1886 smakkaði heimurinn Coca-Cola í fyrsta sinn. Þykkt og bragðmikla sírópið var búið til af John Stith Pemberton í Atlanta, upphaflega ætlað sem lækningatónik sem létti ekki aðeins sársauka veitti aukandi orku og bætti skap. Upprunalega formúlan innihélt tvö lykilinnihaldsefni: kókalauf, sem notuð voru til að framleiða kókaín, og koffín tekið úr hitabeltiskolahnetunni.
Heimild: World Ancient History and Mystery á Facebook
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og Þýðing á Facebook
Fólk af ættbálki Métisa safnaði Vísundabeinum 1886!
Seinni hluta 1700. Áttu afkomendur Métis. Sem upphaflega komu frá Frakklandi. Ættbálkur sem voru skinn kaupmenn ásamt innfæddum Chippewa. Höfðu sín eigin samfélög og menningu. Myndin sem er tekin af F.J. Haynesnálægt Minnewaukan í Norðaustur Dakota. Myndin sýnir einstaka af sinni gerð, tveggja hjóla vagna, Notaðir af Métis samfélaginu. Á ysta hluta hjólanna er engin járnhringur. Sést betur ef þú smellir til að stækka myndina sjáum við líka betur tréöxlanna sem ganga gegn um nafið. Ef við horfum vel á fremri hestinn þá sjáum við að folald er að sjúga móður sína. Vísunda bein voru notuð til að hreinsa sykur og til að búa til áburð til útflutnings til Kína ásamt öðrum vörum. Vísundahjarðirnar voru horfnar árið 1883 en veiðarnar héldu áfram í mörg ár þar á eftir.Margir vagnar Métis fólksins saman kominn í bæjarþyrpingu eða þorpi.Métis fólkið að hvíla sig, líklega er matartími kominn eða komið kvöld og tímabært að hvíla sig.
Heimildir: Old West History & Americas Cultures Facebook Skrásetjari og þýðandi: Friðrik Kjartansson
Á hlaðinu heima í Nebraska 1890. Fengið að láni frá Old Photos á Facebook.
Nýbýlisfjölskylda í Nebraska 1888. Heimild: Fengið að láni frá Old Photos Facebook
Í fjóra áratugi sat fyrrverandi forstöðumaður heimastjórnar, Solomon D. Butcher, fyrir hjá fjölskyldum forstöðumanna og búfénaði þeirra fyrir framan fátæk heimili þeirra í miðhluta ríkisins.
Árið 1886, tveimur árum eftir að William H. Moore Sr. og fjölskylda hans fluttu frá Elkhart-sýslu í Indiana til heimahaganna nálægt Sargent í Custer-sýslu. Butcher ljósmyndaði Hoosiers-hjónin fyrrverandi á heimili þeirra.
Bóndabær í Nebraska, Custer Co 1887.Stórmerkileg mynd.
Fyrir það fyrsta sjáum við hús sem er hlaðið úr torfi og sennilega einhverju grjóti á svolítið annan hátt en Íslendingar gerðu á þessum árum.
Svo sjáum við plóg sem hefur líklega verið með nauðsynlegustu amboðunum ásamt hestunum, uxum og kúm.
Eitthvert af þessum dýrategundum dró plóginn, sem var undirstaða matvælaræktunar og framleiðslu að minnsta kosti fyrir fjölskylduna.
Við sjáum svo Hverfistein svo hægt væri að halda biti í öllum þeim verkfærum sem þyrftu bit.
Síðast en ekki síst, ásamt myndarlegu heimilisfólki, sjáum við hestvagninn, lífæðin fyrir fjölskylduna til þéttbýlisins.
Á hestvagninum virðast vera tunnur sem ábyggilega eiga að innihalda matvæli sem búið er að rækta eða þá aðföng úr þéttbýlinu.
Heimild: Mynd fengin að láni á Old America Photos Facebook.