagninn. Uppgerð af Charles F. DetrickHeimildir: Myndir fengnar að láni á Carriages for sale and wanted north america only hópur Facebook.Skráning og þýðing: Friðrik KjartanssonPróförk: yfirlestur.is Lesa áfram ...Lesa áfram ...