Wagonett í Barcelona verið vönduð upphaflega en þarf góða yfirhalningu. Smíðaður um 1920. Upprunin í Frakklandi segir núverandi eigandi!Armhvílur og sæti mjög vönduð og allt járnverk líka.Boginn í gólfinu að aftan sýnir einbeitta viðleitni í að vanda það sem lengi á að standa.Aurbretti og tvöfalt uppstig
Húsfrúin, Húsmóðir eða Hússtýran mættu kannski þýða á íslensku. En líklega væri Forstöðukonan næst enska heitinu. Allar tillögur eru vel þegnar kæru lesendur! Þvi miður er smíðaár ekki vitað. Rafpóstur: elonfk@gmail.com og svo má skrá sig inn á bloggið hér fyrir neðan og mæli ég eindregið með því til að fá líflega umræðu!Dásamlega fallega handverk. Yfirbyggingin ásamt sætisbökunum beygð í gufu ásamt dráttarkjálkunum og aurbrettunum. Sennilega er þessi fallegi vagn úr Aski. Neðarlega að framan á hvoru horni eru svo hulsur fyrir lampana/ljósin. Engar bremsur eru á vagninum.Það er hugsað fyrir öllu sem þarf. Hylki upp úr miðju aurbrettinu fyrir svipuna svo Þessi smekklega grind sem taum -hvíla.Snyrtilega og vel bólstrað, svo er valið á klæðinu fyrsta flokks með tilliti til enska upprunans og tískunnar á blómatíma vagnsins..Ef við lítum á undirvagninn þá sjáum við að bæði öxullinn og gólfið er niðurfellt ásamt því að fjaðrirnar eru látnar taka hærra á undir yfirbyggingunni. Þetta er svona hannað til að auðveldara sé að ganga út og inn í vagninn.Uppgerð af Charles F. Detrick Heimildir: Myndir fengnar að láni á Carriages for sale and wanted north america only hópur Facebook. Skráning og þýðing: Friðrik Kjartansson Próförk: yfirlestur.is